Morgunblaðið - 05.10.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.10.1972, Blaðsíða 16
16 MORGÖNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1972 Oitgafandí htf, Átvnkur, R&ykýavfk Framfaveawida&tjóii HaraWur Svemsaon. ftftisítíófar Matíhías Jehannessen, Eyý'ólfur Konráð Jónsson. Aöstoöarrite tjón Stywnir Gun-narsson. Rftötfórnerfu! Itrúi Þorbýörn Guðmundsson fi’ótteetjór! Björn Jöhann&son. AuBtýaingewtjttrí Ámi Garðar Kristinsspn. Rrtstjórn og algreíösla Aðalstræti 6, sími 1Ó-100. Au^íýsingar Aðaistraati 6, sími 22-4-80, ÁökrrftargjaW 325,00 kr á imánuði innanlands I faiusasöíiu 16,00 ikr sintakið VIÐRÆÐUR VIÐ BRETA JENS OTTO KRAG T dag hefjast á nýjan leik samningaviðræður brezkra og íslenzkra embættismanna um hugsanlega bráðabirgða- lausn á landhelgisdeilunni. Engar viðræður hafa farið fram um þetta efni milli ís- lendinga og Breta síðan upp úr samkomulagsumleitunum slitnaði á fundum hér í Reykjavík um miðjan júlí sl. Nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju; hér er því um mjög þýðingarmiklar viðræð ur að tefla, sem vissulega geta skipt sköpum um þróun deilunnar. Samningaviðræður þær, sem nú hefjast, eru árangur af fundi Einars Ágústssonar og sir Alec Douglas Home í New York fyrir skömmu. Með hliðsjón af því, hversu fljótt er hafizt handa um áframhald samningaviðræðn anna, eftir fund utanríkisráð- herranna, verður að gera ráð fyrir, að ríkisstjórnirnar vilji báðar í raun og veru ná sam- komulagi og koma þannig í veg fyrir árekstra. Ef raunverulegur vilji er fyrir hendi af beggja hálfu til að setja þessa þrætu nið- ur með friðsamlegum hætti, á að vera unnt að ná sam- komulagi. Samningamenn beggja aðila verða að gera sér grein fyrir því, að svo kann að fara, að frekari samn ingaumleitanir verði útilok- aðar um langt skeið, ef upp úr þessum viðræðum slitnar. Þess vegna skiptir miklu máli, að viðræðurnar verði teknar föstum og skynsam- legum tökum. Áður hefur verið bent á, að rétt væri að freista þess fyrst að ná samkomulagi um þau ágreiningsatriði, sem líklegast er að ná megi samningum um. Reynsla fyrri viðræðufunda ætti að geta vísað veginn í þeim efn- um. Á hinn bóginn er skyn- samlegast að geyma þau á- greiningsatriði sem fram til þessa hafa verið Þrándur í Götu samkomulags, þar til á síðari stigum viðræðna. Lík- legt er, að auðveldara verði að ná samningum um þau, ef áður hefur verið samið um önnur ágreiningsefni. Við verðum einnig að haga viðræðunum á þann hátt, að málstaður okkar komi til með að njóta aukins skiln- ings á erlendum vettvangi, ef svo illa skyldi fara, að við- ræðurnar færu út um þúf- ur. Mestu máli skiptir nú fyr- ir okkur íslendinga, að út- færsla landhelginnar leiði til þess í raun og veru, að dreg- ið verði úr sókninni í fisk- stofnana, sem nú eru í bráðri hættu. Samkomulag við Breta yrði óefað þungt á metaskálunum í þeim efnum. Ckömmu eftir að úrslit þjóð- ^ aratkvæðagreiðslunnar í Danmörku um aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu urðu kunn, gerðust þau óvæntu tíðindi, að Jens Otto Krag skýrði frá því, að hann mundi láta af embætti forsætisráð- herra. Þessi fregn kom mjög á óvart, enda hafði Krag haft á hendi forystu þeirra þjóðfé- lagsafla í Danmörku, sem börðust fyrir inngöngu Dan- merkur í Efnahagsbandalagið og unnið eftirminnilegan stjórnmálasigur með úrslit- unum. Vangaveltur hafa verið miklar um þær ástæður, sem liggja að baki ákvörðun Krags. Þær virðast þó fyrst og fremst vera persónulegar, þótt pólitísk sjónarmið bland ist þar að einhverju leyti inn í. Jens Otto Krag hefur verið einn af fremstu stjórnmála- leiðtogum Dana um langt ára bil. Engan þarf að undra, þótt hann vilji nú draga sig í hlé frá stjórnmálastörfum og er- ilsömu starfi forsætisráð- herra og flokksleiðtoga. En vissulega er það óvenjulegt, að valdamaður á hátindi fer- ils síns taki með þessum hætti ákvörðun um að láta af embætti og gefa öðrum tækifæri til þess að fást við stjórn landsins. Mun mörg- um þykja, sem fordæmi Krags mætti verða öðrum stjórnmálamönnum til eftir- breytni og það víðar en í Danmörku. Við íslendingar höfum sér- staka ástæðu til þess að þakka Jens Otto Krag hans liðsinni við íslenzk mál á umliðnum árum. Hann hefur verið í hópi þeirra danskra stjórnmálamanna, sem eru okkur mjög vinveittir og vilja mikið af mörkum leggja til þess að veita íslandi stuðn ing. Skemmst er að minnast þess, að Jens Otto Krag átti verulegan þátt í því að leysa handritadeiluna milli land- anna og tryggja heimkomu íslenzku handritanna. Sjálf- ur kom hann hingað til lands þegar fyrstu handritin komu heim og varð djúpt snortinn af athöfninni á hafnarbakk- anum, og viðbrögðum al- mennings hér. Þegar Jens Otto Krag nú lætur af emb- ætti forsætisráðherra Dana, hverfur mikill vinur íslands úr því embætti en ekki er að efa, að maður kemur í manns stað og að við munum eiga góð samskipti við eftirmann hans, verkalýðsleiðtogann Anker Jörgensen. A Þingkosningar í Astralíu: Gorton er að birtast á sjónarsviðinu á ný Eftir Vincent Stove Þingkosningar fara að öll- um líkindum fram i Ástralíu fyrir árslok og William McMahon, forsætisráðherra, sér fram á erfiða kosninga- baráttu og sigurhorfur flokks hans, Frjálslynda flokksins, eru vægast sagt ekki sérlega bjartar. í þess- ari grein er vikið að ástand- inu í áströlsku stjórnmála- lifi og því spáð að Verka- mannaflokkurinn kunni nú að ná meirihluta eftir 23ja ára stjórnarandstöðu. Ýmsir sérfræðingar álíta að svo geti farið, að forsætisráð herrann sjálfur bíði ósigur i sínu kjördæmi. Vissulega er full ástæða fyrir McMahon að hafa þungar áhyggjur af stjórnmálaframtíð sinni. En öllu glaðari er fyrrver- andi forsætisráðherra Ástra- líu John G. Gorton, sem frjáls lyndir létu víkja i marz sl. Gorton situr nú á þingbekkj- unum í fulltrúadeildinni og hylli hans meðal Ástralíu- manna — kannski ekki sízt meðal ungs fólks — hefur aldrei verið meiri og er næsta óvenjulegt að Ástralíumenn sýni stjórnmálamanni svo mikinn hlýhug og svo ósvikna aðdáun, sem honum hefur fall ið i skaut, síðan hann vér úr forsætisráðherrastóli. Kalla mætti hann forsætisráðherr- ann í útlegð. Gorton hefur aldrei notið viðlíka vinsælda og nú — og hann veit það. En hann setur ekki fram háværar kröfur. Þrátt fyrir sterka hreyfingu, sem hefur á stefnuskrá sinni að koma honum aftur til valda, þá virðist hann sjálf- ur aðhafast lítt til að svo megi verða. Enda hefur hann að flestra dómi vel efni á því að bíða. Sá mögu- leiki er fyrir hendi — þótt ekki sé hann stór — að hann verði látinn taka við embætti forsætisráðherra síðustu vik urnar fyrir kosningarnar. En að þeim loknum er nokkurn veginn öruggt, að hann verð- ur að nýju ieiðtogi Frjáls- lynda flokksins — annað hvort sem forsætisráðherra, eða foringi stjórnarandstöð- unnar. Það eru ekki nema tvö ár síðan Gorton var óvinsæll foringi óvinsællar ríkisstjórn ar. Fáir ástralskir for- sætisráðherrar höfðu fengið á sig þvilík áföll sem hann og fáir höfðu notið jafn lít- ils trausts með þjóð sinni, sem og innan flokks hans. Um gervallan heim vörpuðu menn öndinni léttar, þegar hann lét af embætti, „hið stormasama Gortons skeið“ var á enda runnið. Óþarft er að rifja upp í löngu máli allt sem Gorton þurfti við að glíma og varð til að gera hon um forsætisráðherrastarfið -Tolin Gorton. hábölvað. Hvert hneykslið og spillingarmálið fylgdi öðru. Og hvernig má þá vera, að til þess manns sém var fyrirlit inn, iðulega gerður að athlægi og svo óspart rægð- ur, þann skamma tíma, sem hann var forsætisráðherra, leita nú ýmisir þeir, sem vildu fjarlægja hann úr starfi fyr- ir stuttu? Vonbrigði með frammi- stöðu McMahons, forsætisráð herra, er meginástæðan. McMahon hefur lagt sig all- an fram. En það er eins og allt hafi verið á móti honum, og fyrst og fremst hefur hon um alls ekki tekizt að vinna sér lýðhylli; hann fer hrein- lega i taugarnar á fólki, segja þeir hreinskilnu um hann. Hann þykir beita starfs- aðferðum, sem eru í senn svo gamaldags, íhaldssamar og af káralegar, að með ólíkindum er á síðari hluta tuttugustu aldar. Aftur á móti var Gor- ton — þótt óútreiknanlegur væri — augljóslega langt á undan sinni samtíð. McMa- hon er aftur úr grárri forn- eskju, segja þeir í Ástralíu. John G. Gorton varð for- sætisráðherra þegar Harold E. Holt, forsætisráðherra, drukknaði í desember 1967. Hann bar þá sigur af hólmi eftir mikla og harðsnúna valdabaráttu innan flokks síns. Hann hafði þá setið í sautján ár á þingi og hann þótti liklegur til að hleypa nýju lofti inn í stjórnmála- lífið. Hann endurlífgaði gamla þjóðernisstefnu, sem lítt hafði verið haldið vak- andi hjá ungu kynslóðinni. Hann talaði um framþróun í þjóðlífinu, og hann gagn- rýndi að áströlsk fyrirtæki væru i eigu erlendra aðila og lagðist gegn aukinni fjárfest ingu utanlands frá. Hann hét þvi að berjast gegn fátækt og hann dró í efa þörf Ástral- íumanna fyrir að hafa af- skipti af hernaði í öðrum heimsálfum. Ýmsir aðdáenda hans líktu honum við John heitinn Kennedy Banda- ríkjaforseta. Gorton varð varnarmála- ráðherra í stjórn McMahons, en það stóð ekki tenigi. McMah on komst fljótlega á snoðir um það, að hann gat ek'ki unn- ið með hinium fyrrverandi for- ingja, svo að Gorton þokaði enn um set. En aðeins á ytra borði. Nú kemur hann oftar fram heldur en McMahon. Boðin streyma til hans úr öll um áttum að sitja hina ýmsu fundi, samkcxmur og umræð- ur. Hann hefur kosið að velja úr það sem hon- um finnst áhugaverðast og öðtozt mikla hýiili. Hann ræðir ekki hvað sizt um mál, sem flestir foringjar Frjálslynda flokksins reyna að forðast. Vissulega komu þeir Gorton í klípu, þegar hann var forsætisráðherra. En nú þegar hann talar fær málflutningur hans góðan hljómgrunn. Hann ræðir nauðsyn endurnýjunar á stefnu Frjálslynda flokksins og hvetur til að hún veisði á allan hátt gerð nútímalegri. Nokkrum sinnum hefur ver ið leitað til hans með hvatn- ingum um að stofna nýjan flokk, en hann er nægilega raunsær til að skilja að slíkt myndi ekki blessast, eins og nú er í pottinn búið. „Ég reyndi að þoka hugsun- arhætti flokks míns fram á við og ég held mér verði nokkuð ágengt,“ segir hánn. Hann reynir að blanda geði við sem allra flesta og af öll- um stéttum og stigum. Hann veit að möguleikar hans hafa margfaldazt. - Hvort sem flokkur hans tapar eða sigr- ar — og sennilegast er að Frjálslyndi flokkurinn tapi — þá hefur Gorton engu að tapa en allt að vinna. William McMalion.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.