Morgunblaðið - 04.05.1972, Page 21

Morgunblaðið - 04.05.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1972 21 — Jakob Thorarensen, skáld Framliald af bls. 14. legt svipmót. Hoirum íatast st'undum um smekkvísi um orða- val, en yfir'leitt eru kvæði hans fastmótuð og hagleg smíð, méul- ið hreint og þróittmikið, en ekki torrætt frekar en vai hans á lik- ingnum. Mörg kvæði hans eru mótuð af djúpri aivöru og skarpri lifsatlhuigun, en stundum bregðiur hann á lei'k og það svo ' listilega, að fá islenzk ljóðskáld hatfa reynzt fyndnari. Eitt af þVí, sem hann hefur orðið kunn- astur fyrir meðal álmennings um land allt, eru ýmsar lausa- visur hans, en sumar þeirra hafa aldrei verið prentaðar — og þar á meðal nokkrar þær snjöillustu. Tilfinninigum sínum flikar Jakob sjaldan í s'káld- skap á annan hátt en þann, að þær eru sem undirstraumur í Ijóði eða sögu. Hann hefur til dæmis lítið látið i ljós um við- Ihorf sitt við trúmálum, en ef til vilJ mundi mega ráða þau af þessari lausavisu: Virðuleg sex daga vinna er veröldin alsköpuð, en meistaraverk þó ei minna hafi mennirnir skapað guð. Til sönnunar þvi hversu hinn vandláti meistari ljóðforms ins, Tómas Guðmundsson, metur ljóðagerð Jakobs Thorarensens vil ég leyfa mér að benda á það, að hann hefur valið í safnið Is- lands þúsund ár fimm löng bvæði eftir Jakob. Það imin h; "a verið vorið 1924, að Jakob sýndi mér smá söigu eftir siig og var mjög í vafa um, hvort hún væri hæf til birt- ingar. „É'g hef nú ekki föndrað við svona form áður,“ sagði hann. Nema ég hél-t, að honum mundi sannarlega óhætt að birtta sög- una, og svo kom hún þá út i timariti undir dulnefninu Jón jöklari. Hún heitir Helfró og er ifyrsta sagan i safni þeirra tíu sagna, sem ég valdi í bðkarkorn sem Almenna bókafélagið gaf út á sjötiu ára afmæli Jákob.s. I þessari stuttu sögu kemur hann þegar fram sem fullþnoska smá sagnahöfundur, og ber hún flest þau einkenni, sem síðar móta sðgu hans, sem sé að stíl, frá- sagnarhætti og viðhorfum við mannlogúm brastum og meinum sem hann sér ærið glöggt, en lít ur á oft af kiminni, en stundum d'álítið biburrd iglöggskyg'gni. Jón bóndi Stígsson er að deyja, og kona hans situr yfir honum sárdöpur. En Jón er þessa stundina óvenjuhress og tekur meira að sagja í nefið, og áður en varir eru þau hjónin far in að tala um þá hluti, sem helzt hafa valdið missætti i löngu og yfirleitt farsæiu hjónabandi þeirra. Þetta fer hæigt af stað, en svo rifjast upp beiskja tengd ærnum smámunum, sem þó hafa kornið mjög illa við hús freyj'u. Og áður en varir herð- ir hún á orðræðu sinni og fær svör að sama skapi. Það espar hana, en svo steinþagnar Jón og þá tefcur nú fyrst í hnúk- ana. Aldrei hefur hann verið henni erfiðari en þegar hann hefiur tekið upp á að þegja við orðum hennar. Og nú þusar hún alllen'gi og biturt, smástúss andi við sitthvað í herberginu Það er tekið að skyggja inni, og nú virðist henni Jón sotfnaður eða hvað? Henni sárbregður og virðist, að ekki muni seinna vænna, að segja eitthvað hiý- legt við Jón. Skáldið segir: „Hún lagði höndina á brjóst honum, svo sem vildi hún ýta við honum með hægð. „Jón! Heyrðu, Jón minn! — Þú hefur annars alla tima verið mér bæði ástrikur og góður eig- inmaður — og alveg einstakur heimilisfaðir, það hefurðu verið Jón. — Og guð sé mér til vitn- is um það, að ég hef elskað þig á móti, Jón. — Jón, heyrirðu það!“ En Jón heyrði það ekki, þvi hann hafði skilið við rúmri mín- útu eftir að hann laigði frá sér pontuna á borðshornið, en sið- an var góður stundarf jórðungur liðinn.“ Ekki munu þær siðri sögurn- ar Forboðnu eplin, Víða liggja vegamót, Aflandsvinur og Kölk un, svo að nokkrar séu nefnd- ar, og það hytgg ég, að ekki komi út árlega míklu betri smá- sögur á Norðurlöndum á ári hverjiu en við skulum segja 15—20 af smásögum Ja'kobs Thorarensens. Það mun þó þrátt fyrir sögur hans og merkiskvæði hafa tek- izt svo til, að hans sé ekki getið í hinni þegar á sinn hátt róm- uðu samnorrænu bókmennta- sögu, en það er ek'kert nýtt, að ísienzkar bókmenntir sæti svolit ið einkemnilegum örlögum í nor- rænni samvinnu. Jón Trausti og Guðmundur Guðmundsson lét- ust úr spænsku veikinni, en sænska sýkin 'kynni líka að rsynast íslenzkum ' ókmenntum skæð, áöur en lýkur. Mér dett- ur svo allt i einu í hug fer- skeytiukorn eftir Jakob skáld Thorarensen: Það er auma ástandtð ýmsra frægra beirna, eru stórskáid út á við, en auilabárðar heima. Ég man ekki, hvort það var Siigurður Nordal eða Tómas Guð mundsson, sem sagði við mig, að sér þætti Jakob einhver mesti og sérkennilegasti húmoristi í ís lenZkum bókmenntum. . . En ég vil enda á tveimur vísum úr hinu sérstæða ættjarðarljóði hans íslandsstefi, en þar talar hann úr fylgsnum hjarta sins ,í krafti sögunnar oig eiigin reynslu. En gef oss auðnugullið dýra og gleði þeirrar ym, er störfin vekja en stöðva hvorki storm þinn eða brim, oss betra að hitna í barninigi enn en blása þurfa í kaun því stórviðrin þau stæla menn að standast lífsins raun, og Island geldur atorkunni einni fyllstu iaun. Já, bezt við munum alltaf una á andstæðnanna fold, með stóru lyndi vasta og vinda, unz værðir býr oss mold. Hér jafnar margt hvað myrkt og hart hin milda srtmarnótt, þá allt á storð er unigt og bjart, í einu glatt og hljótt. I heiðd og kyrrð, — í ólgu og eld er Islands skaphöfin sótt. Með styrk og festu Nítján hundruð og fjórtán — upphafsár fyrra stríðs; kóngar og keisarar við völd í stóru löndunum; Islendingar ennþá bændur og sjómenn af gamla skólanum: sveiflandi orfi eða ró- andi ár. Það var þá, sem Jaikob Thor- arensen sendi frá sér fyrstu bók ina, Snæljós; kvæðasafn. Viljum við staldra við og átta okkui á, hve þetta ár er nú orðið að mik- illi fortið, má t. d. minnast þess, að þá var Þorgils gjallandi enn á lífi, Jón Trausti og Einar Bene- diktsson nánast ungir höfundar, og Einar H. Kvaran átti helft verka sinna óskrifaða. Jakob var orðinn stálpaður unglingur, þegar nitjánda öldin kvaddi, og kvæðin í Snæljósum orti hann á fjórum til fimm ár- unum næstum fyrir fyrra strið. Hann var þvi aldamótamaður í bókstaflegum skilningi orðs- ins og fullmótaður af þvi gamla samfélagi, sem grundvallaðist á handafli og erfiði. Jakob var aldrei margmáll um sjálfan sig, en ef til vill gefa eftirfarandi orð hans til kynna, hvað það kostaði hann að verða skáld: „Þau kynni hafði sá, er þetta ritar, af öldinni sem leið, — því henni heyrði til bernskan og unglingsárin, að nokkru, — að yfirleitt virtist hún þess sinnis, að flest annað væri þarfara að gera en lesa að miklu ráði, -— skrifa, yrkja eða semja, og var hún því, i ytri háttum, þrátt fyr- ir rétt hentug innri eigindi, fremur andhverf þess hátt- ar iðkunum þeirra, sem ungir vóru og óráðnir. Langt fram eft- ir þroskaaldrinum varð og aðal- lega að eiga um slíkt við síð- kvöldin og næturvökurnar." Snæljósum Jakobs var strax tekið vel, enda eru þar sum beztu kvæði hans svo sem I há- karialegum, mergjaður óður, sprottinn úr römmum jarðvegi þess Jífs, sem lifað var á upp- vaxtarárum skáldsins. Alls sendi Jakob frá sér um tug kvæðabóka, sem allar bera sterk og skýr persónueinkenni hans, auk lítið eitt færri smá- sagnasafna. Það var þó ekki fyrr en 1929, að Jakob sendi frá sér fyrsta smásagnasafnið, Fleygar stundir, eftir að hafa gefið út fjórar kvæðabæk- ur. Ekki er fjarri lagi að segja, að eðliskostir sagnanna séu hin- ir sömu og ljóðanna. Samt hafa þær jafnvel enn fleira til síns ágætis, til að mynda gamansemi, sem minnir stundum á sjávar- seltu eða hafrænu, nokkuð svala, en í öllu falli raunsanna og umfram allt rammíslenzka. Ég nefni sem dæmi söguna Helfró, þar eð hún mun flestum kunn úr Lestrarbök Nordals. Ekki ein- ungis geymir sú saga trúverð- uga stemming gamla timans, heldur lika sigild sannindi, sem aldrei fyrnast: eiginfcona hef«r tekið til í hugskoti sínu fáein vel valin orð til að segja við bónda sinn á banasænginni, síð- ust orða, en verður of sein og þykir þá skammskárra en ekki að þylja þau yfir honum dauð- um. Auðséð er, að Jakob hefur mjög ástundað að byggja upp sögur sínar, eins og kallað er, sniðið þær samkvæmt útreikn- uðum hlutföllum. Sem dæmi þess, hvernig hann gat í senn listilega og eðlilega nálgast söguefni, kemur mér í hug sag- an Of snemmt — of seint þar sem aðdragandinn gerist stig af stigi og komið er að kjarna málsins i áföngum: ferðamaður á leið gegnum alókunnuga sveit, heyr- ir fyrst ávæning af orðasveimi, síðan meira og meira, unz rakin er fyrir honum atburðarás þeirr- ar sögu, sem um sveitina gengur. Tíðarandinn var ekki mjúk- hentur i uppvexti Jakobs, og yrði bókvitið ekki í askana lát- ið, þá var tilfinningasemin það- an af síður vænleg til ábata. Sögupersónur Jakobs eru flest- ar sóttar til þess tima, agaðar af þeim lifnaðarháttum, sem þá gerðust, harðneskjulegum, en fá breyttum; ytra borðið sigg og skrápur, en eðlið ólgandi og þungt eins og hafaldan. Þar eð Jakob lýsir þessu fólki rétt og slétt náttúrlega, skiljum við það enn þann dag í dag, þó lífstónninn sé gerbreytt- ur, af því innsta eðli manns breytist ekki; kjarninn er ávallt samur. Jakob gerði sér far um að segja frá tilgerðarlaust; munnleg frásaga var fyrirmynd söguforms hans eins og annarra samvizkusamra raunsæishöf- unda. Hann gerðist ekki skrúð- máll, þó hann hefði gaman af til- fyndnum líkingum, en kjarnyrt- ur, þar sem það átti við; hélt sig sem næst vönduðu talmáli al- þýðu. Ekki verður þess vart, að Jakob hafi látið söguhetjur sin- ar taka sér hreystiyrði í munn einungis til að sýna þrótt höf- undarins; þær segja ógjarnan ■annað en það, sem þær eru lík- legar til að mæla hverju sinni. Rati þær i óvanalegar aðstæð- ur, ásannast, að Jakobi varð ekki skotaskuld úr því að leggja þeim orð í munn, sem hæfðu vandasömu tilefni. Þó Jakob stæði nokkuð föst um fótum í eldri tíð og fyrir kæmi, að hann tæki mál- stað hennar gegn því, sem hon um þótti miður fara í samtíð inni, var hann samt harla hlut- lægur í þeim efnum. Einn ig eldri kynslóðin í sögum hans dregur sinn slóða „sælda og synda“ — áv irðinga og yfir- sjóna, eða, unaðsemda og gleði, •allt eftir því, hvernig á það er litið. Þegar séra Hannes í sög- unni Forboðnu eplin tekur Þor- berg gamla tengdaföður sinn i hús sin, er sá gamli ekki par forfínuð persóna, t. d. eru borð- siðir hans fyrir neðan allar hell- ur innan um heldra fólk, og á gólfið hrækir hann óhikað, þeg- ar hann lystir. En jafnvel slikt má umbera, ef siðgæðið er i lagi, þar sem tekur til stóru atrið- anna. En þvi miður reynast þau á sömu bókina lærð hjá þessari gömlu kempu. Þegar sýnt þykir, að hann sé búinn að gera vinnukonunni í húsinu barn, verður hann að fara -— takmörk fyrir, hvað hægt er að líða í prestshúsi. Þannig eru söguhetjur Jakobs. Þær eru hvorki gott fólk né vont fólk, en bera með sér hvort tveggja: eðli sitt og uppruna og veitist jafnerfitt að bæla hið fyrrtalda sem að breyta venjum sínum frá hinu síðartalda. — ★ — Nú, þegar Jakob Thorarensen er allur og ævistarf hans liggur fyrir í heild, hljótum við að þakka honum það hlutverk, sem hann hefur gegnt i meira en hálfa öld á vettvangi íslenzkra bókmennta. Um þær breytingar, sem orðið hafa á þjóðlífinu og veröldinni á sama tíma, þarf ekki að ræða. Jakob fylgdist vel með þeim breytingum, en lét þær ekki raska jafnvægi sínu. Þó hann veldi sér ný og ný yrkis- efni, má hvarvetna greina sama höfundinn á bak við verkin, fastan fyrir, óbifanlegan. Jakob sagði, þegar hann stóð á sex- tugu, að „svo má að orði kveða, að hrúgað hafi verið sem svarar fjórum -— fimm öldum í fang þeirra, sem nú eru fimmtugir mena eða meira, miðað við göngulag hins gamla tima.“ Það var þá hverju orði sannara, og enn hefur þróunin hnykkt á þeim sannindum. Svo má að orði kveða, að Jakob væri sí ðastur höfundur sinnar kynslóðar, þeirrar kyn- slóðar, sem ólst upp og mótaðist til fulls við harðbrák fyrri ald- ar og tók þá líka í arf andleg- an þrótt hennar, sköpunargleði og raunsæ viðhorf gágnvart lífi sínu og umhverfi. Að rödd hans þagnaðri finnst manni sem þeir timar hafi færzt drjúgum fjær. En ég trúi, að beztu verk Jakobs muni lengi lifa. Svipmót hans á þeim er nógu sterkt og eftirminnilegt, til að eigi fyrnist yfir það. Erlendur .Tónsson. Kveðja Fæddur 18. maí 1886. Dábin 26. apríl 1972. ÉG KYNNTIST Jakob Thoraren- sen fyrir 29 árum siðan. Þá var hann á bezta aldri. Við ui'öum fljótlega góðir vinir og þrátt fyr- ir nokkurn aldursmun áttum við margt sameiginlegt. Þegar ég lít til baka yfir farinn veg, minnist. ég margra ánægjustunda, er við áttum saman, bæði á heimili hans, er varð mitt annað heim- ili, og á heimili okkar Laufeyjar dóttur hans. Jakob var maður hlédrægur að eðlisfari og „ekki allra“, eins og sagt er, en sannur vinur vina sinna. Hann var ákaflega skemmtidegur í viðræðum og hnyttin tilsvör hans komu oft á óvart. Hann var ákveðinn í s'koð unum á þjóðmálium, þótt hann kæmi aldrei opinberlega fram á þeim vettvangi. Hann var ekki einstrengingslegur i stjórnmála- skoðunum, aldréi flokksbundinn, en hafði ímugust á erlendum öfgastefnum. Hann hafði ekki mikil afskipti af félagsmálum, en var þó í félagi isi. rithöfunda og i stjóm þess félags uim skeið. Jakob hafði mjög gaman af að ferðast. Hann ferðaðist um allt landið, bæði í byggð og óbyggðir. Einu sinni fór hann, ásamt konu sinni, í mánaðarferðalag á hest- um, allt frá Austfjörðum til Reykjavikur. Þeirrar ferðar minntisit hann jafnan með mikilli ánægju. Þá kynntis't hann mörgu fólki víðsvegar um landið og naut frábærrar gestrisni. Oft fór hann í langar gönguferðir, ýmist í nágrenni Reykjavíkur eða á fjariægari slóðir. Eitt sinn gekk hann yfir Tvídægru að norðan og suður í Borgarfjörð. Þá var hann á áttræðisaldri. Einnig fór hann til annarra landa, ein'kum Norðuriandanna, og þá oftast til Danmerkur, sem hann hafði mikl ar mætur á. Þegar Jakob var hálf sjötugur fór hann með Gullfossi til Miðjarðarhafslanda og allt til Afrífcu. Sú ferð varð honum til mikillar ánægju. Jákob var góður sundmaður og iðkaði sjóböð nær daglega í fjölda ára, allt fram að áttræðis- aldri. Þetta styrkti hann og stæliti, enda var hann mestam hluta ævinnar mjög heilsuhraust ur maður. Mes-ta gæfa Jakohs í lífinu var, að hans eigin sögn, að eignast elskulega og glæsilega konu, Borghildi Benediktsdóttur frá Smáhömrum í Steingrimsfirði. Hún reyndist honum góður lifs- förunautur, og mat hann hana miki'ls, að verðleifcum. Hún bjó honum hlýlegt heimili, þar sem hann undi sér vel við ritstörf sin. Ég vil að lokum þakka Jakobi fyrir samfylgdina, og allt það,- sem hann gerði mér gott og minni fjölskyldu fyrr og síðar. Ég minnist þess, er hann kom síðast á heimili okkar Laufeyjar og færði mér Guðbrandsbiblíu að gjöf (í tilefni 60 ára afmælis miíns), með þeim uimmæl'um, sem ég aldrei mun gleyma. Það, sem Jakob Thorarensen hefur gefið þjóð sinni í ljóðum og sögum mun halda minningu hans á loft. Blessuð sé minning hans. Stefán G. Sigurðsson. FÉLAGSSTARF SJÁLFSTÆÐISPLOKKSINS S j álf stæðisk venf élag Arnessýslu heldur hlutaveltu í Iðnskólahúsinu á Selfossi laugardaginn 6. maí klukkan 2 eftir hádegi. Agætir munir, engin núll. — Fjölmennið. STJÓRIMIN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.