Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.05.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐíÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971 19 Noregur og EBE: Getur orðið aðildar- ríki 1. janúar 1973 Osló, 24.. maí — NTB NORSKA stjórnin lag-ði í dag fram á þingi skýrslu um viðræð- urnar um hugsanlega aðild Noregs að Efnahagsbandalagi Evrópu. Segir þar meðal annars, að stjórnin sé fastráðin í að ná sem beztum kjörum fyrir Noreg, og að náist ekki samkomulag verði það hlutverk þingsins að ræða aðra lausn á markaðsmál- mn landsins. Ákveðið hefur verið að hafa umræður á þingi um skýrsluna, og verða þær sennilega um miðj- an næsta mánuð. Á fundi með fréttamönnum sagði Tryggve Bratteli, forsætis- ráðherra, að árangurinn í við- ræðum Breta um aðild að EBE breytti ekki þeirri áætlun, sem Norðmenn hafa unnið sam- kvæmt. Hefði árangur Breta eng- in áhrif, hvorki til að flýta við- ræðum Norðmanna né seinka þeim. í norsku áætluninni er gert ráð fyrir að undirbúnings- viðræðum ljúki á þessu ári, og árangurinn lagður fyrir þingið til afgreiðslu á næsta ári. Gæti Noregur þannig orðið aðili að EBE 1. janúar 1973. 1 skýrslu ríkisstjórnarinnar, sem lögð var fyrir þingið í dag, er rætt um þá 16 liði, sem mestu máli skipta varðandi aðild Nor- egs.' Meginatriði í niðurstöðum stjórnarinnar eru þessi: Norskur landbúnaður verður fyrir f járhagslegu tapi, sem nem ur milljarði norskra króna — eða 58% af landbúnaðartekjunum — ef landbúnaðarstefna EBE verð- ur tekin upp í landinu fyrirvara- laust. Verða þvi sérákvæði að gilda fyrir Noreg um ótiltekinn tima. Erfiðleikar eru hins vegar framundan fyUr skógræktina norsku ef landið verður ekki að- ili að EBE. Vandamál eru einnig framund- an í fiskiðnaðinum ef Bretland verður aðili að EBE en Noregur ekki. Á þessu stigi er þó ekki unnt að dæma hve víðtæk þau vandamál geta orðið, og fer það eftir hugsanlegum samningum Noregs við riki Efnahagsbanda- lagsins. Norðmenn lögðu fram drög að fiskveiðisamningi við EBE fyrr í þessum mánuði, og þar er þess krafizt að erlendir fiskimenn, sem ætla að stunda fiskveiðar við Noreg með sömu réttindum og Norðmenn, verði að vera búsettir I Noregi. Þá verða útgerðarfélögin einnig að vera skráð í Noregi. Knut Hoem, fiskimálaráðherra, sagði við fréttamenn að hann teldi að fulltrúar fiskiðnaðarins væru yfirleitt ánægðir með til- lögur stjórnarinnar. Hann sagði einnig, að verið væri að ganga frá norskum tillögum um fisk- sölumál, og yrðu þær lagðar fyr- ir EBE á fundi samtakanna i Brússel 8. júní. Per Kleppe, verzlunarmálaráð- herra, skýrði frá því, að verið væri að ganga frá tillögum Norð- manna varðandi landbúnaðinn, og að þær yrðu lagðar fyrir EBE í næsta mánuði — annað hvort á fundinum í Brussel 8. júní eða á fundi í Luxemborg 21. júní. 1 skýrslu stjórnarinnar segir loks, að aðild EBE breyti engu varðandi félagsmálastefnu við- komandi ríkis og að ekki sé um að ræða sameiginlega fjármála- stefnu aðildarríkjanna. Bent er á, að í núverandi aðildarríkjum sé hlutfallslega meira fé varið til almannatrygginga en í Bretlandi og á Norðurlöndum. Þannig var 9,2% af þjóðartekjum Norð- manna varið til almannatrygg- inga á árinu 1968, en samsvar- andi tölur frá EBE-ríkjunum voru 9,5% í Belgíu, 14,5% i Frakklandi, 11,2% á Italiu, 13,4% í Hollandi og 11,1% í Vestur- Þýzkalandi. Meiri loðna Sandigerði, 24. maí. AFLINN á síðastliðinni vertíð hér varð þessi: Bolfislkur 13.760 fionin I 2.473 róðrum, loðnia 7.718 tonn eða affls 21.478 torrn. Afláhæstur af báltum, sem hér landa, var Bergþór með 878 tonn, næsbur honum er Þorri með 554 tomn, en hann landaði állíka mikl'u í öðrum verstöðv- um. Á sama ttírna í fyrra var bol- fiskurinn 19.900 tonn í svipuðum róðrarfjölda, en hins vegar var loðnuaflinn þá aðeins eiitrt þús- und tonn. Heildarmagnið nú er því heldur rneira en í fyrra. Páll. Landkynning Geysis; Syngur 1 ísl. peysum í skozka sjónvarpið Akureyri, 17. maí. KARLAKÓRINN Geyisir er ný- kominn heiim úr prýðilega heppnaðri söngför til Bretlands, þar sem kórinn söng á Stoke- listahátíðinmi og auk þesis á sex öðrum samlsöngum og í sjónvarp. Geysir hélt utan 6. maí og söng í skozka sjónvarpið þá um kvöld- ið. Kónmennirnir 38, songstjóri, Philip Jenkinis, og undirleikari, Kári Gestsson, voru þá klæddir litskrúðugum ullarpeysum frá fataverksmiiðj unni Heklu á Akur- eyri, og vakti söngur þeirra mikla athygli skozkra áhorfenda og áheyrenda. Daginn eftir var svo sungið í Strathclyde-háskól- amum í Glasgow, en á sumnudag- inn var haldið til Stoke-on- Trent (350 þúsund íbúar), þar sem kórinn kom fram á listahá- tíðimmi 11. maí. Einnig lék Philip Jenkims nokkur lög á píanó. Þar var flutt tveggja klukkustumda söngskrá, og viðtökur áheyr- emda, sem voru um 700 voru hiim- ar ágætustu. Borizt hefur einn blaðadómur eftiir kunnan gagn- rýnanda, John Oliver, sem skrif- ar í stærsta blað í Stoke og Staffordshire, Evening Sentinel, og fer hann mjög sterkum og lofsamlegum orðum um kórinn og stjórnanda hanis. Einniig söng Geysir í moklkrum skólum í Stoke og nágremni, og munu um 3000 nemendur hafa hlýtt á söngiimn. í öllum skólun- um flutti Philip Jenkina stutt kynningarerimdi um ísland, ís- lenzkt tónlistarlíf og höfunda laganna, sem sungin voru. Bæði að erindumun og söngnum sjálf- um var hin ágætasta landkynn- ing fyrir ísland. Geysir kom til Lundúna 14. maí og heim til Akureyrar sama kvöld. Einisöngvari með kóroum var Aðalsteinn Jónsson, en hann var eiinnig fanarstjóri ásamt Har- aldi Helgasyni og Ævari Hjartar- syni, formanmí Geysis. — Sv. P. Dráttarvéla- námskeið DRÁTTARVÉLANÁMSKEIÐ tU undirbúnings dráttarvélaprófi verður haldið á vegiun Fræðslu- niiðstöðvar Ökukennarafélags Is- lands í Reykjavík og Slysavama- félagsins, ef næg þátttaka fæst. Þeir unglingar í Reykjavík oig nágrenni, sem orðnir eru 16 ára eða verða það á þessu sumri eiga kost á þáitJttöfbu. Þáttitöku- gjald er kr. 500.00. Er þar inni- falið: Kennslubók, 4 tímar bók- iegt nám í umifierðarreglium oig meðferð dráttarvélia. Ætfimgar- akstur á sérstöku æfingasivæði. Unglimguim 14 og 15 ára, er einnitg heimil þáttitaka, en eng- inm fær ökuskirteini fyrr en hanm er orðimm 16 ára, samtov. lögurn. Þeir, sem óska eftir að taka þátt í námskeiðinu tiikynni þátt- töku til Slysavamaféliagins eða til Fræðsl'umiðstöðvarinnar. Sólfaxi, hin nýja þota Flug- félagsins hefur verið í Reykja vík undanfarna daga til und- irbúnings farþegaflugi, en í gærmorgun fór hún í fyrstu ferð sína til Glasgow og Kaup mannahafnar. Þessa vlku verður svo Gullfaxi í fríi, þar sem hann verður þveginn að utan og málaður, þar sem málning er farinn að bila. Um helgina fóru fram æfing- ar nýrra flugáhafna á þot- unum og var æft bæði á Ak- ureyri og í Reykjavík. Með Sólfaxa í gærmorgun fór utan 91 farþegi, en flugstjóri var fyrsta sinni á þotu í áætlun Henning Bjarnason. Ljósm. Hermann Stefánsson. Karía- kórinn Vísir í söngför um SV-land Siglufirði, 21. maí. KARLAKÓRINN Vísir gekkst fyrir söngskemmtun hér í gær- dag í Nýja Bíói. Húsfyllir var og þurfti fjölmenni að snúa frá þó að allt gólfrými í sal hefði verið fyllt með lausum stólum. Viðfangsefni kórsins er með tvennum hætti. Annars vegar hefðbundin karlakórslög, og hins vegar farið inn á nýstár- legri músíksvið og þar notið að- stoðar kvartetts og dægurlhljóm- sveitar. Er óhætt að segja að margt í sviðsetningu, leik og söng kom skemmtilega á óvart og varð áheyrendum gleðigjafi. Karlakórinn leggur nú land undir fót og sækir heim Suð- vesturlandið, þéttbýlissvæðið, með gott sýnishorn af dægra- styttingu Siglfirðinga. Sönggtjórj, er hinn kunni hljómlistarmað- ur, Geirharður Valtýsson. — Stefán. Annað kvöld, fimmtudag, syng ur karlakórinn Vísir í Austur- bæjarbíói og hefst samsöngur- inn kl. 7,15. William Heinsen skrifar fyrir danska sjónvarpið • Færeyskl rithöfundurinn Williani Heinesen, hefur nýlega skrifað handrit að sjónvarpskvikmynd fyrir börn og unglinga, sem sýna á í litum í dauska sjónvarp- inu. Er það í fyrsta sinn, sein hann skrifar sérstaklega fyr- ir sjónvarp. Kvikmyndm, sem sýna á i þremur 25 mínútna þáttum verður að mestu gerð i Fær- eyjum og leikarar verða fær- eyskir að undanskildum að- al'leikaranum, Laris Fjeld- mose, sem er fjórtán ára að aldri. Leiikarar og kvikmynda tökustaðir verða valdir í samráði við Heinesen, en stjórnandi uppfcökunnar verð ur Aase Schmidt, sem átti hugmyndina að þvi að fá Heinesen til þessa verks. Saga Heinesens fjallar um dreng sem fer I sumarleyfi til frændfólks síms í Færeyj- um. Frændi hans og frænka taka á móti honum og ætla með hann strax til Vogeyjar — sem í sögunni er kötúuð Vesturey — en þau verða að staldra við hjá aldraðri frænku í Þórshöfn,, viturri konu og sérkennilegri. Sdðan er fylgzt með drengnum og fleiri bömum i orlofi þeirra, fuglaveiði, ferð til fjalla, ferð á eyðibýli og þar fram eftir götunum. Hluti myndarinnar verður tekinn í Vogey, þar sem Heinesen sjálfur dvaldist tíð- um i sumarleyfum, er hann var littll drengur. Myndin verður tekin í júní- mánuði og væntanlega sýnd í byrjun næsta árs. — Húsmæðra- fræðslan Framhald af bls. 14 ísafjarðar frekar en leita á ein- hvem annan skóla? — Við höfðum heyrt að skól- inn væri góður og staðurinn skemmtilegur og fannst tilbreyt- ing í því að fara i annan lands- Muta. Við sjáum ekki eftir þvl og sjálfsagt erum við allar þeirr ar skoðunar eftir veturinn að veran hérna hafi orðið okk- ur að mjög miklu gagni. h.k. margfaldar markad yðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.