Morgunblaðið - 07.10.1971, Side 6
MORGUNBLAÐH), FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1971
F------------------------------
f j----------------------------
STÝRIMANN
vantar á 200 rúmlesta bát frá
'* Qrindavík. Uppl. í slma 92-
8261 eftlr kl. 5.
STÚLKUR ÓSKAST
í frystrhús. Uppl. í slma
34736.
VIL KAUPA
notað mótatimfbur. Aðallega
1x6". Uppl. I síma 30833 eft-
ir kl. 19.
KÓPAVOGUR — AUSTUflBÆR
Við erum að teita að góðri
korni til að gæta 10 mánaða
drervgs eftir hádegi mánu-
daga til föstudagis. Sími
41221.
HERBERGI ÓSKAST
í Hafnarfirði, helzt með að-
gang að baði. Uppl. í síma
50910.
KÓPAVOGUfl — AUSTURBÆR
Ósika eftir gæzlu fyrir þriggja
ára telpu eftir hádegi mánu-
daga, miðvikudaga og fimmtu
daga. Jóhanna A. Friðriks-
dóttir, simi 41155 eftir kl. 6.
RÓLEG STÚLKA
óskar eftir herbergi, æskilegt
ef hálft fæði gæti fylgt. Uppl.
í síma 15733 eftir kl. 8,30 í
kvöid.
HJÓN R/IEÐ 1 BARN
óska eftir 2ja—3ja herb. ít>úð
strax. Húshjálp kæmi til
grema. Uppl. í sima 36499.
RÓSKUR UNGUR MAÐUR
vanur útkeyrslu og lagerstörf
um og með réttindi á þunga-
vinmivéiar, óskar eftir vinnu
strax. Margt kemur til greina.
Oppl. í síma 40862.
TIL SÖLU
er skermkerra, barnarúm og
hjólgrmd undir burðarrúm,
eirmig ýmiss fatnaður, selst
ódýrt. Uppl. í síma 82079.
(BÚÐ ÓSKAST
Kona með tvö börn óskar
eftir 2ja—3ja herb. íbúð í
Reykjav'ik. Uppl. í síma
52020,
teÚÐ ÓSKAST
UiNG barnlaus hjón óska eft-
ir Ktltli íbúð sem alira fyrst,
I Reykjavfk, Kópavogi eða
Haifnarfirði. Sími 41125 eftir
kl. 13.
AFGREIÐSLUSTÚLKA
óskast nú þegar. Uppl. í sima
2630. — Valgeirsbakari, Ytri-
Njarðvík.
SKRIFTVÉLAMEISTARI
óskar eftir starfi. Margt kem-
ur til greina. Liisthafendur vin
samlegast teggi nafn og síma
nr. imn á augl.d. Mtol. merkt
„Skriftvélameistari 3209.
TIL SÖLU
sérstaklega fallegur brúðar-
kjóB, stærð um 38. — Sími
32184.
ÁHNAÍ) ÍIKILLA
VÍSUKORN
Aðalhlutverkið í „Coogan lögrregliunanni", sem Laugarásbíó hef-
ur sýnt að undanförnu við gróða aðsókn, er Ieikið af þeini
manni, sem nú er hvað vinsælastur meðal ungpi kynslóðarinnar
jafnt hér sem erlendis — Clint Eastwood. Varð hann fyrst þekkt-
ur fyrir leik sinn í hinum svonefndu „dolIaramyndum“, sem hér
hafa verið sýndar. — I myndinni i Laugrarásbíói leikur Eastwood
sveitalögp-egrlumann i Arizona, sem þekktur er fyrir að starfa
jafnan einn við að elta bófa ogr að gefast aldrei upp við eftirför.
Er honum því falið að fara til New York og sækja þar grlæpa-
mann, sem yfirvöld í Arizona eigra sitthvað vantalað við.
Eyðist von um okkar jörð
öldu í svörtu róti.
Meðan blinduð brosir hjörð
blekkingunum móti.
Gunnlaugur Gimnlaugsson.
SORG
Litla stúikan látin var
hún lá á dánarbeð.
Sárar voru sorgimar
og sárt og hryggt var geð.
Sorg var þung á syrgðri brá
er sorgin hrelldi sprund.
Það lifir eilíf ástarþrá,
á örlaganna stund.
Trúarvissan veitir styrk,
og von um betri tíð.
Ævin sýnist ávallt myrk,
þá að fer sorg og stríð.
En himinsædu hugsunin
er huggun þjáðri sál.
Hön hugsar þá um himininn
sú hugsun er ei tál.
Eysteinn Eymtindsson.
80 ára verður í dag frú Jóna
Ó. Jónsdóttir Týsgötu 4. Hún
verður stödd á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar Hraun-
bæ 78.
Þann 5. ágúst s.l. opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Brenda Bar
lene Pretlov frá Akureyri og
(Töinar Kristbjörnsson, Hverfis-
götu 98 A, Reykjavik.
60 ára er í dag Ólafur S. Ól-
afsson, Efstasundi 93.
DAGBÓK
Mundu eftir skapara þinum á unglingsárum þínum, áður eh
vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um, mér
Iíka þau ekki. (Predik. 12.1).
I dag er fimmtudagurinn 7. október og er það 280. dagnr árs-
ins 1971. 25. v. sumars. Árdegisháflæði er í Reykjavík kl. 07.52.
Eftir lifa 85 dagar.
Næturlæknir i Keflavík
5. 10. Jón K. Jóhannsson.
6. 10; Kjartan Ólafsson.
7.10. Ambjörn Ólafsson.
8., 9., 10. 10. Guðjón Klemenzson
11.10. Jón K. Jóhannsson.
Asgrímssafn, Bcrgstaðastræti 74
er opdð suininudaga, þriðjudaiga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
(gengið inn frá Eiríksgötu) er
opið £rá ki. 13.30—16. Á sunnu-
dögum frá 15.9.—15.12. Á virk-
uim dögum eftir samkomulagi. .
Náttúrugripasafnið Hvertisgötu 116,
Opið þrið.iud., fimmtud., Jaugard. og
sunnud. kl. 13.30-—16.00.
Uáðgjafarþjönusta Geðverndarfélags-
ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
siðdegis að Veltusundi 3, simi 12139.
pjðnusta er ókeypis og öllum heimil.
Sýning Handritastofunar fslands
1971, Konungsbók eddukvæða og
Flateyjarbók, er opin á sunnudögum
Kl. 1.30—4 e.h. í Árnagarði við Suður
götu. Aðgangur og sýninearskrá
ókeypis.
Fyrstu póstferðirnar
Opinber póstþjónusta hér í
álfu hófst í Þýzkalandi 1504, í
Frakklandi 1576, í Englandi
1590 , í Rússiandi 1630, í Dan-
mörku 1624, í Svíþjóð 1636. Hér
á Islandi hófst hún ekki fyrr en
1782. Var þá farin ein póstferð
á Vestfjörðum milli sýslumanns
setranna Reykjaness við Djúp
og Haga á Barðaströnd. Fyrsti
pósturinn hét Ari Guðmunds-
son og hafði hann 19 bréf með-
ferðis og bar þau í tösku um
öxl sér. Þótti yfirvöldum þessi
ferð verða svo dýr, að ekki var
efnt til annarrar fyrr en eftir
tvö ár.
En árið 1783 hófust póstferð-
ir frá Norðurlandi til Bessa-
staða. Var þá farin ein ferð um
haustið, en þrjár næsta ár og
síðan um mörg ár. Fyrsti póstur
inn á þessari leið var Gunnar
Rafnsson, sem þá bjó i Flögu-
seli. Hann fékk þá þegar nafnið
Gunnar Eyfirðingapóstur og
gengur undir því enn. Er auð-
séð á því, sem um hann er sagt,
að hann hefir verið valinn til
þessa starfa með tilliti til harð-
fengis og dugnaðar, en þó sér-
staklega fyrir það að hann var
rómaður sem hinn röskasti
göngumaður þar um sveitir.
Honum er svo lýst, að hann hafi
verið mjög áræðinn, fáskiptinn
og fámáill, svipmikill nokkuð og
svipdimmur. Hann gegndi póst-
ferðunum um 20 ára skeið og
fór alltaí fótgangandi með
tösku sina um öxl. Segir Jón
sýslumaður Jakobsson á Espihóli,
sem var yfirmaður hans, að
hann hafi rækt póstferðimar
með sérstakri árvekni og ráð-
vendni, enda fék hann 5 rd.
aftirlaun á ári þegar hann hætti
póstferðum og nægir það til að
sýna hve mikils starf hans var
rnetið.
Gunnar lenti í mörgum svaðil
förum á vetrarferðum sínum og
vegna þess að maðurinn var
bæði skapharður og dulur, þá
komu upp ýmsar þjóðsögur um
hann og sagt að hann hefði hvað
eftir annað komizt í kast við úti
iegumenn, en jafnan borið sigur
af hólmi i viðureign við þá.
Ein skemmltileg saga er
sögð af póstferðum Gunnars og
getur vel verið að hún sé sönn.
Að minnsta kosti er ekki neinn
hjátrúaarkeimur af henni og á
hún aðeins að sýna, að „engi er
einna hvatastur". Söguna skráði
séra Benedikt Þórðarson, afi
Ólafs prófessors Lárussonar.
Benedikt var fæddur að Sörla
stöðum í Fnjóskadal aldamöta-
árið 1800 og hefir því verið þre
vetur um þær mundir er Gunn-
ar lét af póstferðum. Gat Bene-
dikt hafa heyrt söguna sagða á
uppvaxtarárum sínum nyrðra.
En sagan er þannig.
— Eitt sinn þegar Gunnar var
á ferð, gisti hann á Melum í
Hrútafirði og ætlaði að morgni
suður HóLtavörðuheiði; var
hann einn á ferð, því að enginn
treysti sér að fylgja honum. Um
kvöldið á Melum kemur kven-
maður til hans; hún var borg-
firzk og hét Þuríður. Engin
deili þekkir Gunnar á henni.
Biður hún hann að lofa sér að
fylgjast með honum yfir heið-
ina, en Gunnar afsegir það með
öllu, því að ekki vilji hann, segir
hann, hafa tafir af henni. Hún
kveðst ekki ætlast til þess, að
hann bíði sín, en með honum
kveðst hún fara, hvað sem hann
segi.
Gunnar fer á fætur fyrir dag,
tekur tösku sina og hleypur út.
Þegar hann kemur fram í bæjar
dyrnar, er stúlkan þar, búin tii
ferðar, og kveðst bíða hans.
Gunnar svarar henni engu, en
snarast út hjá henni og hleyp-
ur suður túnið og upp til heið-
arinnar; sér hann að stúlkan
kemur á eftir; fer hann nú sem
hraðast og ætlar að stúlkan
muni sjá sitt óvænna og snúa
aftur. Heldur hann nú áfram
þar til hann kemur að Hæðar-
steini. Þar sezt hann niður, þvi
hann var mjög móður. En þeg
ar hann hefur setið litla stund,
kemur stúlka hans. Þegar hann
sér hana stendur hann upp og
hleypur af stað og stekkur Íengi
svo að hvorki dregur sundur
né saman með þeim. Gunnar var
orðinn mjög móður og settist
því niður að hvíla sig. Kemur þá
stúlkan til hans og spyr hann,
hvort hann ætli ekki að halda
áfram. Síðan fylgjast þau lengi að
og eru nú bráðum komin nið-
ur í byggð; býður hún honum
þá að bera fyrir hann tösk-
una, en hann vill það ekki. En
þegar þau eru því nær komin
niður að byggð, fer hún að
ganga á undan honum, og nær
bæ fyrr en hann, og getur þess
þar, að hún hafi orðið póstin-
um samferða yfir heiðina og sé
hann skammt á eftir sér. Þegar
Gunnar nær bæ þessum, beiðist
hann þar gistingar, því að hann
treysti sér ekki til að halda
lengra. Stúlkan stóð litla stund
við á þessum bæ og fór svo til
gistingar á annan bæ.
Aldrei kvaðst Gunnar hafa
komizt í slíka gagnraun.
Frá
horfnum
tíma
FRÉTTIR
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
Af óviðráðanlegum ástæðum
verður hlutaveltunni, sem haida
átti þann 10. október frestað til
7. nóvember n.k.
Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra, kvennadeild
Föndurfundur verður í kvölci að
Háaleitisbraut 13 kl. 20.30.
Kvenfélagið Bylgjan
Fundur í kvöld að Bárugötu 11
kl. 20.30. Stjórnin.