Morgunblaðið - 17.12.1972, Qupperneq 11
r>i
■-V A‘
O *
cva r c 7 '.7 < r
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 17. DESEMBJER 1972
43
Kryddað kökubrauð.
150 gr hunang
150 gr púðursykur
% dl vatn
50 gr smjör
1 tsk. engifer
1 tsk. kanill
rifinn börkur af 1 sítrónu
375 gr hveiti
1 Va tsk natrón
Hunang, púðursykur, vatn og
smjör soðið, kælt. Þá er krydd-
inu, sítrónuberki, hveiti og nat-
róni bætt út í. Kakan bökuð í
smurðu formi við vægan hita
(150°C) i u.þ.b. 1 klst. Þessi
kaka er borðuð með smjöri, og
bezt er hún eftir nokkurra daga
geymslu.
Kr.vddkaka með glassúr.
125 gr lint smjör
175 gr sykur
3 egg
250 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
2 tisik. kókó
2 tsk. kókó
1 tsk. kanill
Vz tsk engifer
rifinn sítrónubörkur
1 dl mjólk
Hrærið saman smjör og syk-
ur, eggjunum bætt í einu í einu.
Hveitinu með öllu kryddinu og
lyftiduftinu blandað saman við,
og mjólkinni á víxl. Kakan bök
uð i u.þ.b. 1 klst. við vægan hita.
Skreytt með alla vega lit-
um glassúr, svo má setja möndl-
U’’ eða rauð ber ofan á
L.íkjörs-kökur
100 gr rúsínur
3 matsk líkjör (t.d. Kirsch)
100 gr smjör
100 gr sykur
2 eggjarauður
150 gr hveiti
Rúsínurnar bleyttar upp í
líkjörnum, smjöri og sykri hrært
saman við, þá eggjarauðunum,
loks hveitinu. Sett með teskeið í
litla toppa á smurða plötu. Bak-
ist við góðan hita (200°C) í 10
mínútur.
Jólasiðir,
sælgæti
og skraut
á bls. 40,
41 og 42
Kenwood Chef
er allt annaS og miklu meira
en venjuleg hrœrivél
Engin önnur hrærivél býður upp á jáfn marga'
kosti og jafn mörg hjálpartæki, sem tengd eru
beint á vélina með einu handtaki. Kenwood Chef
hrærivélinni íylgir: skál, hraerari, hnoðari, sieikja og
myndskreytt leiðbeiningabók.
Auk þess eru flanleg m.a.: grænmetis- og
Svaxtakvörn, hakkavél, kartöfluhýðari, graenmetis-
og ávaxtarifjárn, dósahnífur, baunahnifur og afhýðari,
þrýstisigti, safapressa, kaffikvö'rn og hraðgeng ávaxta-
— gerir allt nema að elda.
VERÐ KR. 13.426,-
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
Theger Birkeland
KRUMMARNIR
Söguhetjan, Mads — kallaður Krummi, er tíu ára og býr
í lítilli leiguíbúð ásamt öðrum í Krumborgfjölskyldunni:
föðurnum, sem er kennari; móðurinni, sem er fóstra;
stóru systur (fimmtán ára) og litla bróður (á öðru ári).
Krummarnir er fyrsta bókin í bókaflokki eftir kunnan
danskan barnabókahöfund, Th0ger Birkeland. Hann
hefur hlotið bókmenntaverðlaun danska menntamála-
ráðuneytisins — en mesta viðurkenningin er sívaxandi
vinsældir hans meðal yngri lesenda. Bókina, sem er í
ágætri þýðingu Skúla Jenssonar, prýða margar heil-
síðumyndir eftir velþekktan teiknara, Kirsten Hoffmann.
Kjörbók fyrir 9-14 ára.
STEINHOLT
Bíll til sölu
Vel meðfarinn VOLVO P 144 1967.
Til sýnis og sölu í dag kl. 1—4 að Móaflöt 47,
Garðahreppi, sími 42395.
Ath.: Pípulogningar. Jól
Nú er rétti tíminn til að breyta eða bæta. Setjum upp hrein-
lætistæki, þéttum allar gerðir leka. skiptum um ofnakrana,
jafnvægisstillum hitakerfi, og margt fleira.
ATH. Aðeins fagmenn vinna verkin fljótt og vel.
Upplýsingar eftir kl. 1 e.h. í síma 20671 — 35727 — 33629
K.S.G. — Geymið auglýsinguna.
Mötuneyti
Óskum að taka á leigu sem fyrst hentugt húsnæði
fyrir 70—80 manna mötuneyti. Til greina kæmi eld-
hús ásamt geymslum.
Upplýsingar í síma 32270.
ÞÓRISÓS S/F.
ÉG ELSKA AÐEINS ÞIG er eftir BODIL
FORSBERG höfund bókanna „Vald óst-
orinnar'*, „Hróp hjarfons" og „Ást og
ótti“. Hrífandi og spennandi bók um
ástir og örlagabaráttu.
f ELDLÍNUNNI er enn ein snilldarbókin
eftir FRANCIS CLIFFORD, höfund mef-
sölubókanna „Njósnari á yztu nöf“ og
„Njósnari í neyð". Þessi bók hlaut 1.
verðl. „Crime Writers' Association" T969
HÖRPUÚTGÁFAN