Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1971 3 sinfóníu hans og Bruckner sagói: — Stórkostlegt! Loksins þarf ég Schalks ekki lengur við. — Franz Schalk var að- eins fimmtán ára 1877 og mér hefur þvi œtíð fundizt þessi saga heldur vafasöm. Handrit Natalie ýtir sannleikanum fram i dagsljósið. Saga þessi kemur Mahler ekkert við, þótt hann segði hana oft. Málið snerist í rauninni um útsetningu eftir Hermann Behn, lögfræðing i Hamborg og vin Mahlers, sem vann með Bruckner í Vín mörg- um árum siðar. Flestir ævisöguritaramir hallda því fraim, að Bertnhaird, faðir Mahiers hafi verið „fri- hyggjugyðingur" og skýra oft með þessum fróðleik afstöðu Gustavs til Gyðingdómsins og jafnvei siðbúna kúvendingu hans til kaþólskrar trúar. En Igiaublöðin og nokkrar smá- sögur úr handritum Natalie ®ammia, að Beimhard gegndi mikilvægu hiutverki í Gyð- ingasamfélagi Iglau og enn- fremur, að i æsku sinni sótti Gustav bænahúsið að staðaldri. Enda þótt Mahler væri fullljós blekkingin um kynþáttahug- myndir yfirleitt fann hann æv- inlega til skyldleika síns við Gyðingaþjóðina, jafnvei eftir, að hann snerist til kaþólsku. Hann gekk ekki frekar upp i kaþólstouimnd ein hianin hafði gengið upp i trú feðra sinna, eh á því er enginn vafi, að hið gyðinglega rétttrúnaðarupp- eldi hans og menntun hafði töluverð áhrif á skapgerð hans. Það hefur löngum verið talið Mahler til ijóðs, hve mjög hann notaði sér erlendar hug- myndir í verkum sinum og skar sér yfirleitt sneiðar af erlend- ran menningararfi, hvar sem var, væri hann góður. Þetta hefur verið úthrópað frum- ieikaskortur. Afstaðan ætti þó að vera þveröfug. Mahler er í . þessu tilviki forveri þjóð- I sagnatónskáldanna Prókofjeffs | og Bartóks og nýklassíkeranna | Hindeimiiths og Stiravinskýs. Jafnvel Stockhausen kveðst I standa í þakkarskuld við | Mahler sem hann segir hafa: i — sameinað öll hin sundurleitu j öfi, jafnt hversdagsleg og há- I leit i eina heild, sem yfir- | stígur þau. — Formskyn Mahl- ers er einnig frumlegt og lík- ist mjög hugmyndum nútima tónsmiða. 1 stað þess að skipa öllu þvi efni, sem hann hafði safnað saman, i fyrirfram ákveðinn ramma, leit hann á það eem eiina heilld og reyndi að finna form hennar og eðli. Annar misskilningur var þeg- ar kominn á kreik meðan Miahll'er var emm á lífi Hamm var emm biltinari og iilllsbeytJtari vegna þess, að hann átti sér upptök í margþættri skapgerð Mahlers sjáifs og hinni miklu íjölharfni hans og hæfileikum. Staða Mahlers í tónlistarsög- unni er einstæð vegna þess, að jaínframt þvi, sem hann var tónskáld var hann frægur hljóðfæraieikari, leikstjóri og stjómandi. Satt er það að hann tók fyrst að fást við hljómsveit- arstjórn tvítu.gur að aldri og þá aðeins til að hafa i sig og á. Siðan héit hann því áfram til þess að geta komið sínum eigin verkum á framfæri við tónlist- arheiminn. — í>ú hefur rétt fyrir þér —, sagði hann -við Berg árið 1907. — Ætlir þú að semja tónverk, máttu ekki stíga fæti þinum inn i leikhúsið. — En smám saman varð þetta honum nauðsyn. Þessi „hjá- verk" Mahlers eyddu kröftum hans að mestu og nauðugur varð hann þeim háður. Hann kvartaði eft, en eflaust hefur hann vitað með sjáifum sér, að túlkandahiutverkið fullnægði einum þætti eðlis hans. Ævisöguritararnir hafa oft- ast gefið óskýra mynd af Mahier í hlutverki túlkandans. Þeir hafa rætt um Wagners- éstriðu hans, sem entist honum ævina á enda en látið hjá líða að benda á dálæti hans á (r 11 11 11 11 11 11 11 11 11 Heimilistrvgging sem svarar kröfum tímans Skilmólar fyrir hcimiIlisll'ryggirT90r ‘hofa verið endurskoðoðir og bætt inn nokkrum nýjum atriðum og tryggingum, jafnframt hafa tryggingaupphæðir fyrir cbyrgðar- og örorkutryggingar verið hækkaðar. Starfsmenn félagsins eru óvallt reiðubúnir til þess að veito yður aðstoð í tryggingamólum yðar. Aðeins eitt simtal og þér eruð tryggður. 1» ALMENNAR TRYGGINGARf \\_______________P OSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 II II II II II II II II II II II II I I I I II II I I II II II II II II II II II II II II II II I I II II II II II II I I II II I I II I I M V Mozart. Smekk hans má glöggt sjá á prógrammi hans frá Vin- arborg, þar sem hann fékk sjálfur að velja verkin til flutn ings. Efst á listanum er Brúð- kaup Figarós (48 sinnum á tiu árum). Næst kemur Töfraflaut- an (57). Það er fyrst þá, sem Wagner kemur til skjalanna: Rínargull (41), Valkyrjurnar (35), Ragnarök (33). Einnig hefur ekki verið bent sem skyldi á aðdáun hans á Verdi og verkum hans, sérstaklega Falstaff og Aidu sem hann stjórnaði fjórtán sinnum flutn- ingi á í Vin. Hann dáðist einn- ig að Bellini. Natalie kveður Normu hafa verið eina af eftir- lætisóperum hans. Hvað Mahler snerti, þá er flestur sá misskilningur, sem uim hamm heifur omðið, byggð- ur á sannleika að nokkru leyti. Ekki er hægt að neita því, að Mahler var stundum geðvond- ur, bráður, óþolinmóður, óum- burðarlyndur, ofstækisfuilur og ótrúlega kröfuharður. Á hinn bóginn er ekki hægt að neita hinni barnslegu ein- feldni hans, sjálfsafneituninni eða þeirri hugsjón, sem hóf hann yfir gráan hversdagsleik- amm og kom Ihomum þammig hjá hinum „munnlega veikleika", sem hrjáð hefur marga mikla menn. Sumum þeirra, sem þekktu hann í æsku fannst hann metnaðargjarn, kaldrifj- aður og aðeins áhugasamur um feril sinn. En jafnvel lausleg skoðun ævi hans leiðir í Ijós, að takmark hans var háleitt. Aivariegustu rangfærslurnar stafa þó frá konu Mahlers og bókum hennar tveimur, en þær heita „Ævi mín" og „Gustav MaWieir". Þessar ramigfæirsSiuir eru jafnframt hinar áhugaverð ustu, þvi að vegna þeirra þarf heill ævikafli Mahlers endur- skoðunar við. Þýzkar útgáfur þessara bóka eru miklu fyllri en hinar ensku, einkum hvað snertir viðkvæm mái. Skýrasta mynd af Mahler, sem heimurinn á er sú mynd, sem kona hans dregur upp í frásögn sinni af samlifi þeirra. En séu staðreyndirnar bornar saman við útgáfur frú Ölmu á þeim tima, verður maður fljótt Mahler á yngri árum. ósamræmisins var. Hún iýsir Mahier sem heilsulitium manni, ®em ævinQega þjáðist af ein- hverjum minni háttar sjúkdóm um og var síhugsandi um van- heilsu sina. Satt er það, að hann var alla ævi illa haldinn af slæmri höfuðveiki, migreni, og ennfremur af tveimur ólækn andi sjúkdómum öðrum. Annar var smitun í hálsi, sem leiddi tii banasóttar hans, en hinn tolæðingar, sem kröfðust end- urtekinna uppskurða og ollu blæðingu þeirri árið 1901, sem nærri varð hönum að bana. Þrátt fyrir allt þetta vann Mahler alla ævi starf sitt af gifurlegum krafti. Hann aflýsti þvinær aldrei æfingu eða hljóm leikum af heilsufarsástæðum. 1 Hamborg stjórnaði hann rúm- lega 150 hljómleikum á einu leikári og eru þá æfingar ekki taQid'ar með. í Vín stjórmaði hann leikhúsinu, æfði leik- og söngskrána, æfði og sviðsetti óperumar og hafði þó tíma til að ferðast erlendis og stjórna flutningi sinna eigin verka! Á sumrin, er hann var ekki að vinnu, reri hann, synti, gekk á fjöll og fór i langar göngu- og hjóQireiðatferðir. Að nálkvæmri sögn Alfreds Roller kom hann fyrir sjónir, sem grannur vöðvastæltur iþróttamaður. Hann var hófsamur í mat og drykk vegna þess, að hann vildi ekki leyfa neinu að leiða sig af braut æviköllunar sinnar. Frú Alma gerir ekki enda- sleppt við hann, þvi að h*n segir hann hafa verið eigin- gjaman og sjálfselskan mann, sem ekki gat elskað nokkra veru af öllu hjarta. Erfitt væri að afsanna þessar staðhæfing- ar, ef ekki hefðu nýlega fund- izt skjöl sem varpa nýju ljósi á samlíf hjónanna. Meðal þeirra er fullbúið handrit að bók frú Olmiu „Ævi mín með Mahler“, dagbókin, sem hún hélt í til- hugalifinu, nokkrar nýrri færsl ur úr sömu dagbókinni og mörg bréf, sem Mahler ritaði henni. Alma hefur strikað nokkrar klausur út úr þessum bréfum til þess að hylja eitt- hvað, sem kom henni illa. Flestir þeir, sem þekktu Ölmu Mahler fyrr og síðar íéllu fyrir töfrum hennar. Hún var mjög fögur kona, en hún var einníg greind og hafði glöggt auga fyrir þversögnum. Hún var vel að sér um list og virtist geta lesið hugsanir fólks og vegið það og metið samkvæmt þeim. Þótt Mahler hafi verið sjálfs- elskur var Alma þó enn sjálfs- eiskari. Metnaður hennar og æðsta takmark var að lokka, heilla og jafnvel fjötra fólk. Til þessa notaði hún alla kvenlega töfra sína og hún hafði nær ætið sitt fram. Sálar- ró hennar valt á síendurtekn- um sönnunum valds hennar yf- ir öðrum. Ævi hennar var sam- felld syrpa sigra og hún hataði þá, sem stóðust töfra hennar. í dagbók sinni flettir hún of- an af innstu þráðum sálar sinn ar aí óvenjulegri hreinskilni. 1 „.Ævi minni" játar hún, að Alexander Zemlinsky hafi gert allt, sem í hans valdi stóð fil þess að fleka hana. En það er fyrst nú, sem við komumst að raun um, að hún endurgalt til- finningar hans og ennfrem- ur það, að er hún kynntist Mahler var hún yfir sig ást- fangin af Zemlinsky. Hún hafði jafnvel ákveðið að eign- ast barn með honum. Um nokk- urt skeið gat hún ekki gert upp á milli Mahlers og Zeml- inskys. —- Ég er i hræðilegri klipu —, ritaði hún í dagbók sina um sama leyti, — ég hvisla stöðugt: „Ástin mín," en verð- ur svo á að segja: „Alex!" Mun ég nokkum tíma getað elskað Mahler jafn heitt og hann á skilið? Ég er á báðum áttum. Ég veit ekki hvort ég elska hinn mikla stjórnanda, hinn mikla leikstjóra eða mann inn sjálfan. Komi ég einum þeirra úr leik, hverjar verða þá tilfinningar mínar til hinna? Hver verður afstaða mín til listar hans, sem er mér svo framandi? Við kyssumst laus- lega. Hendur hans eru hrif- andi, en mér þykir ekki eins vænt um þær og hendur Alex. Hvað á ég að gera? — Enda þótt þessi innri barátta sé falleg að sinu leyti kom hún ekki í veg fyrir hina venjulegu veiðimennsku Ölmu. Rétt í þann veginn, er Mahler var farinn til Berlínar kom ungur maður, sem var allt í senn: „myndarlegur, ríkur, menntað- ur og músíkalskur," heim til hennar og hótaði að fremja sjálfsmorð, ef hún giftist hon- um ekki hið snarasta. Hún „kenndi í brjósti um hann og ritaði Mahler bréf um þetta. Mahler brást hinn versti við eins og vænta mátti. í desem- ber mánuði árið 1901 sagði hún Zemlinsky, að þau Mahler væru leynilega trúlofuð. Samt sótti hún enn um sinn tónlist- airtima tid Zemdiniskys og dáð iist þá að „vilj'akraiftimum", setm gerði honurri fært að hitta 'haina þrátt fyriir þessi vátegu tiðindi. Kvöld eitt, þegar Mahl er var enn í Berlín fór hún í óperuna og sá þá ungan lækni. Hún dáðist að augum hans, seim wru „svört sem nótt'im" og „löinguim, fögrum hömdum" hans. Hún starði ákaft á hann og þau „litu aldrei hvort af öðru" meðam stóð á bléuirn. Eft- ir þetta settist smáiðrun að Öflmiu, em saimt fainmst hemmi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.