Morgunblaðið - 04.01.1972, Page 15

Morgunblaðið - 04.01.1972, Page 15
ímvj'í 'O v r ■1.*-*' 1 >. Váí'’' .* <- -v <••« «- i v f . ■ » t- r •• v w< nn •*'■aY'*'' MORGUNKLAÐIÐ, ÞRlÐJtTDAGUR 4. JANUAR 1972 15 BOKMENNTIR - LISTIR BÓKMENNTIR - LISTIR Þorkell Sigurbjörnsson skrifar um: TÓNLIST Jólagjafir og áramóta hugleiðingar SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT fslands gaí áheyrendum símwn sérstaka „jólagjöf", tvenna tónleika 29. og 30, desember, þar sem þeir smill- inigar Askhenasy og Barenboim skiptust á að stjóma og leika einleik í konsertum. Buryainthe-forleikur Webens var á báðum efnisskrám og •hlaut hnitmiðaða meðferð — ekki sizt í síðara skiptið. Aslkhenasy lék f-moll konsert Chopins. Fyrsti þátturinn var ekki þunglaar.alegt héltíúr þokkafullt maestoso, og yfit kóhsertinúm í heild var andi þeinra Mozarts og Hummels nær en' TÓmantisk tilfinningasemi af því tagi, sem oft er reynt að græða við æskuverk Chopins. ,Ekki vantaði samt, að tilfinn- imgahitiwn næði háu hitastigi á tónleikunum. Það var þegar Barenboim kynnti undir 0. siin- fóniu Ts.iækovskís með þyfkkustu hráolíu þá sjáifsvorkunnsemi, ae*n flæðir um síður þessa veaíks. Nýlunda var sú „bragarbót" orkestrasjónarinnar að láta hassa- klarínettið rúna af klarínett- hendinguna í Adagio mosso (ná- iægt íniðju) fyrsta þáttarins. Ái síðari tónleikunum fór Barenboim öruggum höndum um 1.1 og 3. píanókonisert Beethovenis með hrífandi litbrigðaauðgi — en Askhenasy stóð við stjórnvöiinn og mun það frumraun hans í þeirri stöðu. Enn virðist langt í það að sú magnaða útgeislun, sem einkennir leik hans berist sambærilega frá stjómamdanium Askhenasy -— og ’óvist. hvórt slag- tækni eða öðru var um að kenna, þegar lúshægur þrír áttundu takturinn vafðist fyrir flautu og fagotti í Largo 3. konsertsins. Áheyrendur þökkuðu fyrir þessar ágætu jólagjafir með löngu, þrumandi lófataki. Það þykja engir mannasiðir að gagnrýna jólagjafir — éf ekki líkar eitthvað. þá er bara að fá þeim skipt, þegjandi og heimú- lega. Heilum konsertum ér samt ekki hægt að skipta, og - verður því að láta nægja að óska sér, að fá aið heyra þessa óvenjulegu hæfileikamenn með forvitnilegra verkefnaval næst. Óskin er byggð á því, að afrek þeirra félaga í meðhöndlun þesis- ara og skyldra verkefna eru nú gamal'kunn orðin bæði úr tón- leikasölum og af hljómplötum — og haraa ber á engan hált að skilja, sem eitthvert lágkúrulegt vanmat á yfirburðum þeiria eða þá annarra afbragðs manna, sem hingað leggja ieiðir sínar á stund um. Það, sem hrífur undirritaðan Barenboim. mest til umtals í tónlistariðkun, er leitunin að „hinu ókunma". í þeinri leit er útkomian oftast ó- viss, tvísýn — svo sem þegar um frumflutning nýrra verka er að ræða, eða önnur fyrstu kynni af tónverkum, gömlum og nýjum, og flytjendum. Endurtekningar og „repródúksjónir“ eru þess vegraa utan þess áhugasviðs — og þar með öll viðskiptalega hlið- in á músík. Skemmtanaiðnaður og listið'k- un eru tveir ólikir heimar, þó að þeir snertist og hafi gagnkvæm- ar verkanir. Annams vegar er framleitt upp í eftirspum og til þess að raka saman fé, hins veg- ar er unnið án tillits til þess, hvort það borgar sig í ver juleg- um skilninigi viðskiptanna. Lista- menn eru samt, svo sem kunnugt er, engar goðverur, sem „lifa á loftinu“ og leit þeiirra að þekk- ingu á sjálfum sér og; umhverfi sínu finnur oft samleið rheð markaðsleitinni á iðnaðansviðiniu, svo að þeir uppskera flestir smám saman einhver vinjnulaun. Það skal fúslega viðurkennt, að ekki eru allir jafn gráðugir í nýjungar. Geldingurinn Farinelli var t. d. í áraraðir í þjónustu Filipusar 5. af Spánd og fólsf sú þjónusta í því að syngja á hverju kvöldi nákvæmlega sömu fjórar aríurn.ar fyrir kóng. Þá var held- ur ekki ætlazt til þess, að biaða- um®agnir birtust um hverja end- urtekningu! Undinritaður hefur oft slkrifað stuttar athugasemdir um tónleika í blöð sl. áraíug og skoðað það sem venjulega blaðamennsiku, frá sagnir af atburðum. Þetta hafa ékki verið neinir einhlítir dómar, því að það, sem einn musicus seg ir um aiman getur sjaldan verið annað en huglægt, á. m. k ekki á almannafæri og á máli eine og okkar, sem skortir svo mjög tæknileg orð og hugtök. Það hef- ur vafizt fyrir mér sem og öðr- um- í svípaðri áðstöðu, til hvers þessi óka-if séu, utan þess að vera slíkiar firásagnir af atburðum. Umisagnir um tónieika eru i eðli sínu annað en umsagnir um- bækur, myndlistarsýningar eða leiksýningar, ölium viðskiptum er þegar lokið, þegar tónlistargagn- rýnin birtist. Blaðaumsagnir um tónleika hófust með upplýsingasteín- unni á 18. öld, öld til að fræða borgarana um það, sem höfðingj- annir höfðust að. Mpnn læra samt ekki að aka bíl af því að lesa fréttir úr umferðinni. Þests vegna hafa blaðaumsagnir lítið fræðslu- gildi, og sízt alls í landi, þar ísem almenn tónlistarmenntun er á svo lágu stigi og hér. Hér tii kemur einnig að f)fagmálið“ er óbrosk Askhenasy. að, svo óþroákað, að málvcndun- anmenin tjá sig með ouðuar og hugtökum, sem eru jafn óskiljan leg tónlistarmönnum og öðrum, sem ekki iðka menntina. F.ftir- minmlegt dæmi. þessa er. þegar ýmsum tónlistarmönnum la rðist, að þeir höfðu í áraraðir æft sig og leiikið á eitthvað, serai bét „gripgatahlióðfæri“. Það eru.líka litlair líkur til að , menin, . sem starfa að kenmslu, finni sig knúða til einhverrair ál- menningsfræðslu gagnvart ósýni;. legum lesendum, á sama ihna og þeir geta unnið faglega með ákveðnum nemendum. Ekki er heldur líklegt að tún* leikaumsagnir komi tónlistar- mönnunum sjálfum mikið við. Þeir hafa sina steriku sanníær- ingu. sem fáar blaðaumsagndr. hafa áhrif á. Þar að auki eru' Framhald á bls. 19.’ ISLENZK LEIKRIT I SJONVARPI Skálholti Sunna Borg og Guðmundur Magnússon í hlutverkum sínum Höfnndur: Guðmundur Kamban Þýðandi: Vilhjálmur Þ. Gíslason Sjónvarpshandrit og leikstjórn: Baldvin Halldórsson , Myndataka: Örn Sveinsson Xeikmynd: Snorri Sveinn Friðriksson Upptökustjórn: Tage Ammendrup LEIKRITIÐ er ágætt dæmi um það hverniig leikrit voru skrifuð fram undir miðju þessarar ald- ar. Það fjallar um baráttu fwggía einstaklingia, tveggja ó- væginna einstaklinga, sem báðir eru ákveðnir íaðberjast til þraut ar. Brynjólfi biskupi er lýst í leikritinu sem ákaflega ströng- um og siðavöndum manni. Og samkvæmt þeirri mynd, sem höf undur gefur af honum í verkinu, er forsendunnar fyrir siða- vendni og strangleika hans fyrst Og fremst að leita í skapgerð hans eh ekki í trú hans. Það væri rang harmt ef sagt væri, að hann káemi fyrir sem sérstakur trú- máður, frekar er hann maður, síeán nótar trúna til að þjóna skapi sínu, skapofsa, ef því er að skipta, og ekki verður það sagt að trúin hafi mildað hann né vitk að. Ýmisleg mannleg reynsla er honum framandi eins og matróna Helga Maignúsdóttir bregður hon um um: „ . . . því yður er ekki sá bjálki í holdið skorinn, herra, sem mér og öðrum stórsyndug- um manneskjum“. Þessir eigin- leikar hans virðast einnig vera það ágæti, sem hann hefur um- fram aðra menn, því að leikritið gefur ekkert sérstakt til kynna annað og þar með vitum við, að hann hefur látið sér nægja konu sina til svölunair djöfulsins hold legu fýsnum, meiri nægjusemi en prestar iðkuðu almennt á þeirri tíð, að því er bezt verður séð. Hann var jafnvel ónæmur fyrir snilld Hallgríms Pétursson ar, vinar (jóm)frúarinnar. Það má hafa skoðun á því, hvort þessi frekar einfalda mynd af Brynjólfi Sveinssyni sé góð eða ekki, en um það spyrjum við ekki nú, heldur hvort túlkun Vals Gíslason hafi skilað persónunni. Þeirri spurningu svara ég ját- andi. Ragnheiður Brynjólfsdóttir er ekki að sama skapi einföld í snið um. Að fyrirsögn höfundar er hún mjög látlaus og látleysið mótar framkomu hennar alla. En í fyrstu kynnum okkar aí henni kemur í ljós mikið stolt, mikill válji og ákveðni. Síðar sjáum við einnig að hún á líka auðvelt með að ljúga, þó nokkuð sé erfitt að gera sér grein fyriir nauðsyn lyg- innar og hvað þá heldur að sam- ræma hana geði þessarar stoltu konu. Sunna Borg komst mjög ná- lægt því að skila þessari mynd, að svo miklu leyti sem það mun vera hægt. Rödd hennar er sterk og hljómiaði stundum hol og tóm, en ef til yill á upptakan nokkra sök á því. Hinn heittelskaði, maðurkm, sem á syo auðvelt með að fá kon ur til fylgilags við sig, elskhug- inn mikli, sem leggur líf sitt í hættu tvisvar sömu nóttina — með því að sundríða Hvítá í belj andi vexti — til að ná fundum ástvinu sinnar, er í þetta sirnn leikinn af Guðmundi Magnús- syni. Daði Haldórsson i túlkun hans er þéttur fyrir, í svip hans má sjá fýlupokalega sjálf vorkunnsemi og röddira titrar af tilfinningu, sem vart megnar að halda aftuir af grátstafnum. Bru þeir svqna, þessir sem stúlkurn- ar elska? Eða er þetta einhver sérstakur stíll? Leikarinn ungi er efnilegur, ef hanm yrði sér úti um meiri og betri skólun gæti hann orðið ágætur. Matróna.n í Bræðratungu er fullorðin kona, iífsi'eynd og vilja sterk. Kona, sem hægt er að bera traust til af þvi að hún veit og skilur, Briet Héðinsdóttir sýndi þessa konu ágætlega, það var bjart í kringum hana á skerminum, þar var komin per- söna, lifandi persóna, sem þjón- aði ekki aðeins tiifinningum sín- um. Vélabrögðim sem eiðnum valda spretta af ástarhvötum í brjósti skólaþjónustunna.r Ingibjargar. Jónína H. Jónsdóttir komst ekki alveg eins nálægt því flagði og skyldi, en lagsmanni henmar, dómkirkjuprestinum, sem Erl- ingur Gíslason lék, leið greini- lega ekki vel eftir að hafa fallið fyrir djöfulsins holdlegu freist- ingum. Sjónvarpshandrit leikstjórans er töluvert stytt gerð af leikrit- inu. Hann hefur valið þann kost- inn, að strika alveg út alþýðuna á staðnum auk nokkurra ann- arra persóna og atriða, sem menn kannski sakna. Hims vegar er í þessu hamdriti mikið og langt atriði, sem ekki e<r í leikritinu í útgáfu AB, ég á hér við samtal þeirra Daða og Helgu Magnús- dóttur um óléttu vinnukonuna í Hruna, og væri gaman að fá skýrimgu á þvi. , »!• Það er hægt að hugsa sér ajð svipmyndir úr heimi alþýðunra* ar á staðnum hefðu skapað ákveðið mótvægi við heimi hinna, en uggl.aust hefði það gert þetta milljónafyrirtæki að emra meira milljónafyrirtæki og ekki víst hvár það hefði endað. • Leikmyndin var vel gerð og sennilega sannverðug, utan hvað gluggar dómkirkjunnar í Skál- holti virtust æði stórir við eið- inn og skýjafar mikið í baksýn prestanna. Upptakan var ekki alltaf jöfn, það kom fyrir að það heyrðist miklu betur I einum viðmælanda en öðrum. Eldra fólk um allt land hefur áreiðanlega glaðzt mjög yfir því að fá enn einu sinni að hrærast yfir örlögum Ragnheiðar Brynj- ólfsdóttur. Þorvarður Helgasen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.