Morgunblaðið - 12.04.1972, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGTJR 12. APRlL 1972
Óskarsverðlaunahátíðin:
Koma Chaplins
skyggði á allt annað
— Hátíðargestir
risu úr sætum
og fögnuðu
meistara
skopmynd-
anna innilega
— French
Connection
hlaut fimm
verðlaun
Hollywood, 11. apríl.
(AP-NTB)
ENDA þótt bandaríska kvik-
myndin „The French Connecti-
on“ væri hinn ótvíræði sigurveg-
ari Óskarsverðlaunahátíðarinnar
i Hollywood í gærkvöldi með
samtals fimm Óskarsverðlaun,
var ekki laust við að hún hyrfi
ofurlítið í skuggann af öðrum
verðlaunahafa — að nafni Charl-
es Chaplin. Hann var sæmdur
sérstökum heiðursverðlaunum
fyrir framlag sitt til kvikmynd-
anna. og var augsýnilega hrærð-
ur er hinir 2.900 gestir, sem við-
staddir voru afhendinguna, stóðu
úr sætum sinum sem einn mað-
ur og fögnuðu honum með húrra
hrópum og lófataki. Þetta var
fyrsta heimsókn Chaplins til
Hollywood eftir 20 ára útlegð
þaðan.
The French Connection varð
fyrir valinu sem bezta mynd árs
ins 1971, og leikstjóri hennar,
William Friedkin, hlaut Óskar-
inn fyrir bezta leikstjórn. Aðal-
leikari myndarinnar Gene Hack-
man hlaut einnig sömu sæmd
fyrir beztan leik í karlhlutverki.
Verðlaun fyrir bezta handritið
fóru til Ernst Tidymans fyrir
sömu mynd og Jerry Greenberg
hreppti Óskarinn fyrir klipping-
ar sínar í myndinni.
Jane Fonda hlaut Óskarsverð-
laun fyrir beztan leik í aðalkven
hlutverki fyrir túlkun sína á
vændiskonu i sakamálamynd-
inni „Klute“. Vakti það nokkra
athygli, að hún skyldi koma og
taka við verðlaununum, þar sem
hún hefur getið sér orð fyrir að
vera ærið uppreisnargjörn. Þeg-
ar hún hafði tekið við styttunni
sagði hún aðeins: „Ég hef mairgt
að segja — en ég ætla ekki að
segja það í kvöld.“ Þá vakti það
mikinn fögmuð þegar tilkynnt
var um val á bezta leikara í auka
hlutverki. Þar hlaut Ben John-
son verðlaunin fyrir leik sinn í
The Last Picture Show, en hann
á að baki langan feril í misjafn-
legum vestrum en hér munu
margir minnast hans úr Okla-
homa. „Þau hefðu ekki getað
lent hjá betri mamni,“ sagði hann
og glotti um leið og hann tók
við verðlaununum. Cloris Leach-
man hiaut sömu verðlaun fyrir
beztan leik I aukahlutverki í
sörnu mynd.
ítalska myndi-n The Garden
of the Finzi Continis eftir De
Sica var valin bezta er.lenda
mynd ársins eftir harða keppni
við japörasku myndina „Dodes
ka — dem“ eftir Kurusawa og
sænsku myndina „Innflytjend-
urnir". Ýmsar aðrar verðlauna-
veitingar voru sem hér seg-
ir: John Williams hlaut Óskar-
inn fyrir beztu tónlistarútsetn-
inguna í Fiðlaranum á þakinu og
Isaac Hayes hlaut sömu sæmd
fyri.r bezta titillagið í myndinni
Shaft. Paddy Chayefsky hlaut
Óskar fyrir bezta frumsamda
hamdritið að myndinni Hospital,
og Oswald Morris fyrir beztu
kvikmyndatökuna í Fiðlaranum
á þakinu.
Lokaatriði Óskarsverðlauna-
hátíðarinnar að þessu sinni var
er Charlie Chaplin tók við sér-
stökum heiðursverðlaunum fyr-
ir framlag sitt til kvikmynda-
gerðar. Chaplin, sem verður 83ja
ára n.k. sunnudag, var kominn
til Hollywood ásamt Oonu, konu
sinni, í fyrsta sinn eftir 20 ára
fjarveru, en hann var gerður út-
lægur á dögum óamerísku nefnd-
arinnar vegna vinstri sinnaðra
skoðana í stjórnmálum. Fluttist
hann þá til-Sviss fullut beizkju
út i Bandaríkin og bandarísku
þjóðina. Allt frá þessum tíma
hafa Bandaríkjamenn þjáðst af
samvizkubiti vegna meðferðar
sinnar á Chaplin, og því varð
uppi fótur og fit þegiar fréttist
að hann væri tilleiðanlegur að
kojna að nýju til Bandaríkjanna
að veitá Óskarsverðlaunum mót-
Gene Hackman samfagnar Jane Fonda við Óskarsverðlaunaaf-
hendinguna, en hann hlaut Óskarinn fyrir leik sinn í verðlauna-
myndinni ,,The French Connection" og hún fyriir leik sinn í
„Klute“.
töku. Hefur síðustu vikurnar
verið keppzt við að endursýna
meistaraverk hans í öllum helztu
borgum Bandaríkjanna og mikið
verið ritað um hann og rætt þar
vestra.
Óhætt er að fullyrða að fáir
kvikmyndagerðarmenn hafa
fengið jafn hjartanlegar móttök-
ur og Charlie Chaplin á þessari
44. Óskarsverðtaunaafhendingu.
Enda mátti sjá, að hann var inni-
lega hrærður yfir móttökunum
og sagði aðeins: „Þakka ykkur
hjartanlega. Orð eru annars svo
innantóm. Þvi get ég aðeins sagt
að ég þakka ykkur fyrir að
bjóða mér hingað. Þið eruð ynd-
islegt fólk.“ Ha.nn hafði tekið
Bandaríkin í sátt.
Meðan Chaplin talaði var sjón-
varpsvélunum beint að einum
hátíðargesta — Jackie Coogan
að nafni, en hann varð heims-
frægur í einni mynd Chaplins,
The Kid. Daniel Taradash, for-
seti bandarísku kvikmyndaiaka-
demiunar, sagði er hann afhenti
Chaplin verðlaunin, að hann
hefði fengið fleira fólk til að
hlæja en nokkur amnar í sögunni.
Þetta eru önnur Óskarsverð-
launin, sem Chaplin hlýtúr. 'Árið
1929 — þá fertugur að aldri —
hlaut hann einnág sérstök heið-
ursverðlaun fyrir „innsæi sitt og
snilli í gerð handrits, við leik,
leikstjórn og framleiðslu The
Circus."
Charlie Chaplin ásamt Oonu, konu sinni, með Óskarsstyttuna —
heiðursverðlaunin, sem hann hlaut fyrir framlag sitt til kvik-
myndagerðar.
— Aðalfundur
V erzlunarbankans
Flóttinn úr dómshöllinni:
„Láttu okkur fá bílinn
þetta eru glæpamenn
Æöislegur eltingaleikur
við óða fanga í París
Framhald af bls. 3
anum var í árslok 240.2 millj. kr.
Bankinn var skuldlaus á aðalvið-
skiptareikningi við Seðlabank-
ann í árslok, en umsamin lán hjá
Seðlabanka námu 47.6 millj. kr.
Innborgað hlutafé ásamt vara-
sjóði var í árslok 67 millj. kr.
Af tekjuafgangi ársins var 1.9
millj. kr varið til afskrifta en
4.8 millj. kr. til varasjóðs bank-
ans. Óráðstafaður tekjuafgangur
var 2 millj. kr.
Fundurinn samþykkti að
greiða hluthöfum 7% arð.
í stjórn bankans voru endur-
kjörnir þeir Þorvaldur Guð-
mundsson, forstjóri, Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, stórkaupmaður,
og Magnús J. Brynjólfsson,
kaupmaður. Varamenn voru
einnig endurkjömir Pétur O.
Nikulásson, stórkaupmaður,
Sveinn Björnsson, skókaupmað-
ur og Sveinn Björnsson, stór-
kaupmaður.
Endurskoðendur voru endur-
kjörnir Jón Helgason, kaupmað-
ur, og Hilmar Fenger, stórkaup-
maður.
Á fundinum kom fram áhugi
fyrir eflingu í starfsemi bank-
ans. Árni Gestsson, stórkaup-
maður, formaður Félags ísl.
stórkaupmanna, flutti ræðu á
fundinum og gerði þar grein fyr
ir hugmyndum um hagsýslu
starfsemi fyrir verzlunarstéttina
og beindi áskorun til stjórnar
bankans fyrir hönd samtaka
kaupsýslumanna að bankinn
beitti sér fyrir slíkri starfsemi.
Fundinn sátu hátt á annað
hundrað hluthafar.
París, 11. apríl — NTB-AP
LÖGREGLAN í París gerði
í dag víðtæka en árangurs-
lausa lcit að þreniur óðum
og velvopnuðum föngum,
tveimur körlum og einni
konu, sem talið er að séu
í felum einhvers staðar í
borginni. Fangarnir flúðu
úr dómshöllinni í París í
gær og tóku sem gísla
dómara og tvo aðstoðar-
menn hans. Gíslunum var
sleppt í nótt eftir æðisleg-
an eltingarleik um götur
Parísar, en lögreglan við-
urkenndi í dag að hún
hefði engar öruggar upp-
lýsingar að styðjast við.
Fangarnir sem flúðu voru
Christian Jubin, þekktur und-
ir viðurnefninu „morðinginn í
svarta frakkanum", sem var
fangelsaður fyrir tvö morð;
Georges Segard, 30 ára, kall-
aður, „tannbrotni maðurinn"
og kona hans Evelyne, 27 ára,
fyrrverandi vændiskona, sem
er talin „heilinn" á bak við
flóttann. Hún er ákærð fyrir
að eiga hlutdeild í glæpum
manns síns, en var látin laus
gegn tilkynningarskyldu. Þeg-
ar á réttarhöldunum stóð
skaut hún upp kollinum,
vopnuð skotvopnum, og
neyddi lögregluna til þess að
sleppa Jubin og Segard.
Þau kröfðust þess að fá
bifreið til umráða. Þegar lög-
reglan hafði látið þau fá eina
af bifreiðum sínum, hófst æð-
islegur eltingarleikur um göt-
ur Parisar. Einn gíslanna,
Robert Magnan, sagði, að frú
Segard, sem ók bilnum, hefði
stundum ekið á 160 km hraða.
Lögreglumenn og blaðamenn
eltu skötuhjúin, en þegar
lögreglubifreiðarnar færðust
ískyggilega nærri hótuðu þau
að skjóta. Þau voru vopnuð
átta byssum og höfðu næg
skotfæri til þess að heyja
langan skotbardaga.
Magnan dómari fékk að lok-
um talið fangana á að aðstoð-
armaður hans Antoine Laur-
in, talaði við lögregluna. „Ég
er i gíslingu. Eltið okkur ekki.
Lif okkar er i hættu,“ sagði
hann. Lögreglan hætti þá elt-
ingarleiknum, en nokkrum
minútum síðar kvartaði Jubin
yflir því, að lögreglubillinn
væri „gagnslaus" og stað-
næmzt var hjá hvítum Sedan
sem maður nokkur var að
leggja í stæði.
„Láttu okkur fá bílinn
strax,“ sagði Jubin.
Maðurinn hélt að hann væri
að grínast þangað til dómar-
inn grátbað hann: „Gerðu
okkur greiða. Láttu okkur fá
bílinn. Þetta eru glæpamenn.
Þeir gætu drepið okkur."
Stuttu síðar var gíslunum
hleypt úr Sedan-bílnum gegn
þvi skilyrði að þeir hefðu
ekki samband við lögregluna
fyrr en að stundarfjórðungi
liðnum.
„Við kvöddumst með handa-
bandi og fórum á næsta bar,“
sagði Laurin.
1 morgun fann lögreglan
hvíta Sedaninn, en ekkert hef-
ur spurzt til flóttamannanna.
Magnan dómari var uppgeí-
inn þegar hann kom heim til
konu sinnar, sem hafði beðið
milli vonar og ótta. „Ég hugs-
aði stöðugt um Sallustro-mál-
ið," sagði hún.