Morgunblaðið - 29.04.1971, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1971
Hljómleikar Pólyfon-
kórsins á sunnudag
140 manna hópur úr kórnum
og söngskóia kemur fram
voru fyrir um 50
svo að alls munu 140
PÖLYFONKÓRINN heldur
hljómleika nk. sunnudag: í Krists
kirkju, Landakoti. Á efnis-
skránni verða verk eftir Hándel,
Gregor, Aichinger, Bach, Schu-
bert og Monteverdi. Söngstjóri
er Ingólfur Guðbrandsson. A
þessum hljómleikum kemur
fram fjölmennasti hópur i nafni
kórsins hingað til, þar sem nem-
endur úr Kórskóla Pólyfonkórs-
ins mimu taka þátt í söngflutn-
ingi. Arni Arinbjarnar leikur
undir á orgel.
1 febrúar sl. gekkst Pólyfón-
kórinn fyrir stofnun þessa kór-
skóla í Reykjavík til eflingar
starfsemi sinni og söngmennt í
borginni almennt. Kennslan fór
fram eitt kvöld í viku, 2 stundir
í senn. Kennarar voru þau Ruth
Magnússon, Garðar Cortes, Lena
Rist og þar að auki söngstjórinn,
# Ingólfur Guðbrandsson. Á fundi,
sem forráðamenn Pólyfonkórsins
boðuðu til með blaðamönnum,
sögðu þeir, að þessi hugmynd
hefði fengið mjög góðar undir-
tektir. Innrituðust þegar um 150
manns. Námskeiðið stóð í tiu vik-
ur, en áhugi nemenda og árang-
ur var það góður, að ákveðið var
að gefa þeim þátttakendum, sem
þess óskuðu, kost á að œfa sam-
Gunnar Kvaran.
an kórsöng eitt kvöld í viku
framvegis. Árangur þessa gefst
borgarbúum kostur á að heyra á
sunnudaginn. Níutíu manna hóp-
ur skipar þennan kór, en i Póly-
fonkórnum
manns,
söngmenn, karlar og konur, láta
til sín heyra.
Hljómleikarnir á sunnudaginn
hefjast kl. 5 síðdegis og eru að-
göngumiðar seldir i Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar og hjá
Ferðaskrifstofunni Útsýn.
Úrslit í mið-
st j ór nar k j ör i
í FYRRAKVÖLD fór fram
kosning 8 manna í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins á lands-
fundinum. Samkvæmt skipu-
lagsreglum flokksins kýs
landsfundur 8 menn í mið-
stjórn og eru þingmenn ekki
kjörgengir við þá kosningu.
Hins vegar kýs svo þingflokk-
urinn 5 úr sínum hópi í mið-
stjórn. Þá eru þrír formenn
landssamtaka sjálfkjörnir,
svo og formaður og varafor-
maður. Reglur þessar voru
skýrðar á þann veg, að miðað
væri við stöðu viðkomandi
aðila í dag, þ.e. hvort hann
væri þingmaður eða ekki
þingmaður nú.
Fjögur þeirra, sem sæti áttu
Spilakvöld í
Hafnarfirði
S.IÁLFSTÆHISFLOKKURINN
í Hafnarfirði hefur að venju
staðið fyrir spilakvöldum í Sjáif-
stæðishúsinu í vetur, yfirleitt við
góða aðsókn. Þessum þætti í
starfi flokksins er nú að ljúka,
og verður síðasta spilakvöldið
haldið í Skiphóli annað kvöld.
Siðasta spilakvöldið í fyrra var
einnig haldið í Skiphóli við
mikla aðsókn. Auk spiianna
verða á dagskrá góð skemmti-
atriði og dans. Þá mun Oddur
Ólafsson, læknbr, einn af fram-
bjóðendum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi, fiytja á-
varp. Fólk er hvatt tll að mæta
tímaniega.
55
Þroskaður og tilf inn
ingaríkur einleikari“
Gunnar Kvaran cellóleikari hlýtur
góð ummæli í Kaupmannahöfn
Kaupmannahöfn, 28. apríl.
Einkaskeyti til Morgunbl.
ÍSLENZKI cellóleikarinn
Gunnar Kvaran hefur hlotið
mjög lofsamleg ummæli fyrir
fyrstu tónleika sína, sem fóru
fram í Tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn, en þar hlaut
Gunnar tónlistarmenntun sína
undir leiðsögn Erlings Blön-
dals Bengtssonar. I Poiitiken
segir m.a. að miklir hæfileik-
ar búi í þessum tónlistar-
manni og í Kristeligt Dagbiad
er Gunnari Kvaran lýst sem
þroskuðtim og tiifinningarík-
um tóniistarmanni.
í Politiken segir m.a.: Það
var rétt svo kleift fyrir þá
áheyrendur, sem síðastir
komu, að verða sér úti um
sæti í tónleikásal Tónlistarhá-
skólans, er ungi íslenzki celló-
leikarinn, Gunnar Kvaran hélt
þar fyrstu tónleika sína. Það
er ekki nema eðlilegt, að mikl
ir hæfileikar búi I einleikara
sem þessum, þvi að leiðin í
gegnum einleikaradeild Tón-
listarháskólans liggur i gegn-
um nálarauga.
Prófessor Blöndal Bengts-
son hefur líka haft hér góðan
efnivið til þess að taka á móti
innlifun og hugarflugi. Gunn-
ar Kvaran er einleikari með
framúrskarandi tilfinningu
fyrir möguleikum hljóðfæris
síns. Glæsibragurinn og hæfn
in, sem fram kom í tónlist
hans, var slík, að áheyrenda-
skarinn var sem eitt hlustandi
eyra.
Johannes Noergaard skrifar
í Kristeligt Dagblad undir yfir
sögninni: Meira en efnilegur,
að Gunnar Kvaran hafi komið
fram sem þroskaður og til-
finningaríkur tónlistarmaður.
Gunnar hafi ekki bara gefið
loforð, heldur uppfyilt þau.
Rytgaard.
í miðstjórn fram að þessum lands
fundi lýstu þvi nú yfir, að þau
gæfu ekki kost á sér til endur-
kjörs vegna þess, að þau skipa
sæti á framboðslistum, sem telja
verður næsta örugg þingsæti, þ.
e. Ragnhildur Helgadóttir, Ólaí-
ur G. Einarsson, Sverrir Her-
mannsson og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Fjölmargar tillögur komu
fram um menn i miðstjórn en
þessir hlutu kosningu: Gunnar
Thoroddsen fékk 523 atkvæði,
Kalman Stefánsson 475 atkv.,
Geirþrúður Bemhöft 428 atkv.,
Friðrik Sophusson 396 atkv, Jón
G. Sólnes 360 atkv., Guðmundur
H. Garðarsson 357 atkv., Ólafur
B. Thors 321 atkv. og Baldvin
Tryggvason 235 atkv. Næstu 8
að atkvæðamagni voru: Albert
Guðmundsson 216 atkv., Eyjólf-
ur Konráð Jónsson 209 atkv.,
Kristján J. Gunnarsson 209 atkv.,
Arngrímur Jónsson 204 atkv.,
Oddur Andrésson 195 atkv.,
Davíð Sch. Thorsteinsson 185
atkv., Einar Oddsson 184 atkv.
og Sigurgeir Sigurðsson 168 atkv.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokks-
ins hélt fund í gær og kaus 5
fulltrúa i miðstjórn flokksins.
Þessir hlutu kosningu: Ingólfur
Jónsson, 22 atkv., Magnús Jóns-
son 22 atkv., Matthías Á. Mathie-
sen 22 atkv., Matthías Bjarnason
21 atkv. og Birgir Kjaran 20
atkv. Eftirtaldir formenn lands-
sambanda eiga sæti í miðstjórn:
Gunnar Helgason, formaður
Verkalýðsráðs, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir, formaður Landssam
bands Sjálfstæðiskvenna og
Ellert B. Schram, formaður SUS.
UR „HARINU“
Þessi vígalega mynd er úr söngleiknum Hárinu, sem Leikféiag
Kópavogs sýnir um þessar mundir i Glaumbæ. Næsta sýning
er í kvöld, cn síðustu sýningar að sinni verða næstkomandi
mánudags- og þriðjudagskvöid klukkan 20.
Listasafn
Einars
Jónssonar
MIKLUM aðgerðum á húsi Lista-
safns Einars Jónssonar er lokið,
og verður safnið aftur opnað al-
menningi laugardaginn 1. maí.
Frá og með 1. maí til 15. sept.
verður safnið opið alla daga vik-
unnar frá kl. 13.30 til kl. 16.
ítarleg skrá yfir listaverkin á
þremur tungumálum er innifal-
in i aðgangseyrinum. Auk þess
má fá í safninu póstkort og
heftabók með myndum af flest-
um aðalverkum Einars Jónsson-
Óhagstæður vöru-
skipta j öf nuður
HAGSTOFA íslands hefur reikn-
að út verðmæti út- og inn-
fiutnings frá áramótum, en töl-
urnar eru þó bráðabirgðatölur.
f ljós kemur að fyrstu þrjá mán-
uði ársins er vöruskiptajöfnuð-
urinn óhagstæður um tæplega
1.117 milljónir króna, en var á
sama tíma í fyrra óhagstæður
um 8,4 milljónir. f marzmánuði
einum saman var vöruskipta-
jöfnuðurinn ðhagstæður um 580,5
miiljónir króna, en í fyrra um
159,9 milljónir.
Alls vair útHutt fyrotu þrjá
mánuði 1971 fyrir 2.416 miiljónir
króna, en ininfliuitt fyrir 3.533
milljónir. Af útfliutningi má
nefna álmelimi fyrir 261 milíjón
og af inmiflutninjgi vörur til Búr-
fellsvirkj unar og fSALs fyrir
samta.ls uim 350 miIDjónir króna.
- Afli
Framhald af bls. 32.
um en áður. Þó nokkrir bátar
voru á mánudag með milli 10 og
15 tonm, og 8 til 10 tonm í gæsr.
Þá var Fróði að lamda í gærdaig
20 tormum af fisiki, serni hamm
fékk í troll eftir eimn og hálfan
sóiarhrimg. Eimmig er eitthvað
Hflegra í netin em verið hefur,
svo hefur alltaf verið sæmilegt
á línu.
Hjá Þorlákshafnarbátum hef-
ur aflinm verið misjafTi síðustu
daga, og virðist mönmum þar
heldur vera að dofna yfir veið-
inni. Alls bárust þar á lamd 533
tonn af 42 bátum í fyrrakvöld
en 851 tonn af 41 báti á mámu-
dag. Var það að lamgmestu leyti
tveggja til þriggja náitrta fisíkur
eftir helgarfríið. Hæstu báitar
voru með upp undir 20 tonn.
— Landsfundur
Framhald af bls. 32.
hver til sín. Það er ósk mín, að
sá þróttur, sem einkennt hefur
þetta þing, breiðist nú út um hin-
ar dreifðu byggðir þessa lands.“
Yfir 700 fulltrúar sóttu þennan
19. landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins. Megin umræðuefni fundar-
ins voru mennta- og skólamál,
landhelgismálið, fiskveiðilögsag-
an og hagnýting landgrunnsins
svo og stjórnmálayfirlýsingin,
sem samþykkt var í lok fundar-
ins í gær. Auk stjórnmálanefnd-
ar störfuðu skipulagsnefnd,
nefndir atvinnustétta og kjör-
dæmisnefndir.
Stjórnmálayfirlýsingin og
ályktanir landsfundar um
menntamál og landhelgismálið
verða birtar í Morgunblaðinu á
föstudag.
— Forsetaför
Framhald af bis. 32.
lokið hinmi opinberu heimsókin,
í Noregi.
* SVÍÞJÓÐ
Komið verður til Arlanda-
flugvallar kl. 14.00, þar sem
Gustav Svíakonungur mun taka
á móti forsetahjónunum. Verður
sáðam ekið til hallarinnar, þar
sem forsetahjóniin búa meðan á
hinini opimberu heimsókn stenid-
ur. Síðdegis sama dag tekur for-
seti á móti erlendum semdiherr-
um, sem búsettix eru í Stokk-
hólmi. Um kvöldið heldur kon-
ungur veizlu til heiðurs forseta
íslands og konu hans.
Fimimtudagimm 6. maí verður
haldið til Björkö og Birka skoð-
uð. Eftir hádegi verður siglt til
Stokkhólmis. Að lókinni leiksýn-
imgu í Drottnimgholms-lei'khús-
inu munu forsetahjónin sitja
kvöldverðarboð sænsku ríkia-
stjórnarinnar.
Föstudagirm 7. maí skoða
forsetahjónin Statens Historiska
Museuim. Síðan verður forseta
sýnd verksmiðjan AGA á Lidingö
en forsetafrúnni dagheimili í
Asöberget. Forsetahjónin munu
sitja hádegisverðarboð borgar-
stjórnar Stokkhóims í ráðhúsí
borgarinmar. Síðdegis sama dag
mun forseti hafa móttöku fyrir
íslendinga í Svíþjóð. Um kvöld-
ið halda forsetahjónim konungi
veizlu á Grand Hotel.
Laugardagimn 8. maí lýkur
hinni opiniberu heimsókn kl.
10.00 f. h., en síðan verða for-
setahjómin gestir ríkisstjórnar
Svíþjóðar. Haldið verður til
Uppsala, þar sem skoðuð verða
hágkólabókasafnið, dómkirkjan
og gömlu Uppsalir. Að lokmrni
hádegisverði í Uppsalahöll í
boði Edsnmiamis landshöfðingja
halda forsetahjónin til Skoklost-
er. Klukkan 18.50 verður farið
frá Arlanda-flugvelli og lent á
Fomebu-flugvelli í ósló kl. 19.45.
Heim munu forsetahjónin koma
með flugvél frá Flugfélagi í»-
lands sama kvöld.
I fylgdarliði forsetahjónanna
verða Emil Jónsson, utaniríkis-
ráðherra, Pétur Thorsteinason,
ráðuney tisst j óri, Birgir Möller,
for3etaritari, og frú Margrét
Jónisdóttir, aðstpðarstúlka for-
setafrúarininar."