Morgunblaðið - 04.05.1972, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAl 1972
1-
t Eiginmaður minn, t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Sigurbjörn L. Knudsen,
iðnverkamaður, Jóhannesar Jakobssonar,
Skaftahlið 31, Grund.
lézt 2. þ.m. Guð blessi ykkur 611.
Valgerður Þórmundsdóttir. Vandamenn hins látna.
t Viktoria Halldórsdóttir t Þökkum samúð og vinarhug
frá Stokkseyri, við andlát og jarðarför
sem andaðist í Landspítalan- um 29. april, verður jarðsung- in frá Stokkseyrarkirkju laug- ardaginn 6. mai kl. 2 e.h. Þorkels Benediktssonar, Ökrum á Mýrum. Fyrir hönd systkina og vanda-
marma,
Börnin. Jóna Benediktsdóttir.
t Móðir mtn, Helga Hermannsdóttir, t Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar- för konu minnar og móður
verður jarðsimgin frá Akur- eyrarkirkju laugadaginn 6. maí kl. 1.30 e.h. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Anna Tryggva. okkar, Guðfinnu Magnúsdóttur, Haga í Holtum.
Guðmundur Halldórsson og börn.
t
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir,
ELlSABET ANNA HALLDÓRSDÓTTIR,
frá Hesteyri,
lézt í Landakotsspítalanum 3. maí.
Eiríkur Benjaminsson, Martha Eiríksdóttir,
Kristín Eiriksdóttir, Bjami Vilhjálmsson.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BJARNI AÐALSTEINSSON,
Hverfisgötu 40,
verður jarðsunginn frá Hallgrimskirkju, föstudaginn 5. þessa
mánaðar klukkan 3 eftir hádegi.
Aðstandendur.
Minning:
Tryggvi Ásgrímsson
í gær var' jarðsunginn frá
Fos.svogski rk j u í Reykjavik
Tryggvi Ásgrímsson, bifvéla
virkjameistari. Hanrí léat i Landa-
kotsspítala þ. 26. april eftir
stutta sjúkralegu.
Tryggvi heitinn var borinn
og barnfæddur Reykvíkingur,
fæddur 24. 7. 1893 sonur hjón-
anna Sigríðar Bjarnadóttur og
Ásgríims Gunnarssonar.
Ásgrímur dó úr taugaveiki
aldamótaárið ásamt elzta syni
sínum og kom þá í hlut
Tryggva heitins, sem var aðeins
7 ára að aldri, að aðstoða móð«r
sína eins og kraftar leyfð«, en
hún stóð þá uppi fyrirvinnu-
laus með 5 börn. Hann varð að
berjast fyrir tilverunni oft hjá
vandalausum öll sin unglingsár
og lærði þá fljótt að valkostir
voru ekki nema tveár á þeim
tímum; að duga eða drepast.
Lífsbaráttan byrjaði því
snemma hjá Tryggva og var
hörð enda bar hann þess merki
að bernsku og æskuár hans
höfðu ekki verið dans á rósum.
Sem unglingur fékk Tryggvi
strax mikinn áhuga fyrir vél-
um, enda var þá að byrja að
roða fyrir nýjum degi tsekniald
ar á íslandi. Hann gerðist þvi
;,mótorist}“ á vélbátium um skeið
en þegar bifreiðainnflutningur
hófet að ráði til landsjns varð
hann einn af þeim fyrstu, sem
gerðu bifreiðaviðgerðir að at-
vinnu sinni.
Tryggvi skildi vel að til þess
að geta verða menn að kunna og
þess vegna réðst hann fljótlega
í að mennta sig í starfsgrein
sinni.
í þeim tilgangi dvaldi hann
um tima bæði í Bandarikjunum
og Danmörku og verður það að
teljast nokkurt framtak af fé-
lausum manni á þeim tímum.
Um árabil rak hann svo eig-
ið bifreiðaverkstæði, ýmist
eirm eða í félagi með öðrum og
starfaði einnig um tima, sem bif
reiðaeftirlitsmaður og mun
hann hafa verið fyrsti starfs-
maður í þeirri grein hér á landi.
Þ>á var hann jafnframt bifreiða-
stjóri og ók meðal annars tals-
vert fyrir rikLsstjórnina á tima-
bili. Tryggvi var þvi einn af
brautryðjendum bílaaldar á Is-
landi og verður saga bifreiðar-
innar hér vart svo skráð að
ekki verði minnzt fnumherja
eins og hans.
Útför t AÐALBJARGAR ALBERTSDÓTTUR
fer fram frá Dómkirkjunni, laugardaginn 6. maí kl. 10.30 f. h.
Sigrún Þorsteinsdótir, Jón Jósefsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Stefán Þorsteinsson, Helga Þorkelsson, Garðar Þorsteinsson, Sveinbjörg Helgadóttir, Hólmfríður Sch. Thorsteinsson.
t Jarðarför föður mins.
HARALDAR SCHOU,
fer fram föstudaginn 5. maí frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2.
Óli Þ. Haraldsson.
t
Systir mín og mágkona,
HULDA INGVARSDÓTTIR.
Bólstaðarhlíð 11,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 5. maí. Athöfn-
in hefst klukkan 2.
Svava Ingvarsdóttir,
Kristinn Ólason.
t
Otför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
INGVARS VALDIMARS BJÖRNSSONAR,
Bauganesi 13 A,
fer fram frá Fossvogskirkju, laugardaginn 6. maí klukkan 10.30.
Blóm vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vilja minnast hins
létna er bent á líknarstofnanir.
Lydia Bjömsson,
Einar Ingvarsson, Sigrún Rosenberg,
Bjöm Ingvarsson, Kristín Jónsdóttir,
Thelma Ingvarsdóttir Herzl, Manfred Herzl
Jónina Ragnheiður Ingvarsdóttir
og bamaböm.
t
Þökkum hjartanlega vináttu
og samúð við andlát og jarð-
arför
Guðmundar
Kjartanssonar,
jarðfræðings
frá Hruna.
Sérstakar þakkir til lækna og
hjúkrunarfólks á deild 8 á
Landspítalanum fyrir natni og
hlýleik í hans löngu legu.
Kristrún Steindórsdóttir,
Sólveig, Kjartan
og aðrir vandamenn.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðarför
eiiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
Antons Benjamínssonar.
Jónína Sæmundsdóttir,
Benjamín Antonsson,
Margrét Ásgrímsdóttir,
Gunnhallur Antonsson,
Oddný Jónasdóttir,
Iris White,
Donald White
og barnabörn.
t
innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR OTTADÓTTUR,
Vesturgötu 46 A.
Steinunn og Pétur, Ema og Bjarni,
Helga og Sveinbjöm, Sigrid og Guðmundur,
Anna og Björgvin, Guðrún Helga.
I kringum 1950 gerðist
Tryggvi starfsmaðiur hjá Páli
Stefánssyni H.F. og þegar Sig-
fús heitinn Bjarnason i Heklu
keypti það fyrirtæki 1952 varð
Tryggvi starfsmaður þess áfram
og starfaði upp frá þvi hjá fyrir
tækjum Siigfúsar allt til dauða-
dags, nú síðustu árin sem verk-
færavörður á bifreiðaverkstæði
Heklu hf.
Tryggvi vann því fyrir-
tæki af fágætri alúð og trú-
mennsku og bar ha.g þess mjög
fyrir brjósti. Það mátti og sjá af
framkomu eiganda Heklu váð
hann að þeir mátu trúmennsku
hans mikils, enda sýndu þeir
þakklæti sitt í verki á þann
hátt sem kom honum bezt, að fá
honum verk að vinna síðustu
æviárin sem hæfði starfsþreki
hins aldraða manns.
Tryggvi heitinn hafði mjög
ákveðnar skoðanir á stjórnmál-
um og þeim fé'kk enginn hagig-
að. Hann trúði á framtak ein-
staklingsinS i þjóðfélaginu og
hafði megnustu óbeit á þeim
kvörtunar og kröfugerðarmönn-
um sem oft liggur býsna hátt
rómur, þegar þeir hrópa á aðstoð
samfé'.agsins. Hann var hertur í
þeirri lífsbaráttu sem kennir
mönnum að Guð hjrlpar þeim
einum, sem hjálpar sér sjálfur
og frá sjónarhóli uppeldisbarna
allsnægtaþjóðfélagsins er það í
rauninni afrek út af fyrir sig
að menn, sem lifðu við svipuð
kjör í uppvexti og Tryggvi heit
inn, skuli ná svo háum aldri sem
hann.
Undirritaður var samstarfs
maður Tryggva Ásgrímssonar sl
20 ár og minnist hans nú sem
góðs drengs, manns sem aldrei
lét niðrandi orð faila um aðra
menn, en var ávailt tilbúinn
með saklaust glens tii þess að
gera lífið ögn léttara, mawis,
sem hvorki þekkti leti né sér-
hlifni, manns, sem hvorki átrti í
fari sínu fais né undirferli, en
kom ævinlega til dyranna eins
og hann var klæddur, manns,
sem hrasaði en stóð ætíð jafn-
harðan upp aftur, manns, sem
reyndi aldrei að fela sinn
breyskieika en hafði kjark tii
þess að vera hann sjálfur.
1 nafni samstarfsmanna hans
bið ég Guð að blessa för hans
inn á ökunnuga landið. FjöJ-
skyldu hans votta ég dýpstu
samúð.
Finnbogi Eyjólfssem.
MORGUNBLADSHUSINU