Morgunblaðið - 01.11.1972, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMÐER 1972
Breiðaf jörður bezti staður
í heimi fyrir stórlúðuveiðar
— segir í brezka blaðinu
Angling Times
I SKJÓLI fyrir verstu stór-
viðrum úr þremur áttum, þar
sem hann skerst inn í íslenzka
meginiandið, liggur Breiða
fjörður. Munið efttr nafni
hans, þvi að liann hlýtur að
vera bezti staður i heimi til
stóriúðuveiða,
Á þessa leið hefst grein í
brezka blaðinu „Angling Tim
es“ 26. október sl. eftir Peter
Collins blaðamann, en blað
hans er gefið út í 150.000 ein
tökum og er ekki bara keypt í
Bretlandi, heldur einnig á
Norðurlöndum og annars stað
ar á meginlandimj.
Collins kom ásamt fHeiri fé
lögum sinium til íslands síðari
hiiuta september og reyndi þá
sj óstangaveiði bæði á Breiða-
firði og úti fyrir Grindavík. í
blaði sinu lýsir hann á lífleg-
an hátt veiðiferð inni á Breiða
firði. Fyrir utan Fremri-Lang-
ey fékk hann sitt stóra tæki-
færi. Feiknastór lúða beit á,
en henni tókst að slíta sig
lausa. — Ég verð að snúa aft
ur til Breiðafjarðar einhvem
timann síðar, skrifar Collins
síðar.
— FLskurinn, sem ég missti
af mun standa mér fyrir hug
skotssjónum unz ég get hrist
hann af mér. Og það er aðeins
unnt að gera á einn veg og
það er með þvi að veiða ann-
an.
— Við Rugum heimleiðis,
skrifar Collins ennfremiur,
sannfærðir um, að á Breiða-
firði fyrirfyndust beztu stór-
lúðumið í heimi, sem enn hafi
verið uppgötvuð. Þau eru þau
beztu, ekki aðeins sökum þess
mikla og góða fisks, sem vitað
er urn þar, heldur vegna þess
að fjörðurinn er grunnur og
auðvelt að veiða þar.
Þessi grein í Angling Times
kann að hafa veruleg áhrif í
þá átt að opna augu erlendra
sjóstangaveiðimanna fyrir
Breiðafirði og fleiri stöðum
við fsland, en Collins og þeir
félagar reyndu einnig fyrir
sér með árangri suður af
Grindavík, enda þótt veður
hefði reynzt óhagstætt þann
tima, sem þeir voru þar.
Stórlúðuveiðar við Bretland
eru sáralitlar, sökum þess hve
lítið er af þeim fiski í sjónum
þar í kring og því verða brezk
ir sjóstangaveiðimenn að leita
annað, ef þeir ætla sér að
verða virkilega fengsælir. Það
er þess vegna, sem vænta má,
að þeir muni í æ rikari mæli
sækja til fslands í von um
fengsælli mið þar í framtið-
inni, enda þótt Collins viður-
kenni, að þetta kunni að vera
dýr íþrótt sökum langs ferða
lags.
í Angling Times birtist 19.
okt. sl. einnig mynd af Sveini
Jónssyni, sjóstangaveiðimeist-
ara í Vestmannaeyjum með
lúðu, sem Sveinn veiddi
snemma í haust ekki fjarri
Bjarnarey. Lúða þessi var um
150 pund og tókst að innbyrða
hana eftir mikla og harða við
ureign, sem stóð í 40 minútur.
Fjórum sinnum stakk lúðan
sér, eftir að hún kom upp á
yfirborðið, en í fimmta sinnið
gat Bogi Sigurðsson, félagi
Sveins, sett ífæruna í hausinn
á henni. Myndina af Sveini tók
Sigurgeir I Eyjum, þegar ver
ið var að hífa veiðina upp á
bryggju, en Sveinn stendur
hjá með stöngina, sem hann
veiddi lúðuna á.
Þessl myna er ai opnunnl i Angling Times með grein Peter Collins. Fyrirsögn liennar er: „ís-
lendingar eru bandamenn okkar i stríðinu við lúðuna.“ Til liægri á opnunni má sjá mynd af
þeim Jóni Bjarna Þórðarsyni og Halldóri Snorrasyni, eftir að þeir hafa innbyrt 60 kg lúðu á
Breiðafirði.
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
S.V.G.
S.V.G.
AÐALFUNDUR
Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda verður haldinn
fimmtudaginn 2. nóvember nk. kl. 10.00 f. h.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum.
STJÓRIMIN.
KNÞ
KÓPASKERI
Nýjung í blómuræktun
Luwusu hydrokultur
Blómuræktun ún moldur
Plönturnar lifa ekki af sjálfri moldinni, heldur af þeim steinefn-
um og snefilefnum, sem leysast upp í vatni. Moldin sjálf er
aðeins akkerisfesta fyrir plönturnar.
I LUWASA blómaræktun er engin mold notuð, heldur ólíf-
rænt fylliefni, sem aldrei þarf að skipta um. Þessvegna verða
engar rótarskemmdir, en blómin ferskari og heilbrigðari. Minni
fyrirhöfn, meira hreinlæti og aðeins þarf að vökva 2. eða 3.
hverja viku.
Reynið sjálf:
LUWASA-blómapotta. LUWASA-fylliefni
og LUWASA-blómanæringu.
LUWASA HYDROKULTUR,
Karfavogi 54 — sími 34274.
Fáið yður fallegan Gossardhaldara.
- Póstsendum. -
t
Laugavegi 26. - Sími 15186.