Morgunblaðið - 26.05.1971, Page 31
MORGUNBLAÐÍÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 19T1
31
íslendingar opnir fyrir
nýjungum í skíðaíþróttinni
segir Magnús Guðmundsson, skíðakennari
HINN kunni golf- og skíðamað-
ur, Magnús Guðmundsson, efndi
fyrir skömmu til námskeiðs fyrir
skíðafólk á Akureyri og kynnti
þar ýmsar tækninýjungar í
skíðaíþróttinni, sem ekki hafa
verið kynntar hér á landi áður.
Magnús Guðmundsson hefur
verið búsettur í Bandarikjunum
í nokkur ár og starfar þar sem
skíðakennari í Sun Valley í
Idaho. — Sun Valley er mikil
miðstöð skíðaíþróttar í Banda-
rikjunum og hafa komið þar
fram margar merkar tækninýj-
ungar í þeirri íþrótt. Magnús
kom heim í stutt frí skömmu
fyrir páska. Var hann fenginn
til þess að leggja brautir í mót-
um þeim, sem haldin voru á
Akureyri um páskana, en að því
Ioknu kynnti hann skíðafólki á
Akureyri nokkrar af helztu
nýjungunum, sem komið hafa
fram í Sun Valley að undan-
förnu. Fór hann aftur utan fyrir
nokkrum dögum.
— Akureyringarnir voru mjög
móttækilegir fyrir nýjungum og
framfarimar þennan stutta tíma
voru greinilegar, sagði Magnús
í viðtali við Morgunblaðið. —
Ég kom síðast heim árið 1968
og frá þeim tíma hefi ég orðið
var við stöðnun. Mér fannst
þessarar stöðnunar gæta á ný-
afstöðnu landsmóti. Segja má
að hún sé eðlileg að nokkru
leyti, þar sem íslendingar eru
mjög einangraðir hér og lítið
um utanlandsferðir skíðafólks.
Fara þeir því mikið á mis við
þær tæknilegu framfarir, sem
verða í íþróttinni. Hins vegar
eru Islendingar opnir fyrir nýj-
ungum þegar þeim gefst tæki-
færi á að kynnast þeim og sá
ég undraverðan árangur hjá
skíðafólkinu þennan stutta tíma,
sem ég var með því í Hlíðar-
fjalli við Akureyri. — Nefndi
hann sem dæmi Hauk Jóhanns-
son, ungan og efnilega skíða-
mann frá Akureyri, sem stóð
sig mjög vel á landsmótinu.
— Ég fór upp í brekku með
honum og eftir klukkutíma hafði
hann uppgötvað hverjir hinir
tæknilegu vankantar á skíðun
hans voru og tók hann þá um
leið framförum í íþróttinni.
Að svo mæltu skýrði Magnús
frá því í stórum dráttum í
hverju hinar tæknlegu breyting-
ar væru fóignar:
— Grundvallarlögmál skíða-
íþróttarinnar er gott jafnvægi,
rétt notkun líkamsþunga í beygj
um og réttur þungaflutningur,
sagði Magnús. — Fram til þessa
hefur íslenzkt skíðafólk vanizt
því að standa upprétt í fyrri
hluta beygju í svigi, en í ljós
hefur komið að mun betri ár-
angur næst með því að vera í
lágri stöðu í fyrri hluta beygj-
unnar og spyrna síðan út í gegn
um beygjuna. Með þessu næst
meiri kraftur og þar með meiri
hraði.-I öðru lagi legg ég áherzlu
á notkun efra skíðisins út úr
hverri beygju og síðan er næsta
beygja tekin á áðurnefndu
skíði. Með þessu móti tengjast
beygjurnar hvor annari betur
sem erfitt yrði að útskýra í orð-
um.
Magnús er búinn að vera
meira og minna við skíða-
kennslu í yfir 20 ár, en þar af
hefur hann verið við kennslu í
8 ár í Bandaríkjunum. f því
sambandi sagði Magnús að tals-
verður munur væri að kenna
íslendingum og Bandaríkjamönn
um að rehna sér á skíðum.
— Þeir. Bandaríkjamenn, sem
koma til Sun Valley eru í mörg
um tilfellum millistéttarmenn
með fjölskyldur sínar. Þeir hafa
sparað fé til skíðafrísins allt
Magnús Guðmundsson,
skíðakennari.
w ...
Hé skíðar Magnús fram af lít'lli hengju. Er hann lágur í fyrri
liluta beygjunnar, en réttir sig upp og spyrnir í snjóinn þegar
hann er kominn fram af hengjunni. Með þessu móti tekst hon-
um að halda stöðugri snertinguvið snjóinn og nær þar með
betri stjórn á skiðunum.
Hér kennir Magnús nokkrum Akureyringum að stiga upp á efra skiðið til þess að fá þungann
upp á það skíði, sem notað verður í næstu beygju.
og þar með fæst aukinn hraði.
í þriðja lagi legg ég mikla
áherzlu á gleiðstöðu á skíðum.
Fram til þessa hefur það ekki
þótt góð skíðun að skíða gleitt.
Sú skoðun hefur fyrst og fremst
orðið til vegna fagurfræðilegra
sjónarmiða, enda skal það játað
að skíðamaður sem skíðar með
fætur saman lítur rennilegar út
en hinn, sem skiðar gleitt, en
aftur á móti er gleiðstaðan eðli
legri og með henni fæst betra
jafnvægi. Með gleiðstöðu kem-
ur þunginn beint niður frá
mjöðmum og auðveldara er að
færa þungann eftir því sem þörf
er á. Allt miðar þetta að því að
fá sem stöðugast samband við
snjóinn og þar með næst betri
stjórn á skíðunum um leið. —
Þetta eru meginbreytingarnar,
en bar við bætast ýmis atriði.
Þannig á ekki að standa á skiðum, segir Magnús. Þunginn er
of aftarlega, en í allri friskiðun er eðlilegast að standa í þægi-
lega uppréttri stöðu með hnéin og ökla beygð.
Nokkrir af nemendum Magnúsar. Má sjá þarna ýmis þekkt andlit, svo sem Karólínu Guð-
mundsdóttir og ívar Sigmundsson o.fl.
árið og koma með þvi hugar-
fari að hafa sem allra mest not
af dvölinni og nýta þvi hverja
stund sem gefst til þess að æfa
sig og nema. íslendingarnir fara
aftur á móti hægar og oft tekur
það langan tíma fyrir kennar-
ann að ná sambandi við þá.
En loks þegar það tekst þá er
árangurinn mjög góður og eru
framfarirnar hjá þeim oft ör-
ari en hjá Bandaríkjamönnun-
um.
An efa muna margir eftir
Magnús Guðmundssyni í sam-
bandi við golf, en Magnús hefur
náð langt í þeirri íþrótt engu
síður en á skíðunum og hefur
einnig fengizt við golfkennslu,
hér heima og erlendis. Aðspurð-
ur sagðist Magnús vera hættur
að kenna en færi þó enn í golf
sér til ánaegju yfir sumartímann.
Magnús er kvæntur amerískri
konu. Kennir hún í reiðskóla
yfir sumartímann og fæst við
skíðakennslu á vetrum með
Magnúsi. Kom þar fram í rabb-
inu við Magnúsí að hún hafði
upphaflega verið nemandi hans
í Sun Valley, þá sem algjör
byrjandi í skíðaíþróttinni, en nú
hefur hún náð svo langt sjálf,
að hún er orðin skíðakennari í
Sun Valley.
í Hlíðarfjalli við Akureyri
var Magnús með tvo hópa skíða
fólks. Annars vegar voru ungl-
ingár, sem lítið sem ekkert
höfðu farið á skíði áður, en
hins vegar var skíðafólk, sem
lengra er komið og náð hefur
langt í mótum hér heima. Má
þar nefna nöfn eins og ívar Sig-
mundsson, Árna Óðinsson,
Karolínu Guðmundsdóttir o. fl.
Sagðist Magnús hafa haft mikla
ánægju af þvi að starfa með
þessu fólki og rómaði þá fyrir
gréiðslu, sem hann fékk á Akur
eyri um páskana og vikuna á
eftir.