Morgunblaðið - 13.12.1972, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1972
fclk
í
frettum
STUNGIN MEÐ HNÍFI
Maður nokkur, sem vopnað-
ur var 30 sm löngum hndfi,
réðst á forsetafrú Fiiippseyja,
Imeidu Marcos, fyrir skömmu
og særði hana illilega. Frú Mar-
cos var að úthluta verðlaunum
1 almenningsgarði einum í Man-
ila, höfuðborg Filippseyja, þeg-
ar atburðurinm átti sér stað, en
þrátt fyrir lífverði frúarinnar,
sem brugðust skjótt við og
skutu á tilræðismanninn, náði
hann að stinga hana 10 sinnum
áður en hann féll dauður til
jarðar. Frú Marcos var í skyndi
flutt í sjúkrahús og skömmu
síðar var hún talin úr allri lífs-
hættu.
Imelda Marcos, sem er 43 ára
gömul, gegnir veigamiklu hlut-
verki I stjóromálum Filipps-
eyja og hún á marga vini, en
eirenig marga og slæma óvini.
1 kosningunum 1969 sigraði
Marcos með fleiri atkvæðum en
nokkur forseti hafði áður feng-
ið í sögu landsins. En sigurinn
var líka frú Marcos mikið að
þakka. Hún ferðaðist um hinar
sjö þúsund eyjar landsins í
þágu manns síns og vann hylii
flestra. En ekki voru allir sam-
mála um að Marcos ætti for-
setaembættið skilið og telja, að
frú hans eigi sökina á endur-
kosningu hans og reyna því að
koma henni fyrir kattamef.
Frú Marcos
Forsetann sjáifan áreita þeir
ekki, þótt einkennilegt megi
virðast.
Frú Marcos er illa leikin eft-
ir stungur árásarmannsins og
sauma verður 75 spor í hand-
leggi hennar, en andlitið slapp
við allar skrámur sem betur
fer, því að frú Marcos er fal'leg
kona, og áður en hún varð for-
setafrú var hún fegurðardrottn
ing FiJippseyja.
• ‘ l K v*/ LU^
Y s
... að leyfa
honum að eiga
sínar stundir.
>f
Sá atburður átti sér stað í
Seoul i Kóreu nýlega að eldur
kom upp á fjórðu hæð i sam-
býlishúsi einu í miðborginni,
þar sem popparar nokkrir voru
saman komnir á hljómdeikum.
Mikið fát kom á fólkið, þegar
eldsins varð vart, og sumir
ætluðu að kasta sér náður úr
gluggum hússins. Efst á mynd-
ireni til vinstri sjáum við Idtila
stúlku hanga í einum glxrgg-
anum.
Jane F'onda
í GIFTINGAR-
HUGLEIÐIN GUM
Kvikmyndastjarnan og írið-
arsinninn mikli, Jane Fonda,
sem um þessar mundir dvelst
i Noregi við upptöku á Brúðu-
húsi Ibsens, og Bandaríkja-
maðurinn Tom Haiyden opireber-
uðu trúlofun sína sl. laugar-
dag.
Tom og Jane hafa þekkzt í 6
mánuði, en þau kynntust ein-
mitt í kosningabaráttunni í
Bandarikjureum i sumar í ötulli
framgöregu sinni fyrir McGov-
ern.
Tom Hayden er 26 ára, fyrr-
verandi leiðtogi stúdenta innan
Demókrataflokksiins og reú með-
limur í friðarsamtökunum
Chicago Seven, sem gerðu óg-
HÆTTA Á NÆSTA LEITI - Eftir John Saunders og Alden McWiIliams
I'LL DO rr ON THE.
WAY OUT, FRIEND/
I QOTTA HOTTIP
FOR GLOBAL NEWS;
Ég lýk venjulega góðri máltíð með
vindll, Hope, ef þér er sama. Auð\ itað,
Brady, ég er hreykin af að þú skulir vera
ánægður. (2. mynd) Þar að auki mun ilm-
urinn af reyknum vera áfram og minna
mig á dásanilegt kvöld. (3. mynd) Heyrðu,
góði, eftir lokrenartíma eiga allir gestir
að slu á sig. Ég geri það, þegar ég kem
út aftrer, ég er með stórfrétt fyrir Global
News.
urlegan usía og olQu miklum
óspektum í kosningabaráttunni
í Bandarikjunum 1968.
Si. föstudagskvöid kom Jane
fram í norsfca sjórevarpinu og
sagði þá meðal anrears, að hún
væri staðráðim í því að halda
áfram baráttu sinni fyrir friði
í Víetnam og hún vítti Nixon
og stjóm hans fyrir að halda
stríðinu áfram.
Þessa dagana dvelst Tom
Hayden í Noregi hjá Jane
sinni, en kærustuparið hyggst
ganga í það heilaga í byrjrm
næsta árs.
-X
HÆTTI SNÖGGLEGA
Bandaríska leikkonan Rita
Hayworth, sem ráðin hafði ver-
ið í aðalhlutverk kvikmyndar-
inrear Tales that witness madn-
ess hjá World Film Services
kvikmyndafyrirtækinu i Lond-
on, hætti snögglega við að leika
í mynddmni, þrátt fyrir gerða
samninga. Kvikmyndafyrirtæk-
ið hefur kært leíikkonuna, þar
eð hún veldur þvi rniklu fjár-
hagslegu tjóni með framferði
sínu og hefur henni verið stefnt
fyrir rétt í London.
Forstjóri kvikmyndafyrirtæk
isins, Hemry Thomas, segir leik-
konuna hafa veikzt af infiú-
ensu og verið frá í nokkra
daga. En þrátt fyrir fullyrðingu
lækna um að hún væri fulltfær
til vinreu á ný, neitaði hún að
haldia leik sinuim áfram. í stað
Ritu hefur Kim Novak verið
femgin í hlutverkið. Rita hélt
heimleiðis til Bandaríkjanna á
mánudaginn.