Morgunblaðið - 07.10.1971, Síða 2
2
MORGUNBLAÐI0, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1971
Brosio fari
til Moskvu
Ræði möguleikana á afvopnun
við sovézka ráðamenn
Brusisel, 6. október, NTB.
ÁKVEÐIÐ hefur verið, að Man-
lio Brosio, fyrrverandi aðalfram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins, fari til Moskvu, eins fljótt
og tök eru á, í því skyni að skýra
Sovétstjórninni frá því, að 14
Iönd NATO eru sammála um, að
gerð skuli grein fyrir skilyrðum
Smíða ísl.
togara
í Noregi
BERGEN 6. október — NTB.
Norska fréttastofan NTB getur
þesis i frétt í dag, að íslenzkir
útgerðarmenn séu nú að kanna
möguleika á smíði nýrra skut-
togara í Noregl. Hafi komið
fram áform af fslands hálfu um
hugsanlega smíði 15—20 skipa
um 150 fet að lengd, sem kosta
myndu um 8 milljónir norskra
kr. hvert. NTB hefur frétt sína
eftir Johan Mikkelsen, ritara
sambands skipasmiða í Vestur-
Noregi. Skýrir Mikkelsen þar
svo frá, að íslendingar hafi beðið
um tilboð frá Noregi.
Sa'm.ii'ngar séu nú í undirbún-
ingi um smiði þriggja skuttog-
ara og enginn vafd leiki á því,
að þeir geti orðið fleiri, er haft
eftir Mikkelsen. Ekki sé saumt
um neina heildarpöntun að ræða
og norskar skipasimíðastöðvar
eigi þama í harðri samkeppni
við skipasmíðastöðvar í Frakk-
landi og Japan.
þeirra fyrir viðræðum milli vest-
urs og austur um að draga úr her-
afla. Á Brosio að leggja fram
skýrslu um viðræður sínar við
sovézka ráðamenn á ráðherra-
fundi NATO 8.—10. desember nk.
í fylgd með Brosio verða menn
úr sérfræðingabópi NATO, setn
um langt skeið hafa fengizt við
þau flóknu vamdamál, sem fækk-
un í herliðS kann að hafa í för
með sér. Enn hefur ekki verið
ákveðið, hverjix fari með Brosio,
en talið er líklegaist, að það verði
fulltrúar þeinra landa, sem fyrst
yrðu að sæta fækkun í herliði,
það er að segja lönd Mið-Evrópu
og Norður-Amerííku.
Kirkjugarðssjóðir fái að greiða
útfararkostnað
Héraðsfundur í Kjalarnessprófasts-
dæmi samþykkti margar tillögur
HÉRAÐSFUNDUB í Kjalamess-
prófastsdæmi var haldinn í Hafn-
arfirði sunnudaginn 3. okt. sl.
Á undan fundi var almemn
guðsþjónuata í Hafnarfjarðar-
kiirkju, þar sem séra Bragi Frið-
riksson flutti predikun og séra
Bjöm Jónsaom þjónaði fyiir alt-
airi. Að lokrnni messugjörð bauð
sóknarnefnd Hafnarfjarðarkiirkju
fundarmöninum til hádegisverðar
í Sjálfstæðishúsinu og þar var
svo fundurinm haldinm. Það sem
markverðast gerðiist á fundinum
var þetta:
Á undanfömum tveimur hér-
aðsfundum hafðft komið fram ein-
Skyldi flugmanninum
vera bötnuð flensan?
„JA, nú vitum við hreint ekki
neitt," svaraði Þröstur Sigtryggs-
son hjá Landhelgisgæzlunni, þeg-
ar Morgunblaðið spurðist í gær
fyrir um, hvenær leiguflugvél
Landhelgisgæzlunnar kæmi. „Við
fengum skeytl um daginn, sem
sagði að flugmaðurinn værl kom-
inn með inflúensu og að hann
gæti í fyrsta lagi lagt af stað að
vestan 5. október. Meira höfum
við ekki frétt."
Landhelgisgæzlam hefur tekið
þessa flugvél, sem er af gerðinmi
Beecheraft Queem B-80, á leigu
til mánaðartíma til að athuga,
hvermig þessi flugvélartegund
reyndist til gæzlustarfa.
Miðausturlönd:
Enn eitt sam-
bandsríkið
- Egyptaland, Libýa og Sýrland
að þessu sinni
dregin ósk fumdairmanma um það,
að femgim vseri heimild til þesa að
kirkjugarðsnefndir og sóknar-
nefndir mættu verja meiiru fé úr
kirkjugarðssjóðum en nú er
heimilt, til að standa straum af
útfararkostnaði sókmammianma eft
ir því sem fjárhagur kirkjugarð3
sjóða leyfði, og létta þannig
þungum byrðum af aðstandend-
um. Prófastur gerði grein fyrir
því, að hanm hefði eftiir síðasta
héraðsfund skrifað kirkjumála-
ráJðumeytin'u bréf, og faxið þess
á leit, að nú yrði samin reglu-
gerð fyrir kirkjugarðslögim, sem
enn er ósamiin, og að í reglugerð-
ina yrði sett ákvæði, sem gæfi
kirkjugarðsstjómum frjáisari
hendur um ráðstöfun á fé úr
kirkjugarðssjóðum í þessu sfcymi.
Jafnframt hefði hamn semt afrit
af bréfinu til kirkjuþingsins,
sem hefði gert eimróma sam-
Þyfcikt, sem gekk í söimu átt. Enn
væri þó ekfci vítað hvemig þessu
áhugamáli héraðlsfundar myndi
reiða af. Enn urðu á héraðsfumdi
allmiklar umiræður um þetta mál,
og koim glöggt fram einhugur
fundarmanna á því, að þessu
máli yrði fylgt eftir af fremsta
megrni.
Þá var ailmikið rætt um krist-
indómsfræðslu í skólum, og að
umræðum loknum einróma sam-
þyfckt þessi tillaga:
Héraðsfundur telur brýna nauð
syn bera til þess, að samim sé ný
kennslubók í kristnmm fræðum
fyTir bamaskóla.
Þá var og þeasi tillaga sam-
þykkt einróma:
Héraðsfundur telur óhæfu, að
Framhald á bls. 19.
INYSKIPAÐUR sendiherrai
I Japans Seizo Hinata aflienti
| í gær forseta fslands trúnað-
arbréf sitt í skrlfstofu forseta
í Alþingishúsinu að viðstödd-
I iim Einar Ágústssyni utanrik
isráðherra.
Siðdegis þá sendiherrann
heimboð forsetahjónanna að
, Bessastöðum ásamt nokkrum
fleiri gestum.
Lík
franska
piltsins
fundið
BJÖRGUNARSVEITARMENh
og sjálfboðaliðar á Siglufirð
fundu í gær lík franska piltsins
sem saknað hefur verið síðan aí
kvöldi 6. september s.l. Fanns
líkið í klettabeltum ofan svo
nefndrar Selskálar vestan Hóls
dals, nokkuð hátt upp af þein
stað, þar sem föt piltsins höfði
áður fundizt. Þoka og snjókomí
höfðu torveldað mjög leit upp
í fjöllum.
Siglufjörður í
skemmtibátasmíði
BÆJARSTJÓRN Sigluf jarðar
samþykkti á fundi sínum í fyrra-
Síra Jón afhendir gjöf Ásbjörns __
Pakistansöf nun Rauða krossins:
Ásbjörn Ólafsson
gefur 250 þús. kr.
MORGUNBLAÐIÐ hefur tekiS á ur, og ekki verri, til að láta eitt-
dag aðild Siglufjarðarkaupstað-
ar að hlutafélagi til könnunar
á smíði skenimtibáta úr áli á
Bandaríkjamarkað.
Meðaðih Siglufjarðar er Verk-
fræðiþjónusta Guðmundar Ösk-
arssonar í Reykjavik. Síldar-
verksmiðjum rikisins hefur ver-
ið boðin aðild að hlutafélaginu,
en mjölskemma þeirra í Siglu-
firði, SR-46, sem nú er að mestu
ónýtt myndi henta vel til smið-
anna, ef af yrði. Svar hefur ekki
borizt frá Sildarverkisimiðjun-
Kaíró, 6. október.
LEIÐTOGAR Egyptalands, Sýr-
lands og Líbýu náðn í dag sam-
komulagi lun hernaðarlega og
stjórnmálalega samvinnu milli
landanna þriggja. Anwar Sadat,
forseti Egyptalands, sem fyrr í
þessari viku var valinn formaður
hinna nýju samtaka, stjórnaði
viðræðunum við Hafez Assad, for
seta Sýrlands, Gaddafi, forsætis-
ráðherra Líbýu, og ýmsa aðra
háttsetta embættismenn.
Leiðtogamir þrír urðu, að sögn
NTB, ásáttir um myndum sam-
bandsstjómar og utariríkisstjóm-
málaráðs, seim skuli hafa það
hlutverk að samræmia stefrvur
landanna í utararíkismálum. Þá
voru eirmig samþykktar áætlanir
um samihæfingu í hermálum, og
svo í ýmsum liðum efnahags- og
þj óðfélagsmiála.
Ekki var getið um nein sér-
stök ágreiningsefni, en löndin
þrjú eru ósammála um hvermig
leysa skuh deilumar við ísrael.
Egyptaland vill helzt friðsam-
lega lausn, en Sýrland og Líbýa
vilja fara í strið. Það hefur að-
eins verið skýrt lauslega frá efni
sáttmálans, og ekkert sagt um
hvaða ráðum hið nýja sambands-
ríki hyggist beita gegn ísrael. —
Talið er að yfirlýsing þar um,
verði mjög harðorð þegar hún
kemur fram í dagsljósið, en jafn-
framt orðuð þannig að hún
breyti í engu stöðunni eins og
hún er í dag.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar tíl að stofna sambamds-
ríki undanfarin ár, en þegar það
hefur tekizt hafa þau oftast orð-
ið skammlíf, og fyrsta ágreinings
efni sundrað þeiim.
móti höfðinglegri gjöf, 250 þús.
krónum, til Pakistansöfnunar
Rauða krossins. Er hún frá Ás-
bimi Ólafssyni, stórkaupmanni.
Ásbjörn kvað þetta lítið, en hann
vonaðist til að það ýtti undir
aðra að láta eitthvað af liendi
rakna.
Síra Jón Thorarensen kom með
peningana til Morgunblaðsins í
gær frá Ásbimi. Gjöfinni fylgdi
svohljóðandi bréf frá Jóni Thorar
ensen:
„Ásbjöm Ólafsson, stórkaup-
maður, kom tif mín og bað mig
um að fara með 250 þúsundir kr.
til Morgunblaðsins frá sér í Pak
istansöfnun Rauða kross íslands,
til sveltandi bama. Hann tók
fram, að þetta væri lítið, en hann
vonaðist til þess að þetta ýtti und
ir þá, sem hefðu svipaðar ástæð-
bvað af hendi rakna til þeirra,
sem eiga í þessum hörmungum
í Austur-Pakistan, þar sem hægt
er að bjarga hverju bamslífi með
nokkrum krónum.“
um.
Hlutafélagið hefur þegar
tryggt sér samning við dreifi-
aðila í Bandaríkjunum og |er nú
verið að kanna samkeppnisað-
stöðu á markaðnum.
Sjálfstæöisfélögin halda:
Spilakvöld í Súlnasal
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN f
Reykjavík efna til spilakvölds í
Súlnasal Hótel Sögu í kvöld kl.
20.30. Frú Sigurlaug Bjarnadótt-
ir, borgarfulltrúi, flytur ávarp.
Að venju verða veitt góð spila-
verðlaun og einnig veitlr að-
göngumiðl rétt tíl þátttöku í
happdrætti kvöldsins. Dansað
verðnr til kl. 1 eftir miðnætti.
Þetta er fyrsta spilakvöld
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vik á þessu hausti, en í vetur
verða spilakvöld mánaðarlega.
Húsið verður opnað kL 20 og
er fólk hvatt til að mæta stund-
víslega.