Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1971 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971 17 Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvaemdastjóri Haraidur Sveinsson. Rilstjórar Matthías Johannessen. Eyjóífur KonráS Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Arni Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100 Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 12,00 kr. eintakið. HVAÐ TEKUR VIÐ f HAUST? Iferðstöðvunin, sem sett var * á sl. haust kom í veg fyr- ir, að ný verðbólgualda riði yfir í kjölfar kjarasamning- anna, sem gerðir voru í júní- mánjuði fyrir tæpu ári. Hún tryggði þær kjarabætur, sem launþegar sömdu þá um og hún veitti atvinnufyrirtækj- unum kærkomið svigrúm til þess að auka hagkvæmni og framleiðni í starfrækslu sinni. Verðstöðvunin hefur tryggt jafnvægi í efnahagslífi lands- manna, sem ella var mikil hætta á, að farið hefði úr skorðum. Engixm vafi leikur á því, að gróska í atvinnulíf- inu og góður hagur hins al- menna borgara er að veru- legu leyti verðstöðvuninni að þakka. Samkvæmt verðstöðvunar- lögunum á verðstöðvuninni að ljúka hinn 1. september í haust. Þess vegna er eðlilegt, að fólk spyrji nú hvað við taki þá. Þessi spuming er þeim mun áleitnari vegna þess, að á sama tíma renna út kjarasamningar þeir, sem gerðir voru sl. vor. Ennfrem- ur kemur búvöruverð til ákvörðunar. Það er því aug- Ijóst, að þær ákvarðanir, sem teknar verða í efnahagsmál- um í haust, verða mjög þýð- ingarmiklar og miklu skiptir, að farsællega takist til í þeim efnum. Á þessu stigi er að sjálf- sögðu ekki hægt að segja ná- kvæmlega til um, hversu bregðast skuli við hinum nýju viðhorfum, sem við blasa með haustinu. Vetrar- vertíðin varð ekki eins góð og menn höfðu gert sér vonir um. Sérstaklega varð aflinn mun minni í Vestmannaeyj- um en á vetrarvertíð í fyrra, en Vestmannaeyjar eru ein þýðingarmesta verstöð lands- ins. Verðlag á frystum fisk- afurðum erlendis hefur hald- izt í hámarki, en verulegt verðfal’l hefur orðið á lýsi eins og fram hefur komið í blaðafregnum og nokkuð á rækju. Atvinnuástand er mjög gott í landinu og fyrir- sjáanlegt, að mikil eftirspurn verður eftir vinnuafli í sum- ar. Innflutningur hefur verið mikill, en í þedm efnum er augljóslega þörf á að gæta varúðar. Þá skiptir það miklu hvemig fiskast í sumar. Mörg rök mæla með því, að verðstöðvuninni verði haldið áfram um tíma frá 1. septern- ber nk. Hún hefur gefizt vel og a.m.k. í stærri fyrirtækj- um stuðlar hún að aukinni framleiðni og hagkvæmni í rekstri. í einstökum þáttum atvinnulífsins kann að vera þörf á einhverjum leiðrétt- ingum, því að augljóst er, að verðstöðvunin hefur haft mis- munandi áhrif á einstaka at- vinnugreinar. Afkoma ríkis- sjóðs er það góð, að hann á að geta staðið undir kostnaði við áframhaldandi verðstöðv- un til áramóta miðað við óbreytt ástand að öðru leyti. Viðhorf verkalýðssamtak- anna og vinnuveitenda hefur mikil áhrif á það, hvort yfir- leitt er kleift að halda verð- stöðvuninni áfram. Bæði launþegar og atvinnurekend- ur hafa haft hag af verðstöðv- uninni og ættu að hafa það áfram. En þá er líka nauðsyn- legt, að snemma í sumar hefj- ist viðræður, sem miði að því að kaupgjaldsþróunin í land- inu verði á þann veg, að áframhaldandi verðstöðvun verði framkvæmanleg. Réttilega hefur verið á það bent, að verðstöðvun er í sjálfu sér tímabundin aðgerð í efnahagsmálum og menn spyrja, hvernig verðstöðvun ljúki, án þess að ný hækkun- aralda gangi yfir. Svarið er tvímælalaust það, að heppi- legast er, að verðstöðvun ljúki smátt og smátt, þann- ig að á móti nauðsyn- legum lagfæringum í verð- lagi komi hæfilegar kaup- gjaldshækkanir, á þann veg þó, að verðlagi verði haldið eins stöðugu og kostur er. Það hefur verið eitt helzta viðfangsefnið í stjórn efna- hagsmála okkar íslendinga um langt árabil að tryggja jafnvægi í efnahagslífinu. Hinar miklu sveiflur í sjávar- útveginum hafa valdið því, að þetta er mun örðugra en hjá öðrum þjóðum. Það verð- ur áfram eitt helzta verkefni okkar að skapa grundvöll fyr- ir stöðugu verðlagi. Með verðjöfnunarsjóði fiskiðnað- arins er einmitt stefnt að því að draga úr þeim miklu áhrifum, sem sveiflur í sjáv- arútveginum hafa á atvinnu- líf okkar. Þegar vel árar er greitt til verðjöfnunarsjóðs- ins. Þegar illa árar er greitt úr honum. Það er mikilvségt að verðjöfnunarsjóðurinn geti gegnt þessu hlutverki sínu. Menn mega ekki mikla fyr- ir sér þann vanda, sem við blasir á haustmánuðum. En það má heldur ekki gera of lítið úr honum. Með góðu samstarfi þeirrar ríkisstjóm- ar, sem við tekur að loknum kosningum, verklýðshreyfing ar og samtaka atvinnurek- enda, eru allar aðstæður til að leysa þau mál á þann veg, að hagur launþega og at- vinnufyrirtækjanna verði tryggður. Frá Stykkishólmi STYKKISHÓLMUR er gamall bær og nýr. Þar er nú verulegur uppgangur. Því veldur ekki sízt hörpudisksveið- in, sem fært hefur mikla hjörg í hú og einnig stóraukinn iðn aður. í Stykkishólmi hefur ekki þekkzt atvinnuleysi undan- farin ár og í fyrra var þar mikill hörgull á vinnuafli. Hér verður rætt við þá Einar Flygenring sveitarstjóra og Krist- ján Baldvinsson sjúkrahúslækni. Frásögn þeirra leiðir í ljós þær breytingar, sem orðið hafa í atvinnmnálum, heilbrigð- ismálum og á mörgum öðrum sviðum, hæði í Stykkishólmi og víðar úti á landsbyggðinni. Kom mér á óvart, hve að- staðan hér er góð Kristján Baldvinsson, sjúkrahúslæknir. — Það kom mér á óvart, þegar ég kom frá Svíþjóð, hvað aðstaðan hér var góð. Nú vann ég þar á stórum sjúkra- húsum og það eru alltaf við- brigði að koma á lítið sjúkra- hús og á lítinn stað. En það kom mér eiginlega skemmtilega á óvart, hve aðstaðan er hér góð þrátt fyrir allt og ég tel, að hún sé alveg sambærileg við það, sem er á svipuðum sjúkrahúsum í Sviþjóð. Þannig komst Kristján Bald- vinsson sj úkrahúslæknir að orði, þegar fréttamaður Morg- unbíaðsins spurði hann um störf hans. — Hér er annars stórt sjúkrahús, sagði Kristján Baldvinsson ennfremur. Hing- að kemur fyrst og fremst fólk af Snæfellsnesi til lækninga, en einniig hefur komið mikið af sjúklingum frá Dalasýslu, sér- staklega SkurðsjúJklingum. Ég er nú skurðlæknir og það er kannski þess vegna. Fjöldi sjúklinga hér á síðasta ári var mikill, en þá lágu hér 626 sjúklingar og voru þá gerðar 260 skurðaðgerðir. Ég reikna með að maður geri hér um 90-95% af þeim aðgerðum, sem vanalegt er að gera á stærri sjúkralhúsum. Hér í sýslunni hefur verið i gangi krabbameinsskoðun. Gerð var móðurllfs- og brjósta skoðun á öllum konum á aldr- inum 25-40 ára og fannst þá ýmislegt annað 1 leiðinni, sem ástæðu gaf til meðferðar. Á döfinni er að koma á fót elli- og hjúkrunardeild við ajúkrahúsið, en hér á nesinu er ekkert elliheimili. Það eru vandræði að þurfa að senda fólk annaðhvort suður eða á elli- og hj úkrunarheimili í öðr um byggðarlögum. Það er ein- mitt gamla fólkið, sem er svo bundið byggðarlagi sínu, að það er áfall fyrir margt af því að þurfa að fara burt. Þetta mál er komið á góðan rekspöl, þannig að það eru alllar Mk- ur á, að hægt verði með tiltölulega Htlum breytingum á einni hæð sjúkrahússins hér að koma á fót slíkri deild. Héraðslæknirinn á staðnum, Guðmundur Helgi Þórðarson, hefur sína móttöku í sjúkra- húsinu. Hann svæfir við allar aðgerðir og við leysum hvor annan af eftir þörfum og höf- um mikla samvinnu, enda er einnig gott fyrir héraðslækni að geta notað þá aðstöðu, sem er hér á sjúkrahúsinu. 1 reynd má segja, að við rekum hér eins konar læknamiðstöð. Hér er líka fullkomin rann- sóknastofa, þar sem meina- tæknir starfar og hér er enn- fremur röntgenaðstaða og ann- að slíkt. Kristján Baldvinsson vék síðan að læknaskortinum úti á landsbyggðinni. og sagði: — Ég held, að það eigi eftir að verða breyting á varðandi læknaiskortinn úti á landi. Það, sem fyrst og fremst hefur þreytt lækna þar, er að þeir hafa verið einir. Þeir hafa ver ið stöðugt á vakt og það er töluvert álag til lengdar. Menn halda þetta út í vissan tíma, en gefast svo upp á því. Annað, sem valdið hef- ur læknaskorti, er það, að öll okkar menntun er spítala- menntun pg straumurinn hef- ur beinzt miklu meira að sér- greinum heldur en almennum lækningum. Nú verða heimilis lækningar teknar upp sem sér stök kennsílugrein í lækma- deild og ætlunin er, að almennar lækningar verði gerðar að sérgrein hér, eins og er i ýmsum löndum, t.d. Bandaríkjunum og Bret- landi og ég er ekki i nolkkrum vafa urn, að þetta kemur til með að beina straumnum aítur yfir í almennar lækningar frá sérgreinunum. Það er nauðsyin legt að hafa bæði almenna lækna og sérfræðiiraga, en það er takmarkað, hve mikinn fjölda sérfræðiraga litið þjóð- félag getur borið uppi. Ég álit, að læknamið- stöðvarnar séu það, sem koma skal, þar sem þeim verður við komið. Heilbrigðismálin úti á landi eru að verulegu leyti samgöragumáll eða byiggjast á samgöragum og fólik kemur til með að áitta sig á þvi, þar sem itveir eða þrír læknar vinina saman. Þeir geta veitt miklu betri þjónusbu en einm maður getur veitt, sem verður að vas- ast í öllu. Lælknarnir geta þá lika haft verkadkiptingu, þeim finnst skemmtilliegra að vinna og þeir staðna síður faglega. Svo er annað, sem þyrfti að koma til. Það þyrfti að vera hægt að koma á einhvers kon- ar skiptum milli sjúkrahúsa í Reykjavík og minni sjúkra húsa úti á landi, þannig að Iæknar á stóru sjúkrahúsun- um færu út á land í vissan tíma og læknar úti á landi kæmust meira inn á spítalana í Reykjavík og ættu þannig auðveldara með að halda við þekkinigu sinni og bæta við hana. Að sumu leyti saknar mað-, ur þess, að ékki skuli vera haldið uppi meiri starfsemi með námskeiðum fyrir lækna, bæði almenna lækna og sérfræðiniga i ýmisum greiraum heldur en nú er gert. Kostur- inn við þessi námskeið er ekki bara sá, að maður afli sér svo og svo mikiillar þekkingar, held ur einnig sá, að þetta örvar menn til þess að vinna betur. Enn langar mig ti'l þess að nefna eitt í sambandi við heM- brigðismálin úti á landi. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að héraðshjúkrunarkonur, ef þær fengjust, gætu létt gifur- lega miklu af læknum. Það er igert ráð fyrir þvi í lögum, að ríkissjóður greiði kaup héraðs hjúkrunarkvenna, en þær bara fást eragar, enda þótt heilbriigð isyfirvöldin telji þær mjög æskilegar. 1 Sviþjóð eru héraðshjúkrunarkonur, sem annast mikið eftirlit, hjúkrun í heimahúsum og eru læknin- um til aðstoðar og iétta gíf- urlega miklu af honum. Ég sagði áðan, að heilbrigð- ismál landsbyggðarinnar væru fyrst og fremst samgöngumál. Þetta má til sanns vegar færa. Þann ig vantar mikið á, að faistar ferðir séu hér um Snæ- fellsnesið sjálft. Fólkið kem ur hingað til Stykkishólms ým issa erinda. Það kemur á sýsluskrifstofuna, það kem- ur á sjúkrahúsið o.s.frv., en það eru engar fastar ferðir ut- an af nesi. Það eru eiginlega allir sammála um, að þessum ferðum beri að koma á, en hins vegar hefur enn ekk- ert orðið af þeim. Manni finnst það fulldýrt fyrir fólk, að minnsta kosti fyrir það, sem ekki á bila, að koma hing- að og það hefur verið ósk mín frá því aS éig kom hingað, að til Stykkishólms væri komið á föstum ferðum utan af Snæ- feilsnesi. Þegar ég kom hiragað fyrst, sagði Kristján Baldvinsson að lokum, — var ég búinn að vera erlendis í rúm sjö ár og búinn að læra mína sérgrein. Að Vísu getur maður verið alla ævi að bæta við sig, en ég vildi fara heim, ekki sizt með tilliti til þess, að elztu börn- in voru farin að stálpast. Ég held, að ýmsir starfsfðlagar minir, bæði í Svíþjóð og ann- ars staðar geri skyssu. Þeir eiga orðið stór böm, kannski 15, 16 eða 17 ára gömul, sem alið hafa aldur sinn erlendis að miklu leyti og haía ekki kynnzt íslandi nema af afspurn. Maður getur því ekki vænzt þess að fá þau með sér, þegar maður segir einn góðan veðurdag: -— Nú ætla ég heim til íslands. Þau eru kannski komin í menntaskóla, hrædd við að skipta um umhverfi og búin að festa rætur í öðru landi. Persónulega þekki ég ýmisa stanfisbræður, sem sitja fastir, jafnivel þó að þá langi heim og hafi upphaflega ætl- að sér heim. En ekkert starf er svo mikils virði, hvorki í útlöndum né heima á Is'landi að menn vilji kljúfa fjölskyld una vegna þess. Þess vegna fer sem fer. Ég held, að þetta sé skyssa, ®em margir gera. Einar Flygenring, sveitarstjóri. — Stykkishólmur í baksýn. Bæjarfélög eiga ekki að safna sjóðum Þau eiga að nota það fé, sem þau hafa til umráða Hér vantaði menn til allra liluta í fyrra. Pá auglýsti hreppurinn eftir mönnum í vinnu. Auglýsingin var sett upp í maí og hékk uppi allt sumarið, án þess að eiinn ein- asti maður gaefi sig fram. Og ég á von á því, að ástandið verði eins í sumar! Á þennan veg lýsti sveitar- stjórinn í Stykkishólmi, Einar Flygenring, atvinnuástandinu í byggðarlagi sínu, þegar frétta- maður Morgunblaðsins hitti hann að máli. — Það hefur ekki verið at- vinnuleysi hér síðan um ára- mótin 1968-69 og eins og ég sagði, þá vantaði hér mikið af fólki í vinnu í fyrra. Hér hef- ur aukizt gífurlega iðnaður, en svo var hér einnig mikil atvinna í sambandi við hörpudisksveiðina. Hún skap- ar milda vinnu í landi og það eru ekki hvað sízt húsmæður, sem vinna hana í áikvæð- isvinnu. Mikið af þeim hörpu- diski, sem hér var landað, fór þó til annarra byggðarlaga, Borgarness og víðar, enda voru hér nálægt 30 bátar á hörpudisksveiðum, svo að ekki var unnt að vinna allan aflann hér. Við vorum að sækja um lán til Perðamálasjóðs vegna féalgsheimilisbygg- ingarinnar. Til hennar er nú búið að verja um 11 millj. kr. og samt er hún ekki nema tæp lega fökheld. Samkv. kostnað- aráætfluninni á byggingin að kosta um 48,5 mi’llj. kr. Húsið er stórt, það er hótel og fé- lagsheimili. Þar eiga að geta gist 52, en að auki skal það vera félagsheimili með öllu sem því tilheyrir. En það er erfitt að ná inn fé. Félagsheimilasjóður er fjár- vana, en hann á að greiða um 40% af þeim hluta hússins, sem telst vera félagsheimili. Það er kannski ekki nema eðlilegt að það standi á fé, þvi að á landinu eru á annað hundrað félagsheimili og filest þeirra hafa risið á síðustu árum. Ég held, að það séu um 15 millj. áætlaðar til félagsheimila á þessu ári, þannig að það er ekki mikið, sem kemur í hvern hlut. Brýnasta verkefnið hér er annars að mínu áliti og vist margra annarra að koma upp nýrri vatnsveitu. Hér er að vísu vatnsveita fyrir, en hún veitir bara alls ekki nægilegt vatn. Nú koma til bæjarins um 7,2 sekúnduMtrar, en verkfræð ingur okkar áætlar, að það sé um þrisvar sinnum minna, en við þurfum á dag, þannig að það er lifsspursmál að auka vatnsmagnið. Nýja vatnsvei’tan verður verk upp á 30-40 millj. kr. Mér dettur það í hug í þessu sam- bandi, að Vestmannaeyingar voru að fara fram á 60 millj. kr. rikisábyngð til aukningar á vatnsveitunni þar, en það er í rauninni miklu minna átak fyrir Vestmaninaeyinga að koma upp 60 millj. kr. vatns- veitu heldur en fyrir okkur að koma upp vatnsveitu, sem kostar 30-40 millj. kr. Vest- mannaeyingar eru jú fimm sinn um fleiri. Þetta kemur því til með að verða gífurlegt átak fyrir bæjarfélagið okkar. Svo eru ýmis önnur verk- efni, sem bíða eins og alltaf er á sviði gatnagerðar, holræsa- og hafnargerðar. Bryggjan er orðin léleg og þarfnast endur- bóta. Við þyrftum að fá nýja bryggju sunn- ar en sú gamla er. Hún er ekki hentug á veturna, því að þá getur allt fyllzt hér af ís og því þurfum við aðra bryggju, sem hægt væri að nota einnig þá. Góður flugvöMur hér er einn ig mikið álhugamál okkar margra. Ég er sannfærður um, að ef við fáum hér góðan flugvöll, myndi stóraukast hingað ferðamannastraumur- inn. Nú er ekM lendandi hér nema á allra minnstu vélum og það í bezta veðri. Nú erum við að útvega lánsfé, þannig að hægt verði að byrja á nýjum veHi, gegn því að það verði greitt með væntaniegu framlagi ríkisins. Segja má að gatnagerðin sé eiHfðarverkefni í hverju ein- asta bæjarfélagi. Það er ákaí- lega mikið matsatriði, hvernig á að standa að því, hvort göt- urnar skuli gerðar úr stein- steypu, malbiki eða olíumðl. Hér var steyptur 150 metra langur vegarkafli í fyrra, sem kostaði 2,4 millj. kr. og var geysilegt átak. Ég tel ekki, að bæjar- oig sveitarfélög eigi að safna fé í sjóði. Þau eiga að nota það fé, sem þau hafa til umráða í þarfa hluti, enda þótt það sé mats- atriði, hvað er aðkallandi á hverjum tíma. Svo að ég viki aftur að at- vinnuástandinu, þá vinna í skipasmíðastöðinni Skipavík h.f. 30-40 manns og hafa þar stöðuga atvinnu, enda hefur fyrirtækið næg verkefni fram- undan. Hjá S'kipavík var ný- lega hleypt af stokkunum 35 tonna báti og var síðan byrj- að á öðrum þegar í stað. 1 trésmiðjunum tveimur, eða í Trésmiðjunni Ösp og Trésmiðju Stykkishólms vinna um 20-25 manns í hvoru fyrir- tækinu. Þær hafa næg verk- efni við að smdða innréttingar bæði fyrir bytggingar hér í Stykkishólmi, í Ólafsvík og á ýmsum stöðum öðrum hér t ná- grenninu. Frystihúsin hér eru tvö, frystihús Sigurðar Ágústs- sonar og frystihús Kaupfélags ins. Þau hafa bæði verið starf- rækt, en það hefur verið mjög mismunandi, hve rnikið af fólki hefur unnið hjá þeim. En þegar mest hefur verið að gera, hef- ur vantað fólk í þau. Mig langar til þess að taka það fram að lokum, að ég tél bæjarbrag hér í Stykkishólmi með ágætum. Ég hef verið sveitarstjóri víðar og það er skoðun min, að bæjarbragur sé óvíða betri. Skðlabragur hér er t.d. sérstaklega til fyrirmyndar. Það er mikið tal- að um það nú á dögum, að ungl ingarnir séu algjörlega óalandl og óferjandi, en ég álít, að það sé þvert á móti. Stykkishólmur er einn af elztu verzlunarstöðum á Islandi og á sér merkilega sögu og það er nú einu sinni þannig, að þegar kominn er kúltúr í fó’lk, þá er eins og hann haldist við. Mikil atvinna hefnr verið i skipasmíðastöðimil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.