Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.03.1971, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1971 15 £»orsteinn Matthíasson ræðir viö Sæmund Jónsson Viðhorf þeirra tínia var annað- ht^ort strit — eða eymd og ann- arra fors.j-á. Margt Hann er ættaður úr Vestur- Fljótum og ætlaði aldrei þaðan að fara, þó að rás viðburðanna hagaði því þanni.g, að hann fluttist austur yfir Lágheiðina og settist að á Ólafsfjaraðrmöl- um. Hann var bá orðinn roskinn maður .g u- brotaöldur áranna farnar að lækka. Sæmundur Jónsson fæddist að Austara-Hóli í Flókadal 5. október 1895, var hann einn af fjórum systkinum, börnum þein'a hjóna, Jóns Magnússon- ar og Þóreyjar Ásmundsdóttur. Með þeim var hann öll sín upp vaxtarár og á heimili þeirra fram til 29 ára aldurs, en þá var hann fyrir fjórum árum kvæntur Salbjörgu Þorleifsdótt ur frá Búðarhóli í Ólafsfirði. Á þeim árum sem Sæmund- ur ólst upp, var fátæktin víða heimilisíöst, og ekki var auður í búi foreldra hans, þó voru þau fremur veitendur en þiggj- endur. Landbúnaður var uppi- staðan í bjargræði heimilisins. Þá var faðir hans oft ti) sjós, og stundaði auk þess vefnað á vetrum hér og þar á bæjum. Það er margt orðið breytt í Vestur-Fljótum síðan Sæmund- ur komst þar á legg. Um tutt- ugu býli eru komin í eyði, sem þá voru öll í byggð, að visu voru sum þeirra aðeins kot, sem h. ðu upp á i’tla lífsmöguleika en voíu þó sjálfstæð fjöl- skylduheimili. Þá var róið úr Haganesvíkinni og þangað sótti sveitafólkið margan málsverð. Þegar ég var 8 eða 9 ára fór ég í fyrsta skipti um borð í hákarlaskip. Ég var þá með föð ur mínum. Þessi ferð hafði fyr- ir mig örlagaríkar afleiðingar. Skipsmennirnir höfðu gefið mér eitthvað af hörðu brauði. Ég stóð á lúgunni og var að binda það innan i vasaklút, en féll þá aftur á bak niður i lestina, hef sennilega ekki þolað veltinginn á skipinu. Að þessu falli hef ég síðan búið alla mína ævi. Bækl un mín kom þó ekki strax í ljós og ekki minnist ég þess að vera nokkurn dag rúmíastur af þeim sökum fyrst eftir byltuna. Árið 1914 var ég hjá Jónasi Kristjánssyni lækni. Þá voru sérkenni á líkama mínum orð- in talsvert mikil. Sagði hann mér, að þar væri um að ræða afleiðingar byltunnar, sem nú mundi of seint að fá bót á ráð- ið. Ég get varla sagt, að ég hafi lifað þrautalausan dag síðan ég var milli tvitugs og þrítugs og átti því ekki auðvelt með erf- iðisvinnu. En viðhorf þeirra tíma var annaðhvort strit eða eymd og annarra forsjá. Þess vegna herti maður sig upp og vann. En það má vera nokkurt mótstöðuafl, sem ekki lætur bugast af þrautum langrar ævi. Árið 1924 ætlaði ég að verja einu ári til þess að leita mér -— Ei þó hafi auðsöfnun út minn blómstrað haginn. Veitt mér hefur góður guð, glaðan margan daginn. Þegar ég lít til baka og hug- urinn hvarflar vestur í Fljót- in, þá er þaðan margs að minn ast. Lifið var þó ekki alltaf tóiTiur leikur og stundum teflt á tæpasta vað. Meðan við bræður vorum heima á Austara-Hóli fórum við oft tii rjúpna, þvi að af þeim var talsvert i fjalllendinu. Ein- hverju sinni vorum við staddir í svokallaðri Helgustaðabrún. Þar var mikið harðfenni og urð um við að spora okkur áfram. Ég var uppi undir egg en bróð- ir minn var nokkru neðar. Verð ur mér þá litið til hans og sé að hann hefur misst fótanna og rennur á flugferð niður hjarn- breiðuna. Niðri við hlíðarfót- inn vaf stórgrýtisurð og litlar líkur til að sá segði frá tíðind- um, sem hrapaði þangað niður. Ég horfði skelfdur á bróður og þegar að rananum kom fest- ist það milli steina, svo að hann staðnæmdist þarna. Ég komst þangað til hans og urð- um við þá sammála um að fóta okkur varlega yfir á næsta granda og fara þar niður. Við vorum ekki margmálir en áreiðanlega báðum það sama í huga. Þvílík guðs mildi, að ekki varð slys. Það var tíðlegur vani föður míns að taka á eldi. Veturinn, sem ég varð 15 ára var Hjálm- ar í Stórholti kortur með hey og pabbi tók af honum fjórar ær. Um vorið þegar þær voru framgengnar fórum við mamma með þær úr eldinu. Þegar við komum að Fljótaá var hún auð og talsvert vatns- mikil. Ekki man ég hvort hún var þá óbrúuð eða brúin var einhverra hluta vegna ófær yf irferðar, en svo mikið er víst, að við rákum kindurnar með- fram ánni að vestan þar til við komum móts við svonefnda Sökkukeldu austan megin ár- innar. Þar var df.’ilið vik inn í vest- er breytt í Fljótunum lækninga, en var ekki fær um það án styrks, því þá var ekk- ert sjúkrasamlag. Guðlaugur í Haganesvík hafði haft spurnir af sérfræðingi syðra, sem ef til vill gæti eitthvað fyrir mig gert. Aðrir sögðu að skynsam- legra væri að leita til Akur- eyrar. Um þetta var svo ágrein ingur, sem varð þess valdandi, að ég fór aldrei neitt. Þegar það stóð tíi í fyrstu að ég yrði fjarverandi, ef til vilil árlangt leystum við upp heim- ilið. Konan fór með yngsta barnið út í Ólafsfjörð og vann þar, en hinum eldri komum við fvrir hjá .vem.lafólki. En þegar svo ekkert varð úr fyrirhugaðri lækningaferð, fór ég að Mið- Mói til Árna bróður mins og ho*ði þar heimili, en réð mér þó sjálfur. Síðar keypti ég bæ, sem stóð auður í Móskógum en honum fylgdu engin jarðaraf- not. Árið 1932 byrjuðum við hjón in að hokra saman aftur og þá fyrst á Bakka i húsmennsku hjá Árna bróður, sem þá var þangað fluttur. Árið 1935 flutt umst við svo að Neða-Haga- nesi og bjuggum þar í 15 ár eða fram til haustsins 1950 að við fluttumst í Ólafsfjörð. Það var nú stríð milli holds- ins og andans. Bærinn í Neðra- nesi var orðinn gjörónýtur en e gandinn vildi ekkei-t gera. Ég ætlaði þá að hefjast handa og reyna að koma upp bæjarhús- um á eigin kostnað, þó að mér væri ljóst að það mundi verða erfitt, ef til vill ofraun. En þá fréttum við um hús úti í Ólafsfirði og það varð sá endir á að við keyptum það. Annars ætlaði ég aldrei að flytjast í kaupstað, sveitin er mér kær og í Vestur-Fljótum á ég alltaf átthaga. Neðra-Haganes er sæmileg asta kot, að vísu er þar lítill heyskapur, enda hafði ég a.drei nema % hluta jarðar- innar. En þar eru umtalsverð hlunnindi af veiðiskap í Mikla- vatni og þægilegt að skjótast á sjó. Þetta hvort tveggja notaði ég eítir því sem tök voru á. Einnig fékkst ég talsvért við smiðar bæði tré og járn, líka bjó ég til hnakka og aktygi eða dyttaði að þeim eftir þörf- um. Ekki hef ég þó numið neitt til þessara verka. 1 skóla hef ég aldrei setið nokkurn dag nema prófdaginn minn. Það er þvi ekki von að ég kunni mik- ið. Hér í Ólafsfirði hef ég mest lagt stund á smíðaföndur, reyndar var ég að skjökta hér á bát fyrstu árin en hætti því fljótlega. Ég er svo sem búinn að sætta mig vlð að fara hingað. Hér gat sonur minn, Guðmundur fengið tækifæri til náms. Hann er nú húsgagnabólstrari í Reykjavík. Lifsbjargarvegirnir hafa ver- ið svipaðir frá ári til árs. Ég hef alltaf haft það sæmilegt og ætti ekki að vanþakka það. minn. Hver mundu verða ör- iög hans? Á leiðinni niður var ofurlítill holtrani. Bróðir minn hafði dregið byssuskeftið á eftir sér ari bakkann og í þvi lygn hyl- ur. Þar lá flatdallur, sem ferða maður hafði komið á yfir ána. Einhvern veginn hafði Hjálm ar fengið vitneskju um ferð okkar og kom ásamt öðrum manni niður að ánni. Hann kall aði tii min og spurði, hvort ég treysti mér með dallinn yfir ■teiiHÍj"- ’’ Feróa Sióvá Hvort sem þér farið langt eða skamnit — og livert sem þér farið, til Spánar eða Siglufjarðar, Bandaríkjanna eða Bíldudals, þá er ferðaslysatrygging SJÓVÁ nauðsyn. Ferðaslysatrygging SJÓVÁ greiðir bætur við dauða af slysförum, vegna varanlegrar örorku og vikulegar bætur, þegar liinn tryggði verður óvinnufær vegna slyss. Ennfremur er liægt að fá viðbótartryggingu, svo að sjúkrakostnaður vegna veikinda eða slysa, sem sjúkrasamlag greiðir EKKI, er innifalin i tryggingunni. Ferðaslysatrygging SJÓVÁ er nauðsynieg, ódýr og sjálfsögð öryggisráðstöfun allra ferðamanna. Ferðaslysatryggbig SJÓVÁ er tryggur förimautur. Dæmi tun iðgjöld af ferðaslysatryggingum SJÓVÁ: (Söluskattur og stimpiigjöld innifalin). TÍMALENGD DÁNAKBÆTUR ÖBORKUBÆTl’R DAGPENINGAR A VIKU IÐG4ALD 14 dagar 500.00«.— 2.500.— 271.— 17 dagar 500.000.— 2.500,— 293.— 1 mánuður 500.000,— 2.500.— S90 - SJÓVATRYGGINGARFÉLAG ÍSLANDS i* INGÓLFSSTRÆTI 5 REYKJAVÍK SÍMI 11700 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.