Morgunblaðið - 04.01.1972, Síða 30
30
MORGUÍNBLAÐBÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 1972
Ágætt jóla-
mót ÍR
Jón I>. sigraði í hástökkimi
JÓLAMÓT IR í frjálsum íþrótt-
tun innanhiiss var háð i ÍR-hiis-
iinu milii jóla og nýárs, en mót
þetta hefnr verið fastur liðnr í
íþróttasta-rfinn í áraraðir. Keppt
var í atrenmilausii stökkunum,
a.uk hástökks með atrennu og
einnig var keppt í þremur grein-
iiunri kvenna.
Ágætur árangur náðist i öll-
um karlagreinunum og þannig
Jón Þ. Ólafsson
ísTukku t.d. tveir yfir 1,96 m í
hástökki, þeir Jón Þ. Ólafsson
og Elías Sveinsson. Sýnir Jón
í>. aö lengi lifir í gömlum glæð-
um og örugglega væri hann
ffljótur að ná sér á strik, ef hann
æfði. Árangur hans í hástökki
án atrennu er einnig mjög at-
hyglisverður og bendir til þess,
að stökkkrafturinn sé í góðu
Jagi. Eiias Sveinsson náði svo
ágætis árangri í langstökki og
þrístökki án atrennu og settt
t.d. persónulegt met í fyrrnefndu
greininni.
Heiztu úrslit í mótinu urðu
þessi:
Hástökk með atrennu:
Jóm Þ. Ólafsson, iR, 1,96
Eílias Sveinsson, IR, 1,96
Karl W. Fredreksen, UMSK, 1,75
ErJendur Valdimarsson, ÍR, 1,75
Þórir Óskarsson, ÍR, 1,60
Árangur Þóris er nýtt pilta-
met.
Hásíökk án atrennu:
Jón Þ. Ólaísson, ÍR, 1,69
Landsliðið
sigraði
1 GÆRKVÖLDI fór fram i
Laugardaishöllinni handknatt-
ieikur milli iandsiiðsins og
pressuliðsins. Landsliðið sigraði
19:16. Staðan i hálfleik var 9:7
fyrir iandsliðið. Nánar um leik-
inn í biaðinu á morgun.
íþrótta-
maður
ársins
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMENN hafa
nð kjörið „Iþróttamann ársins
1971“ og verða úrslit kosningar-
innar birt í hófi, sem efnt verð-
nr til að Hótel Esju kl. 15 i dag.
Eni þangað boðnir þeir íþrótta-
menn, sem voru i tíu efstu sæt-
nnnm i kosningunni, og ýmsir
forystumenn íþróttahreyfingar-
Snnar. I hófinu verður úthlutað
hinum fagra verðlaunagrip, sem
veittur er þeim iþróttamanni,
Isem fær flest stig i kosningunni
Uv hlýtur titilinn.
1,67
1,58
1,58
1,58
1,45
9,46
9,34
Friðrik Þór Óskarsson, ÍR,
Elías Sveinsson, IR,
Erlendur Valdimarsson, IR,
Guðm. Jóhanmesson, HSH,
Stefán HaJIgrímsson, UlA,
Þrístökk á.n atrennu:
Eláas Sveinsson, lR,
Friðrik Þór Óskarsson, lR,
Karl W. Fredröksen, UMSK, 8,55
Langstökk án atrennu:
Elías Sveinsson, IR, 3,22
Friðrik Þór Óskarsson, lR, 3,13
Erlendur Valdimarsson, IR, 2,99
Karl W. Fredreksen, UMSK, 2,91
Lilja Guðmundsdóttir, iR, sigr-
aði í öilum kvennagreinunum.
Hún stökk 1,20 m í hásitökki með
atrennu, 2,18 m í langstökki án
atrennu og 6,07 m í þrástökki án
atrennu.
Háskólastúdentinn Horvant fær verkamannakaup auk bónusgreiðslna fyrir þátttöku sína í hand-
knattleiknum. Fyrir siðari leikinn við FH mun hann hafa fengið upphæð, sem svarar til 2000
ísl. kr. Þætti íslenzkum handknattleiksmönnum sjálfsagt slíkar greiðslur drjúg biibót, en flestir
þeirra verða fyrir miklum útgjöldnm vegna þátttöku sinnar í íþróttnm.
Leyna ekki atvinnu-
mennskunni
Erfitt ferðalag FH til Júgóslavíu
Liðið sýndi góðan leik í
síðari hálfleik
FH-ingar komu heim úr ferð
sinni til Júgóslavíu í fyrra-
kvöld, eftir löng og ströng ferða
lög. Svo sem kunnugt er þá töp
liðu FH-ingar leiknum, 8:27, og
voru þar með slegnir út
úr Evrópubikarkeppninni, eftir
að hafa náð lengra í henni
en nokkurt annað íslenzkt lið,
eða í átta liða úrslit. Skipar FH
sér þvi í hóp 5—8 beztu hand-
knattleiksliða Evrópn, og er sá
árangnr glæsilegnr, ein hins veg-
ar slá hin mjög svo óhagstæðu
úrslit í leikjunum við Partizan
nokkrum fölva á fyrri frammi-
stöðu liðsins i keppninni. En vit
að er, að Partizan er eitt af
allra beztn handknattleiksliðum
í heimi, og sjálfir telja Júgóslav-
arnir sig vera eitt af þrem
ur beztu, án nokkurs vafa. Verð
nr gaman að fylgjast með þeim
í lokaátökum keppninnar, en
líklegt er að þeir leiki við MAI
frá Moskvu í næstu umferð, þar
sem Þjóðverjarnir eni fram
kvænidaaðili keppninnar, og
vilja heldur lenda á móti Tékk-
um í undamirslitunum. Telja
Júgóslavamir sig eiga mun
minni mögnleika á móti MAI,
heldur en t.d. Gummersbaeh.
Það kom i Ijós, er Mbl. ræddi
við Einar Matíhiesen, fararstjóra
FH-inganna til Júgóslaviu, að
staðið hafði verið í ströngu áð-
ur en liðið komst til Karlovac,
þar sem leikurinn fór fram, og
FH-ingar höfðu aðeins 15 mínút
ur til þess að hita sig upp fyrir
leikinn. — Við erum ekki að af-
saka þetta tap, sagði Einar, —
en eiigi að síður teijum við að
hin mjög svo erfiða ferð
til Júgóslaviu hafi haft sitt að
segja.
Ferðasaga EH-inganna var i
stuttu máli sú, að farið var með
FHugtfélaginu til Kaupmanna-
hafnar, og þar átti að taka flug-
vél frá júgóslavneska fiugfé'ag-
inu JAT til Júgóslaviu. Sú flug-
vél lagði hins vegar ekki af stað
íyrr en kiiukkan sjö um kvöildið,
og fór þá til Stokkihólms. Flftir
nokfcra bið þar var flogið tll
Júgósiavíu, en I stað þess að
lenda i Zagreb hélt flugvéMn
áfram og lenti í Split. Þá var
komið fram á nótt, og hötfðu FH-
imgarnir enga máltíð ffengið um
daginn.
KOMIÐ KLUKKUSTUND
FYRIR LEIK
Eftir skamma hvild í SpMt
fóru FH-ingarnir síðan út á flug
völl og urðu að bíða þar í marg-
ar klufckustundir eftir flugfari
til Zagreþ. Frá Zagreb var svo
farið í bifreið síðasta spölin, og
var komið til Karlovac, þar sem
leikurinn fór fram, um klukku-
stund áður en hann átti að hefj-
ast. Þarf því engan að undra
þótt leikmennirnir haifi verið illa
upplagðir, þegar á hólminn kom.
LEIKURINN
— Ég hef sjaldan séð liði mis-
takast jafnmikið og FH-ingum í
fyrri hálfleik, sagði Einar. -—
Þeir áttu hvert stangarskotið af
öðru, og jafnvel tvö vítaköst mis
heppnuðust. Að minum dómi var
eikki um neitt bráðlæti að ræða
hjá leikmönnunum, að skjóta.
Þeir fenigu góð færi, en allt mis-
heppnaðist. Þvi ber svo heldur
eklki að neita, að Partizan átti
frábæran leik í hálfleiknum, og
sögðu himinlifandi forystumenn
liðsins það á eftir að Partizan
hefði efcki sýnt slífcan leik
í meira en áratug.
— Það var eklki tyrr en í siðari
hálfleik sem FH-liðið komst
í gang sagði Einar, og sá hálf-
leikur var mjög skemmtilegur.
Það er á algjörum misslkilningi
byiggt að Partizan-leikmennimir
'hafi tekið lífinu með ró og ver-
ið að Jeika sér. Leiknum var
sjónvarpað um alla Júgóslavíu,
og þeir höfðu örugglega hug á
þvi að mala okkur eins og þeir
gátu. I S'íðari hálfleifcnum, þeg-
ar okkar lið náði sér loksins á
striik, voru Júgóslavarnir nokk-
uð grófir í vörninni, og fengu
mjög martgar áminningar og
einum leikmanni þeirra var vis-
að af velli. Þessi hálfleikur fór
9:6 fyrir þá, og má segja að slíkt
hafi verið eðlilegt miðað við
eðhlega getu FH-liðsins.
Mörk FH-inga í leifcnum skor
uðu: Geir Hallsteinsson 2, Jón-
as Magnússon 1, Auðunn Óskars
son 1 og Birgir Björnsson 3, en
það vakti mikla hrifninigu hjá
álhorfendum er Birgir skoraði úr
aukakasti eftir að leiktímanum
var lokið.
EINN DÓMARI
— Leikinn dæmdi einn
téfckneskur dórnari, og er ég viss
um að ieikurinn hefði ekki ver-
ið betur dæmdur, þótt tveir dóm
arar hefðu annazt dómgæzluna,
sagði Einar. Við FH-ingar gerð-
um reyndar fyrirfram athuga-
semd við það að einn dómari
dæmdi leikinn, og áskildum
okfcur rétt til að kæra Ieikinn,
ef eitthvað kæmi upp, i
sambandi við dómgæzluna. En
það var síður en svo að þess
þyrfti.
AFTUR HRAKNINGAR Á
HEIMLEIÐINNI
Eftir stutta hvild eftir leik-
inn lögðu FH-ingar af stað heim
leiðis og þá tófcu aftur við erfið-
leifcar i sambandi við fflugfélag-
ið JAT. Brottför frá Júgóslavíu
tafðist, og sendi Einar þá Flug-
félaginu sfceyti, ti'l Kaupmanna-
'hafnar, og bað það að láta flug-
vélina doka við eftir FH-ingum.
Einnig skýrði Einar forráða
mönnium JAT frá þvu hversu
tirninn væri naumur, og lofuðu
þeir öllu fögru. Eftir að vélin
var komin í loftið, var FH-ing-
um tdlkynnt að hún kæmi fyrst
við í Stofcfchólmi, og voru þvi
allar Mfcur á þvi að FH-ingamir
misstu al F) u gf élagsvél i nn i
heim.
ÞAKKLÁTIR Fl
— Qkkur létti mikið þegar
við sáum Flugfélagsvélina á vell
inum í Kaupmannahöfn, þegar
við komum þangað, sagði Einar.
— Vil ég nota þetta tæikitfæri til
þess að þakka Flugféiagi Is-
lands fyrir einstaka lipurð og
skilning, þar sem þeir létu vél-
ina bíða eftir ofcfcur í á þriðju
klufcfcustund. JAT-flugfélagið
júgóslavneska gæti mifcið lært af
Flugifélagi íslands, efcki einung-
is það að taka tilMt til aðstæðna,
heldur og margt er varðar þjón
ustu við farþegana.
LEYNA EKKI
ATVINNUMENNSKUNNI
Partizan Belovar er nú í öðru
sæti í júgóslavnesku deildar
keppninni, einu stigi á efltir lið-
inu sem hefur forystu. Einar
Mathiesen, sagði að eftir leik-
inn hefði hann rætt við einn af
fórystumönnum liðsins, og fyrjr
honum hefði það ekki verið neitt
launungarmál að leikmenn Parti
zan væru atvinnumenn. Öllum
leikmönnum í liðinu er borgað á
einn eða annan hátt.
— Hann tók Horvant, til dæm
is, sagði Einar. — Horvant er
'háskólastúdent og frá félaginu
fær hann greidda upphæð sem
svarar til verkamannalauna allt
árið. Allir leikmenn félagsins fá
svo greitt fyrir að mæta á ætf-
ingu, og er dregið af þeim ef
þeir mæta ekki. Þegar félagið
leikur, er svo lögð fram upp-
hæð og samsvaraði hún t.d. um
12 þús. ísl. fcr. í leiknum við FH.
Leifcmennirnir fá síðan þessa
upphæð greidda samkvæmt mati
þjáifarans á þátttöfcu þeirra í
Íeiknum, og mun Horvant hafa
fengið um 2000 fer. fyrir þenn-
an leik.
Auk þessa alls fá leikmennirn
ir svo að ætfa í vinnutímanum,
án þess að laun þeirra lækki, og
fá greiðslur fyrir að vera í ætf-
ingabúðum. Þannig hafa t.d. sum
ir leikmenn Partizan verið um
tvo mánuði í æfingabúðum frá
því í haust.
OF MIKIÐ ÁLAG
Að lökum ræddum við svo við
Einar um FH-liðið, og slaka út-
komu þess í leiikjunum við Parti
zan. Spurðum við hvaða skýr-
ing væri á þess-u.
— Ég vil taka það aftur fram,
sagði Einar, — að ferðasagan er
efcki sögð til þess að aflsafca
slæma útkomu liðsins í leiknum.
Skýringin á þvi hvað FH-Iiðið
hetfur átt lélega leiki öðru
hiverju nú, tel ég vera þá að álag
ið á leikmennina hefur ver-
ið alltof mikið. Á þessu keppnis
tímabili erum við t.d. búnir að
leifca 6 leiki i 1. deildinni og 7
leiki við erlend lið. Allir hafa
þessir leifcir verið erfiðir. Flest-
ir leilfcmenn liðsins vinna frá því
snemma á morgnana til fcl. 7 á
kvöldin. Má nefna t.d. að Geir
Hallsteinsson kennir á miðviku-
dögum frá kl. 8 á morgnana til
kfl. 7 um fevöldið, án þess að hatfa
matartóma, og þessi dagur er ein
mitt fceppnisdagur. Það gef-
ur auga leið að slí'kt álag hlýt-
ur að fcoma niður á getu mann-
anna. Það sam íslenzkan hand-
knattleik skortir fyrst ogfremst,
að mínum dómi, er að leikmenn-
irnir fái meiri tima til þess að
sinna íiþróttinni, og þá kannski
ekki siíður lengri hvíldartima.