Morgunblaðið - 01.11.1972, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1972
22-0-22*
RAUOARÁRSTÍG 31
BÍUUIGA
CAR RENTAL
21190 21188
14444 ** 25555
SKODA EYÐIR MINNA
Shooh
LEIGAN
AUÐBREKKU 44- 46.
SÍMI 42600.
Skuldnbréi
Seljum ríkistryggd skuldabréf.
Seljum fasteignatryggð skulda-
bréf.
Hjá okkur er miðstöð verðbréfa-
viðskiptanna.
FYRIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN
fasteigna- og verðbréfasala
Austurstræti 14, sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson
heimasími 12469.
Húseigendur
Tveir smiðir geta tekið að sér
verkefni á kvöldin og um helg-
ar. T. d. viðhald, mótauppslátt
eða uppsetningu á innrétting-
um. Uppl. í síma 86584 eftir
kl. 8 á kvöldin.
iesiii
STAKSTEINAR ■««»*
Fyrsta
persóna eintölu
Hinar persónulegu skoðanir
Ólafs Jóhannessonar eru að
verða æ persónulegri. Lengi
hafði Ólafur þagað, en loks
gaf hann út álit sitt á því
hvað gera skyldi. Ræddi hann
i ræðu á Alþingi um þær að-
geðir, sem framundan væru.
Alþjóð hafði lengi beðið
þess, að einhver ráðherra, léti
i það skina, að hann hefði þó
ekki væri nema óljósa hug-
mynd um þá erfiðleika, sem
þessi rikisstjórn hefur hlaðið
upp með ótrúlegnm hraða. Og
þegar forsætisráðherra rauf
loksins þagnarmúrinn, var að
vonum álitið að hann talaði
sem forsætisráðherra, — en
ekki sem t.d. fyrrverandi lög-
fræðingur Sambandsins. En
nú mun því ekki hafa verið að
heilsa. Lýst hefur verið yfir,
að hér hafi eingöngu verið
persónulegar skoðanir ráð-
herrans, en ekki einhverjar
aðrar skoðanir hans. Ef til
vill hefur Ólafur einhverja
aðra skoðun á vandamálun-
um en sína persónulegu. Er
slikt undraverð fjölhæfni, og
væri vissulega fengur að
heyra eitthvað af öðrum skoð-
uimm hans á þessu máli. Allir
helztu stuðningsmenn þessar-
ar ríldsstjórnar lýstu yfir
strax eftir opinberun ráðherr-
ans, að skoðanir forsætisráð-
herrans (þ.e. hinar persónu-
legu skoðanir hans) væru
þeim einskis virði, og Lúðvík
Jósepsson kvaðst hafa annað
að gera en að kynna sér slík-
ar skoðanir.
Eini maðurinn, sem tók því
skoðanir Ólafs alvarlega í liði
hans, var hann sjálfur, en þó
ekki lengi. Hann hefur þegar
byrjað að draga í land. í for-
ystugrein málgagns hans,
Tímanum, var á það bent, að
algjör óþarfi væri að vinna
að lausn efnahagsmálanna
samkvæmt skoðunum Ólafs,
sem væru aðeins hans per-
sónulegu skoðanir. f niðurlagi
leiðarans sagði: „Forsætisráð-
herra hefur nú sagt sína per-
sónulegu skoðun á því, hvaða
leið hann telur farsælasta fyr-
ir hina lægst launuðu. En hún
verður ekki farin nema um
hana náist samkomu!ag.“ Rit-
stjórum Tímans finnst viss-
ara að slá þann varnagla, í\ð
þó að forsætisráðherra lands-
ins hafi loksins skoðun á ein-
hverju, þá sé ekki þar með
sagt, að menn þurfi að taka
hann hátíðlega.
Fallandi gengi
í þingræðunni í fyrradag,
lýsti ráðherrann þeirri per-
sónulegu skoðun sinni, að
vafasamt væri að slá því
föstu, að gengisfelling kæmi
ekki til greina. Hingað til hef-
ur verið eina svar forsætisráð-
herrans við spurningum um
úrlausn i efnahagsmálum, að
gengisfelling verði aldrei
gerð af þessari ríkisstjórn,
sem nú situr. Hér er því um
þrennt að ræða: í fyrsta lagi
hafi aðeins verið hér um að
ræða persónulega skoðun ráð-
herrans i upphafi. í öðru lagl
búist hann við, að þessi rikis-
stjórn fari frá á næstunni, eða
í þriðja lagi, að þessi siðasta
yfirlýsing sé hin raunverulega
persónulega skoðun ráðherr-
ans, sem óþarfi sé að hafa
áhyggjur af.
Halldór brasar
í Viðavangspistli Tímans
kemur fram, að Haildór E. sé
nú á góðri leið með að finna
aðferð til að lækka tuttugu
milljarða fjárlögin vernlega. f
pistlinum segir, að Halldór
hafi í huga að „kanna hvort
ekki megi fækka þeim stöð-
um, sem matur er búinn til á,
en hins vegar að taka eldhús
eins og nýja Landspítalaeld-
húsið, sem er mikið fyrirtæki,
og verður ekkl fullnýtt fyrst
um sinn, fullnýta það og
dreifa út mat frá slíkri stofn-
un í hinar ýmsu ríkisstofnan-
ir, þar sem nú er matreitt fyr-
ir hvern starfsmannahóp fyr-
ir sig.“ Og segi menn svo, að
fjármálaráðherrann sé ráða-
laus í efnahagsmálum lands-
ins.
__________spurt og svarað
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Hringíð I sima 10100 kl.
10—11 frá mánudegi til
föstudags og biðjið um
Lesendaþjónustu Morg-
unblaðsins.
ÚTVARP f SVR
Pétur Þorsteinsson, Gaut-
landi 17, spyr: „Er það til of
mikiLs mæizt að biðja um út-
varp fyrir farþega Strætis-
vagna Reykjavíkur?“
Eiríkur Ásgeirsson, forstjóri
SVR, svarar: „Hvergi, þar
sem ég þekki til á hinum Norð
urlöndunum, er útvarp í
strætisvögnum. Þetta er ör-
yggisins vegna, þar seim talið
er, að útvarp geti truflað
mjög vagnstjórann við akst-
urinn.“
LAUGARDAGAR
EI.ua Jónsdóttir, Rauðagerði
29, spyr: „Hvers vegna þurfa
aðeins suim böm að mæta í
Breiðagerðisskólann á laugar-
dögum?"
Hjörtur Kristmundsson,
skólastjóri, Breiðagerðisskól-
ans, svarar: „Þessu veldur
húsnæðisskortur skólans.
Við kennum bóklega
ken-nslu aðeins til klukkan 12
á laugardöguim, þannig að ein
staka bekkir mæta ekki á
laugardögum. Þeir eru þó
miklu færri en hinir, sem
mæta, og þeir, sem ekki mæta
á l'auigardö'guim, fá lengri
kennslu hina daga vikunnar."
EKKERT SVAR
Sighvatur Cass&te, Flóka-
götu 45, spyr: „Er það satt,
að brezkir togarar hafi hrak-
ið varðskiprð Óðin inn og
út fyrir fjórar mílurnar út af
ísafirði 29. þessa mánaðar?"
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlu íslands, svar
ar: „Þessi mál ræðum við yfir-
leitt ekki opinberlega og því
get ég þvi miður ekki svarað
þessari spurningu."
FLUGNÁM
Emil J. Ragnarsson, Hóf-
gerði 12 Kópavogi, spyr:
„Hvernig er flugnáani hátt-
að?“
Skúli Jón Sigurðsson, full-
trúi hjá Loftferðaeftirlitinu,
svarar: „FTugnám hkiptist i
þrjú meginstig, það er bygg-
ist upp af þremur réttinda-
flokkuim.
Sá fyrsti er sótóprófið svo-
kallaða, sem tekið er eftir
15 — 20 flugtima. Þetta próf
heimilar manni að fljúga einn
á ákveðnum svæðum í ná-
grenni flugvallarins.
Einkaflugpróf er venjulega
tekið eftir um 60 flugtíma og
nú kemur og til bÓklegt próf
að loknu 2—3ja mánaða
námskeiði. Námsgreinar þar
eru; flugeðliisfræði, flugregl-
ur, loftsiglingafræði, veður-
fræði og vélfræði. Þetta próf
heimdlar manni að fljúga einn
hvert á land sem er og einnig
má fflugmaðurinn nú taka
farþega. Réttindim eru bund-
in við flugvélartegundir.
Til atvinnuflugprófs er
lágmarkið 200 flugtknar og
til þess þarf 2—3ja mánaða
námskeið, þar sem ítarlegar
er farið í somiu greinar og til
einkaflugprófs.
Blindflugsréttindin eru
mikiTvæg, en til þeirra þarf
bóklegt nám&keið og 40 tíma
flug, þar af um helminginn
á tveggja hreyfla véL
Þess skal getið, að ríkið
leggur ekkert fram til
mjenntunar flugmanna, þannLg
að nemendur verða sjálfir að
greiða sinn náimskostnað
allan. Flugmálastjórnin sér
hins vegar um próf og hefur
hönd í bagga með námsskrám.
Ætli flugnám það, sem hér
er talið, kosti ekki um 409
þúsund krónur. Að vísu er
auðvelt að vinna með þessu
námi, en erfitt er að fá vinnu
við flug hér á landi nú. Þar
eru margir kallaðir, en fáir
útvaldir.
Auk þess má svo geta þess,
að flugfélögim ráða yfirleitt
ekki til sín flugiraenn, nema
þeir hafi einnig tekið próf
sem siglingafræðingar og til
þess þarf 3ja mánaða nám-
skeið.“
Kaupmannahöfn
þriójudaga
miðvikudaga
fimmtudaga
k sunnudaga
Luxemborg
aila daga
Oslo
mánudaga
mióvikudaga
föstudaga
Beinn simi í farskrárdeild 25100
Einnig farpantanir og upplýsingar hjá ferðaskrifstofunum
Landsýn simi 22890 - Ferðaskrifstofa rikisins simi 11540 - Sunna sinn 25060 - Ferðaskrifstofa
ÚKars Jacobsen simí 13499 - Urval simi 26900 - Útsýn sími 20100 - Zoega simi 25544
Ferðasknfstefa Akureyrar simi T1475
Auk þess hjá umboðsmönnum
um aitt land
L0FTLEIDIR