Morgunblaðið - 02.07.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.07.1972, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1972 SKÁK gefur út sérstakt einvígisblað — 26 tölublöö áætluð í g'ær var opnuð í myndlistarhúsinu á Mikiatúni, Kjarvaisstöðum, sýning á vegum Félags ísl. myndlistarmanna. Sýningin verrður opin í tvo daga og lýkur henni kl. 10 í kvöld. Þarna eru sýnd 36 málverk eftir 12 málara og tólf höggmyndir fjögurra myndliöggvara. Úr Rauðasandshreppi í TILEFNI af heimsmeistaraein- víginu milli Fischers og Spassky mun tímaritið Skák gefa út sér- stakt einvigisblað, sem koma mun út morguninn eftir hverja skák. Mun blaðið verða á þrem- ur tungumálum, ísienzku, ensku og rússnesku og kemur hið fyrsta út fyrir fyrstu skákina á sunnudag. Á fundi með fréttamönnum í gær skýrðu forstöðumenn blaðs- ins frá útgáfunni. Meðal efnis munu verða allar skákir einvíg- isins með skýringum eftir stór- meistarann Gligoric meðal ann- arra. Auk þess mun Ingvar Ás- mundsson sjá um skrif um tæknilegu eða faglegu hliðina, en Ingvar er einmitt ritstjóri einvígisblaðsins. Þá mun Helgi Sæmundsson rita fastan þátt í blaðið, en aðspurður um, hvort hann væri skákmaður sagði Helgi á fundinum af alkunnu lít- i'llæti, að hann „kynni manngang inn“. Auk þessa verða svo við- töl og myndir af ýmsu tagi og kapp lagt á að gera hverri um- ferð sem bezt skil. í fyrsta blaðinu á sunnudag verður m.a. grein eftir forsetann dr. Kristján Eldjárn, birtar þær fimm skákir, sem Fischer og Spassky hafa teflt tii þessa, svo og myndir og frásögn frá setn- ingunni á laugardag. Ráðgerð eru 26 tölublöð, en blaðið mun koma út þrisvar í viku, á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum. Stærðin verðui' 16 síður, 8 með lesmáli og 8 með auglýsingum. Blaðdð verð- ur í sama broti og Skák og fá áskrifendur timaritsins það með helmings afslætti, en söluverð er 100 kr. í lausasölu og 1800 fyrir útgáfuna í heild. Hefur Skák sent auglýsingabréf víða um lönd varðandi útgáfuna og nú þegar hefur borizt talsvert af pöntunum, en að öðru leyti sögðu þeir félagar, að stærð upplags yrði að ráðast. Þessi út- gáfa á sér enga hliðstæðu í skák- sögu Islands. Látrum, 18. júní. 17. júní var hér kaldur, norð- an sveljandi til sjós og lands. Hreppsbúar komu þó saman í félagsheimili sínu, Fagráhvammi, að vanda á þjóðhátíðardaginn. Ávarp fjallkonunnar flutti að þessu sinni frú Dagbjörg Ólafsdóttir, Hænuvík, en hátíða ræðuna flutti Guðmundur Frið- geirsson skólastjóri og sagðist báðum vel. Lítið varð um útileiki vegna stormsins. Enginn sást undir áhrifum áfengis, enda hef- Þess vegna eru stjómtæki 5QSBEAM bílanna staðsett við hendur þínai; í fjórtán sm §arlægð frá stýrinu. Leit að tökkum í mælaboroi er því engin meðan á akstri stendur. Markvert öryggisatriði. Þau stjórntæki sem grípa þarf til fyrirvaralaust í akstri eru staðsett við stýrið. Önnur eru fjær til að útiloka rugling. Stefnuljös Ljósaskiptir. Leifturljós Allt á sama stad Laugavegi 118 - Sími 22240\ 'EGILL, VILHJALMSSON HFI ir það aldrei þekkzt hér á 17. júní samkomum að „Bakkus“ hafi mætt, en öll börn og ung- lingar sveitarinnar ávallt saman komin á staðnum þann dag, þau er fótfær eru orðin og jafnvel sum hinna. SAUÐBUKÐUR. Sauðburði er um það bil lok- ið, og hefir viðast gengið nokk- uð vel, þó hafa sumsstaðar ver- ið nokkur brögð að því, að lömb hafa fæðzt dauð, ær látið lömbum, og ýmisleg óáran sem ekki á að vera. Gæti það verið afleiðing tviböðunar á sauðfé síðastliðinn vetur að einhverju leyti, þannig, að ær hafi verið ver undir það búnar á timabili að ganga með fóstur. Abúandi. Sú ánægjulega frétt barst um sveitina á sautjándanum, að á- búandi væri kominn á hið forna höfuðból, Saurbæ á Rauðasandi, sem len.gi hefir verið í eyði. Var ábúandinn mættur á sautjánda júni fagnaðinum sem aðrir sveit- ungar. Maðurinn heitir Árni Vesturgör, er Færeyingur að uppruna, en verið lengi á Isiandi við sjómennsku og fleira, stór og glæsilegur maður svo sem Færeyingar flestir eru. Ilin verðandi húsfreyja að Saurbæ hvað vera væntánieg inn- an skamms. HROGNKELSAVEIDI. Hrognkelsaveiði var mjög góð i upphafi, en var stöðvuð, þeg- ar bezt lét vegna markaðsörðug leika, en nú hefir eitthvað rætzt úr með markaðshorfur, en síðan hefir veður verið óhagstætt, og veiði treg. SELVEIÐI OG EGGVEK. Selveiði er nýlega hafin á Rauðasandi og gengið mjög vel. Æðarvarp í Örlygshöfn hefir einnig gengið vel og áfallalaust. Smávegis var tekið af eggjum Framhald á bls. 20 SKÁK EINVIGISBLAÐIÐ Símar 15899, 15543 ÍSLENZKA - ENSKA - RÚSSNESKA HRINGIÐ STRAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.