Morgunblaðið - 29.12.1971, Side 28

Morgunblaðið - 29.12.1971, Side 28
28 __r'= I • 1: I j ';j< I l!l '\u; I ;\-[ ■'!!<{-■■ Þ' !l.-i'l I. T,- .-M MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1971 •W JMCA 71 betur. Ég var lin í fótunum, svo voru einhverjir kippir í höfðinu á mér, mig verkjaði í kjáikana vegna þess, hve mikið ég var farin að bíta á jaxlinn. Það var eins og ég héngi í snöru yfir einhverju undir- djúpi. Þessi ákvörðun að fara að af- henda Gordon bréfin, eftir alla fyrirhöfnina hingað til við að leyna tilveru þeirra, var vit anlega ekki annað en óhemju- skapur og vitleysa, en ég vildi bara varpa öllu fyrir borð og vera laus við þ„ð. Hvað sem Veizlumatur Smúrt bruuð oq Snittur SILD & FISICUR hann tæki til bragðs gat aldrei gert ástandið verra en það var nú þegar. Þegar málinu væri lokið og lögreglan leyfði það, skyldi ég fara aftur til Arkans as og biðja Maríu frænku að skjóta yfir mig skjólshúsi þang að til ég gæti fundið mér eitt- hvað að gera. Ég skyldi gleyma New York og öllum íbú- um hennar. En fyrst og fremst skyldi ég þó gleyma Gordon. Ég tók bréfin af borðinu, læddist fram í ganginn og skaut þeim undir hurðina hjá honum og vonaðist háift í hvoru eftir, að hann opnaði og kæmi þarna að mér. En inni fyrir var allt hljótt. Vonsvikin og gröm sjálfri mér fyrir að vera vonsvikin fór ég aftur i íbúðina mína. Ég hafði ekki haft lyirt á morg unmatnum, sem hjúkrunarkon- an hafði búið mér, en nú varð ég allt í einu svöng. En meðan ég var i miðju kaff inu, var hringt. Gordon! hugsaði ég og missti brauðsneiðina úr hend- inni. Hann hafði þá fengið bréf- in og lét sig það engu skipta! Ég þaut til og opnaði dyrnar. Þetta var Evelyn Breamer. Vonbrigðin orkuðu á mig eins og högg undir bringspailirnar. Ég veik til hliðar, agndofa, en hún gekk inn og lokaði á eftir sér. — Ég vona, að ég komi ekki til óþæginda, sagði hún um leið og hún settist óboðin á legu- bekkinn, rétt eins og hún ætti húsið. Hún var afskapiega vel búin, í glæsilegri minkakápu og ullarkjól í spánnýjum grænum lit. Og einn þessara nýtízkúleg- ustu hatta af sama lit var aftan til á höfði hennar. En undir málningunni var hún föl og tek in. Grænu augun voru deyfðar- leg og hún átti bágt með að horfa á mig. — Hvort þú kemur til óþæg- inda? sagði ég eins og bjáni. — Það veit ég ekki enn. Hvað viltu ? En Evelyn var eitthvað að snugga. — Finn ég kaffilykt? Æ gefðu mér sopa. Ég bef ekkeri: borðað og hausinn á mér er al- veg að klofna. — Ég skal velgja það upp. Þetta varð einkennilegra og einkennilegra. Ég fór fram í eldhús, kveikti á gasinu undir könnunni, náði í bollapar og. . . En þá sló því allt í einu niður í mig. — Hleyptu engum inn, hafði Gordon sagt. — Ekki Drottni sjálfum! Og nú hafði ég hleypt morð- ingjanum inn. Eveiyn var morð inginn! Ég sá þetta allt fyrir mér, í Að þeir skuli vera að spila póker, þegar ekkert er til að spila um hér! Forstöðukonustaðan við leikskólann í Hlíðaborg er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. febrúar 1972. Umsóknir sendist skrifstofu Sumargjafar, Fornhaga 8, fyrir 6. janúar 1972. Stjóm Sumargjafar. LITAVER Ævintýraland VEGGFODUR Á TVEIMUR HÆDUM - 1001 UTUR - Lítið við í LITAVERI BORGAR SIG. snöggum svipmyndum meðan ég náði í sykur og mjólk og hringl- aði skeiðum í skúffunni. Ég hugsaði mig um, hvernig snú ast skyldi við þessu. — Viltu ekki ristað brauð líka? kallaði ég fram. Ég varð að tefja tímann. Hún var hing- að komin til þess að drepa mig, En ekki strax. Ég skyldi finna eitthvert ráð. Evelyn svaraði og sagðist gjarna vilja brauð, ef það væri ekki of mikil fyrirhöfn. Evelyít morðinginn. Og þá var Hue auðvitað i vitorði með henni, eða hún með honum. Sama hvort var. 1 félagi voru þau búin að drepa þrjár mann- eskjur. Hue hafði drepið Mel- chior í afbrýðissemikasti og Evelyn hafði komið að honum, áður en hann hafði haft svig- rúm til að komast burt, og hafði ákveðið að hjálpa honum. Hvers vegna? Það vissi ég ekki né kærði mig um að vita. Kannski elskaði hún hann enn . . . Og svo var það MarceMa. Hank hafði ekki myrt hana og þá ekki ég. En hvar hafði Hue verið þetta mánudagskvöld? Hvar var Evelyn? . . . Og svo var það fyrst og fremst gærdag urinn. Hue hafði ek'ki verið i skrifstofunni. Þá hafði hann ver ið að fremja glæpinn sinn hjá Grace. Vitanlega hafði Grace verið að kúga fé út úr þeim báð um. Hún hafði lagt að þeim og þau höfðu myrt hana. Hue hafði myrt hana og Evelyn hafði beð ið einhvers staðar fyrir utan, kannski í veitingastofunni hand an götunnar — þangað til tími var kominn fyrir þau að koma aftur að mér og likinu. Og með þessi bréf. Já, bréfin. Hvers vegna höfðu þau legið þarna á iegubekknum, svo heppilega fyr ir mig? hafði ég hugsað þá. Greinilega vegna þess, að Grace hafði verið að sýna þau ein- hverjum. Og hver hefði getað haft áhuga á þeim nema Hue? Og hann hafði skilið þau þarna eftir til þess að leiða grun að mér. En það hafði bara mistek- izt. Þau höfðu orðið að losna við mig einhvern veginn öðruvisi. Ég vissi of mikið. Nú, þegar Grace var frá, var ég sú eina, sem vissi, að Hue hafði verið hjá Lintonshjónunum á iaugar- daginn. Hann hafði sagt Evelyn fiá því þegar þau borðuðu sam- OSTAKYNNING í dag kiukkan 14-18 Frú Kristín Stefánsdóttir, húsmæðrakennari kynnir ýmsa vinsæla áramótarétti. Komið og kynnist fjölbreyttu úrvali ljúffengra ostarétta. Ókeypis leiðbeiningar og úrvalsuppskriftir. Osfa- og smjörbúðin an, og þau þá ákveðið, hvernig ganga skyldi frá mér. Hún hafði verið á hælunum á mér síðan. Ég setti brauðið á disk og hellti i bollann. Svo þreifaði ég fyrir mér innst í skúffunni. Þar var hamar einbvers staðar. — En sá ilmur, sagði Evelyn að baki mér. Ég snarsneri mér við. —- Hvað er að, ungfrú Böyk- in? — Nei, þér hreyfið yður ekki! Ef þér lyftið hendi, skal ég reka upp skaðræðisöskur og skvetta kaffinu framan í yður. Fafið þér frá og hleypið mér héðan út. Ég fór að hringsóla kring- um hana. - Hvað i ósköpunum . . . Bíð- ið þér, sagði hún. Svo rak hún upp þurrahlátur. — í guðs bæn- um hagið þér yður eins og manneskja með einhverja vit- glóru. Góða manneskja, ekki er ég morðingimn. — Til hvers komuð þér þá hingað? Og ef þér eruð hann ekki, hver veit nema ég sé það. — Ef ég hefði haft nokkurn grun, sagði hún, — þá hefði þetta uppþot yðar eytt honum. Gefið þér mér nú kaffið og svo skal ég segja yður tii hvers ég kom. Ég horfði lengi á hana. Síð- an tók ég hamarinn upp úr skúffunni og hallaðist upp að kæliskápnum. — Ég heyri, sagði ég, — en ef þér reynið . . . Ég veifaði hamrinum. Hún hristi höfuðið, settist síð an niður við borðið og saup vel á kaffiinu. — Ég kom til að kaupslaga við yður, sagði hún og smurði brauðsneið. — Gegn því, að þér þegið við lögregluna um það, að Hue hafi verið þarna á liaugar- dagskvöldið — æ, sleppið þér þessum hamri, í herrans nafni! þá skulum við ekki segja lögreiglunni um ykkur hr. Thews. Hún beit i brauðið. -— Við skuium meira að segja af- henda yður bréfið, sem hann skrifaði yður. — Bréfið, sagði ég. — Nei, ungfrú Breamer. Þetta er nú einum of mikið. Þér hafið ekk- ert bréf. Hún tók veskið, sem hafði leg ið í kjöltu hennar og opnaði það. Tók upp bréf og lagði það á borðið, en hélt fingrinum fast á einu horninu á því. — Ég skal ekki hrifsa þáð, sagði ég og laut fram til þess að sjá það. „Ungfrú Louise Boykin“, las ég. Þetta var raunverulega fjár kúgunarbréfið hans Melchiors. Og sem lokasönnun þess, vár Snorrabrawl 54.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.