Morgunblaðið - 29.04.1971, Page 6
f
6
k
INNRÉTTINGAR Vanti yður vandaðar innrétt- ingar í hýbýlí yðar, þá ieitið fyrst tilboða hjá okkur, — Trésm. Kvistur, Súðavogi 42, símar 33177 og 36699.
KRUMPLAKK 10 nýir sumarirtir nýkomnir, hárautt og svart ásarrvt gömki iitunum. Sendum sýn- ishorn um aHt land. Litliskógur, sími 25644.
KEFLAVlK — SUÐURNES Höfum kaupendur að 2ja—6 herb. íbúðum, raðhúsum og eintoýtishúsum. Háar útborg- anir. Fasteignasala Viihjálms og Guðfinns, s. 1263 og 2376.
TVEGGJA TH. ÞRIGGJA hertoergja íbúð óskast fyrir einhleypa fullorðna konu. — Uppiýsingar í sima 25223.
2ja—3ja HERB. IBÚÐ ÓSKAST strax. Tæknifræðingur og háskólastúdent óska eftir íbúð strax. Uppiýsingar í síma 84466.
HNAKKUR Nýr hnakkur til sölu, Sími 92-2210.
KEFLAVlK — SUÐURNES Reiðtygi á hestinn, skeifur undir hestinn. Brautarnesti.
KEFLAVÍK Issalan byrjuð aftur, Brautamesti.
HAFNARFJÖRÐUR Forstofuherbergi eða kjatlara- hertoergi óskast um mánaða- mót sem næst Öldugötu. Upplýsingar í síma 52407,
HERBERGI ÓSKAST til leigu. Upplýsingar í síma 26700,
KEFLAVlK Mæðgur óska eftir 2ja—3ja herbergja íbúð nú þegar. Upplýsingar í síma 1420.
HAFNARFJÖRÐUR — nágrenni Léttreykt svínakjöt, léttreykt dilkalæri með spekki á 268 kr. kg, ódýrir 1. flokks niður- soðnir ávextir. Kjötkjalalrinn Vesturbraut 12.
UNGUR MAÐUR með stúdentspróf óskar eftir atvinnu í sumar. Allt kemur til greina. Tilboð leggist inn til Morguntol. fyrir mánaða- mót, merkt „7248".
HAFNARFJÖRÐUR Ung kona óskar eftir vinnu atlan daginn í skrifstofu eða í verzlun. Nokkur reynsla. Upplýsingar í síma 52215 á kvöldin.
HESTUR TU. SÖLU Þægilegur, brúnn, 10 vetra. Upplýsingar í síma 36993 eftir kl. 6 á daginn.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUH 29. APRlL 1971
Hörmungatímar
Um og upp úr aldamótunum
1600 dundu yfir Island hinir
mestu hörmungatímar er komið
höfðu siðan á 14. öld. Hjálpaðist
þá allt að: ógurleg harðindi
hvert árið eftir annað, mann-
fellir og fjárfellir, og svo bætt
ist þar ofan á, eins og til að
kóróna eymdina, að verzlunar-
einokuninná var dembt yfir ls-
lendinga árið 1602.
Harðindin hófust yfir alvöru
á Magnúsarmessu fyrir jól árið
1600. Gerði þá almyrkva á sólu
og skipti með þeim degi til harð
inda. Var sá vegur aftaka harð
ur frá jólum um allt Island og
kallaður Lurkur, en sumir köll-
uðu hann Þjóf. Margir Norð-
lendingar, sem ætluðu suður á
land, urðu þá úti á Tvídægru,
og svo var frostið mikið, að
hesta köl til bana, Enginn
mundi þvilikan vetur og hófst
fjárfellir snemma. Hafis rak að
landinu og voru hafþök langt
fram á sumar. Greri þá seint og
var ekki kominn sauðgróður
fyrr en á Jónsmessu. Því var
þetta kallað Kynjaár.
Næsti vetur var einnig mjög
harður, og gerði þá mannfall
mikið af sótt og harðæri, og var
þessi vetur nefndur Píningavet-
ur. Sauðafellir varð þá ógurleg-
ur. Þá fórst farmaskip Skálholts
staðar hjá Þorkötlustöðum í
Grindavík og drukknuðu þar
24 karlmenn og ein stúlka. Síð
an hefir Skálholtsstaður eigi átt
farmaskip. Fjöldi manna flosn-
aði þá upp um allar sveitir og
streymdi snauður lýður að Skál
holti, svo að brytanum ofbauð.
Tók hann það þá til bragðs að
brjóta niður steinbogann á
Brúará, þvi að hann hugði að
þá mundi fækka gustukamönn-
um. Þegar Oddur biskup komst
að þessu, varð hann bæði gram-
ur og hryggur, og kvað hvorki
sér né brytawum mundi happ af
þessu verða. En brytinn drukkn
aði skömmu siðar í Brúará.
Veturinn 1603 varð hinn
þriðji harðindavetur í röð. Varð
þá mannfall mikið af sulti um
allt Island. Þá var og fiskleysi
og blóðsótt sú, er menn dóu af
mörgum tugum saman i hverri
khkjusókn og eyddust þá marg
ir bæir. Var þá svo mikil um-
ferð fátæks fólks um allt land
að sýslumenn urðu í hreinustu
vandræðum og voru kveðnir
upp dómar viðs vegar um land-
ið hvernig reynt skyldi að
bjarga þessum öreigalýð.
Árið 1604 var kallað Eymdar-
ár og má nokkuð af nafninu
marka hvernig högum manna
var þá komið. Var þá hafís
enn við land og hrundi fólk nið
ur úr blóðsótt og hungri. Var þá
talið, að þrjú seinustu árin
hefði fallið 800 manns, er voru
á vergangi í Skagafjarðarsýslu,
en á öllu landinu hefði fallið
9000 manna.
Næsti vetur (1605) var einn-
ig harður og var fiskur lítill fyr
ir sunnan land, en ekkert veidd
ist nyrðra, enda var þá hafís
mikilL Rak hánn austur fyrir
land og síðan vestur með landi
og mátti kalla hafþök alla leið
vestur að Grindavík um vertíð
arlok. Mikil var þá kvörtun út
af þessum miklu harðindum og
því sem af þeim leiddi, bæði við
konung og höfuðsmann, enda
var þá mikil þröng hér i landi,
ekki sízt fyrir klæðleysis sakir,
þvi að kvikfénaður var að
mestu fallinn og engin ull til
klæðagerðar.
Þessar frásagnir eru teknar
eftir annálum. En um Eifleiðing-
ar harðindanna segir Espólín í
Árbókum: „Draup við það nið-
ur landið meira en á hinum
næstu mannsöldrum hafði verið
og fymtist æ meir allur mann-
dómur og upphressingarhugur ..
En svo mikil fávizka var þá með
mörgum almúga um andlega
hluti, og þankaleysi um annað
en vanann einan, að eigi mundu
menn eða varla trúa á vorum
dögum."
Efir þessar miklu raunir tók
veðrátta heldur að batna og
komu nokkur góð ár. En nú var
komin yfir þjóðina sú ógæfan,
er enginn renndi grun í hve
þungbær mundi verða. Það var
einokunarverzlunin, og hún
gerði þessi eymdarár að nær
tveimur eymdaröldum.
Frá
horfnum
tíma
FRETTIR
Kvenfélag Háteigssóknar
hefur sína árlegu kaffisölu í
Tónabæ laugardaginn 1. mai og
hefst hún kl. 2. Góðar veitingar
á boðstólum.
Kristniboðsfélag kvenna
hefur kaffisölu í Betaniu 1. maí
nlc. Húsið opnað kl. 2.30. AIl-
ur ágóði rennur til kristinboðs
ins í Eþíópíu. Tekið verður á
móti kökum í Betaníu á föstu-
dagskvöld og laugardag fyrir
hádegi.
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur fund mánudaginn 3. maí
kL 8.30 í fundarsal kirkjunnar.
Sýndar verða myndir frá afmæl
ishófinu. Rætt um sumarstörf.
Kvenfélag Hreyfils
Aðalfundur verður í kvöld að
Hallveigarstöðum kl. 8.30.
„Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönð Guðs hefur
lostið mig. — Jobsbók, 19, 21.
í dag er fimmtudagur 29. apríl og er það 119. dagur ársins
1971. Eftir lifa 246 dagar. 2. vika sumars byrjar. Árdegishá-
flæði kl. 9.09. (Úr íslands almanakinu).
Næturlæknir i Keflavíb
28.4. Guðjón Klemenzson.
29.4. Jón K. Jóhannsson.
30.4., 1.5. og 2.5. Kjartan Ölafss.
3.5. Arnbjöm Ólafsson.
AA-samtökin
Viðtalstími er I Tjamargötu
3c frá kl. 6-7 e.h. Sími 16373.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 75,
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kL 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Mænusóttarbólusetning fyrir
fullorðna fer fram í Heilsuvemd
arstöð Reykjavíkur á mánudög-
um frá kl. 5—6. (Inngangur frá
Barónsstíg yfir brúna).
Ráðgjafaþjónusta
Geðverndarfélagsins
þriðjudaga kl. 4—6 síðdegis að
Veltusundi 3, ssími 12139. Þjón-
ustan er ókeypis og öllum heim-
U.
Frá Ráðleggingastöð
kirkjunnar
Læknirinn verður fjarverandi
um mánaðartima frá og með 29.
marz.
VÍSUKORN
Trúlofun
Þér ég færi fagran hring
af fagmanns hendi unninn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssi ég þig á munninn.
Leifur Auðunsson, Leifsstöðmn.
Árið hvert.
Árið hvert, sem áfram líður mitt
æfi minnar kvöld, það hefur
stytt.
Fært mér vizku, farsæld líf og
þor.
Fært mér trú á hamingju og
vor.
Friður.
Hér er friður, hér er ró,
hér er griðastaður.
Hér býr mildi og hjartans fró,
hér ég uni glaður.
Eysteinn Eymundsson.
Flint hinn ósigrandi
í Nýja bíói
Nýja Bió hefur sýnt síðan um páska hina ágætu ævmtýramynd
um afreksverk njósnarans Derek Flints við mikinn fögnuð áhorf-
enda. Sýningum fer nú að fækka.
SÁ NÆST BEZTI
Hann: „Ekki var gott svairið hans föður þíns."
Hún: „HvaÆS sagðir þú?“
Hann: „Ég sagði, að ég fyrirfæri mér, ef ég fengi þig ekkb
ég gæti ekki Ilfað án þín.“
Hún: „Hvað sagði hann þá?“
Hann: „Hann sagðb að hann sk-yldi kosta útförina mína."
Múmínálfarnir eignast herragarð----------Eftir Lars Janson
brre spindelvKv
VAD GftRJ (SKICKbR ET7 BREV TILL
KAN DU HXfKTA
VÁRT EGE7 5PÖK.E DÁR-
\r-------. HENvMA.
OCKSÁ.HAN XR
,SA. NOGA MED
N. SANT ->
30RDGUBBSSAFTEN'
lMUMIN?_________-
ctcutiVcvnUi
Múmíninamman: Viltu
færa mér jarðaherjasultu-
krukkuna, strákur.
Múminstrákurinn: Hvað
ertu að gera, mamma?
Múmínmamman: Ég er að
senda bréf til draugsina
okkar í Múmindal.
Múmínmamman: Og svo
set ég hér ofan á nokkra
köngulóarvefi, þvi að
hann er svo sérvitur.
:3