Morgunblaðið - 20.12.1972, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.12.1972, Blaðsíða 16
«4 16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1972 Otgefonch' W Árveíkur, fteyíojavfk Pramkveemdastjóri Hair&Wur Sveinsson. flftstjórar Mattihías Johannessen, Eyjóífur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnorsson. Rftstfórnarftííltriúi Þwrbjónn Guðmrundsson. Fréttasíjóri Björn Jóihannsson. Augíýsingá&tjdri Árni Garðar Kristinssoo. Rltstjóm og aifgraiðsla AðaJstræti 6, sfmi 10-100. Augiýsingaj Aðakrtrtetí 6, sfmi 22-4-80 Askriftargjafd 225,00 kr á mémiuði innanlonds I teusasölu 15,00 Ikr eintakið. j?yrir nokkrum dögum lýsti * Ólafur Jóhannesson, for- sætisráðherra, yfir því á Al- þingi, að ekki hefði verið þörf á að beita gengislækk- un vegna þess vanda, sem við hefði verið að etja í efna- hagsmálum, þegar ríkis- stjórn hans tók við völdum. Þar með liggur fyrir skýlaus staðfesting ráðherrans á því, að gengislækkun sú, sem nú- verandi ríkisstjórn hefur framkvæmt, á sér engar ræt- ur í efnahagsstjórn Viðreisn- arinnar. Þetta er ánægjuleg viðurkenning hjá forsætis- ráðherra og í sjálfu sér lofs- vert, að hann skuli þó stað- festa þetta. Þegar Viðreisnarstjórnin framkvæmdi gengislækkun haustið 1967 var það vegna þess. að sterlingspundið var fellt og öllum ljóst, að sú gengislækkun hafði svo mik- il áhrif fyrir okkur, að ekki var annarra kosta völ. Þegar sama ríkisstjórn felldi gengið haustið 1968 hafði verðmæti útflutningsafurða minnkað um nær 50% vegna verð- hruns og aflabrests. Þá töldu núverandi stjórnarflokkar, að 50% minnkun útflutnings- verðmætis væri ekki nægi- leg ástæða fyrir gengis- lækkun. Nú er ljóst, að útflutnings- verðmæti sjávarafurða eykst á þessu ári um 1,5%, en minnkar ekki. Samt sem áð- ur er því haldið fram, af sömu mönnum og töldu haustið 1968, að ekki væri þörf gengisbreytingar vegna nær 50% minnkunar út- flutningsverðmætis, að nú sé þörf gengisbreytingar, þegar útflutningsverðmætið eykst en minnkar ekki. Þessi rök- semdafærsla stenzt ekki. Gengi íslenzku krónunnar er fellt nú, ekki vegna er- lendra gengisbreytinga, ekki vegna verðhruns og afla- brests, ekki vegna þess að vinstri stjórnin hafi tekið við svo slæmu búi frá Við- reisnarstjórn, heldur vegna heimatilbúins verðbólgu- vanda ríkisstjórnarinnar sjálfrar. í viðtali við Þjóð- viljann í gær játar Mágnús Kjartansson þetta, er hann segir, að gengislækkunin sé staðfesting á því, að ríkis- stjórnin hafi ekki ráðið við verðbólguna. Þá vaknar sú spurning, hvort þessi g'engislækkun nægi til þess að leysa þann vanda, sem við blasir. í við- tali við Morgunblaðið í gær sagði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ: „Mér virðist þessi gengisbreyting jafn- gilda tekjuauka hjá sjávarút- veginum, sem nemur þeirri upphæð, sem nú er greidd úr verðjöfnunarsjóði fiskiðn- aðarins, þ.e. eftir 1. október sl. Ég fæ því ekki séð, hvern- ig á að mæta þeim hækkun- * um á rekstrarkostnaði, sem gengisbreytingin veldur, né hvernig á að jafna þann halla, sem fyrirsjáanlegur var á næsta ári að óbreyttu gengi.“ Þetta er mat Kristjáns Ragn- arssonar, sem gjörþekkir málefni útgerðar og fisk- vinnslu. En fleiri eru á sama máli og Kristján Ragnarsson. Sjálfur iðnaðarráðherrann, Magnús Kjartansson, 'segir í Þjóðviljanum í gær: „Það er augljóst mál, að þessi geng'- islækkun er aðeins frestun á lausn verðbólguvandans. Hún leysir vanda útflutningsat- vinnuveganna um skeið, en eftir tiltekið tímabil stönd- um við andspænis hliðstæð- um vandamálum á nýjan leik.“ Það er því ljóst, að gengis- lækkun vinstri stjórnarinnar er heimatilbúin. Hún leysir engan vanda nema í stuttan tíma, og þar að auki er hún framkvæmd af mönnum, sem allir upp til hópa hafa gefið þjóðinni hátíðleg fyrirheit um, að þeir mundu aldrei fella gengið. Þessi ríkisstjórn á aðeins einn kost, þann að segja af sér, rjúfa þing og efna til nýrra kosninga og gefa kjósendum þar með færi á að leggja dóm á verkleysi henn- ar og svik. Þótt hún kunni að hafa nægilega mörg at- kvæði á Alþingi til að fella vantrauststillögu sjálfstæðis- manna er ljóst, að sú van- trauststillaga hefur þegar verið samþykkt af yfirgnæf- andi meirihluta þjóðarinnar. RIKISSTJORNIN A EINN KOST - AÐ SEGJA AF SÉR Steinþór Gestsson, alþm.: Alþingi verður að fjalla niðurskurð fjárlaga um Óeðlilegt að ríkisstjórn taki einhliða ákvarðanir um það Allar þær leiðir, sem val- kostanefndin telur koma til greina að fara til lausne.r efnahagsvanda sem nú- verandi rikisstjórn hefur skapað, gera ráð fyrir þvi að lækka beri opinber útgjöld og útlán um 1300—1700 millj. kr. og er þá alveg sama, hver leiðin valin er, hvort það er uppfærsla, niðurfærsla eða millifærsla. Það kom fram í ræðu Halldórs E. Sigurðsson ar við 2. umræðu fjárlaga, að í framkvæmdaáætlun, sem lögð v&r á borð hjá alþingis- mönnum nýlega, hefði verið gert ráð fyrir því að draga úr þeim upphæðum, sem ætl- að var að framkvæma fyrir á árinu 1973 í samræmi við til- lögur valkostanefndar. Þegar tillit er tekið til þess þá minnkar það fjárlagavand- ann frá því, sem gert er ráð fyrir í tiliögum valkosta- nefndar úr 1300—1700 millj., að hversu miklu leyti veit ég ekki. I>að verður fjármálaráð- herra að upplýsa áður en lengra er komið afgreiðslu fjárlaga. En rilavega er sá vandi, sem leysa verður með niðurskurði á fjárlögum, gróf lega mikill. Og það er hér um svo geypilega röskun að ræða frá því, sem áform hafa verið um hjá ríkisvaldinu til þessa, að ég tel það fullrar athygli vert. Það er óeðlilegt ef Alþingi fær ekki að segja sitt álit um þetta stórfellda fráhvarf frá - fyrri áætlunum og lagasetningum eða sýnist mönnum sú aðferð eðlilegri að haga málum eins og gert var á þessu ári, þegar rikis- stjórnin ákvað það einhliða og ákvað það sjálf, hvernig niðurskurður á framkvæmd- um skyldi koma niður. Ég held þvi hiklaust fram, að sá niðurskurður hafi verið gerð ur af fullkomnu handahófi og þótt sá niðurskurður, sem gerður var á þessu ári og við höfum fregnir r.f, nemi ekki rheiru en 174,6 millj. kr. þyk- ir mér hann í fyllsta máta koma óeðlilega rtiður. Og mig furðar það stórlega, að þeir menn, sem áður í stjórnar- andstöðu, efndu til stórum- ræðu um aðgerðaleysi stjórn valöa í uppbyggingu heil- brigðisþjónustunnar á ölium stigum hennar og átti það jafnt við um aðstöðu og að- búnað héraðslækna úti á landi og byggingu sjúkrahúsa og fæðingarheimila, að þeir skuli nú sjálfir sitjandi í stól- um ráðherra treysta sér til að skera niður fjárveitingar til þessara mál&flokka um 71 millj. kr. á fyrsta stjórnarári sinu. Þetta hefur þó gerzt. Þá hafa og, eins og þegar hefur verið upplýst, ver- ið skornar niður fjárveiting- ar til menningar- og mennta- mála um 75 milljónir króna og hefði ég haldið, að það hefði a.m.k. ýmsum þeim mönnum sjálfum, sem nú styðja ríkisstjórnina þótt fyr irsögn, að það skyldi nokk- urn tíma geta hent þeirra stjóm að draga úr framlög- um til menntamála, sem mjög þótti skorta á um framiög til þeirra' málaflokka, meðan viðreisnarstjórnin var við völd. Hið sama er að segja um hafnarframkvæmdimar. Þær eru skornar niður um 27,9 millj. kr. á árinu, og ég verð að segja það, eftir að hafa kynnt mér það sérstak- lega hvernig og hvar sá nið- urskurður kom niður, að hann er fullkomlega af handa hófi gerður og það virðist vera gersamlega undir þvi komið, hversu fljótir og fjár sterkir þeir aðilar hafa ver- ið, sem framlaganna áttu að njóta, hvort þeir gátu farið seint eða snemma í fram- kvæmdirnar, hvort niður- skurðurinn átti sér stað eða ekki. Þetta tel ég með öilu ósæmilegt og óeðlilegt. Og ef þarf að fara að skera niður fjárlaga-fjárveitingar, þá er það sjálfsagður hlutur, að A1 þíngi fjalli um það, en ekki ríkisstjómin ein. Eins og ég gat um, þá hníga allar tillögur valkosta- nefndarinnar að því, að til framkvæmda komi lækkun á opinberum útlánum og út- gjöldum. Þegar þetta er vitað á sama tíma og Alþingi fjall- ar um fjárlagafrv. segir það sig sjálft, að þingið hlýtur að fjalla sjálft um þær breyt ingar, sem vænt&nlega þarf að gera á fjárlagafrv. til þess að efnahagsaðgerðimar nái tilgangi sínum. Ég legg á það höfuðáherzlu, að sú reynsla, sem fengizt hefur á yfir- Steinþór Gestsson. standandi ári af því &ð fá rík isstjórninni sjálfri í hendur ákvörðun og vald til þess að breyta fjárlögum og ákvarða hvar lækkun útgjalda skuli kom& niður, sýni það og sanni, að þar hefur ráðið meiru hending en bein hugs- un. Og í fjölmörgum tilvikuim virðist það hafa ráðið úrslit- um hvort áfangi verks var hafinn seint eða snemma á liðnu sumri. Niðurstaða mín er sú, að ekki verði með neinu móti gengið endanlega frá fjárlagagerðinni, nema ákveðin efnahagsmálastefna fyrir næsta ár verði mótuð og felld að frv. Álit valkosta- nefndar mun eiga að vera leiðarvísirinn í þessum efnum fyrir hæstvirta ríkisstjóm og fyrr en hún hefur tekið slna ákvörðun um valkosti, verð- ur með engu móti haldið lengra áfr&m við gerð fjár- laga og vafalaust verður að vinna frv. upp að nýju, um- reikna það til samræmi.s við þá leið sem endanlega verður valin. Það er mikið verk og verður ekki hrist fraim úr erminni í einu vetf&ngi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.