Morgunblaðið - 29.12.1971, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 29.12.1971, Qupperneq 17
MORGU’NHLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1971 17 Gerald Walker skrifar um bókina: „þegar ég var gamall" eftir Georges Simenon Það er nœsta uggvekjandi að ætla sér að skrifa gagn- rýni um dagbók þess manns, sem skrifar ágæta skáldsðgu á jafnlöngum tlma og venjuleg- ur breyzkur maður þarf til að koma frá sér sæmilegum rit- dómL En menn láta þó ekki tæki- færið sér úr greipum ganga að skyggnast inn í hugarheim svo afkastamikils rithöfundar sem Georges Simenon er og hefur verið um 40 ára skeið. Georges Simenon er ekki að- eins afkastamikill á sinu sviði. Sálfræðileg skarpskyggni hans og hnitmiðaður rit- stíll skipar honum á bekk með beztu rithöfundum 20. aldar- innar. (Raunar var það André Gide, sem einna fyrstur kom augá á framúrskarandi hæfi- leika Georges Simenons). Skáldsögur Georges Sim- enons eru gæddar sérstæðum óskeikulleika, jafnvel líka sög ur hans af Maigret leynilög- reglumanni, sem mér hefur þó alltaf þótt heldur lélegur skáldskapur og lltt spennandi. (Simenon segir sjálfur í dag- bók sinni, að hann skrifi hann. þegar hugur hans sé ekki „anti -Maigret"). Skáldsögur hans eru yfirleitt um 200 blaðsíður að lengd og I þeim örlar hvergi á prédikunartón frá höfundar- ins hálfu eða tilraunum til að halda fram sérstökum málstað. Persónurnar lifa sínu eigin lífi og atburðarásin verður eins og af sjálfri sér, . . . eins og ger- ist og gengur í mannlífinu. Og þar kemur til hæfileiki hans til að setja saman sögu — stuttorð leiftrandi lýsing — hnitmiðuð samtöl (án þess að nota „sagði hann“) — svipmynd úr hug- arfylgsnum — sýn eða angan gengins tima — gagnyrt upp- rifjun, engar orðalengingar og öll frásögnin rennur saman í eina heild eins og draumur draumskyggns manns. Hann undrast aldrei, en hann er allt- af jafn uppnuminn af því, hvernig samskipti manna geta orðið eða hvernig menn geta leikið sjálfa sig. Lesand- inn skynjar höfundinn aðeins af fjarvist hans, — af stóísku umburðarlyndi hans, ef svo mætti að orði komast. Það er því ekki að undra, þótt menn blaði með nokkurri forvitni í dagbók þessa rithöfundar, ef takast mætti að varpa ljósi á, hvaða mann hann hefur að geyma. Og Simenon ætlar greinilega ekki að draga dul á það. í formálanum segir hann: Ár in 1960, 1961 og 1962 fór mér að finnast ég vera orðinn gam- all, af persónulegum ástæðum eða einhverjum ástæðum mér ókunnum, og ég fór að skrifa niður glefsur i dagbók. Ég var að nálgast sextugt. Bráð- um verð ég 67 ára (þetta er skrifað 1969) og nú hefur mér ekki fundizt ég vera gamall lengi. Ég finn enga hvöt hjá mér lengur til þess að skrifa endurminningar mínar. Og við hittum á ný ævintýra- legan Simenon, sem lokar sig inni í vinnustofu sinni með nokkur lausleg minnisatriði hripuð niður aftan á umslag og kemur út aftur að viku liðinni með fullskrifaða skáldsögu. Síðan eyðir hann aðeins noklkr- um dögum í að endurskoða handritið. Þetta gerist fjórum sinnum á ári. Á milli þessa geflst honum nægur t5mi til að sinna konu sinni og börnum, reka erindi heimilisins, leika golf og lesa. Hann lýsir stóra húsinu sínu í Sviss, segir frá tekjum sínum, vináttu við Chaplin og Henry Miller og drjúgum kynnum sínum af Batekusi teonungi, (þau teynni tilheyra reyndar liðinni tíð, en sjálfur telur hann sig alkóhól- ista). Og hann rifjar upp þann tíma, þegar hann bjó i húsbáti ásamt fyrri eiginkonu sinni og þjónustustúlku og sigldi um all ar ár Frakklands. Það gerði hann, vegna þess, að hann er þeirrar skoðunar, að hið rétta andlit borga snúi að ánum en ekki þjóðvegunum. Margar af þeim sögum, sem af honum ganga, hefur hann sjálfur búið í hendur blaða- mönnum. Á nokkurra mánaða fresti opna þau hjón heimili sitt í nokkrar vikur fyrir blaða mönnum, sem að vísu rang herma ýmsa hluti honum við- víkjandi, en hann hefur sjálf- ur starfað sem blaðamaður og heldur áfram uppteknum hætti. Hann bendir á ósamræmið milli þess, sem skrifað er um hann í blöð og hins raunveru- iega, en aðaltilgangurinn með útgáfu bókarinnar „Þegar ég var gamall" segir hann vera að gera grein fyrir sjálfum sér, eins og hann er, en ekki setja sig á stall, til þess að börn hans fái að lokum af honum rétta mynd. Tíu ára gamall sonur hans segir um eldri bróð ur sinn: „Ekki skil ég, hvers vegna Marc ætlar að kvænast og setjast að í Pairfs, úr því hann á kost á því að búa x ár hér hjá pabba“. Má vera, að aðrir feður þægju með þökkum að fá slíka viðurkenningu frá syni sínum, en Simenon vill stíga af stall- inum, vera eins og hver ann- ar hversdagslegur maður. „Er það ekki eina leiðin til að feocma þeim tii hjálpar,“ spyr hann, „ef þau þurfa einhvern tíma á þvi að halda?" Skáldsögur Simenons fjalla um heitar ástríður, glæpi og of beldi. Sá Simenon, sem við hitt um fyrir á þessum blaðsiðum, fyrirlítur ofbeldi. (Hann minn ist á átökin í Alsír, Kongó, Vietnam og vopnaflutningana til Kúbu). Hann skipar sess heimilisföðurins ,af einlægri gleði og gerir sér allt far um að eyða frístundum sinum með börnum sínum og seinni eigin- konu. Hún er kanadisk að ætt. Simenon kallar hana D. og hún annast öll fjármál fyrir hann. En Simenon verður allt- af Simenon og sem heimilisfað- ir allafbrigðilegur. Hann elsk- ar að vísu konu sína heitt og innilega, en ævilangt er hann haldinn þeirri áráttu að sækj- ast eftir ástamökum við hverja þá aðlaðandi konu, sem á vegi hans verður. Eiginkona Simen- ons gefur honum fullt frelsi og sagan segir, að hann hafi kall- að fjórar konur hverja af annarri inn í hótelíbúð sína, á meðan konan hans setti niður farangur þeirra í ferðatöskurn ar í næsta herbergi. Hann minnist ekkert á það, hvort ver ið geti um orsakatengsl að ræða á milli þessarar sterku kyn- hvatar hans sjálfs og minnimátt arkenndar eiginkonunnar eða þunglyndiskasta hennar, eða þunglyndiskasta hans sjálfs. Tilgangurinn með skrifun- um er eingöngu sá, segir hann, að feykja burt allri yfirborðs- mennsku og vanabundnum hugsunarhætti. Simenon er glöggskyggn mað ur og góðum gáfum gæddur. Það kemur fram við lest- uir þessarar bótear. En hanin er ekki djúphygginn að sama skapi. Ef til vill mætti frekar líkja honum við bóndann, sem erjar jörðina af alúð. Athygl- in beinist fyrst og fremst að því sem auðvelt er að henda reiður á, að fjölskyldunni, kyn ferðismálum, vinnu, heilsu, heimilishaldi og þeim hlunnind um, sem borgaralegt líf hefur upp á að bjóða . . . að und- anskildum nokkrum borg- aralegum siðgæðishugmyndum. En honum er ldtt um hug- myndafræði. Ekki svo að skilja að hug- mynda sjái engan stað S bók- inni. Þær notar Simenon sem Georges Simenon. stökkbretti fyrir þær athuga- semdir og skoðanir, sem þarna koma fram, en aldrei verður vart í skáldsögum hans. Til dæmis skýtur hann við og við inn hvassyrtri yfirlýsingu: „Máltæki eru ekkert nema mót sagnir." Og stundum kemur hann á óvart, talar sem bjart- sýnismaður, enda þótt skáld- sögur hans ‘ f jalli um skugga- hliðar mannlifsins: „Að þvi er ég bezt veit er það fyrst á ökk ar dögum, sem farið er að tala um næringarskort fátækari þjóða og þeir, sem búa við alls nægtir, eru farnir að skamm- ast sTm.“ Eða um merkar per- sónur, sem hann 'he'fur kynnzt: „Ég hef kymnzt tveimur mönn- um, sem trúðu þvi, að þeir væru miklir menn, og höguðu sér samkvæmt því án þess að blikna. Það voru Anatole France og André Gide. Ein- kennilegast fannst mér, hversu mikið far þeir gerðu sér um að framkoma þeirra væri í fullu samræmi við hugmyndir fólks um þá. Þeir lifðu fyrir þessa sjálfsmynd en ekki sinu eigin lífi. Þetta olli mér vonbrigðum, og mig furðaði ekki, þegar sól þeirra tók að lækka á lofti.“ Samt hallast skrif hans í þessari bók frekar að raun- veruleikanum, þvi sem er hér og nú og umfram allt að fjöl- breytni mannlífsins. En ein kenni hennar er fyrst og tflremst Mtillæti, því að etekert er Simenon fjarstæðara en taka sjálfan sig hátíðlega. „Skáldsagnahöfundur verð- ur að lifa það að verða gam- all,“ skri'far hann. „ÞvS eldri, því betra, til þess að hann geti séð mannkynið frá öllum sjón- arhornum . . . með augum ungl- ingsins og öldungsins. Eigin- lega þyrfti hann að hafa lifað mörgum iílflum.“ Og lesandinn kynnist vissulega mörgum af- brigðum í þessari bók. I HEIMSÓKN HJÁ SIMENON eftir Israel Shenker. Epalinges, Sviss. Þetta var mánudagur í maí. Það hafði rignt um morguninn og regnið vætti vingjarnlega andlit og hendur vegfarenda Maigret hugsaði með sjálfum sér, að þessa dags mundi hann minnast síðar með ánægju. Bifreiðarnar mjökuðust hægt eftir Chapellbúlevardin u m, Justin Crottin stóð á gangstétt inni, þegar Citroen DS stöðv- aðist við hlið hans. Eða eitthvað í þessa átt. Justin Crottin er áreiðanlega fórnarlamb eða sökudólgur eða að minnsta kosti viðriðinn óum flýjanlegan glæp, sem framinn verður I 210. skáldsögu Simen- ons og 80. sögunni af Maigret. Uppistaðan er ekki nema nokkur handskrifuð minnisatr iði öðrum megin á brúrau um- slagi. „Maigret og uppljóstrar- maðurinn" stóð efst á blaðsíð- unni. Mori-bræðurnir höfðu ekki fengið önnur einkenni en þessi: Manuel, 35 ára — Bruy- ere-torgið, Jo, 33 ára — Iles- hótelið Trudaine-gata“. Af- greiðslustúlkan í fatageymsl unni var aðeins nefnd skírnar- nafninu, Yvonne, ásamt einni viðbótarupplýsingu um ytra út lit („brjóst"). Tolstoy ofhlóð söguþráðinn með óendanlegum orðaflaumi. Simenon dregur upp mynd ir með fáum sterkum línum. „Ákjósanlegast er fyrir les- andann, að hann geti lokið við bókina á einu tevöldi," sagði hann. Við vorum staddir í ann arri af tveim vinnustofum hans. Önnur er búin glæsilegum hús gögnum og notuð til móttöku áleitinna spyrjenda. 1 hinni er unnið að skriftum. „Engum dettur í hug að fara til að horfa á fyrsta þátt leik- rits eitt kvöldið, annan þátt hálfum mánuði seinna og þriðja þáttinn eftir dúk og disk,“ sagði Simenon. „Menn vilja sjá allt leikritið í einu. Sama gildir um skáldsöguna i dag.“ „Áður fyrr var mikið fyrir- tæki að skrifa skáldsögur. Þær áttu að vera upp á 5—600 blað síður. Nú eru þær flestar þetta 135, 260 eða 280 blaðsíður. Við erum alltaf að reyna að sleppa þvi sem ekki er nauðsynlegt. Ef Balzac og Dostoyevski væru að skrifa sínar sögur í dag, væru þær ekki nema sjö- undi eða áttundi hluti þess, sem þær urðu þá. En á þeirra tírna var nauðsynlegt að gefa langar og ýtarlegar upplýsing- ar. Ef þeir hefðu til dæmis vilj að segja frá Philadelfíu, hefði enginn haft hugmynd um hvers konar borg var um að ræða, eða hvers konar lífi fólkið lifði þar. Og menn vissu jafnvel enn minna um Tucson og Phön ix. Menn þekktu ekki líf þeirra, sem tilheyrðu öðrum þjóðfélags stéttum en þeir sjálfir. Þá voru ekki til kvikmyndahús eða sjónvarp. Þess vegna urðu rithöfundar að lýsa öllum að- stæðum. „Ég er hvorki gáfaður né gæddur innsæi," sagði Simen- on. „Bækur mínar eru þvi frek ar skrifaðar af innblæstri. Og það er oft erfitt að halda þess- um innblæstri í skef jum. Hann kemur yfir mig óforvarandis. Eina skilyrðið sem hann setur mér, er, að annað knýi ekki á hug minn. Þegar ég ákveð að skrifa bók, verð ég því að tæma sjálfan mig af öðrum hugðarefnum, verða hlutlaus, sleppa vangaveltum og áhyggj um, og þess vegna byrja ég allt af á þvi að hreinsa skrifborð- ið. Ég lýk öllum verkefnum sem bíða úrlausnar. Ég reyni jafn- vel að muna, hver hefur ákveð ið að hringja til min í náinni framtíð, og ég hringi til við- komandi á stundinni. Ég losa mig við allt, sem gæti dreift huganum. Það mætti ef til vill líkja mér við svamp. Þegar ég ei ekki að vinna að bók, drekk ég bókstaflega í mig lífið og umhverfið, eins og svamp- ur sýgur í sig vatn. Þegar ég fer að skrifa, kreisti ég svamp inn ögn . . . og út kemur ekki vatn heldur blek.“ Verk hans flokkast eiginlega öll undir „roman-tragédie“. Hann byrjar ekki frásögnina á því að segja frá fjölskyldunni og afanum eða þess háttar. Hann tekur strax að lýsa há- punkti atburðaflækju, sem snertir allar aðalpersónur sög unnar og lætur síðan persón- urnar um að leysa vandann. „Segja má, að ég lifi lífi þess aira persöna," sagði hann. „Þær skrifa, ekki ég. Venju- lega er ég í hlutverki aðalper- sónunnar, og séu þær fleiri en ein, eru hinar séðar með aug- um einnar.“ Hann rétti upp hálfkreppta fingurna. Þeir voru vitnisburð ur um átökin við að koma hug arsýnum í orð. Oft hefur hon- um dottið í hug á löngum rit- höfundarferli síraum að læra rétta fingrasetningu á ritvél- ina. Þó heldur hann sér enn við ágæti kenningarinnar: „leitið og þér munuð finna“ og kemst upp í 92 orð á minútu. „Ég er fljótari en einkaritar- inn minn,“ sagði hann. „Það er ekki lítilmótlegra að sitja við IBM-ritvélina en mála málverk eða semja tónverk," segir hann. „Þegar ég hef ráðið niðurlög- um sektartilfinningar minriar, lokað mig inni um hríð og lok- ið við bók, verð ég gagntek- inn sælutilfinningu, sem end- ist mér ýmist í þrjá daga eða þrjár vikur. Mundi nokkurt annað starf veita mér slika fró? Og önnur hlunnindi hlýt ég líka vegna starfs míns. Það eykur skilning minn á fólki, færir mig nær því. Þeg- ar ég hef skapað sögupersónu, finnst mér hún hafa kennt mér meira um mannfólkið en ég vissi áður. Má vera að þetta hljómi sem mikillæti, en meS hverri bók finnst mér ég kom- ast nær sannleikanum um manninn, manninn i nekt sinni, raunveruleikanum um mann- inn eins og hann er. Þegar ég skrifa bók og þá sérstaklega þegar ég hef lokið við bók, veitir tilhugsunin um það mér mikla ánægju, að hún muni verða lesin af fólki inni í miðri Asíu, í fjöllum Suður- Ameríku í Finnlandi, í Uzbe- kistan og Kirgisíu, og mér finnst ég komast í tengsl við þetta fólk. Ég get setið um kyrrt heima hjá mér, ég sé það ekki, en finn nálægð þess í gegnum bækur mínar og bréf. Bandaríkjamenn skilja bæk- ur mínar betur en Frakkar, vegna þess að Frakkar eru Cartesistar (aðhyllast kenra- ingar Descartes) og siðaprédik arar. Ég er hvorugt og frönsk- um gagnrýnendum finnst það bagalegt að finna engan deilu gundvöll, engar fastmótað- ar hugmyndir að rökræða.“ Bókin „Þegar ég var gam- all“ var sumpart skrifuð til að særa burt óttann við ellina og höfundurinn segir að það haifi tekizt . . . næstum alveg. „Mér fór að létta, þegar ég var bú- inn að skrifa athugasemdir í dagbókina í tvö ár. Þá nennti ég ekki að halda því áfram. Það eru ellimörk, þegar menn eyða tímanum í að skrifa nið- ur allt sem þeim flýgur i hug. Ég var eiginlega eldri þá — Framh. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.