Morgunblaðið - 20.05.1972, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAl 1972
fcomið á sama stig og fýrir sam
fcomurnar. Krak'karnir hurfu
eins íljótrt og þeir birtust."
Þama var lítiU áhugi sýnd-
ur á að halda uppi starfi fyrir
unga fólkið, eftir að samkomun
um lauk, oig því för sem fór.
Hreyfingin hefur fengið á
sig talsverða gagnrýni. Sagt
hefur verið, að siðfræði Jesú-
fólksins byggist einigðngu á ein
földu vali á milli rétts
og rangs í hverjum vanda. Og
sumum finnst lítið til koma,
þótt þetta umga fólk lesi Bibli-
una á hverjum degi og leiti þar
að lausnum á öllum vanda,
fyrst það afneitar algjörlega
mannlegri vizku. Ennfremur
hefur verið gagnrýnt, hversu
einstrengingsleg viðhorf þessa
fólks séu. Ungur maður sagði:
„Jesús er allt sem skiptir máli
— það er ekkert pláss fyrir
neitt annað.“ Þetta viðhorf,
segja þeir sem gagnrýna hreyf
inguna, veitir auðveldan flótta
frá hinni erfiðu leit að raun-
særri trú — og ef slík trú er
ekki til staðar, segja þeir,
verða nýir hðsmenn ann-
að hvort ofstækismenn eða gef
ast algeriega upp. Einnig má
sjá meðal Jesúfðliksins áhuga-
leysi um vandamál heimsins.
Einn nýfrelsaður sagði, er
hann var spurður um kynþátta
vandamál: „Ég þarf ekkert að
hugsa um þau. Jesús segir
manni hvað rétt sé að gera, þeg
ar að þvi kemur.“
En nokkur hluti þeirrar
gagnrýni, sem að hreyfingunni
beinist, er algerlega óréttmæt-
ur. Ýmis ungmenni þýkjast vera
í hreyfingunni, bara til að láta
taka eftir sér, og hugarfar
þeirra er algjörlega óbreytt frá
því sem áður var. Sem dæmi
um slíkt má nefna eiturlyfja-
sjúkling, sem tók þátt í
mótmælagöngu i Washington,
D.C. Hann hélt því fram, að
hann tilheyrði Jesú-fólkinu, en
hann hafði aldrei lesið Biblí-
una, fór ekiki í kirkju og talaði
ekki við amnað trúað fólk. Um
þetta leyti bjó hann með tán-
ingsstúlku.
Þó er það rétt, að það er
bæði of og van í hreyfingunni.
í vissum tilvikum er ofstækið
svar við slæmu ástandi í kirkj-
unni — lítið líf, stirt guðsþjón-
ustuform, lítil trú, lítiU kærleik-
ur í samfélaginu, hræsni og lít-
ill skiimingur á andlegum mál-
um en þó sjást þess ekki merki,
að spennan innan hreyfingar-
innar sé í rénun. Jesú-fólk sæk-
ir kirkjurnar til að fá leiðsögn
í bibhulestri og þar er tekið
hjartanlega á móti því.
Kápusíða bókarimtar með fvá-
sögnum af starfi David VViJker-
son.
I gærkvöldi kom hingað til
lands hópur Jesú-fólks fiá Svi-
þjóð. Þetta fólk mun koma
fram á hvitasunnusanikomunni
í Laugardalshöll annað kvöld
og flytja þar ljóð og lög og
annan boðskap um Krist til
unga fólksins. Þessir Svíar, sex
talsins, hafa undanfarið vakið
athygli í heimalandi sínu og
víðar, þar sem þeir hafa hald-
ið samkomur að jafnaði tvö
kvöld í viku í kirkjum og sam-
komuhúsum um allt landið, og
viðfangsefnið hefur verið
„Horfðu é Jesú“. Þau hafa al
gerlega frjálst form á þessum
samkomum og ekkert er ákveð
ið fyrirfram um dagskrá þeirra.
Tilfinningin hverju sinni ræð-
ur þvi hvað gerist. Kannski
byrjar eitt þeirra að syngja, og
hin taka undir. Siðan fer ann-
ar með bæn, og sá þriðji vitn-
ar. Ekki eitt einasta orð er
lesið af blaði, nema ljóð skáld-
konunnar Ylvu Bggehorn, sem
er ein í hópnum. „Þetta tekst
af því að við erum svo sam-
stillt," segja þau, „og af þvi að
Jesús er alltaf með.“
1 lokin er rétt að spyrja:
Hver hafa orðið áhrif hreyf-
ingarinnar?
Kaþólskt timarit hefur svar-
að þessari spurningu á þessa
leið:
„Nú er eining og samvinna,
þar sem áður voru skil á milli
stétta, kynþátta og kynslóða.
Þetta fólk lifir einföldu liferni
og það sýnir vilja til að þjóna
öðrum og það telur sig í flokki
með fátækum. Það sýnir greini
leg merki sjálfsstjórnar.“
Er tímaritið Life hafði fjall-
að um hreyfinguna, bárust því
bréf frá mönnum, sem kváðust
óttaslegnir vegna þeirrar yfir-
borðsmennsku, sem þeir
kváðust sjá hjá einstaklingum
innan hreyfingarinnar. Sagt
var, að þetta Jesú-fólk léti sig
engu varða félagsleg vandamál
í trúboði sínu, og þá áttu bréf-
ritarar einkum við strið, meng-
un, kynþáttafordóma og fátækt.
Það er rétt, þegar litið er á
heildina, að þetta kristna fólk
stendur ekki í mótmælaaðgerð-
um vegna stjórnmálalegra eða
félagslegra mála eða tekur þátt
í deilum um ályktanir á kirkju
fundum. En þetta fólk gefur
fæði, klæði og húsnæði því
fólki, sem þess þarfnast og á
sinin hátt hjálpar það til að
stöðva stríð, með því að ráðast
á kjarna vandamálsins.
Jakkcsr — pils
— buxur — kápur
Vörumarkaöurinn hf
Ármúla 1 A.
Vefnaðar- og fatadeild, s. 86-113,
Húsgagnadeild, s. 86-112,
Matvörudeild, s. 86-111.
Eru þeir
á heimsmælikvaröa ?
Kauptu nýju L.P. plötuna
og dæmdu sjálfur
^corpion
Hljómplötur