Morgunblaðið - 13.12.1972, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.12.1972, Qupperneq 16
16 MORGÖNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1972 og hann komst að orði. En samt situr hann klukkutíma eftir klukkutíma á fundum í ríkisstjórninni og ræðir um að framkvæma enn eina geng isfellingu. Þess er raunar að gæta, að Magnús Kjartansson ber fulla ábyrgð á þeirri stöðugu fellingu gengisins, sem átt hefur sér stað sl. ár, því að hann tók um það ákvörðun, ásamt öðrum ráðherrum, að láta íslenzku krónuna fylgja Bandaríkjadal, sem fallið hef- ur stöðugt. En nú virðist STOLLINN ER MJUKUR, ÞOTT MAGNÚS ÞYKIST HARÐUR 0*g«f«ndt bt Árvokur, Roykjavlk PraTrtkvgemda&tjóri H«r»(«ior Sveins«on. Rltatfórar Mat#iías Johannessen, EyfóSfur Konráð Jónsson. StyTmír Gon.nersson. Guðmoncisson Björn Jóhaonason Ami Gar<3ar Kristineson. ASaistraeti 6, sími 10-100. Augíýsingar Aðafstræti S, sími 22-4-60 AskrrftargjaW 225,00 kr á Tnériiuði innonlaocte I Sausasöfu 15,00 Ikr ein-tffkið R K srtjórneríuWsrO i Fréttastjór. Auglýsirvgastjóri Rítstjórn og afgraiðsia au tíðindi gerðust á Al- þingi í gær, að Magnús Kjartansson, heilbrigðis- ráðherra, tók til máls við um- ræður um afbrotamál og flutti magnaða ræðu um það, að orsaka upplausnar og af- brota væri að leita til þess samfélags, sem við byggjum í. Sagði hann, að gengisfelling- ar á gengisfellingar ofan væru meginástæðurnar fyrir afbrotahneigð og upplausn í þjóðfélaginu. Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli á því, að í ríkisstjórn- inni væri nú verið að ræða tillögur um gengisfellingar og varpaði fram þeirri at- hugasemd, hvort svo kynni að vera, að þessi stóryrði heil brigðisráðherrans væru eitt- hvað tengd þeim viðræðum. Var það ekki að ófyrirsynju, því að flestum mun einmitt hafa dottið það sama í hug. En nú hefur sem sagt aðal- postuli kommúnista á íslandi lýst yfir því, að flest illt megi rekja til gengisfellinga á gengisfellingar ofan, eins Díkisstjórn Ólafs Jóhannes- sonar hefur verið í upp- lausn síðustu sólarhringa. Forsætisráðherrann lagði hann sem sagt ætla að reka af slyðruorðið. Hann segir umbúðalaust, að gengisfell- ingar séu mesta meinsemd þjóðfélagsins. Og væntanlega stendur hann þá ekki að einni gengisfellingunni enn. Og þó — við bíðum og sjáum hvað setur, því að stóllinn er mjúkur, þótt Magnús þykist harður. sjálfur fram í síðustu viku tillögur um lausn efnahags- vandans, sem byggðust á alls- herjar hækkun neyzluskatta í RIKISST J ORNIN í UPPLAUSN landinu. Þessum tillögum forsætisráðherra var hafnað af báðum samstarfsflokkun- um í ríkisstjórn. Lúðvík Jósepsson lagði fram skömmu fyrir helgi tillögu, sem fól í sér, að sett yrði tvöfalt gengi á krónuna, þ. e. dul- búin gengisfelling með því að setja 15% innflutnings- gjald á helming innflutnings. í fyrradag höfnuðu ráð- herrar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna einnig þess- um tillögum og lögðu til, að gengi íslenzku krónunnar yrði fellt um 15—16% og tek- in yrði upp svonefnd fljót- andi gengisskráning. Þessar tillögur SFV hafa verið túlk- aðar innan ríkisstjórnarinnar, sem úrslitakostir. Yrðu þær ekki samþykktar mundu þeir rjúfa stjórnarsamstarfið. Ráðherrar og þingflokkar stjómarflokkanna hafa setið á stöðugum fundum í gær og fyrradag og bárust fregnir um það í gærkvöldi, að fram- sóknarmenn hefðu sam- þykkt tillögu SFV um gengislækkun, enda þótt skýr ákvæði séu um það í málefnasamningi stjórnar- flokkanna, að ríkisstjórnin muni ekki beita gengis- lækkun við lausn efnahags- vanda og Ólafur Jóhannesson hafi margítrekað þá yfirlýs- ingu síðan. Hins vegar hafa kommún- istar átt sýnu erfiðara með að kyngja þessum bita enda vafalaust ekki þeim að skapi að láta Hannibal beygja sig með þessum hætti. Reiðióp Magnúsar Kjartanssonar í þingsölum í gær um að geng- isfelling á gengisfellingu ofan væri meginástæðan fyrir af- brotahneigð og upplausn í þjóðfélagin-u, er til marks um hugarástand þeirra Alþýðu- bandalagsmanna þessa dag- ana. Atburðir síðustu sólar- hringa sýna glögglega, að allt er á tjá og tundri á stjórnar- heimilinu. Forsæt-isráðherr- ann ræður ekki við neitt. Efna hags- og fjármál þjóðarinnar eru í upplausn, á meðan stjórnarflokkarnir dejla inn- byrðis. Hitt er ljóst, að ríkisstjórn, sem hefur gefið út skriflega yfirlýsingu um það, að beita aldrei gengislækkun til lausn ar efnahagsvanda, en hugleið ir nú þessa dagana að gera einmitt það, er búin að fyrir- gera rétti sínum til þess að sitja á valdastóli. Fyrir henni liggur ekkert annað en segja af sér. Þeir, sem um margra ára skeið hafa ásakað aðra fyrir að beita gengislækkun en hyggjast nú gera það sjálf- ir eftir öll stóru orðin eiga ekki annarra kosta völ, ef snefill af heiðarleik og sóma- tilfinningu er til í þeim. Það mun kom í ljós næstu daga, hvort Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra og samráð- herrar hans standa frammi fyrir þjóðinni og tilkynna að þeir hafi svikið skriflega gef- in loforð. Sigurður Haukur Guðjónsson: Barna- og unglingabækur FLUGFERÐIN TIL ENGLANDS Höfundur: Ármann Kr. Einars- son. Teikningar: Oddur Björnsson. Kápa: Max Weihrauch. tJtgáfa og prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Þetta er endurútgáfa sögunn- ar. Ámi, söguhetjan, hafði feng- ið það fyrirheit, að honum yrði boðið til stundardvalar í Eng- landi. Til þeirrar umbunar hafði hann unnið með afrekum sinum, sem sagt er frá í næstu bók á undan, Týndu flugvélinni. Ár- mann kann listavel að segja drengjum sögu, raunveruleikinn og draumheimar þeirra fallast i faðma og úr verða ævintýr hlað- in spennu. Bréf finnur ekki Hraunkot; söguhetjan þarf á enskukunnáttu að halda, sezt þvi á hné Magnúsar bónda; einn úti í löndum gengur Árni í þorskastríð við hóp drengja, sem vama honum vegar, vinnur og bjargar lífi foringjans; Ijós i glugga hrörlegs kiastala leiðir hann í safn gamalia flugvéla; gestgjafinn kennir honum flug- stjórn; í borgum fá strákar frethjól, en Ámi, hann fær flug- vél, aivöruvél. Ef höfund grunar, að logn verði of mikið í sög- unni, þá býður hann til leiks skuggalegum náungum, lætur einn skarta gullhatti, svo hrepp- stjórinn fái æfingu I að gæta réttar. Sagan hefir tekizt vel og sannarlega þess virði að koma á þrykk aftur. Það er aðall Ár- manns, hve vandvirkur hann er, hann lítur svo stórt á sig, að hann ber ekkert það fyrir les- endur sina, sem hann hefir ekki sannfærzt um áður að verði þeim til góðs, lyfti þeim, þroski. Ármann Kr. Einarsson Sögusviðið er þvi alltaf baráttu- völlur Ijóss og myrkurs, og svartur fellur. Fáir höfundar hafa svo barizt sem hann fyrir því, að barnabóka.höfundar yrðu viðurkenndir sem aðrir rithöf- undar. Sú var tíð, að allir þótt- ust geta hnoðað saman sögu fyr- ir börn, skildu ekki, að óvitur- legt er það að hef ja ræktun með því að sá arfa í garðinn. Því vandar Ármann verk sín, og þessi bók er dæmigerð fyrir vinnubrögð hans: Auðskilin, skemmtin, málið snoturt og hreint, fallegt útlit og bókin villulaus. Það verður gaman, þeg ar þetta á við flestar barna- og unglingabækur. Ég er mjög við- kvæmur fyrir orðum, sem mér virðast mögur og ekki setjandi á. Því hrökk ég við er ég fann á síðu 9: „ . . . babb í bátinn," og síðu 11: „ . . . sand af pening- um,“ en slíka hortitti fann ég ekki úr þvi, enda hæfa þeir Ár- manní ekki. Myndir Odds eru skemmtileg- ar, prýða bókina. Prentun og frágangur er til fyrirmyndar. Það væri gaman að fá að vita, hver prófarkales- arí útgáfunnar er, hann stendur fyrir sínu, ber af. Hafið þökk fyrir vel unnið verk. ÓGNVALDUR SKÍÐASKÁLANS Höfundur: Einar Þorgrímsson. Prentun: ? ÍJtgefandi: Bókaútgáfa Einars I’orgrímssonar. Þetta er í raun saga þriggja drengja, er halda með bekkjar- systkinum í heligarleyfi í skíða- skála sinn í nágrenni borgarinn- ar. Skálinn revndiist þeim þó ekki einum ætlaður, heldur biðu þeirra náungar þrir, sem ganga inn á sögusviðið sveipaðir skikkju lyginnar. Hríð lemur foldu, og fyrr en varir eru krakk amir komjnir i bráðan háska, reynt er að sviða einn, og eins og í öMum „söniium" sögum, þá eru byssur á lofti, t.þ.a.. auka skelfinguna. Ég hafði á tilfinningunni á meðan ég las bókina, að höfund- ur hefði verið dyggur hliustandi framhaldsþáttarins Nóttin langa, sem fluttur var í útvarpinu í sumar. Ég harma, að höfundur skuli senda þetta verk frá sér. Það voru þegar komnar frá hon- um tvær bækur og nú hefði hann mátt gefa sér tíma t.þ.a. íhuga þau spor, er hann stendur í. Ef hann ætlar að láta sér nægja að verða lélegur höfund- ur, þá bendir þessi bók á, að hann sé á réttri leið. Ef hann hins vegar gerir kröfur til að vera talinn efni í góðan höfund, þá bendir bókin á, að hann hafi villzt. Nú geri ég ráð fyrir hinu síðara og þvi segi ég við hann: Gefðu þér betri tíma. Láttu ekki fúsk nægja þér. Lestu góðar bækur, svo að still þinn taki framföruim. Rithöfundur þarf að lesa málfræði, kunna á henni góð skil, og útgefandi þarf að hafa í þjónustu sinni góðan próf- arkalesara, ef höfundur má ekki vera að þvi að læra stafsetningu meir en til sendibréfsgerðar. Sjálfsagt múntu reiðast mér, ef þú ert karlmenni, þvi að þetta eru hörð orð. Stilltu þig samt og ígrundaðu, hvort ekki væri rétt- ara að snúa reiðinni gegn þeirri lin'ku, er elur af sér svona skripi: „Þrátt fyrir myrkrið og hinna ógnvekjandi hugsana um Jón nokkru fyrr, þá brá nú svo við að ég var alls óhræddur." fbls. 52]. „Og jafnvei í mínum villt- ust ímyndunum hafði ég aidrei getað ímyn-dað mér, . . [bls. 65]. „Mig sárkveið fyrir því, sem beið okkur fram undan.“ [bls. 104]. „Tekið var að hvessa og þar sem æði ka-lt var í veðri, beit frostið olckur óþægilega í andlit- ið.“ (bls. 41]. Ég nenni ekki að tína meir til, orðuim mínum þarf ég vart að leifca fleiri stoða. Prentun bókari-nnar er góð, en hvar var hún prentuð? Útgáfu- árs er heldur hvergi getið. Enn: F-arðu hæ-gar. Vandaðu þig. Sættu þig ekki við undir- málsverk. Erlendur Jónssoi skrifar un Slysa- og unarskrá Steinar J. Lúðvíksson: Þrautgóðir á raunastund. Örn og Örlygur hf. 1972. Stundum ber svo við, að rit, mikii að vöxtum, koma fram á sjónarsviðið svo þegjandi og hljóðalaust, að þeim er tæpast gefinn gaumur. Svo má nánast segja um björgunar- og sjóslysa sögu þá, sem Steinar J. Lúð- víksson blaðamaður hefur verið að taka saman undanfarin ár. Fyrsta bindið kom út fyrir fjór- um árum, og hófst sagan með stofnári Slysavarnafélags Is- lands, 1928. Síðan hefur komið bók á ári, nú síðast fjórða bind- ið og nær til 1952. Þama er allt tínt til, sem heitið getur sjó- slys, hvort heldur gerist á skipi á hafi úti, við landsteina eða bryggju. Eða bara karl eða kona fellur út af hafnargarði af gáleysi eða viljandi. Frásagnirnar í þessum bókum sýna bæði mannlegan vanmátt og styrk, forsjá og fyrirhyggju leysi andspænis þeirri hrika- legu höfuðskepnu sem hafið er. Nokkur meiri háttar sjóslys hafa orðið Steinari að frásagn- arefni í þessu síðasta bindi, og hygg ég beri þar hæst tvo skips skaða og meðfylgjandi mann- tjón. Hið fyrra var, er vélbáturinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.