Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 2
MOftGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971 Jaröskjálftarnir: Vitað um 856 látna Istanbul, NÚ er vitað létu lífið í Tyrklandi á 25. maí — AP með vissu, að 856 jarðskjálftunum í dögrunum, en ekki hefur enn náðzt samband við a.m.k. tíu mjög: afskekkt fjalla- þorp á þeim slóðum, sem jarð- hraering'arnar voru hvað mestar. Kaupmenn á f undi: Óánægðir með f ramvindu mála EKKERT nýtt hefur gerzt í yfir- vinnubanni Verzlunarmannafé- ktgs Reykjavíkur, sem gekk í gildi um sl. helgi. Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu í gær hefur VR nú vörzlu við tvær verzlanir, Breiðholtskjör og Verzlunina Örnólf, sem sinntu ekki banninu. Samkvæmt upp- Iýsingum Magnúsar L. Sveins- sonar hjá VR hafa fleiri verzlan- ir brotið bannið, en gefið eftir þegar menn frá VR komu á stað- inn. í viðtali við Hjört Jónsson, for mann Kaupmanmasamtakanna, kom fram að í fyrrakvöld héldu kaupmenn fjölmenman fund um yfirvinmumálin. Á fundinum kom fram megn óánægja með fram- vindu mála. Eru kaupmenm mjög óánægðir með að ekki íengust viðræður við VR áður en til banusins kom, en kaupmenn höfðu farið þess á leit við VR að þessi mál yrðu rædd á sameigin- legum fundi. Þá kom einmig fram óánægja með hve miikill dráttur hefur orðið á því að borg aryfirvöld hafi tekið þetta mál til alvarlegrar umræðu. — En til þeas að ieysa málið á varanlegan hátt þurfum við að fá nýja reglu gerð, sagði Hjörtur Jónsson, for- maður Kaupmannasamtakanna, — en fyrirsjáanlegt er að ein- Rætt um flug- vélasölu til Kína Lundúnum, 25. maí -— AP TALSMENN brezku flugvéla- verksmiðjanna Hawker Sidde- ley skýrðu frá því í Lundúnum í dag, að samningaviðræður hefðu staðið yfir í 3 mánuði milli verksmiðjanna og fulltrúa Pekingstjórnarinnar um sölu á farþegaþotum af Trident-gerð til inanlandsflugs í Kína. Vitað er að Kínverjar hafa þegar keypt nokkrar slíkar flugvélar notaðar frá Pakistan og hafa áhnga á að kaupa fleiri nýjar. Kaupverð flugvéla af þessari gerð er um 7.2 milljónir dollara. hvern tima tekur að koma reglu- gerð í íramikvæmd, jafnvel þótt hún yrði sett mjög fljótlega og því virðist niú skynsamlegt að Kaupmamnasamtökin og VR ræði málið og komist að sam- komulagi meðan það millibils- ástand varir. Rauði hálfmáninn er að störfum í bænum Bingol þar sem mann- og eignatjón varð hvað mest. Hefur verið reist tjaldborg fyr- ir rúmlega tvö hundruð þúsund manns, en þúsundir eru heimilis- lausar. Mikið hefur borizt af mat og hvers kyns hjúkrunar- og hjálpargögnum að því er for- svarsmenn Rauða hálfmánans segja. í morgun urðu á ný jarð- skjálftar í landinu, nú i héruð- unum Balikesir, Kutahya og Usak. Upptök eru talin hafa ver- ið í grennd við borgina Gediz, sem hrundi nálega til grunna í jarðskjálftunum árið 1970. Mikil skelfing greip um sig, er síðustu jarðhræringamar hófust, en sam kvæmt síðustu fréttum, beið eng- inn bana og sáralítið mannvirkja tjón varð. Styrklieiki jarðskjálft- ans var tæp 6 stig á Richter- kvarða. Ferðir Herjólfs breytast: Fimm ferðir milli Eyja og Þorlákshafnar — aðeins ein ferð frá Rvík. ÁÆTLUNARFERÐIR m.s. Herj- ólfs milli Vestmannaeyja og lands verða með nokkuð öðru sniði í sumar en verið hefur á undanförnum árum. Verða farn- ar fimm ferðir í viku milii Eyja og Þorlákshafnar og ein ferð milli Reykjavíkur og Eyja. Áður voru tvær ferðir farnar milli Þorlákshafnar og Eyja og tvær milli Reykjavíkur og Eyja á viku, Nýja áætlunin gengur í gildi í dag. Ráðgert er að sér- stök rútuferð verði milli Þor- lákshafnar og Reykjavíkur í sambandi við ferðir Herjólfs. í sumar verður Herjólfur í ferðum milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja frá miðvikudegi til sunnudags. Á mánudögum lestar hann vörum í Reykjavík og losar í Eyjum á þriðjudög- um. Ekki er ákveðið hve lengi nýja áætlunin verður í gildi, en úr þvi verður skorið þegar í Ijóa kemur hvernig hið nýja fyrir- komulag kemur út rekstrarlega og þjónustulega. ískjarni tekinn úr Hofsjökli Lentu á Hofsjökli á skíðaflugvél — tóku ískjarna til tvivetnis- magnsmælinga Halldór Laxness Bók um Halldór Laxnes gef iu út í Rússlandi KOMIN er út í Sovétríkjunum bók um Haildór I.axness, rithöf- und, eftir Ninu Krimova og Al- eksander Pogodin. Bókin heitir „Halldór Laxness: Líf hans og list“, er 216 blaðsíður og var gef- Kápumynd in út í 6.800 eintökum hjá bóka- forlaginu „Sovéski písatel“. Frá þessu er skýrt í frétta- blaði frá Sovétríkjunum og kem- ur þar einnig fram, að nokkrir sovézkir bókmenntagagnrýnend- ur og málvísindamenn hafi að undanförnu unnið að rannsókn- um á ritverkum hans. Fyrsti kafli bókarinnar um Laxness ber heitið „Á Islandi hljóta menn að vera skáld“ og er þar gerð grein fyrir menn- ingu og sögu íslenzku þjóðarinn- ar, náttúru Islands og sagt frá æskuárum höfundarins, ferðalög um og upphafi rithöfundaferils hans. 1 næstu köflum er rætt um verk Laxness, sagt frá félags- iegri afstöðu hans og birtir kafl- ar úr bréfaskiptum hans við sov- ézka rithöfunda. 1 lokakafla bók- arinnar, sem ber nafnið „Rithöf- undur verður að skrifa fyrir þjóðina eina“, gera sovézkir gagnrýnendur grein fyrir niður- stöðum sínum um viðhorf Hall- dórs Laxness. Nýtt íþrótta- hús í Garða- hreppi framkvæmdir að hefjast í NÆSTA mánuði verður hafizt handa við byggingu 1000 fer- metra íþróttahúss í GarðaJireppi. Iþróttahúsið verður reist vest- an við Barnaiskóia Garðahreppe, sunnan Vífilsstaðavegarins, og á verkinu að vera lokið á næsta ári. Áætlaður heildarkostnaður er 18—20 milljónir króna. Ráðgert er nýja íþróttahúsið fullnægi þörfum skólanna í Garðahreppi og almennings. Sal úr hússins verður 18x33 m að stærð og áhorfendasvæði verður fyrir um 400 manns. Mannfreð Vil'hjálmsson arkitekt hefur teiknað íþróttahúsið. í FYRRADAG flugu menn frá Raunvísindastofnuninni og Jöklarannsóknamélaginu inn að Hofsjökli til þess að ná í ískjarna úr jöklinum. Er þetta einn þáttur í mæling- um, sem miða að því að ákveða tvívetnismagn í úr- komu á landinu, en þær mæl- ingar eru aftur undirstaða túlkunar á tilsvarandi mæl- ingum á grunnvatnsrennsli. Mennirnir, sem fóru voru Bragi Árnason efnafræðingur frá Raunvísindastofnuninni, og Magnús Eyjólfsson frá Jöklarannsóknarféiaginu, en flugmaður var Þorsteinn Sig- urgeirsson. Fóru þeir félagar eftir hádegi í fyrradag frá Reykja vik og flugu inn að jöklin- um. Lentu þeir norðan í jökl- inum og boruðu þar rúm- lega 7 m holu og tóku ís- kjarna, sem fluttur var suður til rannsóknar. Er þetta í þriðja sinn sem þessir menn lenda á skíðaflugvél á jökli. Fyrir einu og hálfu ári lentu þeir á Langjökli til þess að ná í ískjarna þar og var það í fyrsta sinn sem skíðaflugvél lenti og hóf sig aftur til flugs á jökli hérlendis. Skipulagsbreyting í menntamálaráðuneyti — ráðuneytinu skipt í sjö deildir SKIP UL AGSBRE YTING hefur verið gerð á menntamálaráðu- neytinu, sem miðar að því að iækka ríkisútgjöld. Felst breyt- ingin meðal annars í því að fræðslumálaskrifstofan, fjár- málaeftirlit skóla og Fræðslu- myndasafn ríkisins verða að deildum í menntamálaráðuneyt- inu. Jafnframt hefur verið gerð nánari deildaskipting í ráðuneyt inu í samræmi við áðurnefndar breytingar. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá mennta- málaráðuneytinu. í lögum nr. 5 frá 10. apríl 1968, um ráðstafaniir til lækkunax rilkis útgjalda, var ákveðið að fræðslu málaskrifstofan skyldi verða daild í menmtamálaráðuneytinu og lög nr. 35/1930, um fræðslu- Herðubreið seld Söluverð um 4 milljónir ENDANI.EGA var gengið frá sölu á m,s. Herðubreið í gær. Nýtt hlutafélag í Húnavatns- sýslu, Norðurskip h.f. keypti skipið og var söluverðið um 4 milljónir. Herðubreið er 24 ára gamalt skip og hefur verið í strandferðum á vegum Skipa- útgerðar ríkisins frá þvi það var keypt til landsins. Skipið var af- hent hinum nýju eigendum í gær. Hjartarsonar hluthöfum í Að sögn Eggerts sem er einn af Norðurskip h.f., höfðu hluthafar í hyggju að leigja Herðubreið enskum vísindamönnum, sem ætila í rannsóknaleiðang'ur á Persaflóa, en þar sem skipið fékkst ekki nægilega fljótt veiW- ur ekki af þesari leigu. Er enn óráðið hvað verður fyrsta verk- efni Herðubreiðar hjá hinum nýju eigendum. málastjórn, þá jafnframt falia úr gildi svo og önmur ákvæði sem brjóta í bága við þetta. Eininig sklydi fjánmálaeftirlit skóla verða deild í ráðumeytinu og íþróttafulltrúi og bókafulltrúi starfemenm ráðuneytiaims. Þá gera lögim ráð fyrir, að Fræðslu- myndasafn ríkisins verði deild í ráðuneytinu. í lögunum segir, að skipulagsbreytingar þessar Skuii koma til framkvæmda þegar menntamálaráðherra ákveði. Skipulagsbreytingar þessar koma miú til framkvæmda að öðru leyti en því, að Fræðslu- myndasafn ríkisimis verður eklki að svo stöddu sameimað ráðu- neytinu. Jafnframt hefur ráðu- neytinu verið skipt í deildir og verða deildir og deildarstjórar sem hér segir: Safn-, lista- og æskulýðsmála- deild, Knútur Hallsom, skrifstofu stjóri; háskóla- og alþjóðadeild, Árni Guninarsson; skólaramn- sóknadeild, Andri Ísaíksison; bygg ingadeild, Guðmumdur Þór Páls- son; fræðslumáladeild, Helgi Eliasson, fræðslumálastjóri; fjár- mála- og áætlanadeild, Torfi Ás- geirsson, og greiðslu- og bók- haldsdeild, Sigurður J. Briem. Gefin hefur verið út auglýsing um verikefni, skipulag og starfs- reglur men'ntamálaráðuneytisims, þar sem meðal anmars er ákveðið, hvaða málefni hver deild slkuli sórstaklega fjalla um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.