Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 18

Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVKMBER 1971 Grímur Biarnason — Minningarorð Fæddtir 23. 6. 1902. Dáinn 22. 1«. 1971. Grímur Bjarnason var fæddur á Stokkseyri i Árnessýsiu. For- eidrar hans voru hjónin Jó- hanna Hróbjartsdóttir og Bjarni Grímsson. Bjaomi var sonur hjón anha Eiínar Bjarnadóttur og Gríms Gislasonar í Óseyrarnesi. Prófessor Guðni Jónsson hef- ur skrifað um Grím Gíslason og niðja hans merka ævisögu, og getur þess þar, að hann sé nafn- kunnur um allt Suðurland fyrir dugnað og framtakssemi, bæði til lands og sjávar. Bjami Grims som líktist mjög föður sinum, hafði mikil umsvif og áhrif í hér aði sínu. Hann starfaði hjá Kaupfélaginu Ingólfi á Stokks- eyri, auk þess hafði hann sveita- búskap, og var formaður á eigin skipi í hartnær fjóra áratugi í Þorlákshöfn. Jóhanna Hróbjartsdóttir var dóttir hjónanna Ástríðar Jóns- dóttur og Hróbjartar Hannes- sonar, er bjuggu rausnarbúi á Grafarbakka í Hrunamanna- hrepp. Hún ólst þar upp ásamt systkinum sinum, og fór þaðan með gott veganesti, enda kom það fram í ævistarfí hennar, því hún var afbragð annarra kvenna sem móðir og húsfreyja í 68 ár. Heimili þeirra Bjarna og Jó- hönnu var annálað fytrir rausn og myndarskap. Á því heimiii ólst Grímur upp. Hann var elzt- ur sjö systkina. Eina dóttur árs gamla misstu foreldrar hans, en 'fimm systkini sem eftir lifa eru: Dagbjartur, stýrimaður, Har- aldur múrarameistari, Hróbjart- ur kaupsýslumaður, Sigríður húsfreyja og Eiiin húsfreyja. Þau eru öll dugnaðar og mann- dómsfóik, búsett hér í Reykja- vík. Á Stokkseyri var hús Bjarna Grímssonar næsta hús við heimili foreldra minna, og var vinátta og daglegur sam- gangur milli þeirra. Hefur tryggð og vinátta þeirrar fjöi- skytldu, til minnar fjölskyldu aldrei rofnað. Við Grimur Bjarnason unnum saman í Ungmennafélagi Stokks eyrar. Það var hollur og góður /élagsskapar, þar sem hugsjóna- eidur æskunnar var aflgjafi og leiðarljós. Þeim fækkar nú óð- um gömlu ungmennafélögunum en minningarnar um starf þeirra og áhrif á æsku þeirra tíma geymast enn. Eftir að for eldrar Grims flaiftust. til Reykja- víkur störfuðum við saman í Stokkseyringafélaginu í Reykja vik. Þar sem annars staðar var Grímur góður samstarfsmaður. Hann var hlédrægur að eðíis- fari, og tranaði sér ekki fram, en því betri liðsmaður þegar til hans var kallað. Hann var greindur, og flutti á mannfund- um ágætar ræður, var prúður í málfliutnirigi en fylginn sér ef á reyndi, tillögugóður og athuguli og vildi ieysa öll störf vel af hendi sem honum var trúað fyr- ir. Tryggur i lund, og mikill vin ur vina sinna. Með konu sinni Helgu Ólafs- dóttur eignaðist Grimur yndis- lega dóttur, Thelmu Jóhönnu, sem gift er Einari Þórðarsyni, rafvirkjameistara, og eiga þau tvö böm, Jóhönnu og Grím. Dóttirin varð honum dýrmætasta gjöfin sem hann eignaðist á þess ari jörð. Við fráfall Grims er stórt skarð hög'gvið í fjöl- skyldu hans, sem seint verður fyllt, því hann var traustur og ein styrkasta stoð fðlks síns. Grímur lauk prófi frá Fiens- borgarskólanum, og árið 1921 frá Verzlunarskóla Islands. Nokkru síðar lærði hann pípu- lagnir, og varð meistari í þeirri grein. Á siðasta iðnþingi var Grímur sæmdur gullmerki iðn- aðarmanna, fyrir vel unnin störf í þágu iðnaðarmála. En um ævi störf hans verður eflaust skrif- að af mér færari mönnum. Eftir tát föður sim árið 1944, bjó Grimur með móður sinni ásamt Haraldi bróður sinum. Þar var alltaf ánægjulegt að heimsækja Jóhönnu og fjölskyldu hennar á þeirra fallegá heimili. Þegar hún féll frá skrifaði ég eftir hana nokkrar linur, og kom okk ur Grimi þá saman um það, að hvort okkar sem lengur lifði skyldi senda hinu kveðju. Sízt datt mér í hug að það kæmi í minn hlut. Ég er nú að reyna að efna það, og vona að viljinn verði tekinn fytrir verkið. Grímur veiktist snögglega, lá stutt á sjúkrahúsi hér, en var fluttur til Kaupmannahafnar á rikisspítalann, og andaðist þar 22. þ.m. Dóttir hans Thelma fór með honum, og var hjá honum allar stundir þar til yfir lauk, og var það honum mikill styrk ur. Við hjónin sendur dóttur hans, og ættingjum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Grími þakka ég gömul og góð kynni frá bamæsku, og bið honum guðsblessunar í nýrri veröld. „Læt ég á ieiðið laufin bleik og fá.“ Guðrún Sigurðardóttir. Þegar við pípulagningameist- arar kveðjum í dag Grim Bjarnason hinztu kveðju og fylgjum honum siðasta spölinn hér á jörð erum við um leið að kveðja þann mann, sem er okk- ur hvað eltirminnilegastur þeirra, sem reist hafa sér bauta stein í íslenzkum iðnaði fyrir störf sin að félagsmálum. Snemma beygist krókurinn að því, sem verða vill, því þegar Grímur hafði lagt grundvöllinn að starfinu, sem hann gerði að ævistarfi sínu, pipulögnum, þá fann hann, sökum skarpleika sins og framsýni, þörfina fyrir að iðnsveinafélögin stofnuðu með sér samtök — samtök til efl ingar iðnmenntun og bættum kjörum þeirra, sem við iðn störf uðu. Þegar Sveinasamband bygg- ingarmanna var stofnað á sínum tíma var Grímur Bjama- son kosinn fyrsti formaður þess. En þó þessum áfanga væri náð settist Grímur Bjarnason ekki um kyrrt. Hugur hans stefndi hærra. Hann fékk sitt meistara bréf og hóf sjálfstæðan atvinnu rekstur sem pípulagningameist- ari. Þau skipa nú orðið hundr- uðum þau húsin, sem hann lagði hönd á til upphitunar og yijaði þar með samborgurum sinum í orðsins fyllstu merkingu. Þá eru einnig ótalmörg hús, sem hann stóð fyrir byggingu á í samvinnu við aðra iðnmeistara. En þrátt fyrir hin miklu um- svif i atvinnumálum fór ekki hjá því, að hann sneri sér að þvi, sem hugurinn stefndi til —- félagsmálum. Þar komu greind hans og hæfileikar fljótt í Ijós, enda leið ekki á löngu þar til hann var kallaður til forustu í félagi sínu. Aí ölium öðrum for mönnum félagsins óiöstuðum — og hafa þar margir góðir menn starfað — held ég að fullyrða megi, að mestar framfarir hafi orðið í félagi okkar undir stjóm hans. Grímur Bjamason var miki'll náttúruunnandi og gaf hann sér jafnan tíma til að sinna og hlúa að gróðri jarðar, þótt hann væri störfum hlaðinn. Undir for ustu hans fengu pípulagninga- meistarar úthlutaðan stkika í Þjóðgarði Reykvíkinga — Heið- mörk. Og Grímur hafði alltaf miklar áhyggjur, þegar illa viðr aði á vorin til gróðursetn- ar eða þegar félagsmenn mættu slæiega tii Heiðmerkurferða. Það fer ekki hjá því, að mikil félagsstörf hlaðast á þá menn, sem til forystu eru kallaðir og þannig var með Grim Bjarna- son. Hann var einn þeirra fram- sýnu manna, sem stóðu að stofn un Meistarasambands by*ging- armamna, auk þess, sem hann var framkvæmdastjóri meistara- sambandsins. Þá starfaði Grimur einnig í ótal ráðum og nefndum íyrir fé lag sitt og meira að segja var ekkert starf svo iitið, að Grim- ur væri ekki fús til að leggja þar hönd til aðstoðar, enda var Grímur með afbrigðum starfs- samur maður. Hann gekk í Fé- lag pípulagningameistara 15. janúar 1939 og var þá þegar á þeim fundi kosin, í skemmti- nefnd. Á aðalfundi 1940 var Grímur kosinn ritari félagsins og foiTnaður 20. janúar 1946 og síðan var hann við félagsstörf — með nokkrum hléum þó — þar til hann lét af störfum for- manns í marzmánuði síðastliðn- um. Þá er einnig vert að geta þess, að Grimur var sæmdur gullmerki iðnaðarmanna á 33. Iðnþingi Islendinga og sýnir það ljóslega hvernig þeir, sem með æðstu mál iðnaðarmanna fara, lita á störf Grims Bjarna- sonar fyrir iðnaðinn í landinu. Þótt Grímur væri með starfsöm ustu mönnum þá hafði hann það sjónarmið, að fá sem flesta fé- lagsmenn til þess að starfa og reyna á þann hátt að dreiía störfunum á sem flestar herðar. Á aðaifundi í Félagi pípulagn- ingameistara, sem haldinn var í marz sl., sagði Grímur af sér störfum sem formaður félagsins og kvaðst hann þá einnig mundu segja af sér formennsku i meistarasambandinu. Hann kvaðst ákveðinn í því að draga sig i hlé og fór eftir máltækinu „Að hætta þá hæst stendur." Við félagsmenn hans gerðum Okkur grein fyrir, að þótt Grímur væri vel til forustu fall inn þá gætum við ekki til eilífð- ar vænzt þess að hafa hann, enda var starfsdagurinn orðinn iangur. Við gerðum það eina, sem okkur bar — þökkuðum honum fyrir langt og heillaríkt starf í þágu félagsins og iðnað- arins í landinu. Við kusum hann heiðursfélaga á aðalfundinum og lófiaklappið þá var svo almennt og kröftugt, að Grimi blandað- ist ekki hugur að þar fylgdi hugur máli. Og eins og hann sagði þá, að ef félagsmenn teldu það, sem hann hefði lagt til fé- lagsmála einhvers virði, þá væri sér nóg launað. Þannig var Grímur og þannig munum við minnast hans. Þann- ig mun minning hans verða kref jandi fyrir þá, sem við hans störfum tóku. Bækur félagsins geyma tilveru hans og störf í áraraðir um ókominn tima. Við kveðjum Grím Bjamason í dag og á kveðjustundinni er það ósk okkar pipulagninga- meistara, að íslenzkum iðnaði megi auðnast að njóta fleiri sflíkra manna sem Grimur var, því þá mun íslenzkum iðnaði vel famast. Dóttur hans og tengdasyni, svo og öðrum ættingjum og ást- vinum, fæmm við okkar innileg ustu samúð. Stjórn Fél. pípulagninigameistara Tryggvi Gíslason. VINARKVEÐJA Vissuiega brá mér, er ég heyrði að þú værir ajiur. Að þinni iífsgöngu væri iokið hér á foldu. Við þá fregn fór hug- skot mitt að starfa, fyrir mig liðu ótal myndir frá uimliðnum árum. Frá okkar samverustund- um. Þótt af mörgu mætti taka þá verður fátt eitt sagt i þess- um fáu kveðjuorðum. Ég sé mig, er ég ungur og lítt reyndur fór út á vettvang fé lagsmála iðnaðarmanna. En þá sá ég þig strax og þú réttir mér örvandi vinarhönd — þú sem varst eldri og reyndari,, og ég fann og vissi að þínu handtaki var að treysta. Snemma á ævi þinni voru þér faiin mikil forustuhliutverk og mannaforráð í stéttarfélagi þínu og í málefnum iðnaðar- manna á breiðum grundvelli. Þau forráð voru þér falin vegna góðra og mikMla hæfileika, og síðast en ekki sízt vegna mikiila og góðra mannkosta þinna. Leið ir okkar lágu saman, fyrst og fremst á sviði félagsmála iðnað- armanna. I fyrstu stjóm Meist- arasambands byggingarmanna, en það var stofnað 5. maí 1958, og þar tii ég lét af störfum í stjóm þess, 21. april 1965. — En Grímur var formaður frá 30. júní 1960 og þar til hann iét af störfum í marz 1971, er kraftar hans voru að þrotum komnir. Meira getur ekki einn maður fómað sér til starfa fyrir stétt sina og ég veit að byggingariðn aðarmenn kunna vel að meta og þakka nú af einhug við lok lifsferils Grims. 1 stjóm var ég íulltrúi fá- mennasta félagsins i byggingar- iðnaði — Félags veggfóðrara- meistara. Þótt ég væri fulitrúi minnsta félagsins þá gætti þess aldrei hjá þér, þú leizt svo á, að þeir minnstu hefðu sama rétt og stóri bróðir, fjölmennustu félög in, og að okkar tillögur væru jafn giidar og annarra. Og eins það að Sambandið hjálpaði okk ur ekki síður, með okkar mál- efni en þeim er meira áttiu und- ir sér, stærri félögunum. Slikur var hugur Gríms, og aðgerðir að leysa allan vanda sem giftusamlegast af fullri ein urð og sanngimi með það að leið arljósi, að allir væru jafnir, það var „aðalsmerki" Gríms, Talandi vottur um mannkosti hans. Fyrir þátt Gríms í málefnum okkar vegigfóðrara, á hann ein- læga vináttu okkar og þakkir að leiðarlokum. Á siðastliðnum vetri hitti ég Grim hinzta sinni á förnum vegi. Þá var hann látinn af störfum, sem formaður Meistarasambands bygginigarmanna, eftir langa og farsæla forystu í málefnum Sam bandsins. Þá var um rætt að við gamlir samherjar í Meistarasamband inu hittumst eina kvöldstund, þar sem við gætum rifjað upp gamlar minningar frá okkar sam ei.gínlegu barátituáruim. En — nú er komið að kveldi, þvd getur ekki orðið af þeiim fundi. Aðeins eftir að kveðjast, elskulegi vinur og félagi og þakka þér aida vin- áttuna og hlýjuna er þú gafst mér í lífinu. Ég votta dóttur þinni og fjöd skyidu og ennfremur systkinum þinum eiulæga samúð við frá- fall þitt. Ég bið þér Guðs biessunar, með von og vissu um endur- fundi á landi Mfsins. Ólafur Giiðniundsson. Þegar við i dag kveðjum Grím Bjarnason pípulagTiingameistara hinztiu kveðju koma upp i huga okkar þau mörgu og margvís- legu störf sem hann vann að, fyrir félag sitt og iðnaðarmeTm í heild. Þeir sem einhver kynni höfðu af Grími, þekkja vel hams sérstöku hæfileika til að vera i forystu hvar sem hann var til kvaddux. Bezt lýsa þessir hæfi- leikar sér í því starfi sem hann vanm fyrir hin ýmsu félög og fé lagasamtök. Grimur var kjörinn fyrsti for ■maður Svema.sambands bygg- ingamaTma og þegar stofnuð voru meistaraféiög í iðngreinun um vaidist hann snemma for- ystumaður sins félags. Árið 1940 var hann kjörinn ritari í Fé- iatgl pipulagningameistara og síð an formaður þess frá 1946. Þeg- ar meistarafélögunum i Reykja- vik fór að vaxa íiskur um hrygg er Grimur helzti hvata- maður að stofnun samtaka þeirra, Meistarasambands bygg ingamanna. Hann átti sæti í fuii trúaráði sambandsins frá stofn un, 1958, síðan varamaður í stjórn árið 1959, formaður sam- bandsins var hann kjörimi 30. júní 1960 og var það óslitið fram í marz 1971, þar af gegndi harrn einnig starfi framkvæmda stjóra sambandsins frá 1. janú- ar 1968. Þá átti Grímur einnig sæti i varastjóm Vinnuveitenda sambandsins sem fulltrúí bygg- ingamanna, auk ó'tal starfa í ýmsum nefndum i þágu iðnaðar- manna. Bkki munu störf sem þessi verða þökkuð sem skyldi, en þó má segja að hugur iðnaðar manna til Gríms hafi komið að einhverju leyti fram nú á síð- asta iðnþingi, er honum var veitt heiðursmerki - iðnaðar- manna sem smá þakkiætisvottur fvrir unnin störf. Þeir sem fylgzt hafa með og þekkja öll störf Gríms fyrir Meistarasambandið vita bezt og helzt um allt það sem hann hef- ur þar áorkað og þá sérstöku hæfileika sem honum virtust áskapaðir til að miðla máhim á þann hátt, að flestir gátu vel við unað. Síðustu árin vann Grimur tais vert að einu af mörgum áhuga- málum sínurn, en það var trygg ingafélag fyrir iðnaðarmenn sem nú heitir Iðntrygging. Af sinni sérstöku framsýni skiidi hann snemma þörf fyrir siikar tryggingar og þótti þá sjáif- sagt að vinna að þvi máli ásamt: öilu öðru, þó nóg væri fyrir. Margir hefðu heldur komið sér undan slikum störfum, en það var ekki háttur Grims, afltaf gat hann bætt á sig störfum á meðan dagar entust. Ég hefi hér minnzt á nokkur af þeim störfum sem Grimur hefur haft með höndum og þá eingöngu þau sem unnin hafa verið fyrir iðngreinafélögin. En ótalin eru öll önnur störf sem hann annaðist á ýmsum sviðum. Meistarasamband bygginga- manna vill hér þakka honum öil þau mörgu og margvislegu störf sem hann hefur unnið sem for- svarsmaður þess og meistarafé- laganna. Þó að ikilfjörleg orð megni iítils sem þökk fyrir öll þau störf viljum við reyna að túlka hug okkar til hans með þeim. Minning hans mun um ókomna framtíð verða okkur sem eftir standa hvatning í okk ar störfum. Við sem notið höfum starfa hans og dugnaðar vottum dótt- ur hans, tengdasyni, systkinum og öðrum vandamönnum okkar fyllstu samúð. G.B. 1 dag verður til moldar bor- inn frá Frikirkjunni í Reykja- vik, vinur minn Gr'imur Bjama- son, en hann arvdaðist á Rikis- spitalanium í Kaupmannahöfn 22. okt. s.l., að undangengnum uppskurði. Á síðasta aðalfundi Meistarasambands bygginga- manna lét hann af störfum sem framkvæmdastjóri samtakanna þar sem hann taldi þeim samtök- um vei borgið. Hann hugðist snúa sér að fjölmörgum áhuga- málum sínum í féiagsmálum og þó einkum og sér í lagi á veg- um iðnaðarsamtakainna, en fyr- ir þau var hann óþreytandi að starfa. Vona ég að aðrir menn mér færari verði til að rekja þau störf, en eins og menn ef- laust rekur minni til sæmdi sið asta iðnþing hann gullmerki samtakanna fyrir frábær störf í þess þágu. En það var ekki á þessum vettvangi, sem við Grímur kynnt- urnst, heldur á vegum Samein- aðra verktaka er þeir hófu starf semi sína árið 1951, en í stjóm þeirra samtaka átti Grimur Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.