Morgunblaðið - 03.11.1971, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.11.1971, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐÖE), MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1971 19 frÉttir í stuttu máli SPRENGJA í BELFAST Relfast, 2. nóv. AP—NTB. Skæruiliðar sprengdu í dag í loft upp krá eina í Belfast. Vitað er að karl og kona ' biðu bana í sprengingunni og 35 aðrir særðust. Verið er að grafa í rústunum til að ganga úr skugga um hvort fleiri hafa látizt. VÍSAÐ ÚR LANDI Brússel, 2. nóv. — NTB. Tveiimur starfsimönnum sov ézka flug félagsins Aeroflot \ hefur verið vísað úr landi í Belgiu, og þriðja starfsmanni félagsins neitað um heimild til að koma til landsins á ný að loknu leyfi í Sovétríkjun- um. Brottváaunin er sett í sam 1 banid við lista yfir 20 sovézika J njósnara í Belgíu, sem nýlega j hefur komizt í hendur yfir- valda. LEIÐTOGAR í ÍSRAEL Jerúsalem, 2. nóv. — AP. Leiðtogar f jögurra Afríku-' ríkja — þeir Yakubu Gowon' frá Nígeríu, Ahmadou Ahidjo I frá Kameroon, Leopold Seng- hor frá Senegal, og Joseph' Mobutu frá Zaire (áður ( Kongó, Kinshasa), eru nú i íomnir til fsraels á vegum Ein ingarsamtaka Afríkurikja til ’ að kanna möguleika á friði I milli Gyðinga og Araba, og | kynna sér deilu þeirra. GILDIR SJÓÐIR London, 2. nóv. — NTB. GULL- og gjaldeyrisforði Bretlands jókst í október um ' 82 milljón pund, og nemur' rnn síðustu mánaðamót sam-1 tals 2,171 milljónum pimda. j Er október 13. mánuðurinn röð, sem aukning verður á ’ gull- og gjaldeyrissjóðunum, og það þrátt fyrir 23 milljóna i punda endurgreiðslu í mánuð-, inum til Vestur-Fýzkalands. í ' september jukust sjóðirnir I um 86 miiljón pund. Indland Framh. af bls. 1 á ný næstu árin eftir hamfarirn- ar veigna saltmengunar. Það torveldar mjög allt björg- unarstarf að þúsundir báta, sem íbúar svæðisins áttu, hafa horf- ið í hamförunum. Ýmist hafa þeir sokkið, eða þá rekið á haf út. Sveitir úr indverska hernum, sem verið hafa í varðstöðu við tandamæri Austur-Pakistans, hafa verið sendar til flóðasvæð- anna til aðstoðar við björgunar- starfið, en flotadeild hefur verið gend til hafnarborgarinnar Para dip, þar sem miklar síkemmdir urðu í flóðbylgjunni. Á flóðasvæð inu er fyrirhugað að setja upp 250 hjálparstöðvar, og þangað eru farnir um 200 læknar og 100 sérfræðinigar aðrir. Hjálparstarfið kostar að sjálf- sögðu miíkið fé, og verður þung- ur baggi á efnahag Indverja, eins og fram kom í ávarpi, sem Fakhruddin Ali Ahimed matvæla- ráðherra fluttd í dag. Þar sagði ráðherrann meðal annars: „Fjár- hagur okkar hefiur þegar orðið fyrir miklu áliagi vegna náttúru- hamfara svo sem þurrka á víð- áttumikium landssvæðum í suð- urhéruðunum, gífurlegra flóða í norðurhéruðunum, og flótta- mannastraumsins frá Bangla Desh (Austur-Pakistan). Ná- granni okkar Pakistan ógnar okk ur hins vegar með allsherjar styrjöld. Flóðbyligjan og feHibyl urinn hafa aðeins aukið erfið- leika okkar.“ Pakistanskur sendimaður biðst hælis í Sviss BERN, Sviisis, 2. nóvemeber — AP. Waliur Rahman, sem veitt liefur forstöðu sendiráði Pakistans í Sviss, hefnr farið fram á hæli í Sviss sem pólitískur flóttamað- ur. Segir hann að Yahya Khan, forseti Pakist'ains hafi láitið direpa hálfa aðra milljón Bengala, en sendimaðuriinn er sjálfur frá Bengal. Hann kveðst ekki leng- ur igéta horift aðgerðalaus á viilimannsilegar miðaidaaðgerðir stjóitnar sinmar. Þær hafi breytt Bangla Desih í lanid dauða, of- bekli's og eyðiieggingar. — í*ingsetning Framh. af bls. 1 segir þar ennfremur að Bretar muni standa við ailar skuldbind- ingar sínar gagnvart öðrum ríkjum, viðhalda styrkleika At- lantshafsbandaiagsins, efla sam- tök Samveldisríkjanna og treysta vináttu- og samstarfssamninga sína við önnur ríki. Gripið var til einhverra við- tækustu varúðarráðstafana í sögu Bretlands í tilefni þing- setningarinnar. Óttazt var að öfgamenn úr írska lýðveldis- hernum hefðu í hyggju að vinna skemmdarverk á þinghúsinu í framhaldi af sprengjuárásun- um um helgina á póstturninn og herbúðir í London. Hafði lögreglunni borizt hótun um að Viktoriuturninn í þinghúsinu yrði sprengdur í loft upp fyrir þingsetninguna. Lögreglu- og hervörður var við þinghúsið og í nágrenninu í alla nótt, og þyrl- ur voru á sveimi yfir húsinu eftir að birta tók. Elisabet drottning lét hótanirn- ar ekkert á sig fá, og fór akandi til þingsins i skrautvagni að vanda. — Reykhólasveit Framh. af bls. 14 útvarpsins að láta heyrast í fólki utan af landsbyggðinni. Ég býst við, að þú lesandi minn hafir ofitar en einu sinni heyrt þá sögu, sem ég nú ætla að segja þér: Drottinn ailsherjar kom ein- hverju sinni í heimsófcn til Ad- ams og Evu. Eva var að þvo börnin sín, en átti eftir að þvo nokkur þeirra, þegar Drottinn barði að dyrum, og Eva sagði óhreinu börnunum að fela sig. Eva ieiddi hreinu börnin fyrir Drotitin og hrósaði hann þeim og taidi þau mannværileg, en allt í einu spurði Drottinn Evu, hvort þau Adam ættu ekki flieiri börn og hvað Eva nei við því. Þá sagði Drobtiinm: Það sem á að vera hulið fyrir mér, skal hulið fyrir mönnunum. Það sem útvarpsmönnuim Mk- ar ekki skal hulið fyrir alþjóð. Sveinn Guðmundsson. — Onassis Framli. af bls. 3 í bók sinni, að Onassis hafi I september 1967 verði í þann veginn að ganga að eiga vin- konu sína, söngkonuna Maríu Callas, en hún er af grískum ættum. Hefði verði búið að sækja pnest frá Aþenu til þess að vígja þau, en orðið hefði að aflýsa hjónavigslunni, sök- um þess að söngkonan gat hvergi fundið skírnarvottorð sitt. Þá hefði komið til mikils rifr ildis milli þeirra tveggja. Síð an ákváðu þau að bíða svo- lítið, áður en þau gerðu nýja tilraun til þess að ganga í hjónaband. 13 mánuðum sið- ar eða hinn 20. október 1968 hefði Onassis gengið að eiga frú Jacqueline og hefði Maria Callas ekki fengið dulið gremju sína vegna þess ráða- hags. Bryndís Kristjáns- dóttir — Minning Fædd 8, september 1918 Dátn 25. október 1971 MIG langar fyrir mína hönd og fjölskyldu minnar að minnast Hryndísar Kristjánsdóttur. Hún var fædd á ísafiirði og ólst upp í foreldrahúsum í stórum systkinahópi. Við Bryndís þekktumst frá bemsku og áttum að auki ættir saman, en það var fyrst fyrir 10 árum, að við endurnýjuðum kynni okkar og er ég mjög þakk- lát fyrir þá endurfundi. Binna min, eins og hún var ávallt nefnd á okkar heimili, var góður leiðbeinandi barna sinna og barnabarna og dætur okkar hjónanna nutu einnig í ríkum mæli góðs af vizku hennar, lífs- reynslu og gæðum. Þótt Binna væri oft heiisutæp, lét hún lítið á þvi bera og vann ótrauð sín störf. Hún miðlaði okkur af lífs- reynslu sinni og gaf af svo glöðu geði. Ég sendi Ólafi eiginmanni hennar, börnum, tengdabörnum, bamabömum og öðrum ættingj- um, innilegar samúðarkveðjur og bið góðan guð að styrkja þau í sorg og söknuði. Herdís Biering. AÐ MORGNI 25. f.m. andaðist Bryndís Kristj ánsdóttir, Réttar- holtsvegi 97. Bryndís var gift Ólafi Þor- steinssyni, járnsmið, og áttu þau 7 börn á lífi. Að Binna skuli vera dáin, er svo ótrúlegt. Hún, sem alltaf var svo kát og hress og reyndi af fremsta megni að veita öðrum hlýju og skilning. Hún var heim- ilinu allt, allir gátu leitað til hennar með sín áhyggju- og gleðiefni, og reyndi hún ávallt að miðla málum á bezta veg. Mikill er missir bamanna og barnabarna, en stærstur þó miaa - ir Óla, mannsins hennar, sem ætíð hefur staðið bjargfastur við hlið hennar í með- og mótlæti. Þau voru svo miklir vinir og fé- lagar og samhent í öllu, ekki Sízt að hjálpa börnunum sínum til þroska og mennta. Ég bið góðan Guð að styrkja þau öll, og að mininingin um dá- samlega eiginkonu og móður hnýti þau fastar saman til frek- ari manndóms og dáða. Það er svo dásamlegt að eiga aðeins bjartar og fagrar minn- ingar um móðutr sína, að það hlýtur að vera hvatning til að breyta rétt í lífinu og að reyna að miðla öðrum af sínu og sýna þannig, að árangur hafi hlotizt af góðu uppeldi á yndislegu heimili, þar sem allir voru jafnir, enginn tekinn fram yfir annan. Eg votta eiginmanni, bömum og öðrum ástvinum mína inni,- legustu samúð. A. H. Ráðstefna um: Ileilbrigði og öryggi á vinnustöðum RÁÐSTEFNA um heilbrigði og öryggi á vinnustöðum var haldin á vegum Menningar- og fræðslu- sambands aiþýðu dagana 29. og 30. okt. sl. Ráðstefnuna sóttu 28 þátttakendur frá 26 verkalýðs- félögum. Stefán Ögmiundsson, form. MFA, setti ráðstefnuna, en Bald- ur Óskarsson, miðstjórnarmaður ASl, stjórnaði henmi. Fyrri dag ráðstefniunin'ar fluttu eftirtaldir menn erindi: Friðgei-r Grímsson, öryggismálastjóri, Baldur John- sen, forstöðumaður Heiilibriigðis- eftirlits ríkisins og KormáK- ur Siigurðsson, heiibrigðisfuliltrúi hjá Reykjaivíkurborg. Að lokmum erindum þeirra urðu fyrirspurniir og umræður. Síðaiú daginn flutti Iianni- bal Valdimarsson, félagsmálaráð- herra ræðu, en þeir Stefáin Ög- mundsson, prentari, og Guðjón Jónsson, jámsmiður, erindi um kröfur verkafólfcs til vinnustað- arins og ástand islenzkra vinnu- staða. Að lokmuim erindum þeirra störfuðu umræðu'hópar. Sunbeam’72 er4dyra, 5manna í lúxusbíll og kostar ! Allt á sama staó Uugavegi 118-Sími 22240 EGILL VILHJÁLMSSON HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.