Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1971 Verzlunin Gyðu, Ásgorði 22 Nýkomið Nærföt og náttföt á börn og unglinga. Til fermingarinnar: Hvítar slæður og kiútar og fleira. Verzlunin GYÐA, Asgarði 22, sími 36161. Skrifstofustúlka Umboðs- og heildverzlun óskar eftir skrifstofustúlku. Helzt vön enskum bréfaskriftum og bókhaldi. Umsókn sendist Morgunblaðinu fyrir 30. marz, merkt: „Heildverzlun — 7217". Samkvœmf heimild skipulagsstjórnar ríkisins auglýsist hér með að tillaga að deiliskipulagi norðan Kársnesbrautar í Kópavogi liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni í Félagsheimilinu við Neðstutröð og í tæknideild bæjarins að Melgerði 10 dagana 29. marz til 10. ma! n.k. Atfcugasemdum við ofangreinda deiliskipulagstillögu og/eða þær breytingar, sem af henni leiðir á aðalskipulagi skal skila á bæjarskrifstofuna eigi siðar en 24. maí n.k. Þeir sem eigi gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan þess tíma teljast samþykkir henni. Kópavogi, 24. marz 1971 Bæjarverkfræðingur Kópavogs. IVIay Fair vinyl veggfóðrið er auðveldara í uppsetningu og endist betur. Það fæst í sígild- um og nýtizku munstrum og lit- um, sem halda ferskum blæ sín- um í áraraðir. May Fair er framleitt í ótrúlegu munsturúrvali, m. a. pálmatré, prentuð á thai-silki, marglitað barnaveggfóður, dökkt veggfóð- ur með Ijósri (reflekterende), moire-rönd, þakin smágerðu filigran munstri, og viðarmunst- ur i miklu úrvali. May Fair vinyl veggfóðrið, sem er ósl tandi og heldur lit sínum árum saman, hefur fengizt hér í nokkur ár. Það er framleitt af einni stærstu vinylverksmiðju í Vestur-Evrópu — Commercial Plastics Ltd. May Fair veggfóðrið er framleitt sem vinylrenningur, pressaður ofan á pappír. Það rifnar ekki við uppsetningu þar sem það er kantskorið, og þarf aðeins að þrýsta lengjunum þétt saman. Ef lim skyldi festast á vegg- fóðrinu, þvæst það auðveldlega af með vatni. Þar sem May Fair dregur ekki í sig raka, þarf að nota fúaeyðandi lím við upp- setningu. Ef skipta á um veggfóður, geng- ur allt eins og í sögu. I stað þess að þurfa að rífa og tæta gamalt pappírsveggfóður af, þá rennur May Fair lengjan af í heilu lagi, aðeins með því að taka í efsta horn hennar. Hinn upprunalegi pappír, sem settur var undir, er fyrirtaks undirlag fyrir næstu veggfóðrun. Enda þótt May Fair sé örlitið dýrara en hið svokallaða þvotta- veggfóður, þá mun það samt sem áður reynast ódýrara. Það rispast ekki eða rifnar, og hægt er að þvo það endalaust. Bezt er að nota venjulegt sápuvatn. Ef málningarblettir skyldu hafa sletzt á veggfóðrið, má ná þeim af með terpentinu. Öðrum slæm- um blettum má ná af með strok- leðri. May Fair veggfóður fæst i hent- ugum lengjum. 10 m á lengd, 53 cm á breidd. Þar sem May Fair er 100% þvottekta og mjög endingargott, má nota það í öll herbergi í húsinu — einnig eld- hús og baðherbergi, MAY FAIR veggfóðrið fæst nú í stórkostlegu úrvali hjá Klœðning hf. Laugavegi 164, og í verzlunum víða um land. Spyrjið um og skoðið hina glæsilegu munsturbók 1971 í verzlunum. — Reykjavíkur- bréf Framhald af bls. 17 i.stast jórnir. Rússum hefur setn sagt verið meira í mun að haida Ceausescu og kommúnistaflofeki Rúmeniu við völd vegna stalán- istískrar afstöðu í innanrikis- málium en varpa þeim fyrir róða vegna smávægilegra tiihlaupa í utanrikismálum. Þetta er þá flokkurinn, sem er svona óskaplega likur Alþýðu- bandaiagin<u og raunar gotit að fá staðtfestingu á því. Megi Al- þýðubandaiagið bera gætfu ti<l að hafa sem allra nánast og augljós ast samband bæði við þennan kommúnistaflokk og aðra. Þá gæti verið að ýmsir, sem nú sjá ekki út úr auga, grilltu í hið rétta andlit Alþýðubandalags- ins undir forystu Magnúsar Kjartanssonar, sem hefur tekizt, eins og flestum öðrum kommún- istaleiðtogum, að hreinsa burt úr sínum röðum alla þá sem óþægir hafa verið og keppinaut ar hans um völdin. Þannig hafa þrír þingmenn hrökklazt úr þingflokki Alþýðubandalagsins frá þvi Magnús brauzt til valda í flokknum — og eru það allsæmi- legar hreinsanir í ekki stærri flokki. Má í því sambandi geta þess til fróðleiks, að þetta jafn gilti þvi, að 7—8 þingmenn Sjálfstæðisflokksins hefðu sagt skilið við hann á undanförnum misserum En sem betur fer er Magnús (hinn mikli) Kjartans- son aðalformaður í þeim flokki sem enginn sannur lýðræðis- sinni hirðir um, hvort minnkar að þingmannatölu um 30% á hverju kjörtímabili. Bezt er fyr- ir íslenzku þjóðina að f-lokikur- iinn sé sem allra minnstur — enda stefnir ai’lt í þá áitt að Magn ús verði innan tíðar eini fulil- trúi hans á Alþingi íslendinga — og ætlar sér augsýnilega að verða síðasti geirfuglinn. Ályktanirnar í Búkarest í fyrrnefndu greinarkorni í Þjóðviljanum segir fulltrúi Al- þýðubandalagsins á æskulýðs- ráðstfefnu kommúnista I Búikar- est, að „ályktanirnar í þinglok (hafi verið) sériega gæfulegar," enda var þar engin álylktun sem fordæmdi innrásina i Tékkósló- vakíu, því síður að lýst væri yf- ir stuðningi við það fólk, sem kúgað er i kommúnistalöndun- um og þá ekki sízt Sovétríkjun- urn, svo að ekiki sé minnzit á Solzhenitsyn og aðra rithöf- unda þar í landi. Reynt er jafn- vel að bera blak af kommúnista- stjórnunum fyrir ritskoðun og andlega kúgun og sagt „að þess ar þjóðir hafa aldrei þekkt það málfrelsi, sem við teljum jafn sjálfsagt og loftið, sem við önd- um að okkur,“ eins og komizt er að orði. En við höfum svo sann- arlega orðið vitni að þvi í ýms- um löndum, að sízt af öllu er sjálfsagt að anda að sér lofti. Þvert á móti er þar allt loft mengað eiturgufu —- og það er slíkt loft, sem rithöfundar í kommúnistalöndunum eru látnir anda að sér ásamt öðru fólki, sem óskar eftir rit- og mál- frelsi og öðruim sjáMsögðum mannréttindum. Og varla getur nokkra atfsökun frá- lieitari en að eðiilegt sé að þjóðir, sem hafa búið við andlega kúgun, geri það enn. Ekki var rit- eða málfrelsi fyr- ir að fara í Þýzkalandi nasism- ans. Nú ríkir fullkomið skoðana frelsi í Vestur-Þýzkalandi og þætti öllum einkennilegt, ef svo væri ekki, einmitt vegna saman- burðarins við Þýzkaland Hitlers. Aftur á móti hefur fé- lagi Ulbricht og kumpánar hans haldið við þeirri andlegu meng- un, sem Hitler og nasistaböðl- ar hans gerðu að eins konar stefnuskráratriði í Þýzka- la.ndi öllu meðan þeir voru og hétu. Þeir einir hafa haldið uppi þvi merki, sem mesti böðull mannkynissöguninar reisti. En þó er frúnni ekki alls varnað. Hún segir að „fólk er þar (í Búkarest) áberandi ver klætt en í borgum Vestur- Evrópu . . . laun eru mjög lág . . . fólk virðist þvi hafa harla lítil peningaráð" o.s.frv. En svo er enn reynt að bera í bætifláka fyrir alla þessa miklu fátækt: það tjóar litið að meta ástandið eftir okkar högum! „Við verð- um að gera okkur grein fyrir, að fyrir nokkrum áratugum var þessi þjóð á miðaldastigi í öllu tilliti." Svo mörg eru þau orð. En spyrja má; hvað ætli séu mörg ár síðan ísland var fátækasta land í heimi? Hverjum dytti í hug að afsaka fátækt þjóðar nú með fátæktinini fyrr á öldium? Ætli t.a.m. Flokknum á Islandi, sem á svo „margt sam- eiginlegt" með kommúnista- ffliokkuai'um í Ausfur-Evrópu hefði ekki þótt ærin ástæða til að hefja — ekki aðeins „blóðugt stríð," eins og talað er um í fyrmefndri Þjóðviljagrein, heldur heilagt stríð gegn þeim stjórnarvöldum, sem svo hefðu brugðizit hiluitveiki siíinu á ísiandi á undaniförnum árum? Páskaferðin: Mallorka London Brottför 7. apríl (miðvikudagskvöld fyrir skírdag). Þér veljið um dvöl á fyrsta flokks hótelum, meðbaði, sundlaug og svölum, eða nýtízku íbúðum með isskáp og öllum þægindum. (Fullbókað í íbúðir, en nokkur pláss enn laus á hótelum). Skrif- stofa SUNNU á Mallorka annast fararstjórn og fy rirgreiðslu. Flogið beint til Palma, og dvalið þar í tvær vikur. Tveir sólarhringar i London á heimleiðinni. Vegna hinna mörgu frdaga tapast að- eins 9 vinnudagar í 17 daga ferð. MALLORKA er fjölsóttasta ferðamannaparadís Evrópu. Sólskin og góður hiti, hvítar strendur og volgur sjór. Þér getið notið hvíldar og ánægju á fyrsta flokks hótelum og notið lífsins á skemmti- stöðum. Ferðast um fagurt landslag, eða skroppið með skemmtiferðaskipi til Barcelona, stærstu borgar við Miðjarðarhaf (stundar sigling eða 25 mín. flugferð). Tveir dagar í London á heimleið- inni ómissandi fyrir þá, sem langar til að sjá skrautið, vaktaskipti hjá lifverði drottningar, eða þá sem vilja sækja leikhús eða óperu, eða skoða hin viðfrægu vöruhús heimsborgarinnar. Pantið strax meðan enn er hægt að fá pláss á góðum hótelum í hinni vinsælu páskaferð SUNNU til Miðjarðarhafsins. sunnaj ferðaskriistofa bankastræti7 símar 16400 12070

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.