Morgunblaðið - 04.01.1972, Side 6
6
MOR.GUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1972
SKATTFRAMTÖL
Pantið tíma'ntega í s»ma 16941
Friðrik Sigurbjömsson, lög-
fræöingur, Harrastöðum,
Fáfrtisinesi 4, Skerjaifirði.
TÖKUM AÐ OKKUR
smíði á elcfhúsinnréttingum,
klæðaskápum o. fl. Gerum
föst verðtilboð. Trésmíðaverk
stæði Þorvaldar Bjömssonar,
sími 35148. KvöSds. 84618.
VANUR SKIPSTJÓRI
óskast á 180 testa netabát.
Símar 30505, 34349.
LÆRÐ NUDDKONA
óskar eftir vinmi. Æskilegt að
íbúð fylgi. Tilboð, merkt 770,
sendtst Mbl. fyrir 10. janúar.
BARNGÓÐ OG ÁREIÐANLEG
kor»a, helzt við Vesturberg
Breiðholti, óskast til að gæta
10 mánaða stúíku á morgn-
ana. Sími 43638 eftr kl. 20.00.
STÚLKA ÓSKAST
í viist að Laugarvatni uil 15.
maí. Upplýsingar í síma
99-6124 eftir kl. 4.
ATVINNA ÓSKAST
Stúlka óskar eftir atvinnu
strax, er vön verzlunarstörf-
um, margt kemur til greina.
Uppl. í síma 37149.
DUGLEGUR MAÐUR
óskar eftir góðri virvnu, getur
unnið langan vinnudag eða
vaktavinnu. Uppl. í síma
81606.
UNGUR OG EFNILEGUR
námsmaður með konu og
bam óskar eftir íbúð tfl
leigu — frá áramótum tif
vors. Æskilegt að húsgögin
fyígi. Uppl. í síma 41724.
INNHEIMTUSKRIFSTOFAN
Sími 2-27-35.
Innheimtur, framtöl,
skipti á búum o. fl.
Viðtalstími kl. 4—6.
Geymið auglýsinguna.
KAUPUM LOPAPEYSUR
Sími 34718.
Hifda hf.
Suðurveri.
NÝLEG 16 mm reftex kv*k-
myndatökuvél með súm-linsu
óskast trl kaups. Tilboð með
uppl. um gerð fyígrhluta, ald-
ur og verð seodist afgr. Mbl.
f. 6 þ.m., merkt Kviksúm 768.
4 HERBERGJA IBÚÐ ÓSKAST
tM ieigu strax eða frá 1. febr.
Mjög áreiðanlegir teigjendur.
Háberg hf. — sími 33345.
TIL SÖLU
Trader 1963 7 tonoa með yf-
irbyggðum pallii. Uppl. gefur
Gísli Ámason, swni 46, Fá-
skrúðsfirði.
RAFVIRKI ÖSKAR EFTIR
starfi. Margt kemur til
grena T 'boð sends' Mb' ,
r-erkt 772
ISLAND
eftir
Huldu
Island, Island! Bg vil syngja
um þín görnlu, traustu fjöll,
þína hýru heiðardali
hamraskjód og vatnaföll;
þina fögru f jarðarboga,
frjáisa blæ og' álftasön'g,
vorljós þitt og vetrarloiga,
vallarilm og birkigöng.
ísland, ísland! Öllu fegri
er þin foma goðaströnd;
enginn getur yndi f jarri
er þtn heiðtign lagði í bönd.
Þeim sem örlög frá þjer flytja
fylgir þrá í ókunn lönd.
Ár og síðar öllum hoUust
er þin trygga móðurihönd.
Island, Island! Öllu skærri
okkur hljómar tunga þín;
hún skal nafn þitt, móðir, mæra
meðan vornótt björt þjer skffn.
Þegar hætta þjer er búin,
þá skal glymja strenigur hver,
harpa málsins hugmóð knúin
hrópa á lið til varnar þjer.
Island, Island! Eg vil búa
alla stund í faðmi þjer;
huga minn og hjarta áttu,
hvert sem vœngi lífs miíns ber.
Vættatryggðin vaki yfir
vogum þínum, hlíð og strönd,
meðan ást og óður lifir
og í norðri blómgast lönd!
Hulda.
Smávarningur
Northeliffe lávarður var eitt
sinn að halda ræðu á blaða-
mannafundi, þar sem hann benti
á þá höfuðnauðsyn, að bfföðin
skýrðu sem allra sannast og ná-
kvæmast frá ölhi í fréttaflutn-
ingi sínum.
„Sönn og rétt frásögn," sagði
hann „er jafn mikilvæg hverju
fréttablaði og hreinlifi fyrir
heiðarlega konu.“
Þegar hann hafði lökið þess-
ari setníngu, greip blaðamaður
inn Hannen Swaffer fram í fyr-
ir homum og sagði þurrlega:
„Þetta er efcki alveg rétt, því að
dagblaðið getur alltaf komið
með leiðréttingu daginn eftir.“
HJÓLIST0LIÐ i
11 ára drengur kom til okk-
ar á blaðið í gærdag og sagði
isinar farir akki sléttar. Hjól- i
inu hans, sem er gult Copper-
Íhjól með stóru stýri, og mjög
auðþ<íkkt, var stoiið úr læstri
hjólageymslu við Háaleitis-
braut 39 aðfaranótt mánudags
ins. Ef foreklrar í nágrenninu
veita hjólinu atlhygli hjá böm
um sinum, eru þau vinsamiega
beðin um að hringja í sima
81052, eða láta Dagbókina vita.
Allir geta Iftið i eigin barm,
þegar svona nokkuð gerist, og
vafalaust vill margur hjálpa
til, að hjólið finnist.
ÁIINAI) UFILLA
Nýlega opinberuðu trúlofun
siína, ungfrú Steinunn M. Bene-
diktsdóttir, skrifstofustúlka,
Þrúðvangi 20, Hafnaríirði og
Sverrir Friðbjömsson, póstmað-
ur, Hliðarhvammi 3, Kópavogi.
Á gamlárskvöld opinberuðu trú
lofun sína un-grfrú Bergný Hanna
Guðmundsdóttir, skrifstofu-
stúlka, Grundarlandi 6, Reyfkja-
vffk og Kristinn Benedi'ktsson,
ljósmyndari hjá Morgunblaðinu,
Þrúðvangi 20, Hafnarfirði.
VÍSUK0RN
Hýrt er auga, hnöttótt kinn,
hakan stutt í skarði.
Þessi fagri fífillinn
ffnnst í bóndans garði.
Vöndinn lýðir vœnan tjá,
vöndinn prýða lauíin smá,
vöndur hýðir vondum á,
vöndur síðan bætir þá.
(Cr bókinni Ég skal kveða við
þig vel eftir Jóhann Sveinsson
frá Fffögu).
FRÉTTIR
Jóhannea Þórðarson frá Gimli,
Manitotia, sem kom hingað með
stóra hópnum í júní, bað fyrir
jólakveðjur til vina sinna og ætt-
,ja á IslancK.
Kvenfélagskonur, Keflavik
Munið fundinn i kvöld kl. 9 í
Tjamaríundi. Upplestur og
fleira.
- Hver var það, sem þú talaðir við úti í íorstofunni í hei'lan
kúikkutíma?
Það var hún Sigríður, hún hafði enigan tima til þess að
: rra lun.
DAGB0K
Nálægið yður Guði, og þá mun hann nálgast yður. Jak. 4,8.
I dag er þriðjudagur 4. janúar og er það 4. dagur ársins
1971. Eftir lifa 362 dagar.
Almennar upplýsingar um iækna
þjónustu í Reykjavík
eru gefnar í simsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema á Hlappar-
stig 27 frá 9— -12, símar 11360 og
11680.
Vestmannaeyjar.
Neyðarvaktir lækna: Simsvari
2525.
Næturlæknar í Keflavík
4.1. Kjartan Ólafsson.
5.1. Arnbjörn Ólafsson.
6.1. Guðjón Klemenzson.
7.1., 8.1. og 9.1. Jón K. Jóhannss.
10.1. Kjartan Ólafsson.
Asgrímssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
verður lokað um skeið. Hópar
eða ferðamenn snúi sér í síma
16406.
Náttúmgripasafnið Hverfisgötu 116,
þriðjud., fimmtud., iaugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
Ráíigrjafarþjónusta Geðverndarfélagr*-
tns er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
síödegis aö Veltusundi 3, simi 12139.
Þjónusta er ókeypis og öllum heimil.
Þeir, sem settu svip á bæinn
Flestir Beykvikingar kannast við þennan snaggaralega niann,
8«n myndin er aí hér oð ofan. Þetta er Jón Eyjólfsson, cinka
vinur leiklistargyðjunnar og I.úðrasveitarinnar, sonur Eyjólfs
rakara og skálds frá Herm. Myndin er nokknð komin til ára
sánna, semiilega teidn rétt eftir 1930. Jón er þarna nð selja
Morgimbiaðið úr handvagni sínuni á Lækjartorgi. 1 baksýn er
hin eina og sanna Persilklukka og bilarnir 6 Aðalstöðinni. Nú
þekkja menn máskl Jón betur, þar sem hann öslar krapann um
götur borgarinnar með hjálm um höfuðið og gleraugu fyrir aug-
itm eins og japanskur omistuflugmaður, og þá er hann að safna
saman myndum í leiksögu Isiands. Jón er samrunninn leiksögu
Beykjavíkur um tugi ára, og sagt hefur það verið, að enginn
hafi nokkru sinni leildð lík á leiksviði jafn eðlilega og liann.
Hann er einn af þefm, sem setja svip á borgina.