Morgunblaðið - 04.01.1972, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1972
SJÓMANNASÍÐA
í UMSJÁ ÁSGEIRS JAKOBSSONAR
■ «
Oldukort
Myndin sýnir aðstoðarforstjóra Weather Routing, Inc. ræða um
upplýsing-akortið við skipstjóra á Istlimian línunni, en Iiann ætl-
ar að sigla í þessari ferð frá Newark tii Austurlanda. WRI-fyr-
irtækið hefur jafnan radiósamband við skipin, sem það ieið-
beinir og vilji svo til að horfur breytist lætur það skipstjórann
vita i tæka tíð.
Sífellt fleiri og fleiri langsigl-
inga skipstjórar notfæra sér nú
orðið þjónustu veðurfræðistof
unnar, sem hefur það verk með
hondum að kortleggja siglingar-
leið skipa með tilliti til veðurs,
en þó fyrst og fremst ölduhæð-
ar á úthöfunum og gildir spá-
Ikortið tvær vikur fram i tímann.
Þetta fyrirtæki nokkurra veð-
urfræðinga og haffræðinga hef-
ur aðsetur sitt í New York og
Iheitir Weather Routing, Inc.
Það kostaði allmikla baráttu
að fá skipstjóra til að notfæra
sér þjönustu fyrirtækisins en nú
íærist það ört í vöxt. Skipstjóri
sem leggur upp frá Hong Konig
og ætlar að sigla t.d. um Panama
skurðinn fær uppgefna frá New
York, hagstæðustu siglingaieið-
iina yfir Kyrrahafið á þeim tíma,
sem hann verður á ferðinni. Ef
hann fylgir leiðbeiningum, sem
hann fékk frá New York, tek-
ur ferðin hann 19 daga, en tæki
hann mjög liklega 21 dag, ef
hann sigldi án þessarar leiðbein
ingar.
Spá um sjólag og aðstæður á
hafinu reyndist, eins og öllum er
kunnugt, afdrifarik, þegar inn-
rásin var gerð í Normandli 7.
j'úni 1944, og síðan hefur þessi
fræðigrein færzt í aukana, með
tilkomu gervihnatta og hálofta-
flugs og loftbelgja. Það eru 15
ár síðan að William Kaciak, sem
starfaði sem veðurfræðingur í
striðinu, og er einnig haffræð-
ingur fékk þá hugmynd, að
hægt myndi að segja fyrir um
sjólag líkt og vinda og hagnýta
veður- og hafþekkingu til góða
skipum í langsiglingum,
Honum ætlaði þó, eins og áð-
ur segir, að veitast erfitt að fá
gamla og reynda skipstjóra til
að sigla eftir hans fyrirsögn.
Þeir tóku ekki í mál að láta ein-
hvern blábjéna í landi segja sér
fyrir, hvernig bezt væri að sigla
yfir höf, sem þeir höfðu siglt til
margra ára.
Loks leitaði Kaciak til skipa-
eigendanna því að hann taldi
þess von, að þeir skildu það doll
arasjónarmið, sem þama var um
að ræða. Það reyndist líka rétt
ályktað hjá honum. Stórt
Skipafélag, sem stundaði siglirng-
ar yfir Atlantshaf, tók að sér að
reyna kenningu hans og til þess
valdist einn af yngstu skipstjór-
um þeirra. Tvö skip fiélagsins
lögðu upp í einu úr enska kan-
alnum og var ferðinni heitið til
New York. Annað skipið, það,
sem var undir stjóm unga skip-
stjórans, átti að sigla þá leið,
sem Kaciak hafði ákveðið, en
hitt þá leið, sem skipstjóri þess
var vanur að sigla yifir hafið.
Þetta var að vetrarlagi og veð-
ur strið. Það skip, sem Kaciak
hafði valið leiðina fyrir
varð fjórum dögum á und-
an hinu til hafnar í New York.
Útgerðarfélagið sagði, að hver
dagur á siglingu kostaði á því
skipi 5 þús. dollara og tíma-
sparnaðurinn á þessari einu
ferð hafði þar af leiðandi 20 þús-
und dollara minni kostnað í för
með sér en ella hefði verið.
Á dögum stóru seglskipanna
reyndu menn að haga sigling-
unni þannig, að þeir hefðu sem
mest not af straumum og vind-
um. Nú er vélaafl skipanna orð-
ið svo mikið og skipin svo þung
á skriðinu, að það er ölduhæð-
in og stefna öldunnar, sem hef-
ur mest áhrif á hvemig ferðin
gengur. Þegar öldur t.d. eru
orðnar 6 metra háar, geta þessi
stóru og þungu Skip, eins og nú-
tíma flutningaskip eru, ekki tek
ið þá áhættu, að keyra fulla ferð
gegn slikum sjógangi. Það væri
að leggja bæði skip og farm í
hættu. Viðbrögð farmanna fram
til þessa hafa verið þau að
minnka ferðina. Það er dýrt að
verða að gera slíkt.
Rannsóknir hafa sýnt að öldu-
hæð á úthöfum myndast af þrem
ur meginkröftum: 1) vindhVaða,
2) lengd þess svæðis, sem vind-
urinn blæs yfir og 3) lengd þess
tima, sem vindurinn hefur blás-
ið.
Með þeim veðurupplýsingum,
sem nú er hægt að afla sér hvað
anæva úr veröldinni og háloft-
unum um vinda og vindáttir tók
Kaciak og félagar hans að
reikna út væntanlega ölduhæð
og stefnu á tilteknum hafsvæð-
um. Eftir langar athuganir og
samanburð tókst þessum mönn-
um að reikna út ölduhæð á haf-
svæðum, tvær vikur fram í tim-
ann. Þeir bjuggu síðan til sér-
stök spákort fyrir þau hafsvæði
sem mest voru sigld og ákváðu
síðan fyrir skipstjórana, hvaða
stefnu bezt væri að halda i
hverju gefnu tilviki.
Það getur jafnan verið mats-
atriði, hvort það eigi að sigla
lengri vegalengd í hægara veðri
á fullri ferð, eða styttri vega-
lengdina 1 mótöldu og máski á
slóferð um hríð. Þess vegna eru
engar tvær ferðir yfir úthöfiin
eins hvað siglinguna snertir.
Fyrirtækið Weather Routing hóí
útgáfu korta, sem seldust vel og
starfsemin jókst og nú leiðbein-
ir fyrirtækið að jafnaði uim 100
skipum á mánuði yfir höfin. í
greininni, sem þessi frásögn er
þýdd úr, segir að nú séu tvö
fyrirtæki af þessari gerð starf-
andi í Bandaríkjunuim, því að
farið sé nú að starfrækja ann-
að sHkt fyrirtæki á vest-
urströnd Bandarikjanna og eitt
silikt sé komið á fót í Evrópu.
Það er víst ekki heiglum hent,
að koma á fót slíku fyrirtæki,
eftir því sem Kaciak segir, því
að hann segir að hægt sé að
telja þá menn á fingrum sér í
öllum Bandaríkjunum, sem gætu
annast þessa starfsemi. Að baki
hennar liggur geysilega mikil
skýrslusöfnun um siglingar og
það er ekki hægt að nota tölvu
við úrviinnsluna, til þess eru frá
vikin of mörg. Til dæmis er alls
ekki sama, hver skipstjórinn er,
sem ætlar að leggja upp í ferð-
ina, einn siglir djarfar en ann-
ar, og það er ekki heldur sama,
hver farmurinn er, það getur
verið hægt að sigla forar og þá
aðra leið með þennan farminn
en ékki hinn, og þannig enda-
laust. Þessir spámenn, þurfa því
ekki aðeins að vera bæði veður-
og haffræðingar heldur einnig
gerkunnugir skipagerðum og
farmi og helzt, eins og áður seg-
ir skipstjórunum.
Stytt grein í endursögn úr
The Christian Science
Monitor, eftir Roger Ward.
Raunveruleg mynd af skipi, torfu og nót, sem verið er að kasta.
. Sónarmyndsjá
Lokasvariö en
Fiskveiðitakmarkanir
SIMR AD-umboðið hérlendis —
(Friðrik A. Jónsson) boðaði um
daginn blaðamenn á sinn fund og
sagði frá nýju fiskileitartæki,
sem má segja að hafi verið full
prófað — en þó ekki væntanlegt
á markað fyrr en eftir eitt, tvö
ár. Það tekur skiljanlega langan
táma að koma í gang framleiðslu
fyrir almennan markað á svo
flóknu og dýru tæki, sem hér um
ræðir.
Tækið er nefnt á norskunni:
Sónar data-bildskjerm — og fel-
ast eiginleikar þess í nafngiftinni
— þetta er myndsjá sem byggist
á upplýsingum frá sónamum og
'aiglingatækjum fyrir milliverkan
tölvu. Aðalhlutar tækisins eru: —
Sónarinn — Siglingatækj asam-
stæða — Tölva — Myndskermir.
Við fiskileit vinnur tækið þann
ig, að sónarinn matar tölvuna
á upplýsLngum um torfuna, sigl-
iingatækjasamstæðan gefur tölv-
unni upplýsingar um hraða og
•tefnu skipsins og tölvan vinnur
ár þeasum upplýsingum og send
ir þær til myndsjárinnar. Sónar
krn er fjölgeiaiaaónar (mutibeam)
og sendir út 10 geisla sarptímis og
hver þeirra er 6x6 gráður, hvort
heldur menn óska lárétt eða lóð
rétt, því að hægt er að snúa leit
arspeglinum. Sónarinn dregur
500 metra.
Siglingatækjasamgtæðan saman
stendur af gýrókompás og berg-
málss'kriðmæli, sem sendir í f jór-
ar áttir, eða framundan, aftur-
undan og á bakborða og stjóm-
borða og bergmálið endurkastaat
frá botni eða einhverju í sjónum
svo sem átubletti. Með þessum
skriðmæli sjást því hreyfingar
skipsins jafnt til hliðanna sem
áfram eða aftur á bak.
Eins og áður segir vinnur tölv
an úr upplýsingunum frá sónarn
um um torfuna, stefnu hennar
og fjarlægð til hennar, en frá
siglingartækjunum fær hún upp-
lýsingar um hreyfingar skipsins
og stefnu. Þessar upplýsingar
sendir hún eftir rás til skermis
ins og þar koma þær fram sem
mynd.
í grein i Ægi, tímariti Fiskifé-
lagsins má finna ýtarlegri lýsingu
og fleiri myndir af þessu tækL
Þanniig hljóðar fyrirsögin í
Commercial Fishing, 7. heftinu í
ár. Aðstoðarritstjórinn, David
B. Thomson, ritar greinina og
gerir þar uppgötvun, sem senni-
lega kemur engum meir á óvart
en okkur sjálfum, þegar hann
segir, að við séuim eina fiskveiði-
þjóðin í nánd við Breta, sem eitt
hvert vit hafi i kollinum. Grein
Thomsons er svohljóðandi í laus
legri endursögn:
Bretland hefur ákveðið að
halda sama strikinu í samninga-
gerð við E.B.E. til að fá þar inn
göngu. Þessi stefna var ákveð-
in af þinginu í samræmi við und
anfarandi viðræður fulltrúa
E.B.E. og brezku stjórnarinnar.
Það hafði þá ekki enn náðst
samkomulag um fiskveiðitak-
mörkin, srvo að brezka stjórnin
hefur augsýnilega verið viss um,
að lausn á þeirri þrætu væri
ekki langt undan. Síðustu frétt-
ir herma, að Evrópubandalags-
þjóðirnar hafá stungið upp á 6
sjómilna takmörkum með 12 sjó-
milna frávikum á tilteknum
svæðum, svo sem við Orkneyjar
og Hjaltlandseyjar.
Þessi frávik séu tímabundin
um svo og svo margra ára bil,
en svo hverfi þessi mörk og 6
sjóm. Mka.
Stjórnmálaménnirnir eru sem
Framhald á bU. 18