Morgunblaðið - 20.12.1972, Síða 11
MbltGtntónAÐlf), MlÐVTKtrbA’GUR 20. DEfeEMBER 1972
II
*
RÆTT VIÐ VERKAMENN,
SJÓMENN OGIÐNAÐARMENN
Við brugðum okkur niður »ð
höfn i gær og leituðum álits
verkamanna, sjómanna og iðn-
aðarmanna á g'engislækkun rik-
isstjómarinnar og efnahagsað-
gerðunum yfirleitt. Sá fyrsti
sem við spurðum var hafnar-
verkamaður. Hann svaraði að-
eins: „Fjandinn hirði þá", svo að
við lögðum ekki í að spyrja hann.
Annars höfðu menn yfirleitt á-
kveðnar skoðanir í þessu sam-
bandi og fer hér á eftir álit
þeirra tólf, sem við hittum að
máli.
Þá á verkalýðshreyfingin sjálf
stórcin þátt í þessari vitleysu og
ber ábyrgð á. Maður veit t.d.
ekki hvort Björn Jónsson er að-
eins fulltrúi verkalýðsins á Akur
eyri, eða fulltrúi Alþýðusam-
bands íslands, eða þingmaður.
Forsvarsmenn. verkafólks taka
orðalaust öllum þeim ósóma sem
að því er rétt. Annars held ég
að þessi ríkisstjóm sé eitthvað
það allélegasta sem fram hefur
komið. Hún hefur algjörlega
brugðizt og mishikkazt og þeir
se<m gáfu okkur kosningaioforð-
in hafa algjörlega brugðizt.
séu almennt mjög reiðir og
svekktir.“
„Komnir í vasana okkar
aftur"
Sigurður Ólafsson, rafsuðumað
ur:
„Ætli það sé ekki sama hvað
gert er, það lendir á breiðu bök-
unum, almenningi í landinu. Ég
átti ekki von á gengisfellingu á
sama tíma og afli er sæmilegur
og fiskverð hækkandi og allt á
uppleið. Ríkisstjómin hefur hins
vegar ætlað sér of mikið með
Þorsteinn Hauksson, Kristján Óiafsson og Jón Ragnarsson.
„Fastir í eigin fordæmingu“
Þrjá iðnnema i vélvirkjun hitt
um við allvígalega í samfesting-
um niðri á bryggju, en þeir voru
að vinna þar. Við röbbuðum við
þá hvern og einn, en smelltum
siðan mynd af þeim saman:
Þorsteinn Hauksson, iðnnemi:
„Mér finnst þessi stjórn hafa
gengið á bak orða sinna, virki-
lega. Hún hefur ekki svo lítið
fordæmt það sem hún hefur nú
sjálf setzt i.
Ég tel éinnig að enginn grund-
völlur sé fyrir þessum aðgerðum
miðað við það góðæri, sem ver-
ið hefur í landinu. Slíkar að-
gerðir sanna aðeins óskapleg mis
tök og handvömm í þeirri stefnu
sem vailin hefur verið."
„Handahófskennd vinnu-
brögð, brölt og fálm“
Kristján Ólafsson, iðnnemi:
„Mér finnst þetta, sem kallað er
ríkisstjórn, ekki bera keim af
þvi að vera stjórn verkalýðsins.
Svo harkalega hefur hún gengið
á hlut almennings í landinu síð-
an hún tók við, því það er ekki
nóg að veifa tómum silfurbakka
til lengdar. Þessi stjóm hefði
mátt fara í læri hjá fyrri ríkis-
stjóm.
Það er heldur enigan veginn
traustvekjandi það sem þeir eru
að gera núna, því það liggur
ekki ljóst fyrir hvort þessar
aðgerðir dugi við þeim vanda
sem þeir hafa skapað með þeim
handhófskenndu vinnubrögðum,
brölti og fálmi, sem hefur ein-
kennt stjórnina. Stjórnin er þó
búin að sanna að lengi getur
vont ve.rsnað.“
„Sá allúalegasti í ríkis-
stjórninni er?“
Jón Ragnarsson, iðnnemi:
„Þessi ríkisstjórn hefur á marg
an hátt komið á óvart, en hún
er alla vega búin að afsanna mál
tækið um að illt sé að kenna
gömlum hundi að sitja. Þetta eru
þeir búnir að gera með því að
draga Magnús Kjartansson og
Ólaf Jóhannesson út í þessar að-
gerðir.
Magnús Kjartansson hefur allt
af verið ákaflega harðorður og
óvæginn í dómum um menn og
fordæmingum, en nú hefur hann
skilað sér svart á hvítu. Hann
situr uppi með mestu skömmina
og er sá allúalegasti af þó óásjá
legu stjómarliði.
Það er einnig slakt að stjórn-
arandstaðan hefur ekki verið
nærri nógu hörð við ríkisstjórn-
ina og t.d. átti hún að bera fram
vantrauststillögu strax og hún
sá hvert stefndi."
„Afleiðing óráðsíu
vinstri stjórnarinnar“
Gísli Víglimdsson, verkainað-
nr:
„Ég hef aldrei haft álit á þess
ari ríkisstjórn og þessar aðgerð-
ir, sem hún er nú að gera undir
strika það álit mitt.
Gísli Víglundsson.
Ég er á móti gengislækkunum
númer eitt, en hins vegar getur
sú aðstaða skaipazt af óviðráðan-
legum ástæðum á alþjóðavett-
vangi að hún sé óhjákvæmileg.
Þessi gengislækkun er hins veg-
ar eimgöngu tál koimin ve,gna ó-
ráðsíu vinstri stjómarinnar og í
rauninni er þetta kóróna vitleys-
unnar ofan á allt annað í þvi
efni hjá rikisstjórninni.
Mér heyrist einnig að menn
hreinni óstjórn. Hún þarf nú að
fara aftur i vasana hjá okkur og
taka riflega það sem áunnizt
hafði. Ég held að þessar aðgerð
ir hefði ekki þurft að gera með
stjóm á hlutunum. Að lifa um-
fram efni, það er það sem þessi
ríkisstjóm hefur gert. Og það
er ekki mannsbragur á því, þar
sem það á ekki að vera tálviljun
hverjir fara með stjóm lands-
málanna".
Sigurður Óiafsson.
. Kosni ogaloforðin svikin“
Sigurður Jónsson, sjómaður og
Sveinbjörn Kristmundsson, sjó-
maður:
Sigurður: „Ætli þessar ráð-
stafanir hafi ekki verið það eina,
sem kom tM úr því sem komið
var. Annars átti maður ekki von
á gengislækkun og þeim aðgerð-
um sem ríkisstjornin hefur á-
kveðið vegna þeirra kosningalof
orða sem hún gaf fyrir síðustu
kosningar. Þau hafa verið svik-
in“. .
Sveinbjörn: „Þessar aðgerðir
eru ekki í samræmi við yfirlýsta
stefnu. Það er betra að vita
hvað báðar hendurnar eru að
gera“.
„Búið að snúa plöíuruni við“
Guðmundsson, vélvirld:
„GengisfeMing er nú ekki nein
ný bóla, en ég var ekki farinn að
gera mér I hugarlund hvemig
ástandið var orðið á þessum trm
um sem allir hafa það svo gott.
Það er hins vegar aldrei sama
lagið á einni grammófónplötu
og nú er ríkisstjómin búin að
snúa við og laetur lagið hinum
megin hljóma og það hlýtur að
vera neðri hliðin úr þvi að hún
er byrjuð hinum megin.“
Stefán Guðjónsson.
..Ekki traustvekjandi
aðgerðir"
Stefán Guðjónsson, verkamað-
ur:
„Þessar aðgerðir koma harð-
ast niður á bammörgum fjöl-
skyldum og gömlu fólki. Maður
átti von á einhverjum aðgerðum
úr þvi sem komið var, en hvar
em nú breiðu bökin í þjóðfélag-
inu?
Undirstaða þjóðfélagsins eru
atvinnuvegirnir og þeim verður
að halda við, en ekki get ég sagt
að þessar aðgerðir séu traust-
vekjandi og ég held að þeir hafi
átt að reyna öll önnur ráð en að
hrófla svo við genginu á góðæris
timum, þegar utanaðkomandi á-
hrif trufla okkur ekki. Hvers
eiga lika sparifjáreigendur að
gjalda, þar sem ríkið hirðir
allt?“
Ólafur Guðmundsson.
„Óvænt ráðstöfim vegna
fordæmingarinnar“
Ólafur Guðmundsson, verka-
ruaður:
„Maður hefur nú alltaf heyrt
að gengislækkun væri slæm.
Ekki átti ég þó von á gengis-
lækkun nú vegna fordæmingar
aðila ríkisstjómarinnar á þeim
vinnubrögðum. Annars heid ég
að fólk hafi það gott ef það hef-
ur nóg að gera“.
Axd Þorkf-isson.
-Ekki gwtt að aegja um
baeturaar“
Aael Þorkesson, stýrimaður:
„Maður gerir sér ekki grein
fyrir þessu ennþá. Það er ekki
gatt að segja hvort þetta er
til bóta eða leysir erfiðleikana
hjá útgerfkrmi, en ailavega rétt-
ir þetta ekki hlut sjómanna".
Sigurður Jónsson og Sveinbj örn Kristmundsson, sjómenn.
Siffuróur Gunnarsson.
JMtt fyrir yfirlýsingarnar“
Sigurður Gunnarsson, verka-
maður:
„Þetta er víst orðið tizkufyrir-
brigði. Þeir virðast ekki geta séð
nein önnur ráð þrátt fyrir yfir-
lýsingamar úr öMum áttum“.