Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐrÐ, MIÐVIKUÐAGUR 26. MAl 1971 r MjJ BtLA L FAUA V ÆJAIÆltr 22-0-22* IRAUDARÁRSTÍG 3lj BILALEIGA HVERFISGÖTU 103 YW Sendifefðabifreið-VW 5 manns-VW svefnvagn VW 9 maona * Landrovw 7manna LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13 Sím/14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. SENDUM _ . , _ BÍLINN *£? 37346 BÍLALEIGA CAR RENTAL ^ 21190 21188 BÍLASALAN HLEMMTOBGI Simi 25450 BÍLALEIGA Keflavík, sími 92-2210 Reykjavík — Lúkasþjónustan Suðurlandsbraut 10, s. 83330. iftGÓÐAI^’RETTIR <4 FYRIR N VIÐSKIPTAVINI SUNNU PÍÚ ER SVARAÐ í 7 SÍMUM IIJÁ SUNNU SÍMAR: 16400 12070 25060 26555 FERjBASKRIFSTOrAN SUNNA ^ £ Hávaði af völdutn léttra bifhjóla Óskar Ölason, yfirlögreglu- þjónn, skrifar: „Velvakandi! í dálkum þínum 19. þ.m. skrifa bræður þér bréf, er fjall Bifreiðasala Notaóirbilartilsölu Hunter, sjálfsk., '70, 310 þ. Hillman Minx '67, 150 þ. Hillman Station '66, 140 þ. Willys '65 með blæju, allur ný- yfirfarinn, 180 þ. WiKys ’65 með Meyers húsi, 145 þ. Willys '64 með Egils húsi.klædd- ur, mjög góður bíll, 146 þ. Rússajeppi '66 með góðu húsi, 220 þ. Austin Gipsy, dísilhreyfill, '65, 210 þ. Bronco '66, 240 þ. Taunus 20 M '66, 4 dyra, 165 þ Taunus 17 M '66, 4 dyra í sér- flokki, 185 þ. Renault Dauphine '62, 20 þ. Skoda Combi ’65, 70 þ. Dodge '60, 4 dyra, 70 þ. Dodge '61, vörubifreið, þriggja tonna, 250 þ. Volkswagen '60, 60 þ. Volkswagen '64, 85 þ. Bilar gegn skuldabréfum: Rambler Rebel '67 Rambler American '67 Plymouth Belveder '67 Ford Custom '66. Allt á sama stað EGILL, VILH J ALMSSON HE Laugavegi 118 — Sími 2-22-40 ar um hávaða I umferðinni, og er þar talað sérstaklega um létt bifhjól og hljóðmerki frá bifreiðum. Óskað var eftir því að fá bréf frá lögreglunni um þetta efni. Varðandi léttu bifhjólin er það að segja, að hjólum þesa- um hefur fjölgað mjög mikið að undanförnu. Samkvæmt reglugerð um ökukennslu, próf ökumanna o.fl. verða ökumenn léttra bifhjóla að hafa tekið þátt í námskeiði í umferðar- reglum, akstri og meðferð léttra bifhjóla, áður en þeir öðlast rétt til aksturs. 0 Gott starf Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur gengizt fyrir og haldið uppi slíkum námskeiðum undir ágætri stjórn Jóns Pálssonar, starfsmanns ráðsins, og með aðstoð góðra manna, t.d. Sig urðar Ágústssonar, fulltrúa Slysavarnafélags íslands, og lögregluþjóna, sem kennt hafa á námskeiðum þessum. Á nám skeiðunum fá ungmennin að- stöðu til viðgerða á hjólunum og til klúbbstarfsemi. Þeir, er muna, hvernig ástand þeS3- ara mála var, áður en Æsku- lýðsráð Reykjavíkux fór að sinna þeim í samvinnu við embætti lögreglustjóra, vita, að um gjörbreytingu er að ræða. 0 Hjól tekin úr umferð Á námskeiðum þessum er lögð mikil áherzla á, að hljóð deyfar hjólanna séu í lagi, en á þvi veltur mikið um háyaða þann, er hjólið veldur. Þvi er þó ekki að neita, að einstaka ökumaður slíkra hjóla hefur tekið sigti, sem er inni í hljóð deyfinum, úr, eingöngu til þess að auka hávaðann frá vélinni, en þeim, er það gera, fer fækkandi, enda tekur lögregl an slík hjól úr umferð, ef til þeirra næst. Ég held, að einmitt með á- gætu starfi, sem Æskulýðsráð Reykjavíkur leysir hér af hendi og með aðhaldi frá lög reglunni megi vænta þess, að draga megi úr ónæði því, er hjól þessi valda, en aldrei verður hægt að koma í veg fyr Sumarbústaðalönd Sumarbústaðalönd til sölu í Grímsnesi. Upplýsingar hjá Snorra Árnasyni, lögfræðingi, Selfossi eftir kl. 2 síðdegis, sími (99)1319 og 1423. Frú Barnaskóla Garðahrepps Fólk sem flytur í Garðahrepp á þessu ári er vinsamlegast beðið um að innrita skólaskyld börn sín 6—12 ára nú þegar. Sími 42756 SKÓLASTJÓRI. ir að frá tækjum þessum stafi nokkur hávaði. Mikilvægt er, að samvinna lögreglunnar og ungmennanna sém stjórna hjólum þessum, sé góð, og með fræðslu og gagn- kvæmum skilningi má vænta árangurs. 0 Hljóðmerki bifreiða Varðandi hljóðmerki frá bif- reiðum má geta þess, að leigu- bifreiðastjórar hafa tekið mál þetta upp innan sinna samtaka og er það almennt svo nú, að leigubifreiðastjórar gefa ekki hljóðmerki, er þeir koma að húsi til að sækja farþega, en þess í stað eru þeir, er biðja um bifreiðina, beðnir um að fylgjast með, er leigubifreiðin kemur. Undantekningar eru þó því miður frá þessari reglu, og hefur lögreglan haft afskipti af því. £ Hverjir eru verstir? Þeir, er mestu ónæði valda, með því að gefa hljóðmerki, eru ökumenn bifreiða, sem t.d. á morgnana eru að sækja vinnufélaga, og svo á kvöld in yngstu ökumennirnir, sem eru að vekja athygli á sér, t.d. er þeir eru á ferð í miðbæn um og við samkomuhúsin. £ Lögreglan sinnir kær- unt um óþarfa flaut Ekki vantar lögregluna heim ildir til afskipta í þessum mál um, því að m.a. eru ákvæði um þetta í 52. gr. umferðar- laga, og í lögreglusamþykkt borgarinnar stendur í 48. gr.: „Óheimilt er bifreiðastjórurn að gefa hljóðmerki, nema að umferðin gefi tilefni til þess.“ Lögreglan hefur látið mál þessi til sín taka og mun gera það áfram. Þeir, er linur þessa lesa og finna sök hjá sér í sambandi við óþarfa hávaða í umferð- inni, gerðu vel í að athuga þetta, og ég held, að þeir kom ist að raun um, að það sé hægt að koma3t leiðar sinnar í umferðinni án þess að valda óeðlilegum hávaða. Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn,“ — Velvakandi þakkar bréfið. Það er gott, þegar yfirvöld svara fljótt og vel aðfinnslum og fyrirspurnum, eins og þeira, sem hér komu fram um dag- inn. Lögreglan í Reykjavik hef ur líka marg3ýnt það í orði og á borði, að hún leggur mikla á- herzlu á gott samstarf við borg arana — eins og sjálfsagt er. § Boðsmiðar á „völlinn” Velvakandi sá nýlega rætt um „boðsmiðafarganið'. á knatt spyrnuleiki í einú dagblað- anna, og var sagt, að það kæmi illa niður á 1. deildarlið unum, — hér í Reykjavík væru gefnir út á annað hundr að boðsmiðar. En þess var ekki getið, hverjir fengju þessa miða. Það er þó aðalatr iðið. Ef stjórnarmenn í viðkom andi knattspyrnufélögum og menn, sem starfa í nefndum og ráðum á vegum þeirra, eða vinna mikið i þágu þeirra, fá þessa miða, (svo og starfandi knattspyrnudómarar), er ekk ert við því að segja. Meira að segja er sjálfsagt, að þessir menn fá frímiða. Þeir eyða margir hverjir miklum tíma 1 starf sitt fyrir íþróttafélögin endurgjaldslaust — og þær munu ófáar krónurnar, sem runnið hafa beint úr þeirra vasa til íþróttastarfseminnar. Boðsmiðar á völlinn eru að sjálfsögðu engin laun fyrir þetta starf, heldur aðeins smá viðurkenning — viðurkenning, sem örvar menn þó heidur tii starfa en hitt. Andvirði boðs- miðanna skilar sér því í flest- um tilvikum margfalt aftur. — Séu boðsmiðarnir aftur á móti notaðir sem kunningjagreiði, eiga þeir engan rétt á sér. Að alatriðið er því ekki, hversu margir boðsmiðarnir eru — heldur hverjir fá þá. STÁLBITAR IIMP og UNP á lager. INP 120 — 140 — 160 — 180 — 200. UNP 65 — 100 — 120. BORGARSMIÐJAN H.F. Simi 41965. TIL ALLRA ATTA NEW YORK Alla daga REYKJAVÍK OSLÓ Mánudaga Miðvikudaga Laugardaga GLASG0W Fimmtudaga LONDON Fimmtudaga LUXEMB0URG Alla daga KAUPMANNAHÖFN Mánudaga Miðvikudaga Laugardaga L0FTLEIDIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.