Morgunblaðið - 26.05.1972, Page 28

Morgunblaðið - 26.05.1972, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. MAl 1972 TYITIJG STULKA OSKAST. I þýðingu Huldu Valtýsdóttur. sér stað, sem snerti mig sjálfan, eitthvað sem aldrei yrði bætt. Eins og ég hefði tekið rangar ákvarðanir fyrir mörgum árum og sæi nú fyrst óheiliavænlegar afleiðingar þeirra. „Hann er orðinn gamall," sagði Penny hughreystandi. „Já, það er gott.“ ,,Þú mátt ekki áfellast Ashl- ey." „Jú, og foreldra hans enn frekar. Hvar er hann? Er hann heima?" „Nei. Kitty fór með hann í nokkurra daga heimsókn." „Vonandi ásamt tveim yfir- mönnum úr herlögreglunni" „Asamt bamfóstru. Þau fóru til vinkonu Kittyar sem á átta ára gamla dóttur og hefur líka bamfóstru. Hún býr i nánd við Hrighton, held ég.“ Fjórir gegn tveimur. Ekki veitir af. Þá verður ef til vill hægt að haida tölu iimlestra dýra í lágmarki. Eitt á dag, eða svo.“ „Stilltu þig. Má bjóða þér drykk?" „Já, já, þakka þér fyrir. Veit Roy um þetta?" „Já, hann varð ægilega reið- ur og skamimaði Ashley." „Og síðan ekki söguna meir.“ „Þú veizt, að pabbi og Kitty vilja hvorugt refsa bömum." „Já. Það er víst. Er nokkur annar heima? Kristófer og vin- stúikan ?“ „Þau eru farin aftur til Nort- hamton." Við gengum inn ganginn með .stöflunum af tómu pappakössun um, í gegnum anddyrið, þar sem gömul dagblöð lágu í hrúg um innan um brotin leikföng og inn i stofuna. Þar var allt í röð og reglu, enda þótt margt benti til þess að hún væri notuð. Ég minntist á það við Penny, þegar hún færði mér dryk'kinn. „Ég bý eiginilega bara hér í stofunmi," sagði hún. „Og í svefnherberginu. Hitt læt ég eiga sig. Nema eldhúsið. Það nægir mér líka, þegar ég er ein.“ „Ertu ekkert einmana, alein i þessu stóira húsi?" „Nei, ektó vitund. Ég vil ekki fara út. Hér er nóg við að vera. Ég veit, að ég hefði ábt að heim- sækja pabba á sjúkrahúsið en mér var sagt í símanum, að hon- uan liði vel og hamn væri á góð- um batavegi og ég var svo önn um kafin . . „Já, hanm er á batavegi. Lík- amlega að minmsta kosti. Önn- um kafin við hvað?“ „O, svo, sem ek'kert merki- legt.“ Hún gaut augunum snöggvast til mim. „Við að lesa og ýmislegt. ..“ Á borðimu við hliðina á hrein um öskubakka og vasa með ný sko num rósum lá pappirskilja, sem mér fannsit ég kannast við. Það var bók Denis Matthews 4» VWj um pianósónötur Beethowens. Þá tók ég líika eftir nótnaheft- inu á píanóinu, flett upp á menúett nr. 1. „Hvað hefur gerzt?" spurði ég. „Gerzt? Hvað áttu við?“ „Þú hefur breytzt bæði í tali og fasi. Ertu ástfangin eða hvað?“ Húm hló. Hiáburinm’ var lika öðruvisi. Laus við alla kald- hæðmi. „Nei, nei, ekkert slíkt. Það væri ekki líkt mér.“ „Hvað er það þá? Þú ert eitt- hvað svo róleg. Og áLnægð." „Já, hvort tveggja. Skýringin er ósköp eimföld. Ég er búin að finna lausn á öllu.“ „Átt-u við áfengi?" „Nei, Douglas. Sprautuna." „Heroin?" „Vertu ekki svona skelfd- ur. Já, eða þess háttar. Það er ekki eins og þú heldur. Þú sérð það nú bará sjálfur á því, hvern ig er að tala við mig.“ „Heroin-neytendur eiga í mesta lagi lífsvon í tvö ár. Vin- ur minm, sem er læknir, sagði mér það.“ „Það er einrmitt kosburinn. Ekkert verður til lamgframa, óþarfi að kvíða þvi að giftast og eignast börn og þurfa að bera ábyrgð. Engimn ætlast þá til meins af manmi." „Em Beethowen? Hann getur enzit þér til lamgframa." „Ekki mér. Ég verð aldrei nógu góð. Menn verða að þekkja sírnar takmarkanir. Ég þekki mínar og get hagað mér samkvæmt þeim. Það eru ekki margir sem það geta.“ „Penmy, farðu upp og láttu það nauðsynlegasta niður i tösiku og komdu heim með mér. Lofaðu mér að anmast þig.“ Hún hló afbur. „Mansbu ekki, að ég sagði þér, að enginn fær GBÓDRAHSTtíDIN - STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550 BIRKI GLANS- MISPILL OG FLEIRA að taka mig að sér. Það hefur ekki breytzt. Og þú gætir það heldur ekki. Þakka þér samt fyrir, að þú skyldir bjóðast til þess, en þú hefðir ekki næga þolimmæði. Heldurðu að þú gæt ir gert það, sem Gilbert tókst ektó?“ Ég leit niður. „Veit pabbi þinm um þetta?" „Það held ég ekki. En hann kemst að þvi fyrr eða síðar. Hann getur heldur engu breytt héðan af. Og þvi skyldi hann líka reyna það? Hanm verður að hugsa um sjálfan sig........lifa sínu lífi. Ég held, Douglas, að hann hafi aldrei unnið þarfara verk en þegar hanin ákvað að hlaupast á brott með þessari stelpu. Ekki bara sjálfs sin vegna, heldur okkar allra. Því nú erum við laus allra mála.“ (Sögulok). Til leigu er Iðnaðar- eða skrifstofuhúsnæði með sölu- búðar aðstöðu á jarðhseð alveg við Lauga- veginn neðanverðan. Upplýsingar í síma 12831 og 15221. Árni Guðjónsson hrl., Garðastræti 17. Blómaskáli Michelsen Sérlega gotf úrval: Pottaplöntur, afskorin blóm, gjafavörur í úrvali, blómaskreytingar Blómaskálinn er opinn alla daga til kl. 10 á kvöldin Blómaskáli Paul Michelsen, sími 99-4225 velvakandi 0 Héldu ökumennirnir, að blaðamaðurinn eða úlpa hans væri hluti af draslinu við veginn? Pétur Jónsson skrifar: „f tilefni af skrifum, sem birzt hafa í dálkum þinum vegna tilraunar Vikunn&r og Umferðarráðs langar mig til að leggja orð í belg, þar sem ég var einn af þeim þrjátíu og þremur, sem framhjá óku. Ég vil byrja á því að benda á þá staðreynd að snyrtimennska okkar íslendinga er nú ekki til fyrirmyndar og meðfram veg- unum er ýmislegt, sem ætli ekki að vera þar. Var úlpa blaða mannsins kannski ekki ýkja frábrugðin því drasli, sem þar iiggur, og varla von, að öku- menn veittu henni sérstaka at- hygli, enda hafa þeir nóg að gera við að fylgjast með bila- limferðinni, sem kringum þá er á vegunum. Fyrirsögn greinarinnar er: „Hver er miskunnsami Samvarj inn?“ og síðar segir blaðamað- urinn orðrétt: Við erum þess fullvissir að margir ökumenn hafa séð mig, þar sem ég lá hreyfingarlaus við veginn. Það er ekki óeðlilegt, þótt sumir hafi tekið orð blaða- mannsins trúanleg, og þar með liggjum við allir þessir öku- menn undir grun. Sumar þær bifreiðar, sem myndir birtust af (þar á meðal sú, sem ég ók) eru svo auðþekktar að eins vel hefði mátt birta mynd af öku- manninum og setja nafn hans undir, en slíku hélt ég, að væri nú hlífzt við, jafnvel þegar um stórglæpamenn er að ræða. 0 Sá ökumaður er ekki til Ég ætla aðeins að svara þess- ari fullyrðingu með nokkrum orðum. Ég hef á undaníörnum árum sem atvinnubiistjóri oft lent í þeirri aðstöðu að koma á slysstað, og það er víst óhætt að fullyrða, að það er eitt af því erfiðasta, sem fyrir öku- mann getur komið. Það er allt annað en skemmtilegt að koma að sundurtættum eða saman- klemmdum bifreiðum og stór- slösuðu fólki, en ég hefi aldrei fyrirhitt þann ökumann, sem ekki hefur verið boðinn og bú inn til að veita alla þá aðstoð sem möguleg er í slíkum til- vikum, og ég leyfi mér að full- yrða, að hann sé ekki til hér á landi. Virðingarfyllst, Pétur Jónsson, Hávarðsstöðum, Leirársveit, Borgarf jarðarsýslu." 0 Hver fer meö utan- ríkismál? Stud. med. skrifar: „Finnst Framsóknarflokkn- um ekki nóg, að Lúðvík Jós- epsson skuli ráða viðkvæmasta utanríkismáli þjóðarinnar til jafns við Einar Ágústsson; að Jónas Árnason skuli sendur með Einar Ágústsisyni til samn inga við brezka ráðherra; að tveir aðrir ráðherrar skuii sitja með honum í nefnd, sem á að fjalla um annað mikiteverðasta utanríkismálið, og að þeir skuli báðir vera kommúnistar? Siika niðurlægingu þurfti enginn ráð herra að þola í fyrri vinstri stjórninni. En finnst Framsókn þetta ekki nóg? Á nú að bætast við, að ráðherra heilbrigðismáia sendi stórpólitískar yfírlýsing- ar inn á alþjóðaþing með komm únistaorðbragði og áróðri? — Hver fer með utanríkismál?" — Já, margir virðast vera að velta þessu fyrir sér — hvenær Framsóknarforystunni sé nóg boðið. 0 Fræðsla um hjálp í viðlögum „Velvakandi góður! Eftir að hafa lesið umræður í dálkum þinum um „slysið", sem Umferðarráð og Vikan settu á svið til að reyna hæfni ökumanna og viðbrögð þeirra, er fyrstir kæmu á slys stað, datt mér í hug að skrifa þér og lýsa mínum viðbrögð- um, er ég kom að stórslösuðum manni, sem bíll hafði ekið á. Viðbrögðin voru nagandi sam- vizkubit og gremja vegna eig- in getuleysis. Vita ekkert um hjálp í viðlögum — kunna ekk ert — geta ekkert gert mann- imim til hjálpar, meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Nú vil ég biðja Umferðarráð að gangast fyrir almennri fræðslu um slysahjálp í sjón- varpinu. Setjið þar slys á svið og sýn ið, hvað við getum gert, sem komum fyrst á slysstað. Margrét Jónsdóttir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.