Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 16

Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 16
MORGUNBLAÐHE), MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1971 Útgefandl hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvaemdaetjóri Hsraldur Sveinsson. Riletjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. Ritstjómarfuiltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. RiUtjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100 Augiýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 195,00 kr. á mánuði innanlands. f lausasölu 12,00 kf. eintakið. ALVÖRUSTJÓRNMÁL EÐA TILFINNINGASEMI Á fundi í Keflavík sl. sunnu- dag sagði Einar Ágústs- son, utanríkisráðherra, að hann teldi tilboð Sjálfstæðis- manna um þátttöku í viðræð- unum um öryggismál lands- ins vera vantraust á sig. Ekki rökstuddi ráðherrann þessa skoðun sína, enda vandséð, hvernig það ætti að vera unnt. í tillögu Sjálfstæðis- manna segir orðrétt: „Tillöguflutning þennan ber að skoða sem tilraun af Sjálfstæðisflokksins hálfu til að fírra því tjóni, sem skipun sú á þessum málum, sem boð- uð hefur verið, hlýtur að valda. Því ber að líta á hana sem tilboð af Sjálfstæðis- flokksins hálfu um að taka þátt í samstarfi við utanríkis- ráðherra um endurskoðun varnarsamningsins og heil- brigða skipan varnarmála framvegis." Þannig er annars vegar um að ræða tilboð af Sjálfstæðis- flokksins hálfu að starfa með utanríkisráðherra, og hins vegar lýsir flokkurinn því yf- ir, að hann vilji firra þeim vanda, sem það ljóslega hef- ur í för með sér, að utanríkis- ráðherra þurfi að hafa við hlið sér tvo menn, sem ekki er vitað annað en ætíð hafi verið andstæðingar Atlants- hafsbandalagsins. Hvernig getur utanríkisráðherra hald- ið því fram, að slíkt sé van- traust á sig? Von er að menn spyrji. Þegar meiriháttar ákvarð- anir hafa verið teknar í sjálf- stæðis- og öryggismálum þjóðarinnar, hefur verið leit- azt við að hafa sem nánast samstarf milli lýðræðisafla. Þannig kvaddi t.d. Bjarni Benediktsson þá Eystein Jónsson og Emil Jónsson til farar með sér til Washington, er hann var utanríkisráð- herra og fyrir dyrum var að taka ákvörðun um það, hvort íslendingar ættu að gerast aðilar að Atlantshafsbanda- laginu. Enginn taldi það van- traust á Bjarna Benediktsson að reyndir stjórnmálamenn störfuðu með honum að þess- um málum, og sízt hann sjálf- ur. Sjálfstæðis- og öryggismál landsins eru sem sagt mikil- vægari en svo, að hégóma- skapur einstakra manna megi þar ráða ferðinni. Vonandi er hér um að ræða vanhugsaða fullyrðingu af utanríkisráðherra hálfu, enda hefur hann lýst því yfir, að málið hafi ekki verið rætt í þingflokki Framsóknarflokks- ins. Hann yrði maður að meiri, ef hann hugsaði nú sitt ráð og tæki fegins hendi því tilboði, sem honum og flokki hans hefur verið gert. Morgunblaðið getur upp- lýst, að því er ókunnugt um að nokkur maður í Sjálf- stæðistflokknum hafi hugsað tillöguflutninginn um örygg- ismálin sem vantraust á utan- ríkisráðherra. Ef flokkurinn hefði ætlað að flytja van- traust, hefði það auðvitað verið gert með allt öðrum hætti. Utanríkisráðherra ætti að fara að gera sér grein fyrir samhengi hlutanna og skilja, að sjálfstæð- ismál landsins eru ekkert hégómamál, heldur sú hlið stjórnmálanna, sem öll fram- tíð þjóðarinnar byggist á. Landgrunnið allt iTiíu þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um landhelgi og verndun fiskistofna. í upphafi tillögunnar segir: „Alþingi ályktar að lýsa yfir: 1) Fiskveiðilögsaga íslands nær yfir allt landgrunnið um- hverfis landið. Ytri mörk landgrunnsins skulu vera 400 metra jafn- dýpislína, þangað til mörk þess verða ákveðin með lög- um og hvergi nær landi en 50 sjómílur frá grunnlínu. Al- þingi felur nefnd þeirri, sem kosin var á seinasta þingi til að semja frumvarp til laga um rétt íslendinga til land- grunnsins og hagnýtingar auð æfa þess, að ljúka störfum sem fyrst, svo að Alþingi það, sem nú situr, geti fengið slíkt frumvarp til meðferðar og afgreiðslu. í næstu 3 ár er erlendum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar upp að 50 mílna mörk- unum frá grunnlínu, nema þar sem sérstök friðunar- svæði kynnu að vera ákveðin utan þeirra marka, Ályktun þessi kemur til framkvæmda þann dag, sem ákveðinn verður af yfirstand- andi Aiþingi.“ Hér er í formi þingsálykt- unar flutt sú tillaga, sem Jó- hann Hafstein, formaður Sjáltfstæðisflokksins, setti fram á sambandsþingi ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri „h™ bókmenntir Hvers vegna fá skáld N óbels ver ðlaun? MÓTSAGNAKENNT val sænsku akademíunnar á verðlaunahöfum í bókmenntum hefur víða verið til umræðu að undanförnu. Mál Alexandera Solsjenitsíns er enn hitamál beggja vegna hafsins. New York Times hefur deilt á sænsku ríkisstjórnina fyrir lin- kind í garð Sovétstjórnarinnar, en Svíar svarað því til að ekki mætti spilla góðri sambúð Sovét- ríkjanna og Svíþjóðar með því að afhenda Solsjenitsín verðlauna- skjöldinn í sænska sendiráðinu í Moskvu. Lögð er áhersla á að fara verði eftir diplómatiskum reglum um samiskipti þjóða, án leyfis Sovétstjórnarinnar verði skjöldurinn ekki afhentur. í ný- legu bréfi frá Solsjenitsín spyr hann hvort líta beri á Nóbelsverð launin eins og þýfi, sem afhenda verði fyrir luktum dyrum. Málið er ekki enn útrætt þótt Nóbelsféð hafi verið lagt inn á reikning Solsjenitsíns í Sviss. Verðlauna- skjöldinn á hann eftir að fá. Munu forsvarsmenn akademíunn ar færa honum hann í Moskvu? Sennilega ekki. Til þess þarf sam þykki Sovétstjórnarinnar. En víkjum að mótsögnunum. Sænska akademían ögraði Sovét stjóminni með því að veita Boris Námsstyrkir til Bandaríkjanna EINS og undanfarin ár annast Islenzk-ameríska félagið og Institute of International Educa- tion, New York, umsóknir um námsstyrki fyrir islenzka stúd- enta til bandarískra háskóla skólaárið 1972—1973. Þeim, sem verða stúdentar næsta vor, er sérstaklega bent á þessa styrki. Stúdentar á 1. og 2. ári í háskóla hér geta einnig sótt um þessa styrki, sem venju- lega nema fæði, húsnæði og skólagjöldum. Umsóknareyðublöð ásamt nán- ari upplýsingum fást á skrif- stofu félagsins, Austurstræti 17, II. hæð, mánudaga og fimmtu- daga kl. 6,30—7,30 eftir hádegi. Umsóknir skulu hafa borizt skrifstofunni fyrir 13. nóv. n.k. STYRKIR LíR THOR THORS-SJÓÐNUM Nokkrir styrkir verða veittir úr sjóðnum íslenzkum náms- mönnum við háskólanám í Bandarikjunum. Umsóknareyðublöð ásamt nán- ari upplýsingum á skrifstofu Is- lenzk-ameríska félagsins, Reykja vík og American Scandinavian Foundation, New York. Umsóknarfrestur til 15. des- ember 1971. (Frétt frá íslenzk-ameriska félaginu). Alexander Solsjenitsín Pasternak Nóbelsverðlaun. Síðan bætti hún ráð sitt með verðlaun um til málpípu stjórnarinnar, Mik aels Sjólokoffs. En málið vaild- aðist þegar Solsjenitsín fékk verð launin. Engimn hefur ráðist af meiri heift á hann en einmitt Sjólokoff. Solsjenitsín hefur lýst ógnum Stalínstímans í verkum sínum, af hjúpað leiðtogann. Skáldið, sem nú fær Nóbelsverðlaun, Pablo Neruda frá Chile, hefur aftur á móti lofsungið Stalín sem boð- bera friðar og réttlætis í mesta skáldverki sínu: Canto general. Pablo Neruda er fuilltrúi kommún istastjórnar Salvadors Allende, sendiherra Chile í París. Hann fagnaði verðlaununum með því að lýsa því yfir, að þau væru heiður fyrir land hans og alla Suður-Ameríku. „Það eru landafræði og stjórn- málastefnur, sem hljóta Nóbels- verðlaun", sagði argentínska skáldið Jorge Luis Borges þegar það var hér á ferð í byrjun þessa árs. Mótsagnirnar í vali sænsku aka demíunnar benda eindregið til þess að pólitíkin ráði meiru en landfræðileg sjónarmið. Skáld frá Chile hefur áður fengið Nób elsverðlaun: Gabriela Mistral (1945), og ekki er langt síðan Miguel Angel Asturias frá Guate mala fékk verðlaunin svo að ekki er unnt að halda því fram að Suður-Ameríka hafi orðið útund an. En þegar pólitíkinni og landa- fræðinni sleppir eru önnur efni ekki veigaminni. Það er að minnsta kosti skoðun Olofs Lag- ercrantz í nýlegri gren í Dagens Nyheter. Olof Lagercrantz segir að Pablo Neruda uppfylli þær kröfur, sem gerðar séu til ljóð- skálds, sem til greina komi við úthlutun Nóbelsverðlauna; mestu máli skipti að þýðandi þess sé í Pablo Neruda sænsku akademíunni. Þýðandi Neruda, Artur Lundkvist, er nú einn hinna átján akademíufélaga. Án slíkra talsmanna er tilgangs laust að búast við verðlaunumuim, segir Olof Lagercrantz og heldur áfram: „Paul Eluard fékk ekki Nóbels verðlaun, en aftur á móti skáld- bróðir hans Saint-John Perse, sem Erik Lindegren þýddi. Ro- bert Frost og Wallace Stevens urðu útundan, en Gabriela Mistr al, sem Hjalmar Gullberg þýddi, varð fyrir valinu. Anna Akhma- tova dó gleymd, en Anders Öster ling tók Salvatore Quaaimodo upp á sína arma. Hjalmar Gull- berg þýddi Juan Ramón Jiménez og þá fékk hann verðlaun, «n þýðandi Edgars Lee Mastera Finn inn Bertil Gripenberg átti ekki sæti í akademíunni og þess vegna hlaut Kirkjugarðurinn i Skeiðar árþorpi ekki sína viðurkenningu. Paul Celan dó óverðlaunaður, en Erik Lindegren og Gunnar Eke- löf þýddu ljóð Nelly Sachs. Carl Sandburg var óheppinn, hann lést áður en þýðandi hans, Artur Lundkvist, fékk sæti í akademí- unni. Og svo framvegis!" Olof Lagercrantz lýkur grein sinni með því að benda á að Ner uda muni ekki valda sænsku aka demíunni neinum áhyggjum, hann muni fúslega taka þátt í há- tíðarhöldum, og ekki verði um það að ræða að akademían þurfi að afhenda honum verðlaunin í sænska sendiráðinu í Santiago. Með því að veita Pablo Neruda verðlaunin hefur sænska aka- demían gert sitt til að blíðka Sovétmenn, að vissu marki bætt fyrir þau strákapör að verðlauna vandræðabarnið Solsjenitsín. Af staða Sovétstjórnarinnar til Sol- sjenitsíns mun þó varla mildaat við það. En staða akademíunnar styrkist aftur á móti. Þá e,r til- ganginum líklega náð. í haust, enda segir í greinar- gerð með þingsályktunartil- lögunni: „Þegar íslendingar leggja nú út í örlagaríka baráttu fyrir fjöreggi sínu, finnst flutningsmönnum hyggilegt að stíga skrefið til fulls, og lýsa yfir fiiskveiðilögsögu á landgrunninu öl'lu. Þessi af- staða er í beztu samrsemi við starf okkar og stefnu undan- farna tvo áratugi, og hún er rökrétt afleiðing þess, að land grunnið er landfræðilegur hluti Iandsins.“ Þótt því sé lýst yfir, að fiskveiðilögsagan nái til land- grunnsins alls, er ekki hug- myndin að verja nema 50 mílur fyrst í stað samkvæmt tillögu Sjálfstæðismanna. Ætti hún að geta orðið góður grundvöllur til samkomulags í þessum málum, því að vand- séð er, að fulltrúar stjórnar- flokkanna geti staðið gegn því, að við miðum við land- grunnið allt. Á landgrunns- kenningunni höfum við byggt baráttu okkar frarn að þessu og því óhyggilegt að hverfa nú frá henni og miða einung- iis við 50 mílurnar. Þá er í tillögu Sjálfstæðis- manna lagt til að gera marg- háttaðar friðunarráðstafanir. Munu þær tillögur vafalaust koma til umræðu í landhelg- isnefndinni eins og megin- atriði þingsályktunarinnar, sem að framan var gert að umtalsefni. Sjálifstæðismenn leggja á það áherzlu, að sem víðtæk- ast samstarf geti orðið í land- helgismálunum, og þess vegna er vonandi, að tillögur þeirra verði skjótt teknar til umræðu og reynt að ná um þær heildarsamkomulaigi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.