Morgunblaðið - 24.08.1972, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUOAGUR 24. ÁGÚST 1972
17. umferðin:
10 gegn 7 eftir
snubbótta biðskák
— 18. umferðin tefld í dag kl. 17
I’At) kom mönnnni á óvart þ«*g-
ar samið var um jafntefli í 45.
leik biðskákar 17. umferðarinnar
í gær, Þegar skákin fór í bið í
fyrrakvöld í 40. leik hafði
(Spassky betri stöðu og var al-
mennt búizt við því að hann
myndi reyna til þrautar að vinna
skákina. f 45. leik þrátefldi
Spassky hins vegar þannig að
Fischer liafði rétt til þess að
krefjast jafnteflis og það gerði
hann.
Skákmeistaramir á áhorfenda-
bekkjum höfðu almennt búizt
við langri biðskák og skemmti-
legri, en ekki eins snubbóttri og
raun varð á. Einn skákmeist-
arinn, Jens Enevoldsen frá Dan-
mörku, taldi að hversu fráleitt
sem það virtist vera þá hefði
Spassky ekki athugað að með
45. leiik sinum kom upp sama
staðan í þriðja sinn, en slíkt
býður jafntéfli. Gligoric og fleiri
skákmeistarar voru einnig mjög
undrandi yfir því að Spassky
skyldi ekki vilja tefla áfram.
Leikar standa því 10 vinningar
Arkitektafélagið:
Óánægja með svar ríkisstjómar
- ánægja með svar borgarinnar
gegn 7 fyrir Fischer, en 18. um-
ferðin verður tefld í dag kl, 17
og hefur Fischer hvítt.
Bíla vantar
ÞEIR féaiagar í Féilagi íslenzkra
bi.freiðaei'genda, sem tök hefðu
á að taka þátt í hinmi árlegiu ferð
félagsins með vistfóikið á Elii-
heimilinu Gru.nd, sém fariin verð
ur neesitkamandi laiutgardag kO.
13.30, eru góðfúslega beðnir að
hafa satmiband við skrilfsitofu fé-
lagtsins í símiuim 33614 eða 38355
sem fyrst.
Varðskipið I’ór hefur að undanförnu verið í klössmi í Álaborg og hefur þar m.a. verið skipt
um vélar í skipinu og nokkrar breytingar gerðar á yfirbyggingu þess. Skipið er væntanlegt
til íslands um eða eftir niiðj an næsta mánuð. (AP-símamynd i'rá Álaborg).
Ríkisstjórnin hafnar boði
félagsins, en aðilar í borgar
stjórn hlynntir friðun
Bernhöftstorfunnar
30 daga
viðbótar
1 GÆR var kveðinn upp i Hafn-
aírfirði 30 daga viðbótar gæzlu-
varðhaldsúrskurður yfir tveim-
ur barlmöninum vegna meiintra
kynmaka þeirra við 7 ára dóttur
anfnairs þeirra. .Er geðrannsókn
þeirri, sem þeir voru látnir sæta,
ekki að fullu lokið og varðhadd-
ið því fraimlengt. Málið er að
öðru leyti í höndum saksóknara.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að gefa hússtjórn Iðnó frest ’til
1. október tii þess að iáta iag-
færa húsið samkvæmt kröfum,
sem eldvarnareftirlitið hefur
gert, en hússtjórnin hefur van-
rækt að uppfylla þær kröfur.
Verði nmbeðnar lagfæringar
ekki framkvæmdar fyrir 1. októ-
ber, verður rekstur hússins til
samkomuhalds stöðvaður.
Mbi. ræddi í gær við Rúnar
Bjamason, slökkviliðsstj óra, og
spuirði hann um þetta mál. Rún-
ar sagði að menn mættu ekki
síkilja það svo, að hér væri
átt við Leikfélaig Reykjavíkur,
sem væri leigjandi í Iðnó, held-
Bók:
4 dögum
eftir
leikslok
VITAÐ er að nokkrir aðilar
ætía að gefa út bók um heims
meiistaraeinvigið i skák á Is-
landi og meðal þeirra sem
viibað er um er Skáksamband
Islands.
Harold Schonberg, frétta-
ritari New York Times sagði
í viðtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að New York
Times áætlaði að gefa út bók
um heiimsmeistaraeinvígið
fjórum dögum eftir að þvi
iýkur.
RÍKISSTJÓRNIN hefur hafnað
boði Arkitektafélags Islands um
að hreinsa til kringum húsin,
sem standa á svokallaðri Bern-
höftstorfu, að félagið lagfæri
þau og máli. Félaginu barst bréf
frá forsætisráðuneytinu þessa
efnis nú nýlega og er það dag-
sett 18. ágúst. I»á hefur borgar-
ráð einnig skrifað félaginu bréf
ur hússtjórn hússins, sieim væri
fuHtrúi eigienda þess. Fyrir
nokkruim árum iiaigði eldvamtar-
eftirllitið fram ákveðnar kröfur í
þessurn málum og hefur á flest-
um stöðum verið gengið að þeim.
Þessii aðgerð getgn Iðnó er loka-
átalk í þessuim efnum i að fá
fram fiullnægjandi skilyrði.
Rúnar sagði atð i Iðnó vantaði
neyðarlýsingu á útgönguieiðir og
einnig þyrfti að framkvæma á
þeim iaigifærinigar. SaigðLst Rún-
ar voniast til að hússtjóm Iðnó
léti nú iagfæra þessi atriði, svo
að ekki þyrfti að koma til frek-
ari aðgerða.
Handtösku
stolið
HJUKRUNARKONA hafði sam-
band við Mbl. og sagði sínar farir
ekki sléttar. Á þriðj udagsmorgun
fór hún í vitjun til sjúMings á
Reynimel og lagði bifreið sinini,
ljósri Moskvitch-bifreið, skammt
frá heimili sjúklingsins. Tó(k hún
áhaldatösku sínia með iinn, en
skildi handtösku sína eftir í bílm-
um og taldi sig hafa læst honum.
Þetta var um kl. 8.15, en er hún
kom aftur út kl. 9 var tasikan
horfin úr bílnum og í ljós kom,
að önnur afturhurðin hafði verið
ólæst. Bkki var mikið af pen-
ingum í töskutnni, en hins vegar
voru þar öiil persónuskilríki kon-
unnar, ávísanahefti, lyklar og
fleiri hlutir, sem mjög bagalegt
er fyrir hana að missa. Það eru
tilmæli hennar, að ef einihver
skilvíg aðili hefur orðið var við
eða fundið töskuna, sem er úr
svörtu ieðri með hamraðri lakk-
áferð, að sá láti lögregluma eða
Monguniblaðið vita.
vegna Bemliöftstorfunnar, en í
því bréfi segir að innan borgar-
stjórnarinnar séu aðilar fylgj-
andi því að friðlýsa eigi húsin.
Guðrún Jónsdóttir formaður
Atrkiiite'kitiaiféttiaigsins sagði í viðtali
við Mbl. í gær að stjóm féSiags-
ins væri mjög undrandi yfir
svari ráðuneytisins og bá eink-
um vegna þess að ráðumeytið
skuli svara áður en afstaða borg
arráðs hafði verið kunngjörð.
Uppkaist að bréfi borgarráðs var
samþykM á fundi, sem haldinn
var 21. ágúst.
Guðrún sagði að í bréfi for-
sætisráðumeytisims hefði verið
sagt að árið 1964 hefði rí'kið boð-
izt til þess að gefa tvö nyrztu
húsin á Berhöftstorfunni og
flytja þau upp í Árbæ og hafi
Reýkjavíkurborg þegið boðið. Af
framkvæmdum hafi ekki orðið,
en nýlega hefði ráðuneytið skrií
að Reykjavíkurborg og spurzt
fyrir um afstöðu hennar til máls
ins, en svar hafi ekki borizt.
Þá segir í b"éfi ráðunoytisins,
að í mörg ár hafi verið gert ráð
fyrir stjómarráðsb.vgging u á
umræddum stað og að Alþingi
haifi ár eftrr ár samþykkt fjár-
veitingiar til byggingar stjórnar-
ráðhúss. Um það atriði bréfs
ráðuneytisins sagði Guðrún Jóns
déttir, að þótit fjárveiting hefði
verið heimiluð, væri engan veg-
inn ákveðið, að þessi staður
skyldi verða valinn. Siðan segir
í bréfi ráðuneytisins, að í bréfi
ArkitektaféOagsins hafi verið far
ið fram á leyfi til þess að hreinsa
og lagfæra húsin og mála, ríkis-
sjóði að kostnaiðarlau'su. Slíkt
„Iieyfi myindi fela í sér fresitun á
aðgerðum, öðrum svo sem flutn-
ingi húsanna eða niðurrifi", en
orðin innan gæsalappa eru ein-
miitt tilviitnun í bréf Arkitekta-
félagsins, Sagði Guðrún að ráðu-
neytið hefði tekið þessa tilvitn-
un, en sleppt niðurlagi hennar,
sem er: „en fiæli ekki að öðru
leyti í sér neina skulldbmdinigu
fyrir ríkisstjómina".
Loks segir í bréfi ráðuneytis-
ins: „Með tilvls'un til þess, hvem
ig máJlin st'anda nú, og lýst er
hér að framan, er slikit skilyrði
óaðgengilegt og viill ráðuneytið
akiki binda hendur sínar á þanm
veg, sem tilskilldð er. Verður
ráðuneytið því á þessu stigi að
hafna boði yðair.“
Guðrún Jónsdóttir, formaður
Arkiitektafélagis Islands sagðiist
ánægð með svar borgarráðs og
i því fælust mörg áhu.gaverð at-
riði. 1 fyrsta laigi væri atriði,
sera hefði i för með sér töf á
niðurrifi húsanna. Þar segir bong
arráð oig setur sem skiiyrði, að
á meðan ekki haái verið sýnd
og samþyikkit teikning af nýju
stjómarráðshúsi, sem uppfylii
þau skifliyrði að falla vel að um-
hverfinu og að vera innan hóf-
Jegra stærðartakmarka, sé ekki
unmrt að taka áKvörðun um það
nú að rífia svonefnda Bernhöfts-
torfu og flytja 2 hús hennar í
UNGUR stúdent, sem leggur
stund á félagsráðgjöf, Svavar
Björnsson, er að rannsaka
ástand fangelsismála liér á landi
og hyggst hann skrifa um rann-
sóknir sínar ritgerð, sem hann
ætiar að nota, sem prófritgerð
við Sosialskolen í Stavangri, þar
sem hann er við nám. í þessu
angnamiði hefur Svavar leitað
aðstnðar fanga á Uitla-Hrauni og
lagði hann fyrir 35 af 43 föngum
ákveðinn spurningalista, sem
hann síðan hyggst vinna úr.
Morgunblaðið ræddi stuttlega
við Svavar, sem þá hafði fengið
svör fanganma og kvaðst hann
ánægður með árangurinn, þar
hafi hann fengið mangt gott og
betra en hamn hafi búizt við.
8 fangar höfðu ekki áhuga á
ranmsóknum hans og tóku þvi
ekki þátt í þessu framtaki
Svavars.
Athugun Svava,rs er aðeins
hluti af stærri ritgerð, sem
fjalla á um fangelsismál á ís-
landi. í ritgerðinni verður lýsing
á fangelsismálum Islendimiga og
sögulegt yfirflit og mun Svavar
síðam bera saman refsilöggjöfina
á íslamdi og í Noregi. Hann seg-
ist sérstaklega hafa áhuga á að
taka fyrir þá öldu ávísanafals-
ana, sem nú gen'gur yfir Island,
reyna að fá svör við því hvers
vegna hún er svo öflug og hvað
unnt sé að gera til úrbóta.
Rannsókn Svavars miðast að
þvi að fá lýsingu fanganna
sjálfra á því, hvernig sé að vera
fangi á Islandi í dag, hvaða sál-
ræn áhrif það hafi á menn,
hvernig þeir láti timann líða og
hver afstaða þeirra sé til dóms-
og fangelsiskerfisins yfirleitt. Þá
hefur hann og fengið hugmyndir
famganna um úrbsetur í fangels-
ismáluim.
„Ég verð ekki búinn að full-
vinna ritgerðina, fyrr en eftir
Árbæjarsafn. Þá segir í öðru
Hagi í bréfi borgarráðs, að haáa
beri í huga, að sterkar raddir,
sem eigi sér fylgjendu’- i borgar-
ráði og bongamstjórn, séu uppi
uim það að nú eigi þegar að lýsa
yfir friðun þessara húsa.
Guðrún Jónsdóttir sagði að
ekki væri aifráðið hvað Arki.tekta-
félagiið gerði næst í málii þessu,
„en við muniuim reyna — ef við
gietuim upplýst málið — að ein-
beiita o'klkuir að því að koma fram
með þau atriði,; sem leyat geta
miálMð.“
Svavar Björnsson.
um það bil ár,“ — sagði Svavar
í viðtali við Mbl., „og reikna þá
með að birrta niðurstöður a.m.k.
úr hluta ritgerðarinnar. Þá sagði
Svavar að athyglisvert hefði
verið, hve fangamir hefðu litla
grein gert sér fyrir því á hvern
háitt þeir myndu bregðast við
frelsi, fengju þeir það. Þá segist
hann hafa fenigið mjög athyglis-
verðar tillögur frá föngunum
um það, hvers konar vinnu ætti
að skipuleggja innan fangelsis-
ins. Rannsókn Svavars er ein-
skorðuð við refsifanga, sem
hlotið hafa dóm.
Kona slasaðist
SNEMMA í morgun. valt bifreið
við Vogastapa á Reykjanes-
braut og slasaðist ökukona bMs-
ins talsvert. Var hún filutt á
sjúkrahúsið í Keflavík og síðan
til Reykjavikur, þar sem hún
liggur nú á sjúkrahúsi. Konan
mun hafa brákazt á hrygg.
Slysið varð, þegar konan var
að aka fram úr öðrum bí‘l, en
að öðru leyti eru orsakir slyss-
ins óljósar.
Verða samkomur
í Iðnó bannaðar?
Rannsakar
fangelsismál