Morgunblaðið - 26.05.1971, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAl 1971
Minnisstæð messa á
Höskuldsstöðum
Sr. Friðrik Friðriksson og' sr. Pétur Ingjaldsson við dyr
Höskuldsstnðakirkju.
Nýlega gáíu norðlenzkir
presteir út íailega bók og fróð
lega. Hún heitir: Tíðindi
Prestafélags hins forna Hóla-
stiftis.
Það félag er yfir 70 ára
gamalt og gaf út sitt fyrsta
rit á Akureyri 1899. Matthias
gaf því kjörorðið: Hafðu Guð
fyrir augum og stundaðu
kristiiega breytni. Þetta var
honum líkt. Þetta er nóg.
Meira þarf í raumnini ekki til
að vera kristinn maður.
Tíðindi eru prentuð á góð-
an pappír, prýdd mörgum
fallegum myndum og það sem
bezt er: Efnið er bæði fjöl-
breytt og lífrænt. Hér skal
það ekki rakið. Það yrði of
langt mál. Efnisyfirlitið birt-
ist á öðrum stað. Þar er bæði
sögulegur fróðleikur, fréttir
úr kirkjulífi samtimans, og
uppbyggilegar greinar, sem
hver og einn hefur gott af að
lesa og getur haft af veru-
lega sálubót.
Á stofnfundi Prestafélags-
ins á Sauðárkróki 8. júní 1898
var Friðrik Friðriksson stud.
theol. Það á þvi vel við að
minnast hans i Tíðindum. Það
gerir sr. Pétur Ingjaldsson í
fagurri grein, sem hér er birt
ur kafii úr með leyfi hans.
Hún heitir Fermingardreng-
urinn.
Sr. Friðrik fermdist á
Höskuldsstöðum á Skaga-
strönd hafisvorið mikla 1881.
„Einmana var þessi ferm-
ingardrengur á kirkjugólfi,
faðir hans nýgrafinn við
kirkjuvegginn og móðir hans
rúmföst í fjarliægri sveit.
Hinn mikli gáfumaður, sr.
Eggert O. Brim, fann einstæð
ingsskap hins unga og gáf-
aða drengs og var honum
hlýr og góðgjarn. Árin liðu,
löng mannsævi göfugs anda,
sem hafði þreifað á hand-
leiðslu drottins. Einlæg barns
trú, samfara þrá til menntun-
ar varð til að kalla góða
menn honum til brautargeng-
is. Og er hann kom á fornar
slóðir fyrst 75 árum seinna,
var fermingardrengurinn,
séra Friðrik, kunnasti æs/ku-
lýðsieiðtogi lands vors. Öldur
mannlegur, hvítur á hár og
skegg, klæddur messuskrúða,
gekk hann til kirkju sinnar
sunnudaginn 23. september
1956, því að nú var hann
presturinn. Hin fagra og
Forsíða Tíðinda Prestafélags
hins forna Hólast.iftis.
stóra kirkja föður hans hafði
llátið nokkuð á sjá af veðrum
áranna, og gólfið var slitið af
göngu kynslóðanna, en hlijóm
ur hinna 230 ára, stóru
kirkjuklu.kkna var sá sami.
Séra Friðrik flutti þar
ágæta ræðu blaðlaust og
hrifning hans sjálfs var mik-
il að prédika, þar sem hann
hafði sjálfur unnið heit sitt á
kirkjugólfi og þá heitið því í
huganum að gjörast prestur.
Og því lengur, sem hann
dvaldi í guðshúsinu urðu
mininángarnar frá fermingar-
messunni honum skýrari, en
hún stóð í 3 tima. Það var
sem ljómaði fyrir hugskots-
sjónum hans hin dásamlega
handleiðsla drottins öll þessi
ár. Hann fól sig Guði við
grátur hins forna húss, þakk-
aði fyrir heyrðar bænir öll
þessi ár, biðjandi þess, að
Guð greiddi úr áhyggjum
hans og vandamálum eftir
vilja sínum.“
Og grein sinni um sr.
Friðrik Friðriksson lýkur sr.
Pétur með þessum orðum:
„í Saurbæ við Hvalfjörð
stendur kirkja séra Hall-
grímis Péturssonar, þar sem
hann dvaldi I mörg ár eftir
langa og starfsama ævi, og
vann þar sín andlegu afrek.
Handan Saurbæjarhlíðar er
kapella séra Friðriks
Friðrikssonar, í Vatnaskógi
þar sem hann starfaði sem
trúr þjónn drottins með kær-
leik tiil allra sinna með-
bra^ðra."
Tíðindi Prestafélagsins
norðlenzka er gott rit.' Það
ættu sem flestir að kaupa.
HER
ÁÐIJR
FYRRI
HEILLA
80 ára er í dag frú Elísabet
Berndsen ekkja Hendriks heit-
ins Berndsen, kaupmanns.
Elísabet er í dag stödd á heim-
ili dóttur sinnar og tengdason-
ar að Langagerði 114.
Blöð og tímarit
Timarit lögfræðinga, 1. hefti
1971 er nýkomið út og hefur
verið sent blaðinu. Það er 88 blað
síður fyrir utan auglýsingar og
af efni þess má nefna: Nestor
íslenzkra lagamanna, Karl
JúMus Einarsson. Minning, eftir
Jóhann Gunnar Ólafsson,
fyrrv. sýslumann. Stefán Már
Stefánsson borgardómari skrif-
ar greinina Réttarsáttir. Er það
löng grein og skilmerkileg.
Björn Guðmundsson og Stefán
Már Stefánsson skrifa frá Sjó-
og verzlunardómi Reykjavíkur,
Arnljótur Björnsson ritar yfir-
lit yfir dóma Hæstaréttar í bif-
reiðamálum, þar sem bætur eru
lækkaðar vegna meðsakar tjón
þola. Ritstjórinn skrifar Á við
og dreif, og heftinu fylgir efnis
yfiriit 1969—1970. Ritstjóri er
Theodór B. Líndal. Ritið er
prentað á góðan pappír í Félags
prentsmiðjunni. Afgreiðslumað-
ur er Hilmar Norðfjörð, Brá-
vallagötu 12.
Samúel og Jónína, táninga-
blaðið, 4. tbl. 3. árgangs, er ný-
komáð út og hefur verið sent
blaðinu. Blaðið er mjög mynd-
skreytt og flytur efni fyrir tán
inga. Ritstjóragrein heitir Mein-
lioka? Þá er skop og grein um
diskotek. Óttar Felix Hauksson
skrifar hljómplötugagnrýni.
Grein með myndum af Ródur-
um. Smásagan Gunni. Viðtal við
Þorstein Eggertsson. Sumar-
tízkan í hillum. Hópferð Islend-
inga á enska hátíð. Að lesa i
skrift. Heimisendi seinkar. Hve-
nær verð ég kona? eftir Fríðu.
Litli strákurinin venjulegi: Dust-
in Hoffman, og eins og áður seg
ir glás af myndum. Ritstjóri
blaðsins er Þórarinn Jón
Magnússon.
2
BROTAMÁLMUR Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 2-58-91. SKODA OCTAVIA COMBI '62 vel með farinn og Htið keyrð- ur í góðu standi er ti-l sölu. Upplýsingar i síma 15476 eftir kl. 5 daglega.
teÚÐ TIL LEIGU með húsgögnum í Stokk- hólmi i þrjá mánuði, júni til ágúst. Sími og bíll geta fylgt. Upplýsingar i síma 33170. POPCORNS-VÉL Eigum óselda Pop-A-Lot pop- corns-vél á lager. H. Óskarsson sf„ sími 34339.
FANNHVÍTT FRA FÖNN Fönn óskar að ráða strax ungan reglusaman mann til ýmissa afleysingastarfa. Bíl- próf. Uppl. í Fönn, Lang- holtsvegi 113. TIL SÖLU tvö kæliborð, annað með djúpfrysti. Stebbabúð Hafnarfirði.
RlKISSTARFSMAÐUR óskar eftir smáíbúð (ung- karlaíbúð) nú þegar, eða fyr- ir ménaðamót. Uppl. í síma 2-39-60 eftir kl. 17 (5 e. iv). HAFNARFJÖRÐUR Kjötiðnaðarmaður óskast strax. Stebbabú? Hafnarfirði.
MATSVEINN ÓSKAST á 60 tonna færabát frá Stykkishólmi, sími 24903. BlLSTJÓRI Ungur reglusamur maður með réttindi til aksturs fólksflutn- ingabifreiða óskar eftir vinnu i júní, helzt úti á landi. Tifboð merkt „Bílstjóri 7908” send- ist Mbl. fyrir 31. maí.
TIL LEIGU GOTT HERBERGI með húsgögnum, aðgang að baði og síma fyrir reglu- sama konu frá 1. júní — 1. sept. Tilboð merkt „Haga- hverfi 7907" sendist Mbl. f. 30. maí. ARINCO Erum fluttir með málmmót- tökuna að Gunnarsbraut 40. Kaupum eins og áður alla brotamálma allra hæsta verði. Staðgreitt. Símar 12806 - 33821.
ATVINNA Ung dugleg kona óskar eftir ræstingarstarfi, t. d. i skrif- stofu eða annarri vinnu, 2—5 tíma á dag í Hafnarfirði eða Rvík. Uppl. í síma 52765 kl. 19—20. BÍLL — BÍLL Til söiu af sérstökum ástæð- um, Skódi 100 L, árgerð '70, drapplitur, ekinn 12000 km. Til sýnis á bílasölu Matthias- ar Höfðatúni 2. Góð kjör við staðgreiðslu.
RYMINGARSALA
Seljum næstu daga með afslætti ýmsar
vörur verzlunarinnar.
Blóm og grœnmeti hf.
Langholtsvegi 126 — Sími 36711.
• •
BÍLAR TIL SOLU
Citroen Safari '69 VÖRUBfLAR:
station, ekinn 11 þús. km M-Benz 1413 '69.
allur sem nýr. M-Benz 1413 '67.
M-Benz '65 disel, ný vél. M-Benz 1413 '66
Ford Fairlane '66. með framdrifi.
Chevrolet Maiibu '64. Bedford '61—'66.
Chevi Nova '64—'66. Opel station '68 4ra dyra. Moskwitch '64 ódýr. Skannia '66— '67.
BÍLABORG - Sími 30995 Kleppsvegi 152 Holtavegsmegin.
RUTLAND
byggingavörur
Undirburður,
4 tegundir.
Sökklamálning.
Uakmálning.
Þakkítti.
hi., sími 17373