Morgunblaðið - 26.05.1972, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1972
t
Eiginmaður minn,
Þórður Guðmundsson,
Hæðargarði 52,
lézt að kvöldi hins 24. þ. m.
að Heilsuvemdarstöðinni.
Ingibjörg Ingvarsdóttir.
t
Eiginkona min,
Ásta Þórdís Flygenring,
fædd Tómasdóttir,
lézt að hjúkrunardeild Hrafn-
istu 25. þ. m.
Sigurður Flygenring.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
GUÐRÍÐUR GUÐJÖNSOÓTTIR
frá Nýhöfn Eyrarbakka,
verður jarðsungin laugardaginn 27. þ.m. kl. 1,30 frá Eyrar-
bakkakirkju.
Krístín Jónsdóttir, Jóhann Jóhannsson,
Ragna Jónsdóttir, og bamaböm.
t
Móðir okkar
GUÐBJÖRG SVANLAUG ÁRNADÓTTIR
verður jarðsungin laugardaginn 27. maí kl. 2 frá Keflavíkur-
kirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en bent á að styrkja
Slysavarnarfélagið.
Helga Guðjónsdóttir, Ólafur Guðjónsson,
Þorvaldur Guðjónsson, Eyjólfur Guðjónsson.
t
Maðurinn minn
VILHJÁLMUR HÁKON ELlVARÐSSON,
klæðskeri,
lézt að heimili sinu, Kaplaskjólsvegi 29 miðvikudaginn 17. þ.m.
Jarðarförin ákveðin mánudaginn 29. maí kl. 1,30 frá Foss-
vogskirkju.
Þuríður Jóhannesdóttir,
börn hins látna og aðrir vandamenn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og dóttir
ÞURlÐUR SKÚLADÓTTIR THORARENSEN,
sem andaðist laugardaginn þann 20. þ.m. í Borgarspítalanum,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. maí
kl. 10,30 f.h.
Guðrún Hauksdóttir, Eiríkur Bjarnason,
Skúli Hauksson, Elsa Pétursdóttir,
Vigdis Hauksdóttir, Hilmar Baldursson.
Haukur Hauksson,
Vigdís Thorarensen,
t
Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
BENÓNÝS FRIÐRIKSSONAR
frá Gröf.
Guð blessi ykkur öll.
Katrín Sigurðardóttir,
böm, tengdabörn og bamaböm.
t
Hjartanlega þakka ég öllum jjeim, sem sýnt hafa mér samúð,
við fráfall mannsins míns
ÓSKARS GUNNARSSONAR
Sérstakiega þakka ég Smábátaeigendafélagínu Huginn á Isa-
firði og einstökum meðlimum þess. Vörubilstjórafélagi Isa-
fjarðar, Sjómannafélagi Isafjarðar og rækjuvinnslustöðvunum
I Hnifsdal og Isafirði, sem sýnt hafa mér sérstaka samúð með
höfðinglegum peningagjöfufn.
Ég bið Guð að launa ykkur alla velvild til min.
Valdis Þorgilsdóttir,
Pólgötu 6. Isafirði.
Alfreð Jónsson, Akur-
eyri — Minning
Fæddur 12. október 1896.
Dáinn 10. maí 1972.
„SÆLL og blessaður, vinur, ég
heiti Alfreð Jónsson." Þannig
kynnti hann sig fyrix mér fyrír
meir en tveimur áratugum, en
ekki hélt ég þá, að leiðir okkar
ættu eftir að liggja saman svo
lengi og svo náið sem raun varð
á um tveggja áratuga skeið.
Alfreð var fæddur árið 1896
og ólst upp á Akureyri í systkina
hópi að þvi er hann sagði mér
t
Minnin garathöfn um
Láru Sturludóttur
frá Vestmannacyjum,
til heimilis að Birkimel 10A
í Reykjavík,
fer fram í Neskirkju laugar-
daginn 27. maí kl. 10 f.h.
Börnin.
við öllu þrengra húsnæði en
menn sætta sig nú við.
Framan af ævi fékkst hann við
ýmislegt á Akureyri og á Siglu-
firði, átti um skeið verzlun,
keypti einnig bát og rak útgerð
og vann auk þess árum sarr.an
hjá Oddi Thorarensen lyfsala á
Akureyri. Síðar gerðist hann
iausráðinn starfsmaður hjá Kaup
félagi Eyfirðinga, vann við vöru
móttöku og fleira og hafði þar
um skeið verkstjórn á hendi. En
frá ársbyrjun 1947 var hann fast
ráðinn í Stjörnuapóteki, Akur-
eyri, og frá þessum árum eru
kynni mín af Alfreð og endur-
minningar um hann.
Og þegar litið er yfir farin ár
er mér efst í huga sá óbilandi á-
setningur Alfreðs að láta ekfeert
það ógert á sínum vinnustað sem
í hans valdi stóð að framkvæma
og láta aldrei bugast þótt verk
efni hlæðust upp bæði utan húss
og innan. Sjaldan var hann fjar-
verandi þótt veikur væri enda
skemmtilega laus við allar vanga
veltur út af eigin heilsu. Skilaði
t
Jórunn Kristleifsdóttir,
Sturhi-Reykjum,
verður jarðsungin frá Reyk-
holtskirkju laugardaginn 27.
mai-kl. 14.
Vandamenn.
t
Faðir okkar,
Sigurjón Sigurðsson,
Sigtúni 23, frá Miðskáia,
Eyjafjöllum,
verður jarðsunginn laugar-
daginn 27. maí kl. 2 frá
StóradaLski rk j u.
Börnin.
t
Útför dóttur minnar
JÓNlNU JÓNSDÓTTUR SÖLVASON
fer fram laugardaginn 27. maí k1. 2 e.h. frá Lágafellskirkju.
Kristjana Sturludóttir,
Hliðartúni 1, Mosfellsveit.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför litlu dóttur okkar, barnabarns og systur
ÁSTU MARÍU
Svala Svavarsdóttir, Sigurður Vilhjálmsson,
Asta Þorláksdóttir, Svavar Árnason,
Steinunn Sigurðardóttir, Vilhjálmur Halldórsson.
Steinun Una.
t
Jarðarför mannsins míns,
BJARNA ÁRNASONAR,
sem lézt að Hrafnistu 19. mai, fer fram í Laugarneskirkju
laugardaginn 27. maí kl. 10,30 árdegis. — Þeim sem vildu
minnast hans er vinsamlegast bent á liknarstofnanir.
Kristjana Ölafsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
BJÖRG VIGFÚSDÓTTIR,
Brekkugötu 3, Akureyri,
sem lézt 19. þ.m. verður jarðsungín frá Akureyrarkirkju laug-
ardaginn 27. þ.m. kl. 1,30.
Sólveig Sveinsdóttir, Rafn Sigurvinsson,
Bjarrti Sveinsson, Asta Sigmarsdóttir,
Ami Sveinsson, Ásta Ólafsdóttir
og barnaböm.
hann og sínu dagsverki hinn síð-
asta dag sem aðra daga.
Jafnan var Alfreð léttur í
skapi og hafði frá ýmsu að segja
enda vinsæll og mörgum kunn-
ugur, einfeum fannst mér þægi
legt hve morgunglaður hann var.
Raungóður var hann og fyrir
fósturbörnum sinum og þeirra
fjölskyldum ól hann sMka önn
að ég hygg það eiga sér fá dæmi.
Alfreð var skapmaður og undi
)lla ósanngirni eða átroðningi en
erfði ekki misgerðir og var fljót
ur til sátta.
Kvæntur var hann Báru Sigur
jónsdóttur, hinni ágætustu konu,
sem lifir mann sinn og áttu þau
einkar fagurt heimili að Aðal-
stræti 22. Var Alfreð heimakær
og leit á það sem lifs síns ham-
ingju að eiga þessa konu og
þetta fallega heimili.
Mikið fékkst Alfreð við garð-
yrkju, átti stóra garða og var
árum saman allstór kartöflufram
leiðandi. Var hann þó hin síðari
ár að mestu hættur garðvinnu
vegna heilsubrests, en í góða
veðrinu i vor hafði hann við orð
að slæmt væri nú að vera gam-
al og geta ekki stungið upp og
sett niður.
Það fór þó svo að hann lagði
leið sina í garðinn sem fyrr og
einmitt þar átti hann sín síðustu
augnablik og hné þar örendur
niður í sína eigin gróðurmold.
Að lokum votta ég eftirlifandi
konu hans og fjölskyldu samúð
mína og þér, vinur, þakka ég fyr
ir samfylgdina í önn hinna virku
daga, sem voru liðnir að kvöldi
um leið og þeir byrjuðu.
Akureyri, 17. maí.
Baldur Ingimarsson.
Vörn
gegn vítum
Harma ber þá blindu ís-
lenzkra skákmanna, sem 13. maí
samþykktu órökstuddar vitur á
þann einstakling, sem upphaf-
lega var beðinn að áætla verð-
launaupphæð íslenzka tilboðs-
ins i heimsmeistaraeinvígið,
semja það í smáatriðum í upp-
kasti, vélrita tilboðið, innsigla,
flytja það til Hollands og bíða
þar yfir áramót, þar sem hann
lenti í hinni alþjóðlegu opnumar-
nefnd elnivígisins.
Sá, sem hér um ræðir hefir
setið flest þing FIDE íslendinga,
er eini skákmeistari í heimi, sem
talar íslenzku, en.sku og rússin-
esku, hann þekkti þá Spassky
og Fischer, og vildi því ekki
hlaupa frá verki, sem hann
hafði verið beðinn að starfa að,
fyrr en íslenzka tilboðið væri
frágengið.
1 stuttu máli — með fjórum ut
anlandsferðum, fortölum við ann
an keppandann, blaðaskrifum
og fleiri aðgerðum, hefir hann
ljóslega bjargað málinu einu
sinni, ef ekki oftar. Hann hefir
reynt að upplýsa almenning
um sannleikann í flækjum máls
ins, og veitt reynslulitlum stjórn
anda íslenzkra aðgerða leiðsögn
og nauðsynlegt aðhald, þeg-
ar hann hefir framið aug-
Ijós axarsköft.
Forseti Skáksambands Is-
lands hefir beitt þeirri aðferð í
þessu máli, að bera á txvrð með-
Framhald á bta. 81