Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 22

Morgunblaðið - 03.11.1971, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1971 t Faðir minn, Carsten A. W. Jörgcnsen, Öldugötu 9, R, andaðist í Heilsuvemdarstöð- inni aðfaramótt 2. nóvember. Guðrún Jörgensen. t Guðrún Hjálmsdóttir, Borgarnesi, andaðist 1. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Borg- arneskirkju laugardaginn 6. þ.m. kl. 13.30. Jarðsett verður að Borg. Aðstandendur. t Bróðir okkar, ARI JÓNSSOIM frá Stöpum, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3. nóv- ember kl. 10.30 f. h. Júlíus Jónsson, ___________________________ Sigríður J. Thorlacius. t Móðir min, tengdamóðir og amma, IIMGIBJÖRG SKARPHÉÐINSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 4. nóv. klukkan 1.30. Arnbjörg Óladóttir, Sveinbjörn Kristjánsson, Ingibjörg L. Sveinbjörnsdóttir. t Móðir okkar, ÓLAFlA ANDRÉSDÓTTIR, Skúlaskeiði 38, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 4. nóv, klukkan 2 eftir hádegi. Börnin. Jarðarför t ÁRNA TÓMASSONAR, Bræðratungu, verður gerð frá Stokkseyrarkirkju, fimmtudaginn 4. nóvember klukkan 2.00. Magnea Einarsdóttir. t Minningarathöfn um eiginkonu mina, dóttur okkar og móður, JENSiNU FANNEY KARLSDÓTTUR, sem lézt í Svíþjóð 23. október sl., fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 5. nóvember kl. 14. Hilmar Sigurðsson, Karl Kr. Júlíusson, Hulda Pálsdóttir, Ragnheiður Gissurardóttir, Karl Ó. Jónsson, Hulda Gunnarsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and lát og útför JÓNS ALEXANDERSSONAR. Erla Þórdis Jónsdóttir, Helgi Kolbeinsson, Kristþór Alexaridersson. t Þökkum innilega auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og jarðarför GUÐRÚNAR EGGERTSDÓTTUR, Kothúsum, Garði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Keflavíkur. Jón Þorkelsson, Eggert Jónsson, Sveinn Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Guðríður Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Reynir Markússon Ásta Árnadóttir, bamabörn og barnabamaböm. Guðrún Á. Einars- dóttir — Minning Fædd 1. janúar 1890. Dáin 16. október 1971 „Að biðja sem mér bæri, mig brestur stórum á. Minn Herra Kristur kæri, æ, kenn mér íþrótt þá. Gef yndi mitt og iðja það alla daga sé með bljúgum hug að biðja sem barn við föður kné.“ ÞETTA og annað líkt þessu heyrði ég Gunnu frænku oft fara með við vinnu sína. Guðrún Árbót Einarsdóttir hét hún, en var venjulega kölluð Gunna frænka af okkur, sem þekktum hana vel. Hún var vel gerð kona, myndarleg á velli, fríð sýnum og gædd góðum gáfum eins og öll systkini hennar. Hún kom til foreldra minna er þeir hófu búskap að Sviðugörð- um í Flóa. Með þeim fluttist hún að Vindheimum í ölfusi en þar voru þau í tvö ár, en þá fluttust þau til Keflavíkur og fór hún þangað með þeim. Þar vann hún við fiskþvott og annað er til féll, en á kvöldin er heim var komið, stóð hún við prjónavélina og prjónaði fyrir fólk. Eftir tvö ár í Keflavík fluttist hún með for- eldrum mínum að Stóru-Vatns- leysu og dvaldist þar, þar til móð ir mín brá búi að föður mínum látnum. Það var oft mikið að gera á svo stóru heimili, oft unnið fram á nótt, en aldrei heyrðist hún kvarta eða telja eftir sér að gera þetta eða hitt. Oft var hún þreytt en ætíð var lundin létt. í þá daga voru ekki eins mikil hjálpartæki til að létta störfin eins og nú er. Þá þurfti að hala vatnið upp úr djúpum brunnum t Hervör Ásgrímsdóttir, húsmóðir, Ásvegi 23, Akureyri, verður jarðsungin föstud. 5. nóvember. Kirkjuathöfnin hefst kl. 13.30. Eiginmaður og börn. t Innilegar þakkir fyrir auð- sýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför Hafliða Þorsteinssonar. Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunar- og starfsfólki á Elliheimilinu Grund fyrir nærgætni og umönnun. Jensína Jensdóttir, Jakob Þorsteinsson. t Hjartkær eiginmaður minn og fósturfaðir okkar, Guðmundur Jón Guðmundsson, frá Hesteyri, Þrastargötu 7B, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju föstudaginn 5. nóvember kl. 3 e.h. Soffía G. Vagnsdóttir og fósturbörn. t Innilegar þakkir til allra, nær og fjær, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför Margrétar Teitsdóttur, Krosseyrarvegi 6, Hafnarfirði. Magnús Helgason, Teitur Magnússon, Guðný Sæmundsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir til ailra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför HARALDS GUÐMUNDSSONAR, fyrrverandi sendiherra. Margrét Brandsdóttir og börn. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR frá Isafirði, Réttarholtsvegi 97, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, miðvikudaginn 3. nóvember kl. 1.30. Ólafur Þorsteinsson, börn, tengdaböm og barnaböm. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, KRISTlNAR FILIPPUSDÓTTUR, Ægissíðu, Rangárvallasýslu. Þorgils Jónsson, Ingibjörg Þorgilsdóttir, Jóhann Kjartansson, Ásdis Þorgilsdóttir, Steinn V. Magnússon, Ægir Þorgilsson, Þorbjörg Hansdóttir, Sigurður Þorgilsson, fshildur Einarsdóttir, Gunnar Þorgilsson, Guðrún Halldórsdóttir, Jón Þorgilsson, Gerður Jónasdóttir og barnabörn. og bera það í fötum heim í bæ- inn. Þegar staðið var að stór- þvottum þurfti mikið vatn. Var þvotturinn þveginn inni í eldhúsi því ekki var til sérstakt þvotta- hús, fyrr en síðustu árin. Svo var þvotturinn borinn niður að brunni og skolaður þar, eða ef vel stóð á sjó, þá var farið með hann alla leið niður í fjöru og skolað úr fjöruvötnum. Þetta var oft erfitt verk og kalt, sérstak- lega að vetrinum til. Gunna frænka hafði létta lund og átti gott með að sjá ljósu hlið arnar á lífinu. Henni þótti gam- an að hitta fólk og átti gott með að ræða við það. Hún gat verið ræðin og skemmtileg. Hún var minnug og kunni ósköpin öll af ljóðum og sögum. Það gafst ekki mikíll tími til lesturs, en ef ein hver stund gafst, var hún notuð. Þá lásu þær hvor fyrir aðra, mamma og Gunna frænka, eftir þvi hvernig á stóð hjá hvorri fyr ir sig í það og það skiptið. Hún hafði yndi af að hlusta á þann fróðleik, sem útvarpið flutti, en aldrei féll henni verk úr hendi á meðan. Síðast í sumar hlustaði hún alltaf á þáttinn Dag legt mál, svo eitthvað sé nefnt. Okkur systkinunum var hún eins og önnur móðir, vildi allt fyrir okkur gera, enda leituðum við oft til hennar með vandamál okkar þegar mamma var of upp tekin til að geta sinnt okkur. Ég gat oft dáðst að því, hvað Gunna frænka var fljót að hugsa ef eitthvað þurfti skjótrar úr- lausnar og leysa vandann á auð veldan hátt. Ég man kvöldin, þeg ar hún að afloknu amstri dagsins kom upp á loft þar sem við systk inin hvíldum i rúmum okkar, hún settist á rúmið sitt og fór að rekja upp flétturnar og greiða hár sitt. Á meðan hún var að því raulaði hún alltaf eitthvað úr Passíusálmunum. Ég man hvað mér fannst þessi söngur hennar hafa róandi áhrif á mig og ég sofna vært á eftir. Hún var ætíð boðin og búin að stjana og snúast í kring um aðra, enda var oft kallað: Gunna frænka, hvar er þetta, viltu gera þetta, mig vantar sokka eða vettl inga og svo framvegis. Svo þegar hún sjálf þurfti á hjálp að halda, en það var nú síðasta árið, sem hún lifði, þá gekk oft erfiðlega að láta hana skilja að nú hefði dæmis snúizt við, nú ættu aðrir að snúast í kring um hana og hjálpa henni, en ekki hún þeim. Hún var alla tíð heilsuhraust þar til hún varð fyrir bíl og fékk högg á höfuðið fyrir rúmu ári. Eg mun ætíð miinnast hennar með hlýjum huga og þakklæti fyrir allt og allt. Systurdóttir. MORGUNBLADSHUSINU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.