Morgunblaðið - 04.05.1972, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAl 1972
19
r, m kw, mm mmm k\k\t,i
Framtíðarvinna 26 ára fjölskyldumaður með farmannspróf óskar eftir atvinnu í landi. Agætis ensku- og dönskukunnátta. Hef bíl til umráða. Margt kemur til greina. * Tilboð óskast sent fyrir 13. 5. til Mbl., merkt: „1978". Laganemi óskar eftir atvinnu í sumar. Hef bíl til umráða. Flest kemur til greina. Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 10. 5., merkt: „1. júní".
Lítið hjólborðoverkstæði óskar eftir vönum manni. — Tilboð með upplýsingum og kaupkröfu. sendist afgreiðslu Morgunblaðsins, merkt: „1000". Viljum ráða karla og konur til verksmiðjustarfa. — Upp- lýsingar hjá verkstjóranum, Þverholti 22. Hf. Ölgerðin Egill Skallagrímsson.
Framkvœmdastjóri Bandalag háskólamanna óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Háskólamenntun skilyrði. Til greina kemur að ráða mann hluta úr degi tíl að byrja meö. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknir sendist auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 15. maí, merkt: „1977". BHM.
Nómskeið í vélritun eru að hefjast. Kennsla eingöngu á rafmagns- vélar. Engin heimavinna. Upplýsingar og innritun í símum 41311 og 21719. Vélritunarskólinn Þórunn H. Felixdóttir.
Shipotækniiræðingur óskar eftir starfi. — Tilboð sendist til Morg- unblaðsins, merkt: „Skip — stál — 1608“.
Atvinna Getum bætt við nú þegar vönum stúlkum í ákvæðisvinnu. Einnig duglegum og röskum kvenmanni til sníðastarfa, ásamt duglegum og reglusömum unglingspilti til starfa í verk- smiðjunni. Upplýsingar að Skúlagötu 51 milli kl. 4 og 6 í dag — ekki í síma. Sjóklæðagerðin hf. Verksmiðjan Max hf.
Atvinna Bílamálari og aðstoðarmaður í málninga- verkstæði óskast sem fyrst. BÍLASKÁLINN HF., Suðurlandsbraut 6.
Framkvœmdastjóri Staða framkvæmdastjóra Fjórðungssam- bands Vestfirðinga er laus til umsóknar. Umsóknir, ásamt launakröfu og upplýsing- um um menntun og fyrri störf, sendist fyrir 31. maí nk. til stjórnarformanns, Gunnlaugs Finnssonar, pósthólf 115, Flateyri. Nánari upplýsingar veittar í síma 94-7614. Stjórnin.
Vélgœzla Við viljum ráða nú þegar mann til vélgæzlu í kjötgeymslu okkar. Upplýsingar gefur Guðjón Guðjónsson, deildarstjóri. Afurðasala S.f.S.
Atvinna Óskum eftir að ráða eftirtalda starfsmenn: 1. Afgreiðslumann í varahlutaverzluu, 2. Mann í málningarverkstæði. 3. Mann í réttingarverkstæði. 4. Mann til að að hreinsa verkstæðin o. fl. EGILL VILHJÁLMSSON HF., Laugavegi 118, sími 22240.
Cötunarstúlka Viljum ráða nú þegar götunarstúlku í véla- bókhaldsdeild vora. Mjög góð laun í boði, ef um vana stúlku með starfsreynslu og bókhaldsþekkingu er að ræða. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist aðalskrifstofu félagsins, Hafn- arstræti 5, fyrir 8. maí nk. Olíuverzlun íslands hf.
— Starfsmanna-
félag
Framhald af bis, 4.
vinnandi stéttum orlofsfé á yf-
ii-vinnukaup og álagsgreiðslur.
Felur fundurinn stjórn félagsins
að vinna áfram ötullega að því
marki, að fá þann skilning við-
urkenndan.
6. Aðalfundur SFR 1972 álykt
ar eftirfarandi varðandi lífeyris
réttindi rikisstarfsmanna:
a) Bótaréttur sjóðfélaga úr líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins
verði ákveðinn óháður bótarétti
skv. lögum um almannatrygging
ar. Því til áréttingar bendir
fundurinn á, að framlög vegna
sjóðfélaga L.S.R. til almanna-
trygginga eru með sama hætti og
fyrir aðra þjóðfélagsþegna en
auk þess greiða þeir iðgjöld sín
til lífeyrissjóðsins.
b) Sjóðfélagar vérði allir þeir,
sem skipaðir eru, settir eða ráðin
ir í þjónustu ríkisins, ríkisstofn-
ana eða atvinnufyrirtækja rik-
isins, enda sé það starf þeirra
aðalstarf og hlutaðeigandi taki
ekki minná en hálf þau laun,
sem slíku starfi fylgja fyrir full
an vinnutíma. — Undanteknir
verði þó þeir starfsmenn, er
laun taka samkv. kjarasamning-
um stéttarfélaga, sbr. lög nr.
80/1938.
c) Sjóðfélögum, er fá hluta af
föstum launum sínum greiddan
sem álag fyrir óþægilegan
vinnutíma eða vinnuvökur, verði
tryggður bótaréttur af þeim
launahluta, sem þannig er ákveð
inn, enda verði slíkar álags-
greiðslur iðgjaldsskyldar.
d) Sjóðfélagar greiði allir
sama hlutfall af launum sínum I
iðgjöld.
e) Launþegi greiði iögjald til
sjóðsins frá sama aldri og tíðk-
ast hjá lífeyrissjóðum stéttarfé-
laga.
7. Aðalfundur SFR 1972 hvet-
ur félagsstjóm og stjórn BSRB
til að vera á verði gagnvart
hugsanlegum ákvörðunum
stjómvalda, sem myndu i fram-
kvæmd leiða til skerðingar á um
ráðarétti stjórnar L.S.R. yfir
ráðstöfunarfé sjóðsins á hverj-
urn tíma.
8. Aðalfundur SFR 1972 bein-
ir eindregnum tilmælum tii
stjórnar L.S.R., að hún gaum-
gæfi allar leiðir, sem til greina
koma i þvi skyni að hækka megl
lánsfjárupphæðir veittar sjóðfé-
lögum til bygginga eða kaupa á
íbúðarhúsnæði.
9. Aðalfundur SFR 1972 teluir
tímabært, að stjórnvöld og sam-
tök opinberra starfsmanna geri
sameiginlegt átak til að koma á
skipulagðri starfshæfingu og fé-
lagsmálafræðslu, til að mæta á
hagkvæman hátt kröfum nýs
tíma um breytta starfsháttu. —
Skorar fundurinn á stjórn heild
arsamtakanna og fjármálaráð
herra að hefja nú þegar undir-
búning að framkvæmd þessa
máls.
— Olof Palme
Framhald af bls. 16.
Falltin og tekið mikinn fjör-
kipp. Fylgi flokksins jókst úr
rúmlega 22% í janúar í 26% f
marz og hann hefur treyst
stöðu sína sem aðalandstöðu-
flokkur stjórnarininiar.
Strang fjármálaráðherm
heifur hingað til verið álitinn
máttarstólpi Sósíaldemókratar
fflokksins, en hefur að undan-
fömu sætt mörgum árásum
tveggja áhrifamikiBa dreif-
býlisbl'aða. Fátt sýnir betur
óróleikann í flokki sósíaidemó
krata en slíkar árásir á mann
sem hingað til hefur farið með
gífurleg völd í flokknum. —
Næsta þing flokksins verður
haldið í október, og er þá bú
izt við að sósíaldemókratar
hefji gagnsókn gegn andstæð
ingum sinum, þvi að þetta
flokksþing mun i raun og
veru marka upphaf baráttunn
ar fyrir bæjar- og sveitar-
stjórnakosningar í september
1973 og þingkosningarnar ári
síðar.