Morgunblaðið - 05.02.1972, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.1972, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1972 r * v Sérkröf usamningarnir: Sérsamningar um fiskvinnu — stöðugir fundir um ýmis önnur sérákvæði STÖÐUGT er haldið áfram við- ræðum rnilli Verkamannasam- bandsins ogr Vinnuveitendasam- bandsins um hinar ýmsu sérkröf- ur og: miðar allvel, að sögn B.jörgf vins Sigrurðssonar hjá Vinnuveit endasambandinu. í gær voru und- irritaðir samningar um ýmis sér ákvæði varðandi fiskvinnu, að undanteknu einu sérákvæði varð- andi þessa vinnu á Akureyri, en Björgvin taldi, að það yrði fijót- iega leyst. Þetta samkomulag er þó að sjáifsögðu háð samþykki verkalýðsfélaganna. Á fimmtudag var haldinn fund- ur í stórri nefnd með fulltrú- um allra aðila, og þar voru skip- aðar ýmsar sérnefndir. Fisk- vinnunefndin lauk síðarr störfum í gær, en klukkan 10 fyrir há- Dr. Björn Björnsson. degi í dag kemur saman til fyrsta fundar nefnd til að ræða sérákvæði í sambandi við kjör stjórnenda þungavinnuvéla. Á mánudagsmorgun verður fundur með fulltrúum úr Reykjavík og af Reykjanesskaga, þar sem rætt verður um rammasamning um bónuskerfi fyrir þetta svæði. Eftir hádegi á mánudag yerður haldinn fundur með fulltrúum Alþýðusambands Norðurlands um þeirra sérkröfur. Stóra nefnd- in heldur siðan annan fund á þriðjudagsmorgun, þar sem ætl- unin er að lagðar verði fram Framhald á bls. 12 Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði minnist 65 ára afmæiis síns með hófi, sem haldið verður í Skiplióli í dag. Myndin er af núverandi stjórn félagsins, talið frá vinstri: Hallgrímur Pétursson, Sigvaldi Andrésson, Gunnar S. Giiðmundsson, Hermann Guðmundsson, formaður, Guðni Kristj- ánsson, Halldór Helgason og Finnur Sigurðsson. Islenzk þátttaka á 8 kaupstef num erlendis ÚTFLUTNINGSMIÐSTÖÐ iðn- aðarins er nú að undirbúa þátt- töku í kaupstefnum á árinu 1972. Þcgar hefur verið ákveðin þátttaka í eftirtöldum átta kaup stefnum: Hinn 9. marz i Miinchen, þar sem kynntur verður sportfatn- aður úr ull og skinnum; á Scand inavian Fashion Week í Kaup- mannahöfn hinn 12. marz n.k., þar sem sýndur verður tízkufatn aður úr u'll og sikinnium; sama dag á Vorkaiupstefnunni í Leip- zig, þar sem sýndar verða ýms- ar vörur, m.a. matvæli; hinn 19. marz á Mode Woche i Miinchen, Doktorsritgerð í bókarformi: Lúterska hjúskapar- kenningin í íslenzku nútímaþ jióðf élagi — eftir dr. Björn Björnsson, prófessor NÝLEGA kom út bókin The Lutheran Doctrine of Marriage in Modern Icelandic Society eft- ir dr. Björn Björnsson prófessor við guðfræðideiid Háskóla ís- lands. Universitetsforlaget í Osló gaf bókina út í samvinnu við Aimenna bókafélagið. Bókin er ein af Sc.andinavian Universl- ty Books. Hún er 250 bls. og prentuð í Osló. Bókin fjallar um lúterska hjúskaparkenningu í íslenzku nútímaþjóðfélagi og er því sem næst samhljóða dokt- orsritgerð höfundar, sem varin var við háskólann í Edinborg árið 1966. Bókin skiptist í fjóra megin- hluta. í fyrsta hluta er fjallað um kenningar Lúters um hjóna- bandið um leið og skýrð eru meginviðhorf hans til féla'gslegs siðgæðis. Annar hluti er sögulegt yfirlit, þar sem rekin er þróun hjúskaparmála á Islandi, eink- um með tilliti til löggjafar, frá upphafi til vorra daga. Athygl- in beinist þar mjög að hinni fornu festarstofnun og viðleitni yfirvalda til þess að draga úr frijúskapargildi festa, t.d. með hinni fyrstu löggjöf á Islandi um trúlofun árið 1587. Yfirlitið leið- ir m.a. í ljós, að veigamikil sögu- leg rök eru fyrir óvígðri sambúð jhér á landi. 1 þriðja og viðamesta hluta bókarinnar eru birtar niðurstöð- ur úr félagsfræðilegri rannsóikn, þar sem mið er tekið af hinni óvenju háu tölu óskilgetinna barna á Islandi. Með flofekun á fæðingum ós'kiligetinna barna með tffliti til sambúðarhátta for- eldra eru leiddar llkur að þvi, að sem næst tveir þriðju hliutar óskilgetinna barna njóta umönnunar hvors tveggja foreldris þegar frá fæð ingu. Athyglinni er þá beint sér- staklega að þeim sambúðarhátt- um, sem hér tíðkast, og gerður greinarmunur á þremur fjöl- skyldugerðum, hjúskaparfjöl- skyldunni, sambúðarf jölskyld- unni og trúlofunarfjölskyldunni. Viðhorf fólks til þessara sambúð- arhátta eru könnuð til glöggv- unar einkum á trúlofunarfjöl skyldunni, sem um margt er sér- íslenzkt fyrirbæri. Síðasti hluti bókarinnar erguð fræðilegs eðlis. Þar eru hin lút- ersku viðhorf til félagslegs sið- gæðis tekin til endurskoðunar og í ljósi þeirrar endurskoðunar kannaðar notokrar mieginfior- sendur fyrir félagslegu siðgæði á kristilegum grundvelli. Nokkur eintök af bókinni eru til sölu í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18 og fleiri eru væntanleg á næst- unni, þegar siglingar hafa kom- izt í eðlilegt horf. þar sem sýndur verður tízkufatn aður úr ull og skinnum; í Frank furt hinn 19. apríl, þar sem sýnd verður skinnavara; 29. apríl í Kaupmannahöfn, þar sem sýndir verða gull- og silfurmunir á Scandinavian Gold and Silver- Messe; hinn 10. maí í Kaup- mannahöfn á Scandinavian Furn iture Fair, þar sem sýnd verða húsgögn og hinn 2. september á Haustkaupstefnunni í Þórs- höfn í Færeyjum, þar sem sýnd- ar verða ýmsar vörur. Einnig er í athugun að taka þátt í sýningum i Kanada og Bretlandi. Útflutningsmiðstöðin annast allan sameiginlegan und- irbúning fyrir þessar sýningar og sér um stjórn sýningardeildanna á staðnum. Islenzk fyrirtæki hafa tekið þátt í öllum ofan- greindum kaupstefnum áður. 1300 tonn af dilka- kjöti til Norðurlanda GENGIÐ hefur verið frá sölu á 12—1300 lestum af frystu dilka- kjöti til Svíþjóðar og Noregs á vegum búvörudeildar SfS. Um 500 lestir niunii fara til Svíþjóð- ar og 7—800 til Noregs, og nem- ur jafnaðarverð kr. 110.20 á hvert kíló komið um borð í skip. Um helmingur þessa magns verður sendur utan nú á næstunni með m.s. Skaftafelli en það sem eftir er verður afgreitt í marz. Agnar Tryggvason, fram- kvæmdastjóri, tjáði Mbl. að þetta væri örlítið meira magn en fór é þessa markaði i fyrra. Þá voru um 500 lestir seldar til Svíþjóðar og um 600 til Noregs, en verðið sem fæst nú er um 6% hærra en í fyrra. Á það má benda að þessi út- flutningur kostar ríkissjóð kr. 32.00 á kg í útflutningsbótum, sem er mun lægra en nernur nið- urgreiðslum á kjöti áf innlend- 8. þing LIV ÁTTUNDA þing Landssaimbamds íslenzkira verzluimarmanina verður haldið í Reytkjavík dagaina 25., 26. og 27. febrúar nk. — Þingið verður sett föstudaginm 25. febrú- ar kl. 14 að Hótel Esju, þar sem þinghaldið verður. Á þinghaldiniu eiga setu milli 60 og 70 fulltrúar frá 20 starfandi félögum verzlun- armanina í landinu. Stormur í grasinu UNGMENNAFÉLAGIÐ Dags- brún í Austur-Landeyjum hefur að undanförnu sýnt leikrit Bjarna Benediktssonar frá Hofteigi, „Storm i grasinu" á nokkrum stöðum suðvestanlands. T.d. var ein sýning í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi hinn 23. janúar og vakti hún þá athygli áhorfenda og gagnrýnenda að félagið hyggst gera aðra tilraun til að ná til áhorfenda á Reykjavíkursvæð- inu með sýningu í Hlégarði að kvöldi sunnudagsins 6. febrúar. Eyvindur Erlendsson hefur stjórnað sviðsetningu leiksins og einnig annazt gerð leitomyndar. Meðfylgjandi mynd er af þeim Stefáni Jóni Jónssyni t.v. og Grétari Haraldssyni t.h. i hlut- verkum Eiríks bónda og Arnórs. um mahkaði. Með þessari sölu er búið að flytja út um 2 þús. lestir af haiustframleiðslu dilkakjöts, en áætlað er enn verði fluttar, til viðbótar út um 500 lestir af haustframleiðslunni. Reyndi að smygla bjór LÖGREGLUMENN, sem stóðm vörð í aðalihliðinu inn á Kefla- vík;urfluigvöW, stóðu í gær mann að því að reyna að smygla út-aif vellin'um sex bjórkössum. Hafði hann farið í ákveðnuim eriinda- gjörðum inn á völlinn, en haft einhver „sambönd" og ætlað Síð- an að vera „kaldur“ og keyra í gegnum hliðið með kassana í far angursgeymslunni. En kassarnir fóru aldrei út fyrir hliðið. Peking- læknar stunda Snow Eysings, Sviss, 4, febr., AP. ÞRÍR kínvenskir sérfræðingar komu í dag til Genifar í Svia* til að stunda bandaríska rithöf- undinm og KíiniasénfiræðmginTt Edgar Snow, sem liggur þunigt haldinn í sjútoráhúsi eftir mikinin gallblöðruuppskurð, sem var gerS ur á homum fyrir nokferu. Heim- ildir AP-fréttastofunnar hafa fyr- ir satt að það hafi feomið í ljós, að Snow þjáist einrnig af krabba- meLni, Um skeið virtist Snow á bata- vegi, ecn heilsu hans hefur nú ákymdilega hrákað. Það þykir bera skýram vott um það dálæti sem Mao formaður og forystulið K'ína hefuir á Snow, að ho«wim skuli á srj ú'krabeði semdir aérfiræð- in/gar frá Peking.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.