Morgunblaðið - 08.10.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1971
33
Waldheim
veittan Vesturveldunum.
Hamilton Shirley Amera-
singrhe. — Hann er fulltrúi
Ceylons og er einn helzti sam-
kvœmismaðurinn i aðalstöðv-
um Sameinuðu þjóðanna.
Samt er hann rökfastur rœðu-
maður og snjall samninga-
maður. Hann hefur verið for-
maður hinnar mikilvœgu hafs
botnsnefndar Sameinuðu þjóð
anna.
Stjórn Ceylons er svo mik-
ið kappsmál að Amerasinghe
verði valinn aðalframkvæmda
stjóri, að forsætisráðherrann,
frú Sirinavo Bandaranaike,
hefur sent öllum aðildarlönd-
um Sameinuðu þjóðanna bréf,
þar sem sótzt er eftir stuðn-
ingi þeirra. Framboð Amera-
singhe er býsna sterkt, þar
sem hann er bæði Asiumaður
og búddisti eins og U Thant.
En hann hefur stutt Araba
í deilum þeirra við ísraels-
menn og virðist hallast að
Rússum, svo að ýmsir dipló-
matar álykta, að hann geti
ekki tryggt sér stuðning
Bandaríkjanna.
Kurt Waldheim. — Hann
hefur verið kallaður
nokkurs konar heiðursfulltrúi
Norðurlanda — „nákvæmur,
samvizkusamur og dálitið leið
inlegur“, en er reyndar sendi-
herra Austurríkis hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Diplómat-
ar, sem hafa starfað með hon-
um, bera honum vel söguna,
segja hann leysa störf sín
fagmannlega af hendi og störf
hans einkennast af trú á
hlutverki Sameinuðu þjóð-
Makonnen
Amerasinghe
anna. Einn samstarfsmanna
hans segir líka að hann sé
stjórnmálamaður fram í fing
urgóma, hafi það sem á þýzku
er kallað „Fingerspitzenge-
fúhl“.
Waldheim hefur haft sig
lítið í frammi í baráttunni um
stöðu aðalframkvæmdastjór-
ans. En fari framboð Jakobs-
sons út um þúfur, er austur-
ríski fulitrúinn tilbúinn að
hirða molana og verða aðal-
frambjóðandi Evrópuland-
anna. Veigamikil hindrun í
vegi fyrir framboði Wald-
heims er, að Rússum finnst
hann hallast helzt til mikið
að Vesturveldunum, þótt Aust
urríki sé „hlutlaust" land
tæknilega séð.
Ritstjórar starfs-
mannablaða flug-
félaga á fundi hér
RITSTJÓRAR starfsmannablaða
bandarískra flugfélaga munu
halda árlegan fund sinn hér nú í
þessum mánuði. Á fundi þessum
hlýða ritstjóramir á fyrirlestra
um helztu nýjungar í flugtækni,
en ennfremur gegna flestir rit-
stjóranna ábyrgðarmiklum störf-
um innan síns félags. Þeir gera
sér og einkum far um að kynnast
því félagi, sem staðsett er næst
þeim stað, sem fundurinn er hald
inn á. Á fundi i Washington í
haust var ákveðið að Loftleiðir
og ísland yrðu fyrir valinu. í
hópnum verða ritstjórar starfs-
mannablaða Air France, BEA,
KLM, Lufthansa og Sabena, en
bandarísku fulltrúamir eru full-
trúar eftirtalinna flugfélaga: Air
Canada, Hughes Air West, Ameri
can Airlines, Braniff Internation
al, Eastern Air Lines, Frontier
Airlines, National Airlines, Ozark
Air Lines, Pan American, Pied-
mont Airlines, Texas Internation
al Airlines, Trans World Airlines
og United Air Lines.
Handtökur
Napoli, 4. október. NTB.
LÖGREGLAN á Suður-ítalíu og
Sikiley stóð að nokkrum skyndi-
aðgerðum um helgina með l>eim
árangri að 400 voru handteknir.
Reitti hún meðal annars í aðgerð-
unum þyrlum, vélbátum og hund-
um. Lögregluaðgerðirnar eru í
samræmi við yfirlýsta stefnu
Emilo Colombos forsætisráðherra
að binda enda á öldu ofbeldis-
glæpa og listaverkaþjófnaða sem
hafa valdið miklu uppnámi.
ftalska ríkislögreglan, Cara-
binieri, var efld >um 3.000 menn
í síðasta mánuði. í aðgerðunum
um heiginia gerði lögreglan upp-
tæka 369 riffla, 242 skammbyss-
ur, 90 kíló af sprengiefni og 268
stolna bíla. 28.235 voru ákærðir
fyrir umferðarbrot og gáleysi.
Víðtækar lögregluaðgerðir á Norð
u-ítalíu í síðustu viku leiddu til
þess að 327 vou handteknir.
Skoöiö teppin á stórum gólffleti
innréttinga
búðin