Morgunblaðið - 14.04.1972, Side 16

Morgunblaðið - 14.04.1972, Side 16
16 MORGLFNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1972 Oitgefandi hf Árva’kuc Ráyfojavtk FiíarnfcvæmdaS'tjóri Haratdur Sveinsson. Ritatjórar Mattfiías Johannessen, Eyjóllfur Konráð Jónsson. Aðstoðarritstjóri Styrmir Gunnarsson. RitstjörnarfuHrtrúi Þorbijönn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjöri Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsia ASaistraeti 6, sími 1Ó-100. Augiíýsingar Aðalstræti 6, sirmi 22-4-80 Ás'kriftargjald 225,00 kr á 'miánuði innanlandis I lausasöTu 15,00 Ikr einta'kið KJARVAL VEÐUR Á SUÐUM Tíi/Jesti myndlistarmaður þjóð arinnar er látinn. óhætt er að fullyrða að enginn listamaður íslenzkur hefur notið eins mikilla vinsælda meðal samtíðarmanna sinna og Jóhannes S. Kjarval. Þar kom ekki einungis til stór- brotin list hans, heldur einnig óvenjulegur persónuleiki, sem líður engum úr minni, sem kynntist honum. Með andláti Kjarvals er lokið heilum kapítula í list- og menningarsögu íslenzku þjóðarinnar. Enginn listmál- ari okkar hefur markað eins eftirminnileg spor með verk- um sínum og Kjarval. Hann var ekki aðeins vandvirkur og óvenju frjór snillingur, heldur einnig þreklundaður afkastamaður, sem setti per- sónulegt mark á allt, sem hann snerti á. Þegar hann hefur nú kvatt þennan heim, verður sú staðreynd efst í huga, að verk hans munu áfram lifa öldum og óborn- um til gleði og unaðar, þótt hann sjálfur hafi farið „meira að starfa guðs um geim“, eins og listaskáldið góða komst að orði. Enginn stóð hjarta Kjar- vals nær en Jónas Hallgríms- son og munu nöfn þeirra eiga eftir að tengjast enn órjúfan- legri böndum, þegar stundir líða. Jónas, Kjarval, rjúpan og þrösturinn — engin tákn munu íslendingar eiga betri í framtíðinni, þegar minnzt verður þeirrar ástar, sem hver heilbrigður íslendingur ber í brjósti til lands síns. Við andlát Kjarvals er ís- lenzka þjóðin þakklát fyrir að hafa átt hann og list hans. Hann hefur stækkað lítið land og er einn bezti fulltrúi þeirrar kröfu, að ísland verði ávallt frjálst og óháð, með sérstaka og markverða menn- ingu. En framtíðin á einnig eftir að sýna, að beztu verk Kjar- vals eru alþjóðleg list, ekki síður en stórbrotinn vitnis- burður um þjóðlega reisn og sterkar rætur íslenzkrar menningar. C|kuld ríkissjóðs við Seðla- bankann nemur nú um 1800 milljónum króna og hef- ur aukizt um 250 milljónir á 19 dögum, en hún var hinn 23. marz sl. um 1550 milljónir króna og var það miklu óhag- stæðari staða ríkissjóðs gagn- vart Seðlabankanum en á sama tíma í fyrra og munaði um 1200 milljónum króna. Bersýnilegt er, að banka- stjórar Seðlabankans hafa þungar áhyggjur af hinni slæmu greiðslustöðu ríkis- sjóðs, enda gerði dr. Jóhann- es Nordal hana sérstaklega að umtalsefni á ársfundi Seðlabankans í fyrradag, er hann sagði m.a.: „ . . . væntir bankastjórn Seðlabankans þess, að gerðar verði sem fyrst frekari ráðstafanir til þess að bæta rekstrarfjár- stöðu ríkissjóðs. Það ástand, sem ætíð hefur ríkt hér á landi, að ríkissjóður ætti ekk- ert rekstrarfé, heldur þyrfti að mæta öllum árstíðarfjár- þörfum sínum með lántökum í Seðlabankanum hefur í reyndinni valdið því, að rík- isfjármálin hafa haft ótví- ræð þensluáhrif, jafnvel þótt greiðslujöfnuður hafi náðst á síðasta degi ársins. Er mikil- vægt, að hér verði breyting á og komið verði á einhvers konar rekstrarfjársjóði, er standi undir verulegum hluta af slíkri fjárþörf ríkissjóðs. Mundi þá árlega á fjárlögum ætlað fyrir viðbótarfé í sjóð í samræmi við aukna rekstr- arfjárþörf frá ári til árs. Til þess að stuðla að þessari sjóðs myndun hefur Seðlabankinn lýst sig reiðubúinn til þess að lána ríkissjóði stofnfé slíks sjóðs og yrði lánið endur- greitt á 4—5 árum.“ Jafnframt þessum aðvör- unarorðum skýrði Seðla- bankastjórinn frá því, að fjármálaráðherra hefði fallizt á að fjármagna árstíðabundna fjárþörf ríkissjóðs með út- gáfu svokallaðra ríkissjóðs- víxla, sem ríkissjóður sam- þykkir og Seðlabankinn kaup ir af honum en skuldbinding er um, að verði greiddir fyr- ir áramót. Hyggst Seðlabank- inn bjóða slíka víxla bönk- um og sparisjóðum til kaups á þeim tíma árs, sem lausa- fjárstaða þeirra er hagstæð- ust og skuldbinda sig til að kaupa þá aftur, ef viðkom- andi lánastofnun telur sig þurfa á andvirði þeirra að halda. Sú mikla áherzla,' sem dr. Jóhannes Nordal lagði á það á ársfundi Seðlabankans, að ráðstafanir yrðu gerðar til þess að draga úr yfirdrætti ríkissjóðs hjá Seðlabankan- um leiðir athyglina að því, að aðhald í fjármálum ríkisins hefur slaknað mjög frá því að stjórnarskipti urðu og nýr fjármálaráðherra tók við. Að vísu liggur ekkert fyrir enn um það, hvort greiðsluhalli hafi orðið hjá ríkissjóði á sl. ári, en síðari hluta ársins benti þó allt til að svo mundi verða, vegna fjárausturs vinstri stjórnarinnar úr rík- issjóði. Augljóst er, að slík eyðslustefna á þenslutímum hlaut að hafa óhagstæð áhrif á efnahagslífið í landinu, þeg ar til lengdar léti, og svo virðist sem sömu eyðslu- stefnu hafi verið fylgt það sem af er þessu ári. Yfir- dráttur ríkissjóðs hjá Seðla- bankanum er nú orðinn svo langtum meiri en hann var á svipuðu tímabili í fyrra, að enginn samjöfnuður er. Þótt augljóst sé, að tekjur ríkissjóðs komi misjafnlega inn yfir árið og að minni hluti teknanna komi inn fyrri hluta ársins, verður þessi mikla skuld við Seðlabank- ann þó ékki skýrð með því einu, heldur er sýnt, að hinn nýi f jármálaráðherra sýnir ekki nægilega aðhaldssemi í stjórn ríkisfjármálanna. Það veldur auknum áhyggjum, vegna þessarar slæmu stöðu ríkissjóðs, að slík skuld hans við Seðlabankann hefur óhjá- kvæmilega mikil þensluáhrif í efnahagslífinu nú og er þó ekki á bætandi. Engum blandast hugur um, að á undanförnum árum hef- ur stjórn ríkisfjármála ver- ið mjög sterk og átt mikinn þátt í þeirri hagstæðu efna- hagsþróun, sem verið hefur í landinu. En því miður bend- ir allt til þess, að sú styrka stjórn sé ekki lengur til stað- ar og að allt vaði á súðum í fjármálum ríkisins. Þetta er mikið áhyggjuefni. Ekki sízt vegna þess, að aðrir þættir efnahagsmálanna kalla á einhverjar ráðstafanir til úrbóta. Að vísu er full ástæða til að benda á, að þau vandamál, sem nú eru framundan í efnahagslífi okkar, stafa af velmegun en ekki kreppu- ástandi. Lúðvík Jósepsson, viðskiptaráðherra, sagði á ársfundi Seðlabankans, að það þyrfti sterk bein til að þola góða daga. Enn hefur ekkert komið fram sem bendir til þess, að ríkisstjórn sú, sem hann á sæti í, hafi þessi sterku bein til að þola þá velmegun, sem nú er í landinu. Velmegunin kallar á styrka stjórn efnahagsmála ekki síður en erfiðleikarnir. Markmiðið að koma Reyk j a - Stórhækkun fasteignaskatta vegna lagasetningar ríkisstjórn „ÁSTÆÐA er til að ætla, að markmiðið með samn- ingu tekjustofnalaganna hafi ekki sízt verið það, að koma Reykjavíkurborg og Reykvíkingum á kné,“ sagði Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, á fjölmenn- um fundi, sem Sjálfstæð- isfélögin í Reykjavík og hverfasamtökin í borginni efndu til. Á fundi þessum gerði Geir Hallgrímsson grein fyrir því, hver áhrif nýju tekjustofnalögin mundu hafa á afkomu Reykjavíkurborgar og sagði, að borgin yrði að nýta til fulls allar álags- heimildir hinna nýju laga til að endar næðu saman, Sérstaka athygli vöktu þær upplýsingar í ræðu Geirs Hallgrímssonar að fasteignaskattar samkv. hinum nýju lögum mundu allt að því sexfaldast frá því sem verið hefur og stórhækka á öllum stærð- um og tegundum íbúðar- húsnæðis. Hér fer á eftir að meginefni til fyrri hluti ræðu Geirs Hallgrímsson- ar: Þegar 1. umræSu um fjár- hagsáeetlun lauk í desember mátti búast við því, að þáver- andi tekjustofnar borgarinnar væru þess megnugir að standa undir eðlilegum rekstrarút- gjöldum og nauðsynlegum framkvæmdum, þannig að álögur á borgárbúa yrðu ákveðnar skv. sömu reglum og áður og gefinn 6% afslátt- ur af útsvari. Það er því vert að leiða hugann að því, hvað síðan hefur breytzt. Það fer ekki á milli mála, að auðvitað hafa launahækk- anir áhrif á gjöld borgarinn- ar. Þannig er talið, að kjara- samningar í desember, áhrif Kjaradóms opinberra starfs- manna og hækkun kaupgjalds visitölunnar i 109,29 stig valdi yfir 50 millj. kr. útgjaldaauka fyrir borgarsjóð. Þá hafa allir orðið varir við alls konar verðlagshækkanir og vitað er, að frá því í nóv- embermánuði sl., þegar lokið var samningu frv. að fjár- hagsáætlun, hafa orðið miklar hækkanir á flestum rekstrar- útgjöldum. Nægir að minna á matvöru, sem talið er að hafi hækkað um 12,3% frá því í októbermánuði, viðhalds- kostnað, sem talið er að hafi hækkað um 16% frá sama tíma, rekstur bifreiða eða bif- reiðastyrkir, sem borgarráð he-fur samþykkt að hækka um 10% frá sl. áramótum, og nú síðast póst- og símagjöld, sem skv. nýjum upplýsingum munu hafa hækkað um a.m.k. 28,4% og e.t.v. mun meira, eft- ir því hvernig hækkunin er metin. Þá er talið, að ýmis annar rekstrarkostnaður hafi hækkað um 9,7% frá samn- ingu frv. að fjárhagsáætlun. Tillaga sú um 65 millj. kr. útgjaldaauka er við það mið- uð, að rekstrarútgjöld borgar- sjóðs, önnur en laun, hafi hækkað um 10% að meðaltali. í hvoru tveggja þessa, að því er launaútgjöld og hækkun á öðrum rekstrarútgjöldum snertir, þá er eingöngu tekið tillit til þeirra hækkana, sem fram eru komnar í dag, en vitað er auðvitað um frekari hækkanir, sem væntanlegar eru. Þannig hefur borgarhag- fræðingur aflað sér upplýs- inga um það, að kaupgjalds- visitala muni hækka væntan- lega úr 109,29 I 117 stig við næsta útreikning og allit upp í 120 stig á árinu. Ef gert er ráð fyrir því, að óframkomnar hækkanir á launakostnaði, sem enn eru ekki komnair fram, svari til 5 stiga hækkunar kaupgjalds- vísitölu miðað við heilt ár, þá kostar hvert slíkt stig nær 9 millj. kr. útgjaldaauka, eða Geir HaMgríimsson í ræðustóli í fyrrakvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.