Morgunblaðið - 07.05.1972, Side 14

Morgunblaðið - 07.05.1972, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1972 Lúðrasveitia Svanur marsérar & Laugrardalsvelli. Jón Sigrurð sson í broddi fylkingrar. „Hér vantar tilfinnan- lega útisvið“ Rætt við tvo félaga í lúðrasveitinni Svan 14 Á Alþingrishátíðarárinu gerð- ust margrir merkir hlutir í þjóð Bfi íslendingra. ELnn af þeim var stofnun lúðrasveitarinnar Svans, hún var stofnuð 16. nóv ember 1930, „til þess að efla ogr auka hljómleikalíf bæjarins," eins ogr segrir í 2. grr. félagslaga hennar. Svanur átti því 40 ára afmæli fyrir háifu öðru ári. Síðustu tónleika sína hélt Lúðrasveitin 8. apríl s.l. og í til- efni af þeim hitti Mbl. að máli hljómsveitarstjórann Jón Sig- urðsson og einhvern elzta með- liminn, Svein Sigurðsson, og innti þá tíðinda af hljómsveit- arstarfinu. „HÉR VANTAR TILFINNANLEGA ÚTISVI«“ „Síðustu tónleikar okkar voru einhverjir þeir erfiðustu undir minni stjórn, og kom margt til. Bæði var efnisvalið erfitt, við lékum þarna verk eftir Tchaikovsky og Faust eft ir Gounod, og svo hitt, að þetta kostaði miklar æfingar, en það er sannarlega gaman að vinna með þessum áhugasömu mönn- um,“ sagði Jón Sigurðsson, trompetleikari í Sinfóníuhljóm- sveitinni, stjórnandi lúðrasveit arinnar, en hann hittum við fyrst. „Hvað hefur þú lengi stjórn að Svaninum, Jón?“ „Það verða orðin 8 ár í haust, ég byrjaði 1965. Meðlimirnir voru 28, þegar ég byrjaði, en wú eru þeir 42 talsins. Við æf- um tvisvar í viku, og það er mikil fórn hjá félögunum að leggja þetta á sig, þvi að allt er þetta ólaunað." „Fáið þið ekki styrki frá því opinbera?" „Jú, og þeir skulu ekki van- þakkaðir, en duga skammt. Sveinn Sigurðsson með þungu og erfiðu túbuna, sein hann hefur leikið á í 42 ár. Styrkur borgarinnar fer allur í húsaleigu vegna æfinga, en við höfum æfingaaðstöðu í húsi við Grensásveg. En þá er eftir að endurnýja búninga, og hljóð færin vilja ganga úr sér, og allt kostar peninga. Og' satt bezt að segja liðum við af pen ingaskorti, sem kemur fram í því, að við getum ekki keypt okkur nótur og það er alvar- leg vöntun. 1 lúðrasveit okkar er mjog margt af ungu fólki, og við erum þakklátir fyrir það. Einnig hefur það viðgeng- izt lengi, að lúðrablásarar ut- an af landi, sem einhverra hiuta vegna dveljast í Reykja- vík lengri eða skemmri tíma hafa átt athvarf hjá okkur, og ég vona að það hafi verið til gagns og gleði fyrir báða að- ila. Af hljómlistarmönnum okk ar eru aðeins 3 atvinnumenn, allir hinir eru áhugamenn." „Fyrir utan tónleikana 8. april, við hvað hafið þið feng- izt?“ „Við erum t.d. nýbúnir að taka upp sjónvarpsþátt, en mér er ekki kunnugt um, hvenær hann verður á dagskrá. Ann- ars er svo næst á dagskrá Sum ardagurinn fyrsti (samtalið við Jón fór fram fyrir þann dag.) í»á leikum við fyrir skátaskrúð göngu frá Skólavörðuholti að Háskólabíói og eftir hádegi fyr ir Sumargjöf, og hefur svo verið í mörg ár. Þá leikum við alltaf 1. maí, og er það einnig fastur liður. Og ekki má gleyma 17. júní, og síðan tekur við sum arvinnan, leikur á ýmsum skemmtisamkomum og svo al- mennir útihljómleikar, og þá væri gott að hafa útisvið. Hér vantar tilfinnanlega úti „pav- illon“. Það er oft svo erfitt að hemja nóturnar. Ég hef nú eng an sérstakan stað í huga fyrir slíkan pavillon, en það væri hugsanlegt að hafa hann úr flekum á hjólum, sem svo mætti flytja hvert sem er. Já, það getur verið býsna baga- legt að missa nótur út í veðr- ið, og hefur oft komið fyrir." „Þið hafið fengið orð fyrir skemmtilega marséringu?" „Já, við höfum alltaf lagt mikla rækt við rétta og skipu- lega marséringu, og fólk kann vel við það.“ „Þið hafið konur með ykkur í sveitinni, er það ekki?“ „Jú, um þessar mundir leika Jón Sigurðsson trompetleikari, stjórnandi lúðrasveitarinnar Svans. með okkur 6 stúlkur, ein á horn, en hinar á tréblásturs- hljóðfæri. Yngsti meðlimurinn er 15 ára og sá elzti að verða sextugur." „Ertu nokkuð að hætta stjórninni, Jón?“ „Nei, en mín skoðun er samt sú, að sami stjórnandi ætti ekki að vera alltof lengi, það er hvíld fyrir báða, og nýr stjórn andi kemur ævinlega með nýj- an og ferskan blæ. Annars er brýnasta verkefni okkar að reyna að koma okkur upp fé- lagsheimili. Við erum með dýr hljóðfæri, og þau þurfa örugg- an samastað. Við njótum mikils góðs af styrktarmeðlimum okk ar, en þeir fá fyrir 300 króna gjald á ári 2 miða á alla tón- leika, sem við höldum. Við er- um þakklátir fyrir þá, en þeir mættu svo sannarlega vera fleiri, og það er vafalaust hægt að auka við tölu þeirra, væri farin herferð til að fjölga þeim, og með auknum fjölda þeirra, myndi starfið aukast, við fengj um nótur, og hver veit nema félagsheimilið væri þá á næsta leiti,“ sagði Jón að lokum. „VÆRI ÉG UNGUR ! ANNAÐ SINN, MYNDI ÉG BYR.IA AÐ BLÁSA, EN LÆRA MEIRA“ „Ja, ég er nú búinn að blása í 42 ár, og ýmist á 1. eða 2. túbu, en eiginiega lærði mað- ur aldrei neitt á þetta,“ sagði aldursforseti Iúðrasveitarinn- ar, Sveinn Sigurðsson, maður- inn sem í 42 ár hefur borið þyngsta hljóðfærið, bassatúb- una. „Ég byrjaði 15 ára að læra, en árið áður hafði ég ver ið í orgeltímum hjá Jóni ís- leifssyni, svo að ég þekkti nót- urnar, þegar ég byrjaði á túb- una.“ „Er ekki fjarska erfitt að bera svona þungt hljóðfæri og blása i það, Sveinn?“ „Jú, túban er anzi þung, þetta 18—30 kg. Einkanlega er þetta erfitt, þegar við þurfum að ganga langan veg t.d. und- an skrúðgöngum bæjarhluta á milli, en á æfingum og hljóm- leikum get ég látið hana hvíla á standi, og það léttir. Ég var orðinn slæmur í öxlinni af þessu. Og það þarf griðarmikið loft, því að það er erfitt að blása, og það er ekki hægt að setja i þetta nema fullþroskaða menn. Ég var 18 ára, þegar ég byrjaði. Við erum tveir með túbur, annar með 1. túbu og ég með Souza-túbu, sem er heitin í höfuðið á marsakóng- inum. Á myndinni af okkur frá 1935, sem þú sérð hérna í af- mælisritinu, er enginn eftir nema ég. Fyrsti stjómandi Svans var Hallgrímur Þor- steinsson, og var hann í 5 ár, en allra lengst hefur stjórnað okkur Karl Runólfsson tón- skáld, eða í 21 ár.“ „Manstu ekki eftir mörgum stjórnendum, Sveinn? Gætirðu ekki talið upp einhverja þeirra?" „Jú, við höfum haft marga stjórnendur, og allir höfðu þeir eitthvað við sig. Fyrir ut- þurfi færri menn á skutarana. Það skyldi þó aldrei vera að 20 menn á skuittogairia hefðu sömu laun og 31 maður á síðutogara. Reikna má með því, að olíu- kostnaður verði meiri og viðgerð arkostnaður svipaður, þótt um ný skip sé að ræða. Afla- möguleikar svipaðir, ef ekki minni, þar sem skuttogari er að- eins með eitt undirslegið troll, en siðutogari með 2. Ef illa rifn- aði á skuttogara, tæJci meiri tíma á þeim að gera við vörp- una, eða skipa yfir á annað troll en á síðutogara. Þar mundi strax tapast timi og afU. an þá tvo, sem ég nefndi, minn ist ég Jóhanns Tryggvasonar. Hann var mikill stjórnandi, og að öM'um öðrum ólöstuðum, hef- ég aldrei orðið fyrir eins mikl- um áhrifum af nokkrum stjóm anda eins og honum. Þá var Þórunn dóttir hans aðeins 5 ára. Þeir Lansky — Otto og Moravek, hlupu sumartíma í skarðið fyrir Karl Runólfsson, báðir flinkir tónlistarmenn, Þá má nefna Árna Björnsson tón- skáld, Björn Ma-rínó Björns son, Gunnar Sigurgeirsson organleikara, og svo Jón G. Þórarinsson, sem var á undan Jóni Sigurðssyni, sem hefur nú um 8 ár stjórnað okkur. Allir voru þessir menn miklir áhuga menn um tónlist, og ánægjulegt að starfa með þeim öllum. Já, það má segja, við höfum verið heppnir með stjórnendur. Fyrr á árum lékum við mik- ið úti á landi um helgar, við lékum á skemmtunum, sem haldnar voru í nágrenninu, t.d. í Þjórsártúni, Álfaskeiði, og svo héldum við hljómleika á Eyrarbakka og Stokkseyri, suð ur með sjó og víðar, og héld- um svo ball á eftir til að hressa upp á fjárhaginn. Svo höfum við farið stórferðir, sem við nefnum svo til ísafjarðar og Vestmannaeyja. En eins vil ég geta, sem alltof sjaldan hefur verið minnzt á, hve konur okk- ar eiga mikinn þátt í þessu starfi okkar, hve þær hafa sýnt okkur mikla þolinmæði, þegar við höfum verið langtím- um burtu frá heimilunum á æf ingum og við hljómleikahald. Þær hafa verið dásamlegar." „Líklega hafið þið haldið hópinn vel, aldrei neinar krit- ur, Sveinn?" „Nei, milli okkar félaganna hefur aldrei rikt nein óvild, máski svolitill metingur, heil- Sveinn Sigurðsson, aldursfor- seti í Svan. brigð samkeppni, og ég sé ekki eftir þeim tíma, sem i þetta hef- ur farið, og þó höfum við æft við hin verstu skilyrði, og oft verið á hrakhólum með æfing- arhúsnæði og þeir eru orðnir margir æfingarstaðirnir, og get ég nefnt þér t.d. ganginn í Aust urbæjarskólanum, siðar í Gagn fræðaskóla Austurbæjar, Franska spítalanum, í bragga við Skátaheimilið, í þvottahúsi frá Bretunum á Skólavörðu- holti, einu sinni í fiskhúsi í Flosaporti, í fiskhúsi hjá Kveldúlfi, í húsnæði strætis- vagnanna við Hringbraut, já, það var víða komið við. Ég held ég sé búinn að gegna öll- Framhald á bis. 23. Menn eru famir að sjá, að hér eru á ferðinni mál, sem þarf að emdurskoða rækilega. Göimilu skipin okkar eru í fullium gangi ennþá, og mega alls ekki stöðvast, þrátt fyrir nýja togara. Forráðamönnium þjóðarinnar ber að sjá svo um að stöðvun flotans komi alls ekki til, hvorki fyrr né síðar. Okkur veitir ekkert af okkaur gangfæra togaraflota til þess að keppa við erlenda togara, seim eru og verða á okkar mlðuim um ðkamin ár, þrátt fyrir 50 mílna landhelgina. Bjarni Rafn Guðmundsaon. Togaraútgerðin 1972 Enginn skyldi efast um það, að bogaraútgerð á í mjög mikl- um erfiðleikum þessa dagana. Kafa þegar fjögur skip stöðv- azt vegna þess að hver.gi er hægt að fá fyrirgreiðslu til þess að halda rekstrinum áfram. Mjög mikil skömm er að slíku og ér ekki að sjá að hið opin- bera geri neinar ráðstafanir í málinu, svo að hægt sé að halda rekstrinum áfram, sómasamlega. Varla mun líða á löngu þar til fieiri skip stöðvast. Þesisi þró- un lýsir vanhugsun og ábyrgð- ariieysi stjómvalda. Ef ekki verður tekin skjöt ákvörðun i málinu, gæti farið svo að lands menn fengju nægju sína af því að horfa á bogara bundna við bryggjumar um ókominn tíma. Þótt .skipin séu orðin gömul er mikið eftir af þeiim enmþá, og hatfa þau því mikinn möguleika á því að skapa þjóðarbúinu drjúgan skilding i kassann um ókomin ár. Ekki síður en nýr skuttogari, er kæmi aldrei til með að afla fyrir iánum og vöxt um, hvað þá að hafa upp í reksturskostnað. Það færi betur að ríkissjóð- ur sæi sér fært að greiða með nýjum skuttogara, og útvega þeim lán kr. 40—50 milljónir á ári, svo að þeir þyrftu ekki að stöðvast fljótlega eftir að þeir koma til landsins — þar sem allt virðist lokað þeim sikipum sem fyrir eru. Flestir einblína á, að það

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.