Morgunblaðið - 26.05.1972, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1972
21
— Uppeldismál
Framhalð af bls. 17
ir t.d. skriftarnám siðar, að ekki sé
talað um þá gleði, sem barnið hefur
af þessu.
Félag-sþroski. Félagsskapur er öll-
um börníum nauðsyinlegur. Leikskól-
amir og dagtieimilin gefa borgar-
börnum einstakt tækifæri til að leika
við jafnaldra sína. Eðlislægri fé-
lagsþörf er fullnægt, og félagsþrosk
inn eflist. 1 allri leikstarfsemi verð-
ur að gæta þess vandlega að hafa
deildimar eða hópana ekki of fjöl-
menna, og reyna eftir fremsta megni
að skipta börnunum niður í smáhópa,
hvenær sem færi gefst.
Börnin læra flest smám saman, að
í leikskólanum eða á dagheimilunum
er það algerlega undir þeim sjálfum
komið hvort þau verða vinsæl af fé-
lögunum eða ekki. Ef þau er í sífelld
um slagsmálum, troðast fram fyrir
aðra, eða eru væflin og kvartsár,
verða þau óvinsæl. Þau verða að
læra að virða hvert annars rétt, fara
eftir röð, skiptast um leikföng o.
s.frv., ef þau vilja dafna í hópnum.
Hlutverk fóstrunnar er hér mjög
veigamikið. Hún verður að sjálf-
sögðu að leiða hópinn á þessari
bi’aut, hjálpa börnunum til að leysa
vandamál sín og koma i veg fyrir
árekstra.
Er ljóst, hversu mikilvægt hið fé-
lagslega uppeldi er, öllum börnum,
en ekki sízt einkabörnum og börn-
um, sem eru langyngst og eiga lítinn
kost á samneyti við börn á svipuðu
reki og þau heima hjá sér. Er oft á-
berandi hversu illa slíkum börraum
gengur að samlagaist öðrum börnum,
vegna þess að þau hafa aldrei þurft
að taka tillit til annarra og finnst, að
þau eigi að vera rétthærri en aðrir.
Undir handleiðslu góðrar fóstru geta
börnin lært að vera góðir félagar og
að umgangast önnur börn með
ánægju. Ég vil taka undir með litlu
stúlkunni, sem sagði: „Leikskólinn
gerir okkur börnin að vinum.“
Á leikskólum og dagheimilum venj
ast börn ennfremur á að líta á full-
orðna fólkið sem Vini, sem leita má
til í gleðd og sorg. Fós'tran er ofit
trúnaðarvinur barnanna. Þau leita
til hennar eins og góðrar móður. Oft
verður þeim á að segja, „mamma“ við
hana, og sýnir það ef til vill gerst
hug þeirra til fóstrunnar.
Þessa frjálslegu og eðlilegu af-
stöðu til fóstrunnar yfirfæra börnin
oft yfir á kennara sinn, er þau síðan
hefja skólanám. Þau líta strax á hinn
,nýja ókunna keranara sem vin og
vænta sér alls góðs af honum eins og
af fóstirumimi sinni. Br þeim þetta ör-
ugglega mikill styrkur í upphafi
skólanáms.
Hið félagislega uppeldi barnanna,
sem leikskólar og dagheimili veita
á svo einfaldan og sjálfsagðan hátt,
er e.t.v. merkilegasti og afdrifarík-
asti þátturinn i uppeldishlutverki
þessara stofnana, ef vel tekst til.
í næstu grein verður áfram rætt
um uppeldisgildi leikskólastarfsem
innar og verður þá aðallega fjallað
um áhrif lei'ks'kólastarfseminnar á til
finninga- og greindairþroska barns-
ins. Að lokum verður síðan stuttlega
vikið að mismun á starfsemi leik-
skóla og dagheimila og nauðsyn þess
fyrir foreldra að gera sér hann Ijós-
an. Valborg Sigurðardóttir.
— Fiskveiðar
Framhald af bls. 17.
ráðstefnunni verði fresitað.
Síðast þegar ég vissi voru
77 lönd fylgjandi út-
færslu fisikiveiðiliögsög'U en að
eins 30—35 á móti. Þau lönd,
sem eru á móti vilja draga
máliö á langinn, þar sem þau
vi'ta sig í minniihluta. í öðru
la-gi vinnum við þegar að því
að sannfæra þimgimeran fyflkja
oklkar um það, að fram-
kvæma þurfi strax þær regl-
ur, sem við vonuim að hafrétt
arráðstefnan setji. 1 þriðja
lagi reynum við að sýna þing
mönraum fram á að vi'ð verð-
um að færa út landhefligina
strax, ef samikomulaig næst
eikki á náðstefnunni.“
Bandax-ikin hafa gert samn
ing við Brasiilí'Uistjórn um það
að túrafiskbátar frá Banda-
rikjunum fái að veiða á viss-
um stöðum innan 200 míflna
fiskveiðilögsög'u Brasiliu. Ég
spurði Gri'ce um þennan samn
ing.
„Við binduim miklar vonir
við hann þvi að varla
er hægt að semja um leyfi til
að veiða innan 20 m’íflna fisk
veiðilögsögu án þess að við-
urkenna um leið að hún sé til.
Þetta eru þó eikki nema von-
ir enn, því að við höfum
etoki ferngið að viita neitt um
samningiinn. Af einhverjum
óikunnum ástæðum hvíldr
tnikil leynd yfir honum. Við
höfum liika ástæðu tifl að ætla
að afstaða ríkisstjórnarinnar
í Washiington sé eitthvað að
breytast til batnaðar."
_ Frank Grice hefur hitt
ýmsa Islendinga og kom þvi
meðal annars til leiðar að
Hanis G. Andersen var feng
inn til að halda erindi, þeg
ar ríikisstjórinn, Francis Sar
gent, héflt fund með þing
mönnum svæðisins, til að
kynna þei«n fiskimál. Grice
sagði að lotou.m.
„Ég hef mikinn áhiuga fyr
ir að útfærsla fiskveiðilög
sögunriar gangi vel hjá ykk-
ur íslendirngium. Þið hafið ver
ið brautryðjendur í þessum
málum á Norður Atlantishafi
og eruð enn. EJf ég get eitt-
hivað gert tifl hjálpar vil ég
igera það því það gagnar oikk
ur Mika að lofcum. Mér er
senniflega Ijósara en flest-
um öðt’um, efti'r að horfa á
það sem hér hefur geczt, að
það má eyðileggja fisktveiðar
Islendinga á örfáxim árum.“
1972
Lærið undirsiöðuatriði skíðaiþróttarinnar í sumarfríinu.
í*á vcrður næsti vetur tiihlökkunarefni. Aðstaðan er mjög
góð í fjölliinum og innanhúss eru heit böð, góður matur
og góöir félagar. Kvöldvökurnar eru þegajr landsfrægar.
Brottfarardagar í sumar:
Frá Reykjavik: Dagafj.: Tegund námskeiðs: Verð:
Júní 19. mánud. 6 dagar unglingar 12—16 ára 6.400,00
Júni 24. laugard. 7 dagar almennt 9.400,00
Júni 30. fóstud. 7 dagar almennt 9.400,00
Júli 6. fimmtud. 7 dugar almennt 9.400,00
Júli 12. miðvikud. 7 dagar .almennt 9400,00
Júli 18. þriðjud. 7 dagar almennt 9.400,00
Júlí 24. mánud. 7 dagar almennt 9.400,00
Júli 30. sunnud. 6 dagar fjölskyldur 8.200,00
Ágúst 4, föstud. 4 dagar Verzlunarmannah. skiðainót 5.600,00
Ágúst 8. þriðjud. 6 dagar unglingar 15—18 ára 6.400,00
Agúst 13. sunnud. 6 dagar unglingar 15—18 ára 6.400,00
Ágúst 18. föstud. 6 dagar unglingar 14 áK og yngri 5.400,00
Ágúst 23. miðvikud. 6 dagar unglingar 14 ára og yngri 5.400,00
Ágúst 28. mánud. 7 dagar almennt (lokaferð) 8.900,00
Innifalið í námskeiðsgjaldi: Ferðir,
faeði, m.a. á báðum leiðum, gisting,
skiðakennsla, skiðalyfta, leiðsögn í
gönguferðum, ferðir frá skóla í
skíðabrekkur og kvöldvökur. Skiða
og skóleiga á staðnum.
Bokanir og farmiðasala.
Ferðaskrifstofa Zoega,
Hafnarstræti 5, Rvk.
sími 2 55 44.
FEROASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum
m
m 8 JOHNSON H.L
Útbaö
Framkvæmdastjórn byggingar orlofshúsa
að Svignaskarði í Borgarfirði óskar eftir til-
boðum í smíði 9 orlofshúsa í landi Svigna-
skarðs.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Iðju,
Skólavörðustíg 16, Reykjavík, á skrifstofu-
tíma, kl. 9—6 dagl., nema laugard. kl. 9—12,
gegn 10 þúsund króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð föstudaginn 9. júní
1972.
Kodak 1 Kodak I Kodak 1 Kodak 1 Kodak
KODAK
Litmqndir
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
Kodak 1 Kodak f Kodak I Kodak I Kodak