Morgunblaðið - 17.12.1972, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.12.1972, Blaðsíða 1
„Danski hluthafabankinrí'. íslandsbanka lokað 3. febrúar 1930 Bankarádið leitar stuðnings Alþingis vegna óróa og orð- róms um fjárkreppu, sem magnast, einkum erlendis Bankastjórnin neyddist til að loka bankanum vegna yfirvofandi f jártöku Lokun ísíandsbanka hinn 3. febrúar 1930 varö eitt mesta og flóknasta pólitíska æsinga- mái þessarar aldar. Ákvörðun um lokun bank- ans var tekin af bankastjórninni, þegar fyrir- sjáanlegur var mikill fjárflótti úr stofnuninni, hlutabréf bankans höfðu lækkað stórlega í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og greiðslu- og skuldabyrði bankans vegna áfalla fyrri ára - utanaðkomandi og heimatilbúinna - hafði alveg lamað eðlilega starfsemi. Agbeiningur Þegar bankanum hafði verið lokað, leitaði stjórn hans strax til Alþingis um stuðning og urðu miklir flokkadrættir og illvígar deilur um framtíð bankans. Sjálfstæðismenn vildu láta ríkisstjórnina ábyrgjast nnstaeðufé banikiains ag veita honum aðra nauðsynlega bráða birgðalausn til áframhaldandi starfsemi í svipuðu formi. Framsóknarmenn vildu í fyrstu láta taka bankann til skiptameðferðar, en síðar lögðu þeir til að stofna úr rúst um Islandsbanka sjávar- útvegs- og verzlunarbanka — með rikisábyrigð á inn ‘æðufé. Alþýðuflokkurinn vildi láta bankann fara lönd og leið í skiptameðferð, en síðar breyttu þeir einnig afstöðu sinni. Eftir margra vikna deilur og að loknum miklum æsingaskrif um hinna pólitísku málgagna, var stofnaður á rústum hins „Danska hluthafabanka" Út- vegsbanki Islands h.f. með rík istryggðum innlánum og í raun að öllu leyti undir opinberri stjórn. SÖGULEGT AGRIP íslandsbanki var stofnaður mieð löguim frá 7. júrná 1902 ag síðar endumýjuð 10. nóv. 1905. Sig urður Eggerz. „Aöferö ræningja". Þann 2. febrúar fór bankaráð íslandsbanka fram á, við ríkis- stjórnina, að hún leitaði heimildar hjá Alþingi til þess að veita bankaniun nauðsynlegan stuðning. Þeirri málaleitan lýsir J.J. í Tímanum 8. febr. 1930. Myndin sýnir viðskipti bankaráðsfor- mannsins Tryggva Þórliallssonar við ríkisstjórnarformanninn Trý&gva Þórhallsson. Regiugerð um bankann var gef in út 25. nóvember 1903. Æðsta stjórn bankans var í höndum 7 manna fulltrúaráðs. Skipuðu það: Ráðherra landsins (síðar forsætisráðherra) Þrír þingkjörnir fulltrúar Þrír fulltrúar hluthafa. Fulltrúaráðið skipaði banka- stjórnina og ákvað hve fjöl- menn hún væri. Stofnend- Forsætisráðherrann, Tryg'gvi Þórhallsson. ur bankans kusu þó banka- stjórn til fyrstu 9 ára. Bankinn fékk einkarétt til seðlaútgáfu umfram litla upp- hæð, sem Landsbankanum var leyfð. Hann var því seðla- banki undir opinberri stjórn að meirihluta. Með heiti bankans var þessi staða hans sem opin- bers banka enn frekar undir- strikuð og auglýst út á við. Bankinn starfaði á þess- Dómsmálaráðherrann, Jónas Jónsson. Allt má hundraðfalda f febrúar 1930, þegar fs- landsbanka var lokað, var almennt verkamannakaup kr. 1.20 á klst. Nú lætur nærri að sama viðmiðun sé um kr. 120.00 á klst. Því er óhætt að hundraðfalda all- ar lokatölur skulda og inn- eigna sem minnzt er á í greininni, þ.á m. laun þau, sem þar eru nefnd. um grundvelli til 1921. Þá var hann kominn í verulegar krögg ur og var ráð við þeim vanda að rikissjóður veitti bankanum hið svokallaða „enska láin“ 1921. Var það 280 þús- und sterlingspund. Um leið voru enn aukin áhrif ríkis- stjórnarinnar á stjórn bank- ans. Seðlaútgáfu skyldi banik- inn smám saman hætta, unz leyfistíminn væri úti 1933. í samræmi við þetta var bank inn skyldaður til að draga inn seðla sína með 1 milljón króna árlega frá 1. október 1922, en þá var seðlaveltan áætluð um 8 milljónir. Fyrstu þrjú árin dró bankinn árlega inn 1 millj ón af seðlum sínum. En síðan treystist hann ekki til inndrátt ar um nokkurt skeið þar til haustið 1929 að hann dró inn 4. milljónina af seðlum sínum. Árin 1926—1927 varð mik- ill órói í kringum bankann og voru teknar úr honuim 6—7 millij ónir af innlánsfénu. Var mest af því fé lagt í Landsbankann. Fjárniálaráðherrann, Einar Arnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.