Morgunblaðið - 29.04.1971, Page 24

Morgunblaðið - 29.04.1971, Page 24
24 MORGUKBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2971 FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Athugasemd við grein dómsinálaráðuneytisins Dómsmálaráðuneytið heíur virt blaðagrein mína um lagaleg- an rétt barna og meðferð þeirra ef óskað er úrskurðar ráðu- neytisin® eða valdsmanna, er heyra undir stjórn ráðuneytís- ins, þess virði, að gera athuga- semdir við hana. Jónas Guðmundsson fyrrv. ráðuneytisstjóri, ritaði grein um svipað eíni, er birtist i MhL 3. febrúar s.l, þar sem hann segir, að 90% úrskurða dómsvaida um barnsmeðlög séu miðaðir við það lágmark, sem gefið er í lög- unum um afstððu foreldra til óskilgetinna barna nr. 87/1947, en þar segir í 2. mgr. 8. gr.: „1 meðlagsúrskurði má aldrei ákveða laegri meðlagsgreiðslur en barnalííeyri, skv. iögum um almannatryggingar, eins og hann er ákveðinn á hverjum tíma." Jónas Guðmundsson hef- ur ábyggilega haft aðstöðu til að kynna sér þessi mál og fer ekki með neitt fleipur. Ennfrem ur segir Jónas í VI. kafia grein- ar sinnar: „Hér á sér stað hvert lögbrotið öðru verra og hver for smánin annarri meiri framin og látin viðgangast gagnvart þeim þjóðfélagsþegnum, sem minnstir eru og umkomulausastir — smá- börnunum — sem örðugast eiga með að sækja sinn litla rétt á hendur þjóðíélaginu og öflugum einstaklingum, baeði vegna gam- alla og nýrra fordóma í þessum málum og þess stjórnleysis á öll um sviðum, sem svo mjög hefur einkennt síðustu áratugina." Dómsmálaráðuneytið upplýsir, að það hefur aldrei fjallað um ákvörðun meðlaga með óskil- getnum börnum, heldur valds menn i hverju umdæmi, sem heyra undir ráðuneytið og lúta stjórn þess. Ég viðurkenni, að sakir ókunnugleika hafði ég ekki hugmynd um þetta og bið ég ráðuneytið afsökunar. I lögum um afstöðu foreldra til skilgetinna barna nr. 57/1921, er ekkert minnzt á að meðlagsgreiðslur eigi að miðast við lifeyrisgreiðslur almanna- trygginga, en skylf sé foreldr- um „báðum saman og hvorú um sig að framfæra börn sín tíl 16 ára aldurs," og að „meðlagsupp hæð fari eftir högum beggja for- eldra." Ég hringdi í ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, áður en ég skrifaði greín mína og spurði hann við hvaða framfærslu- kostnað ráðuneytið miðaði, þeg- ar það úrskurðaði um meðlags- greiðslur, en ég gat ekki fengið svar við þeirri spurningu. l>að er íurðulegt, ef dómsmála ráðuneytið eða valdsmenn geti á lagalegum grundvelli úrskurð að meðlagsgreiðslur, án þess að miða við raunverulegan fram- færslukostnað hverju sinni og í stað þess að láta hentistefnu ráða og einnig vafasamt, að fe?r- eMrar hafi umboð til að semja um rétt barnsins í bága við þao lög, sem fyrir hendl eru. Það hefur gengið dómur í Hæstaréttl þess eðBs, að móðír með forræði bams hefur ekki umboð til að aí sala meðJagsrétti fyrir barnsins hönd. Reykjavikurborg rekur upp- eldissfofnanir fyrir börn, sem af ýmsum ástæðum eiga ekkí i önn- ur hús að venda og borgin vist- ar líka börn á fjölskylduheimU- um og fósturheimilum. Til fróð- leiks skal hér birt, hvað mánað ardvöl barns kostaði í þessum stoínunum (sbr. upplýsingar írá skrifstofu félagsmálaráðs S Reykjavik) án þess þó að eiga að vera persónulegt mat á fram- færslukostnaði. Það má gera ráð fyrir, að kostnaður á upp- tökuheimilum sé hærri vegna þess að börn eru að koma og íara, en aftur á móti ekki eins hár húsaleigukostnaður og al- mennt tíðkast: Þór. kr. Vöggustofur 26—27 Dalbraut srvipað Upptökuheimili 28 SUungapollur 20 Fjölskylduheimili með 6 börnum 12 Fósturheimiii (f. 1 barn) 8,5 Fósturheimili (f. 2 börn) 15 Má gera ráð fyrir, að laun starfsfólks á vöggustofum og upptökuheimilum sé 75% ai heUdarkostnaði en 50% á fjöl- skylduheimili og, sézt á þessu, hve vinna móðurinnar er stór þáttur af kostnaði við barnaupp eldi, þegar þarf að greiða hana skv. vinnulaunataxta og er þarna bæði um vaktavinnu og næturvinnu að ræða. Mér hefur dottið í hug hugs- anleg leið til að skýra útreikn- inga ráðuneytisins á framíærslu kostnaði, að það t.d. miði við framfærslukostnað á Siíunga- polli kr. 20 þús. á mánuði eða kr. 240 þús. á ári. Vinnulaunin 75% eða 15 þús. á mánuði eru algerlega strikuð út, þvi skv. lögum er vinna móður ekki tal- in til fjár, sbr. að ekkjumenn hafa ekki fengið greiddan líf- eyri með börnum sínum, þá eru eftir 5 þús. kr. á mánuði eða 60 þús. á ári og þeirri upphæð deil ir síðan ráðuneytið á báða for- eldra. Ég veit, t.d. að ráðuneyt- ið hefur úrskurðað verkfræðing til að greiða 116 meðalmeð- lag, en það orð notar ráðuneyt- ið á pappírum sínum og á þá við upphæð, sem nemur 1 'A lifeyrisgreiðslu frá Tryggingar- stofnuninni, en þessi upphæð nam á s.l. ári kr. 32.866.00 yfir allt s.l. ár. Það sem á vantar á svo móðirin að greiða, eða 28.134.00. Það má nefna fleiri dæmí til skilningsauka á málefninu. Sjónvarpið upplýsti í janúar í vetur, að það kostaði 10 þús. kr. á mánuði að eiga og reka venjulega stærð íjölskyldubif- reiðar. Það er hærri upphæð en lágmarksmeðlagsgreiðslur með 5 börnum, auk þess sem greiðslur meðiaga eru frádrátt- arbærar til skatts. Vegagerð rík isins borgaði á s.l. ári 140 kr. á dag fyrir mat handa starfs- mönnum sínum, lágmarks með- lag var s.l. ár kr. 59 á dag. Þvi hefur oftlega verið hald- ið fram, að börnin séu dýrmæt- asta eign þjóðarinnar, en hvorki bifreiðar né kastalar, byggðir á sandi, en þeir hafa margir i>s- ið í íslenzku þjóðfélagi. Ég held því ennþá íram, að dómsmálaráðuneytið og vaJds- menn undir þeirra stjórn hafi brotið lög á rétti barna, sem þau eiga skv. íslenzkum lögum í úrskurðum sínum og vil ég halda fram að gífuryrði í blaðaskrifum hafi verið viðhöfð aí smærra tilefni. uangan, sem larm var i Washington um helgina til að mótmæla þátttöku Bandarikjamanna í Indó-Kína var fjólmenn, en fór þó friðsamlega fram og kom ekki ti! teljandi óeirða. — Fulltrúar Framhald af bls. 13. Hofsós verður efldur, mun öll sveitin njóta góðs af. Við eigum auðvitað við fjárhagsörðugleika að stríða, eins og önnur manníá byggðarlög. En það er hægt að vinna bug á þeim eríiðleikum, og það er okkar hlutverk. Það er skemmtilegt hlutverk, og sem getur orðið til mikillar ánægju ef vel gengur. — Á Hofsósi búa aðeins um 300 manns, en það er duglegt íólk sem hikar ekki við að leggja á sig mikla vinnu. Aðai atvinnu- vegurinn er auðvitað tengdur sjónum, og þar með frystihúsinu og útgerðarfélaginu Nöp. Kaup- félagið annast verzlunarrekstur með ágætum, en vegna íólks- fæðar er það tengt kaupfélaginu á Sauðárkróki. — Við höfum líka nokkuð merkilegan atvinnuveg í Stuðla- bergi hX þar er málmiðja, og þar eru m.a. smíðaðir hljóðkútar íyrir bíla og kjöthengikerfi fyrir sláturhús, af mikilli list og með hugkvæmni. — Að öðru leyti byggist at- vinnureksturinn á búrekstri í smáum stíl, hrognkelsaveiði á vorin, og lítils háttar smábátaút- gerð. — Félagsstarf gæti verið mjög iiflegt, en það líður mjög fyrir skort á samkomuhúsi. Það er að vísu samkomuhús í byggingu en það hefur mjög slæm áhrií á íélagslífið á þessu svæði að hvergi er hægt að koma saman. Þessu er nauðsynlegt að bæta úr, og það verður mikilvægt verk efni okkar á næstunni. — ót. NAMSKEIÐ UM ATVINNU- LÍFIÐ OG STJÓRNMÁLIN Námskeið heldur áfram fimmtudaginn 29. apríl kl. 19,30 í Skiphofti 70 og verður þá rætt um: Fjármagnið og atvinnulífið Þátttakendur eru beðnir að mæta stundvíslega. Samband ungra SjáMstaeðismanna. Fyrir svörum sitja: Magnús Jónsson, ráðherra og Jónas Haralz, banka- stjóri. Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði Spilakvöld Spiiakvöld i Skiphói föstudaginn 30. apríl kl. 8.30 stundvíslega. 1. Fétagsvist (Góð verðlaun). 2. Avarp. Oddur Ófafsson yfirfæknir. 3. Þjóðlagasöngur, Kristín Ólafsdóttir og Helgi Einarsson. 4. Glæsilegt happdrætti. 5. Dansað til kl. 1. Húsið opnað kl. 8. Mætið stundvislega. SPILANEFNDIN. NÝTT Si0tátt NÝTT Cömlu dansarnir föstudagskvöld klukkan 9 Hin vinsœla gömludansahljómsveit Rúts Kr. Hannessonar leikur — Aðeins rúllugjald LAUCARDACUR 20 manna lúðrasveit leikur fyrir dansi — fjölbreytta karnsval- og dixelandmúsík — Saturinn er skreyttur — Aðeins rúllugjatd SIGTÚN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.