Morgunblaðið - 28.10.1971, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1971
19
FRETTIR
i Stuttll 111 «1II
Ræða réttar-
heimspeki
Á fundi í Lögfræðingafélagi
íslandis I kvold verða rædid
nokkur viðfangsefni réttar-
heimspekL
1 Frummælandl verður Garð
ar GLslason, lögfræðingur, en
hann stundaði að lofcnu emb-
ættLsprófi frá Háskóla Is-
lands, nám í ré11arheimspeki
Við Háskólann í Oxford og
varði þar sJ. vor ritgerð til
gráðunar Bachelor of Litera-
ture. Garðar vinnur nú við
dómstörf í Borgardómi
Reykjavíkur.
í erindinu mun hann fjalla
um réttarheimspeki almennt
og leitast við að igefa hug-
mynd um þau viðfangsefni,
sem nú á tímum er mest f jali
að um í þessari fræðigrein.
Þá mun hann f jalJa um mun-
inn á lögfræði og réttarheim-
speflki, og væntanlega, hvort
réttarheimspeki eigi almennt
erindi til lögfræðinga.
Að loknu erindi frummæl-
anda verða frjálsar umræð-
ur að venju.
Fundurinn verður haldinn
í ÁtthagasaJ Hótel Sögu og
hefst kl. 20.30.
Koma til
landhelgis-
viðræðna
Utanríkisráðuneytinu er
kunnugt um nöfn tveggja
manna, sem skipaðir hafa ver
ið af Breta hálfu í viðræðu-
nefnd um landhelgismálið.
Þessir menn eru mr. Keeble,
skrifstof ust jóri í utanríkis-
ráðuneytinu, og mr. Graham,
fiskimálastjóri. Bklci hafa
fengizt staðfestar fregndr af
því hverjir séu hinir nefnd-
armennirnir, að sögn Ingva
Ingvarssonar í utanríkisráðu-
neytinu.
Aðalfundur
Verzlunar-
ráðsins í dag
Aðalfundur Verzlunarráðs
íslands hefst að Hótel Sögu í
dag kl. 3. Þegar fundur verð-
ur settur og nefndir skipað-
ar, mun Jóhannes Nordal,
Seðlabankastjóri, flytja ræðu
um f jármyndun og kaupþing. 1
Síðan verða venjuleg aðal-
fundarstörf, flutt skýrsla
stjórnar og lagðir fram reikn-
' ingar.
Á föstudag hefst fundur
með hádegisverði, en að hon-
um loknum flytur Lúðvík
Jósefsson, viðskiptaráðherra,
ræðu. Síðan verða ályktanir
starfandi nefnda lagðar fram
og loks birt úrslit stjórnar-
kosningar.
ÞflR ER EITTHIinO
fvrir nun
Frönsk tækniaðstoð
til Sovétríkjanna
París, 27. október — AP-NTB
FUULTRCíAR Frakklands og
Sovétríkjanna undirrituðu í dag
í París nýjan tíu ára viðskipta-
samning rikjanna, og er sanrn-
ingur þessi talinn mikill ávinn-
ingur fyrir Leonid Brezhnev,
flokksleiðtoga, sem nú er í opin-
berri heimsókn i Frakklandi.
1 samningnum eru meðal ann-
ars ákvæði um að Frakkar veiti
Sovétríkjunum aðstoð við að
koma upp iðjuverum, og við
margs konar framleiðslu, meðal
annars á vöruflutn'imgabifreiðum
og tölvum. Þá var einnig irndir-
ritaður í París i dag samningur
um að Renault-bílasmiðjurnar
frönsku veiti tækni- og f járhags-
aðstoð við smíði stærstu vöru-
Bandaríkin:
Gremja vegna
fagnaðarláta
Washington, 27. okt. AP
MIKII, gremja rikir meðal
margra í Bandaríkjuniun vegna
úrslitanna i atkvæðagreiðslimni
mn aðild Kína að Sameinuðu
þjóðunum, en mesit þó vegna við
bragða nianna þegair bandariska
tillagan sem miðaði að þvi að
halda Foirmósu í sahitökunum,
var felld. Ronald Ziegler, blaða-
fulltrúi Nixons forseta, sagði að
stjómin myndi ekid fallast á
neinar efnahagslegar hefndar-
ráðstafanir gegn SÞ, eins og ein
stakir þingmenn hefðu lnaft orð
á.
Hins vegar, sagði Ziegler, gæti
stjómin og þingið lent í erfið-
leikum næst þegar efnahagsað-
stoð yrði rædd í sambandi við
fjárha-gsáætlun rikisins. Nixon
forseta, hefði mjög gramizt að
f jölmargir spruttu úr sætum sín
um og hrópuðu og klöppuðu,
þegar bandaríska tillagan var
felld, og margir þeirra sem hæst
létu voru fuEtrúar þjóða sem
byggja afkomu sína að verulegu
leyti á bandarískri aðstoð. Ziegl-
er sagði að Bandarikjastjórn
gerði engar athugasemdir við
það þótt stjórnir annarra landa
væru ósammála henni. Hins veg
ar gæti orðið erfitt að sannfæra
almenning um nauðsyn þess að
veita- aðstoð þeim þjóðum sem
svo augljóslega hefðu sýnt
stefnu Bandaríkjastjómar fjand
skap.
bifreiðasmiðju heirns, sem nú er
verið að reisa við Kama-fljótið
skammt frá Kirov. Renault-bíla-
smiðjurnair eru ríkisreknar, og
nemur heildarframlag Frakka
til sovézku bílasmiðjunrtar 1,2
milljörðum franka (um 19 millj-
örðum ísl. kr.).
Leonid Brezhnev kom til París-
ar á mánudag og hefur átt við-
ræður þar við ýmsa ráðamenn.
I dag átti hann tveggja og hálfr-
ar stundar fund með Georges
Pompidou forseta, og ræddu þeir
aðallega hugsanlega öryggisráð-
sbefnu Evrópu, deilu Araba og
Gyðinga og hættuna á styrjöld
milli Indlands og Pakistans. Haft
var eftir frönskum aðilum, sem
sátu fundinn í dag, að leiðtog-
amir hefðu látið i ljós miklar
áhyggjur vegna deilu Indverja
og Pakistana. Kína styður Pak-
istan í þessari deilu, en sam-
kvæmt vináttusamningi frá þvi
í ágúst eru Sovétríkin skuld-
bundin til að standa með Ind-
landi.
Bezta auglýsingablaðiö
Sigrirður Dagbjartsson.
Lauk
doktorsprófi
SIGURÐUR Daghjartsson Iauk
nýlega doktorsprófi í vélaverk-
fræði frá háskólanum i Stutfc-
gart í Vestur-Þýzkalandi. Fjali-
ar ritgerð hans um einn þátt
nýtingar kjamorkunnar til fram-
leiðslu rafmagns til geimferða.
Ritgerðin nefnist „Zuverlasigkeit
von Konverternetzverken Tlier-
mionischer Energieversorgungs-
anlagen".
Sigurður fæddist í Mývatrvs-
sveit hirni 6. október 1938. Hanm
lauk stúdentsprófi frá Menmta-
skólanum á Akureyri vorið Í960,
og stundaði síðan nám í eðlis-
fræði við háskólanin í Stuttgart
í V-Þýzkalandi árim 1960—65. Að
loknu diplomprófi frá hástkólan-
um, stundaði hamin ranmsókna-
störf við háskólanm, sem einkum
snierust um friðsamlega notkun
kjarmorfeu, eimkum með tilliti til
beinmiar breytingar henmar í raf-
orku. Hanin hefur flutt erimdi á
alþjóðleguim ráðstefnum og birt
nokkrar greinar um þessi mál.
Sigurður er kvæntur Ute
Bessler frá Stuttgart og eiga
þau tvö börn.
London, 27. október AP—NTB
TALIÐ er fidivíst að saniþykkt
verði, að Bretlamd gangi í Efna-
hagsbandalag Evrópu, þegar
málið verður tekið fyrir i neðri
deild þingsins á morgim
(fimmtudag). Brezka stjórnin
segir, að sú atkvæðagreiðsla
verði afgelrandi, en forystumenn
Verkamannaflokksins, imdir
stjórn Harolds Wilsons, segja
hins vegar að luin verði aðeins
upphaf langrar baráfctu, sem geti
orðið ríkisstjórn Heatiis að falli.
Stjórnarandstaðan byggir mál
sitt á því að á næsta ári þarf að
— Petrosjan
Framhaid af bls. L
víginu við Fischer sagði
Petrosjan að hún hefði ver-
ið sín bezta skák og
bezta skákin í öllu einvíg-
inu. Þar gerði Fischer aðeins
ein mistök, en eftir það var
skákin lika algjörlega búin.
Fischer hefði gert allt sem
hann gat til þess að verjast,
en hann gat ekki fundið neina
vörn. En sumar vinnmgsskák-
ir Fischers hefðu líka verið
mjög góðar.
Við því hefði verið búizt, að
Fischer myndi vinna bæði
Taimanov og Larsen, en alls
ekki með slíkum dæmalaus-
um yfirburðum og raun varð
á. Þau hefðu verið ótrúleg.
En Petrosjan kvaðst hafa
vænzt þess, að einvígi sitt við
Fischer yrði miklu jafnara.
Petrosjan var spurður um,
hvort hann teldi, að aldurs-
munur sinn og Fischers hefði
skipt miklu máli um úrslit
einvígisins, en hann er yfir
fertugt og Fischer er tuttugu
og átta ára, og sagði hann þá:
— Það má ekki gera of mikið
úr aldursmuninum, en það er
erfitt að tefla skákeinvígi eft-
ir að menn eru orðnir fertug-
ir og þetta skákeinvígi vannst
af yngri manninum. 1 svona
einvigum skiptir þrek og
vilji ekki síður máli en skák-
in sjálf.
Petrosjan sagði að andrúms
loftið í leikhúsinu, þar
sem tefit var, hefði ver-
ið mjög skemmtilegt og
Aðild að EBE
verður stjórn-
inni að f alli
— segir Verkamannaflokkurinn
fréttir
í stuttu máli
Vilja þotur
fyrir friðar-
viðræður
Jerúsalem, 27. október.
fsraelskir fjölmiðlar skýrðu
frá því í dag að ísrael mundi
skki taka þátt í viðræðum um
bráðabirgðasamkomulag um
3úez-skurðinn, nema það fengi ,
Phantom-þoturnar sem það
hefur svo lengi beðið eftir.
Það eru Bandaríkin, sem hafaj
lagt til, að þessar viðræður
fari fram, en stjórnin þar hejf-
ur verið að reyna að stöðfa
vígbúnaðarkapphlaupið í Mið-
Austurlöndum, með því að í
neita fsrael í bili um fleiri
Phantom-orrustuþotur. Meiri-
hluti Bandaríkjaþimgs hefur
skorað á forsetann að hefja
þegar afhendingu flugvél-
anna, þar sem Sovétríkin
haldi áfram að ausa hergögn-
um í Arabaríkin.
samþykkja fjöldann allan af
nýjum lögum, sem verða grund-
völlur'aðildar Bretlands að EBE,
og hún telur möguleika á að
hægt verði að steypa stjórninni
með því að koma henni i minni-
hluta við atkvæðagreiðslu um
einhver þessara laga.
Verkamannaflokkurinn er þó
ekki einhuga í þessu máli, viss
hópur innan hans styður aðild
Bretlands að EBE,. með þeim
samningum sem stjórnin hefur
gert. í broddi fylkingar þessara
manna er Roy Jenkins, varafor-
maður flokksins.
naumast staðið að baki skák-
keppnum heima í Moskvu.
Mikill áhorfendaskari hefði
jafnan verið viðstaddur og í
hópnum hefði mátt sjá stúlk-
ur. f salnum, þar sem teflt
var, hefðu áhorfendur gjam-
an verið um 1500 og í öðrum
sal annars staðar I húsinu
hefði annar eins fjöldi fylgzt
með einviginu á skákborðum,
sem sérstaklega hefði verið
komið upp fyrir áhorfendur.
En þessi mikli f jöldi trufl-
aði keppendurna að sjálf-
sögðu eitthvað og Fischer
hefði ekki líkað þetta.
Petrosjan var spurður að
því, hvort hann hefði haft
marga aðstoðarmenn í einvig-
inu við Fischer og sagði hann
þá, að Auerbach hefði verið
sinn raunverulegi aðstoðar-
maður, en einnig hefði stór-
meistarinn Suetin verið til
staðar. Verkefni hans hefði
þó fyrst og fremst verið að
skrifa fréttir af einvíginu fyr-
ir Pravda i Moskvu.
Af bandariskum skákmeist-
urum hefði Larry Evans ver-
ið þarna Fischer til aðstoðar,
en þama hefðu verið fleiri
bandariskir stórmeistarar,
sem jafnframt hefðu skrifað
fyrir blöð og skákrit í heima-
landi sínu um einvigið.
Þeir félagar, Tigran Petro-
sjan og Juri Auerbach, kváð-
ust að líkindum myndu halda
frá Buenos Aires 30. október.
Þeir báðu fyrir kveðjur til
Friðriks Ólafssonar, Inga R.
Jóhannssonar og til allra is-
lenzkra skákunnenda.
Bandarikin
hefna brott-
rekstrar
i
Washington, 27. okt.
Bandaríska utanriklsréSu-
neytið tilkynnti í dag a8 K*r-
al Simanek, annar sendiráfta-
ritari við tékkóslóvakíska
sendiráðið í Washington,
fengi ekki að snúa aftur til
Bandaríikjanna, en Simanek er
í fríi í Tékkóslóvakíu. Tals-
maður utanríkisráðuneytisins
vildi ekki gefa neina skýr-
ingu á þessu, en stjórnmála-
fréttaritarar telja lítinn vafa
á að verið sé að hefna fyrir
að bandarískur sendiráðs-
starfsmaður var rekinn frá^
Tékkóslóvakiu í síðustu viku.
Innflutningur
olíu hraðminnkar
SAMKVÆMT töflu um innflutn-
ing hráorku til landsins á árunum
1967—’70, sem Orkustofnun hef-
ur gert, kemur fram, að inn-
flutningur gasolíu og þotuelds-
neytis hefur aukizt, en annar inn
flutningur eldsneytis staðið í
stað eða dregizt saman.
Hafa t.d. verið notuð 107.899
tonn af brennsluolíu árið 1967,
106.648 tonn árið 1968, 90.339
tonn árið 1969 og ekki nema 602
tonn árið 1970.
— Jakkar
Framh. af bls. 32
sýnishom af ósvibnum banda-
rískum hermannajökkum, sem
keyptir voru í verzlunum hera-
inis, sem selj a notaðan vaminig..
Eklkert blóð var á þeim jokkum,
þar eð þeir höfðu verið hreins-
aðir af verzluninni bandarísku.
Karnabær saumiar jakíkana úr
líkum efnum og notuð eru í her-
búningana. Bjöm sagði, að
brautryðjandi í sölu hermanma-
búninga væri íslenzka ríkið —
Sölunefind vamarliðseigna —
sem tselt hefuir vinnuföt her-
mianna um árabil í verzlun
siirtni í Reykjavfk. Þó mun það
ofmælt, að sölunefndin eigi
mofakum þátt í því að þetta tízku
fyrirbæri hefur orðið svo viu-
sælt meðal ungliniga, sagði
Björn og kímdi.