Morgunblaðið - 17.12.1972, Blaðsíða 18
err.
MOBGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 17. DESEMBBR 1972
. V.
KflTT CR UÍTI lOllfl
i:v.i:*x
Komn þru scnn
Jólasiðir
í ýmsum
löndum
Betlehemstjarnan er sameig-
inlegt tákn jólanna meðal krist-
inna manna, þar fyrir utan rík-
ir eiginlega sinn jólasiðurinn í
landi hverju.
1 Þýzkalandi og Austur-
riki boðar aðventukransinn,
með sínum 4 kertaljósum, sem
kveikt er á einu í einu fjóra
sunnudaga í jólaföstu, komu jól
anna.
Meðal kaþólskra manna
í Frakklandi, Italíu, Spáni, Suð-
ur-Ameriku og víðar, er tákn
jötu með Jesúbarninu í það ein-
kenni, er setur mestan svip á
jólin. Um allan heim eru sigræn
tré og runnar tákn eilífs lífs. 1
suðlægum löndum eru þessi tré
oft flutt inn með ærnum tilkostn
aði, svo þau megi prýða híbýli
manna á þessari hátíð.
Ljósadýrðin, sem einkenn-
ir jólahátíðina, gæti átt rætur
sinar að rekja til þess að þetta
er einmitt á þeim tima, þegar
vetrarsólstöður eru, og til forna
var haldin hátið, þegar sólar-
gangur og dagur varð lengri.
Auk ljósa og annars skrauts
á jólatrjám í Sviþjóð, eru strá-
geitur og tréhestar mikið notuð.
I Þýzkalandi eru þunnar smá-
kökur á jólunum og táknuðu
þær upphaflega „oblátuna". 1
Belgíu og Hollandi fyllir St.
Nikulás skó góðra bama með
sæigæti og leikföngum, en skil-
ur aðeins eftir vönd hjá
óþekku börnunum. Gömul kona,
La Befana, kemur með gjafir
handa góðu böraunum á Italíu
á þrettándanum, 6. janúar,
ár hvert. 1 Danmörku og Noregi
koma jólasveinar (Nisse) með
gjafirnar. Á Spáni eru það vitr
ingarnir, sem koma með gjafir
til þeirra bama, sem sett hafa
út tuggu handa hestum þeirra,
þegar þeir halda aftur til Betle-
hem á þrettándakvöld. Jesúbara
ið og englar þess íæra börnum
í Þýzkalandi og Austurríki gjaf
irnar. í Mexico verða börnin að
hafa fyrir þvi, með bundið fyrir
augu, að slá með priki í skraut-
lega leirkrukku (pinata), sem
hengd er upp í loftið. Þegar
krukkan brotnar, dettur út úr
henni sælgæti og gjafir.
Og á íslandi höfum við Grýlu,
Leppalúða, jólasveina og jóla-
kött. Griskar húsmæður baka
köku mikia og skreyta til að
íagna fæðingu frelsarans. Kall-
ast það brauð Krists eða
„Christopsomo". í Frakklandi er
farið að baka langa köku í stað
„buche de Noél“, sem bakað var
í opnu eldstæði. „Turrón", sæl-
gæti úr núggat eða hnetum, er
eitt af því, sem setur svip á jói-
in á Spáni. Og I Austurríki á
aðfangadagskvöld, borða allir
fisk sem aðalrétt.
IERA
SA8479A Hi-Fi stereo plötuspilari
SA61T186 Sjónvarpstæki
SA 5929 A 2X30W Hi-Fi stereo magnari
Seríuperur - Litaðar Ijósaperur
SA 9118 AT Kassettu-segulbandstæki
t rafhlöóur eða 240V.
Ett elzta og virtasta gæðamerki
Njómfiutningstækja á markaðinum
RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVlK • SlM118395
MAGNUS E. BALDVINSSON
Laugavegi 12 - Stmi 22804
bUixaaln
Brnþörujtitu .1. Slnur 19032, 20. . %
Svissneskt úrvals úr
BQJÚN BiBRNASON
ÚRSMfOUR • AKUREYRi