Morgunblaðið - 08.10.1971, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.10.1971, Blaðsíða 12
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8: OKTÓBER 1971 Osr veiðimaðurinn setur enda- Múkkinn tekinn lir netinu. punktinn á eftir ameninu með fýlakeppnum. Trillan sigrlir á fuilri ferð, liáfurinn er á Iofti og þeg-ar fýls- unginn er undir netinu feilur gildran og veiðin er innbyrt. I.eifi í I.aufási svíður og gerir fuglinn kláran í saltið og Ragnar frá Bræðratungu reytir. Svona standa þeir í þessu kvöld eftir kvöld og draga ek ki af sér á meðan þeir vita að hækkar í tunnunni. Að eiga tvær til þrjár tunnur af sölt- uðum fýl til vetrarlns er eng in smávegis búbót og ekkert smálítið sælgæti eins og sagt er. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir í Eyjum. Rásað með fýlaveiðimönnum kringum Eyjar Tunnan frá í fyrra er fyllt af vatni, hreinsuð og siðan er látið standa í henni í nokkra daga til þess að þétta hana. Viðurinn dregur í sig vatn, bólgnar og tunnan verð- ur eins og góðar tunnur eiga að vera, pottþétt. Enda veitir ekki af, því mikið liggur við. Fýlatíminn er að hefjast og þeir sem hafa vanizt söltuðum og reyktum fýl taka engan annan mat fram yfir hann og varla er að marka árið fyrr en búið er að halda fýla- veizlu. Við brugðum okkur í fýl fyr ir skömrnu með nokkrum Eyja- peyjum, þegar fýlavertíðin var í algleymingi og menn sóttu grimmt í kringum Eyjar til þess að elta uppi unga fýlinn, sem var nýlega floginn úr hreiðrunum I björgunum. Þeg- ar unginn er kominn á sjóinn þarf hann um 3 daga til þess að losa sig við mestu fituna og þegar því er lokið er hann orð inn flugfær, en áður þurfa fýla veiðimenn að vera komnir á kreik og því meir, sem fitan er, þvi betri er fýllinn í verk- un. Það voru 12 trillur inni á Á1 daginn þann. Það hafði verið bræla daginn áður og gjólan gefið unganum byr undir báða vængi, svo veiðiútlitið var gott. Annars sækja fýlaveiðimenn í Eyjum grimmt þó að bræli, því ekkert hefst nema hjá þeim sem róa og fýllinn er of góður til þess að láta gjólupus eða Stórhöfðaþembu aftra sér. Allir um borð eru með aug- un á sjónum og þegar einhver sér fýlsunga er stefnan tekin og fýlaháfurinn gerður klár. Þegar trillan nálgast tekur fýllinn á rás með miklum bægslagangi, en nær sér þó ekki á loft, nema þá stutt í senn. Þannig getur orðið nokk- ur eltingarleikur, en endirinn fer yfirleitt aðeins á einn veg. Fýllinn lendir í háfnum og fýla keppurinn gengur frá honum í þjálfaðri hendi veiðimannsins. Eitt högg og síðan er farið að kíkja eftir þeim næsta. Þannig er veiðiskapurinn, eitt handtak við fiskinn, lundann, súluna og fýlinn, Engin skot eða mistök í viðfangsefninu. Allt unnið eins fljótt og ákveðið og unnt er. Ef gjóla er og unginn farinn að venjast sjónum og læra vængjatakið getur verið erfitt að elta. Sumir sleppa reyndar og þá er bölvað um borð í trill unni eftir langan eltingarleik. Þó er brosað út í annað þrátt fyrir allt þvi að réttur þess, sem hefur betur í baráttunni er virtur hjá þeim sem eru aldir upp í baráttunni við náttúruöflin. 140 fýlar voru innanborðs þegar degi tók að halla og þá var búið að rása fram og aft- ur á fullri ferð allan daginn. Stefnan tekin heim til Heima- eyjar og fram haldið hjali um jarðlifið, Eyjarnar og veraldar málin. Góður dagsafli, en þó ekki allt búið enn. Þegar komið er í land á eftir að reyta fýlinn og sviða og koma honum í salt. Þeir sem ekki hafa vanizt fýl eru ekki beint blíðir ef reyting in fer fram í námunda við þá, því ekki kunna allir að meta lyktina. En hvað um það, veiði mennirnir hjálpast að við að reyta, höggva, fara innan í, svíða og salta með tilheyrandi kryddi og bezt er ef fillan er vel feit. Tunnan er orðin full af lost- ætinu, en nú er að bíða i viku til þess að hægt sé að fara að smakka. Víst er að fýllinn fær ekki að biða of lengi í saltinu og slegið er upp fýlaveizlu. Bút aðir fýlar settir i pott, nýjar rófur og kartöflur og allt soð- ið í einu. Að lokinni veizlu er árið orðið fuUgilt og ekki er það lakara ef berjasúpa með rjóma er í eftirmat, eða rabba- barasúpa. Ekki kemur það fyrir að fý]l sé seldur, því hann er ekki met inn til fjár og þeir sem eiga tunnu luma gjarnan á henni eins og góðum búmönnum sæm ir. Áður fyrr, þegar fýllinn var mikið nýttur bæði í björgum og á sjó höfðu sumir það ráð að rota hann ekki í einu hand- taki, heldur bíta hann i haus- inn og ráða þar með örlög hans. Þótti þetta fljótvirkara þegar nota varð tímann til hins ýtrasta og hver fugl var mik- ilvæg búbót. Þá var líka slegið upp fýla-, lunda- og súluveizl- um á haustin og dansað á eftir. Oft stóðu slíkar veizlur í Eyj- um næturlangt eða alveg eins lengi og nokkur hélt sig á dans gólfinu og fýlakríkur var til á fatinu. Dugðu menn vel í slík ar veizlur og þótti lítil veizla nema hún stæði fram undir mjaltatíma. Nú orðið er þetta öliu „kristilegra", og þó, það eru teknar lotur. — á.j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.